7.9.06
Ég er flutt með allt mitt hafurtask!

Nýja slóðin mín er http://hafdisosk.wordpress.com

Eftir nokkra daga set ég flutning á síðuna yfir á þá nýju. Þangað til getið þið breytt tenglunum ykkar, favorites og öðru slíku!

Hlakka til að sjá ykkur á nýrri og betri síðu!

Nýja síðan er í boði Sigurjón.com!
blog.sigurjon.com - hressar frásagnir, myndir, stuð og stemmning! ;)

Hafdís skrifaði klukkan 2:09 e.h. |


3.9.06
Guten tag,

Ansi hreint góð helgi að renna sitt skeið! Ég var í fríi nánast ALLA helgina og það hefur ekki gerst í ansi langan tíma! Svakalega ljúft og gott að geta sofið út og hvílt sig. Það var orðið soldið langt síðan ég naut þess að gera nákvæmlega ekki neitt!

Við fórum reyndar í matarklúbb á föstudaginn. Það var auðvitað heilmikið stuð þar eins og vanalega! Mikið spjallað hlegið og vitleysast! Auðvitað litu nokkrar priceless myndir dagsins ljós eins og vaninn er þegar við sexmenningarnir hittumst! Við borðuðum að sjálfsögðu á okkur gat að því tilefni og fyrir vikið varð enginn neitt sérstaklega drukkinn. Ansi erfitt að finna á sér þegar maður er búinn að borða yfir sig! Rakel er bara OF góð að búa til pizzu og allar hjálparhendurnar gerðu þetta ekki verra...
Við fórum svo niður í bæ í smástund. Komumst þó fljótt að því að við vorum að hækka meðalaldurinn ansi mikið með því einu að vera á svæðinu! Einhver gaur hellti heilum bjór yfir Rakel þegar hún labbaði inn á fyrsta staðinn og því dó stemningin fljótt út! Við fórum því bara snemma heim eins og gamlingjum er von og vísa! Samt sem áður frábært kvöld í góðra vina hópi!

Í gærkvöldi fór Sveinbjörn á endurfundi hjá sínum árgangi í versló! Á meðan naut ég samvista varakærastanna minna tveggja, Bjögga og Bergs. Það var auðvitað svaka stuð hjá okkur þar sem kvöldið einkenndist þó aðallega af áti, áti og spilamennsku! Jóhanna leit svo á okkur í lok kvölds þegar Bjöggi var búinn að rúlla okkur Berg upp í Catan og ég var búin að sýna þeim hvernig maður spilar Scrabble! Bergur er náttúrulega dauðadæmdur í því spili en Bjöggi var ansi efnilegur! Okkur var samt eiginlega enn illt í maganum eftir allt átið um miðnætti og vorum öll líka ansi þreytt. Bjöggi var reyndar líka kominn með leiðindakvef og eiginlega bara orðinn veikur greyið! Hann var því sendur heim á meðan við hin höfðum það gott upp í sófa og spjölluðum fram á rauða nótt! Ég sótt Sveinbjörn svo á endurfundina og við fórum að sofa. Naut þess að sofa til 11 og er búin að hafa það gott upp í sófa í dag. Ansi notalegt að geta horft á Gullmót á skikkanlegum tíma og að geta bara legið upp í sófa og undirbúið sig fyrir átök vikunnar þegar skólinn byrjar og vinnan heldur áfram!

Veit ekki hversu auðvelt það verður að vakna kl.rúmlega 7 í fyrramálið til að mæta í skólann kl.8. Það verður líka soldið skrýtið að geta ekki lengur labbað í skólann og kíkt heim á milli tíma! Erfitt að vera nauðbeygður til þess að vera í skólanum frá 8.20 á morgun og til 17. En ég er nagli og hlýt að hafa það af!

Annars hefur ekkert djúsi gerst seinustu daga!
Rakel og Himmi eru að fara til Danmerkur í fyrramálið og koma ekki aftur fyrr en um jólin. Ég ætla að næla aðeins í rassgötin á þeim í dag til að kyssa þau smá áður en þau fara og lýsa yfir söknuði mínum! Sem betur fer eru þau á seinna ári af tveimur og því styttist í að þau flytji aftur til mín :)

Annars er bara allt við sama heygarðshornið?

Hvernig hafið þið það?

Hafdís skrifaði klukkan 4:04 e.h. |