27.9.04
Ég er að hugsa um að hætta þessari vitleysu.
Mér finnst tími til kominn að setja seinasta punktinn.
Ég er búin að skrifa rúmar 770 greinar síðan ég byrjaði og mér finnst það bara nokkuð gott!
Þetta er vel ígrunduð ákvörðun hjá mér.
Mér finnst of mikill tími fara í þessi skrif, hef ákveðið að eyða honum frekar í að æfa, læra og hafa það gott með Sveinbirni! Greyið er orðinn hundleiður á þessu tölvuæði mínu.
Ég er líka búin að fá minn skammt af gagnrýni og misskilningi auk þess að fá ágætis félaga mína upp á móti mér vegna þess hve skoðanir mínar eru opinberar.
Ég ætla að eyða þessari síðu bráðlega svona til að tryggja að mér snúist ekki hugur.
Þakka samveruna, ég hafði yfirleitt mjög gaman af því að halda þessari síðu uppi. Vonandi höfðuð þið líka gaman af vitleysunni í mér á stundum.

Góðar stundir,

Hafdís skrifaði klukkan 11:19 f.h. |


26.9.04
Hvert fór góða veðrið sem ég ætlaði að nota til að kíkja í golf og önnur skemmtilegheit?

Hafdís skrifaði klukkan 3:00 e.h. |


Samantekt:

Föstudagur:
Gerði verkefni með Agnesi og fór svo í badminton með Sveinbirni, Sigurjóni og Miss Smassi. Erna a.k.a Miss Smass efndi til hópferðar í hnit eins og það kallast á íslensku og við vorum afraksturinn. Hún gleymdi þó að nefna að hún hefði æft þessa íþrótt í 23 ár og að hún væri þar af leiðandi helvíti góð í henni. Við, þessi saklausu, fórum nefnilega með því hugarfari að fíflast soldið og slá nokkrar flugur eins og fjaðraboltinn kallast. Það varð ekki mikið úr því þar sem það eina sem við fengum að gera var að gefa upp nokkrum sinnum þar sem Erna smassaði alltaf strax í okkur til baka ef við gáfum of háa bolta í uppgjöf. Ef að boltinn hefði sem sagt verið aðeins stærri værum við þrjú hin fræknu með marbletti út um allt og Sveinbjörn væri geldur! Erna smassaði sem sagt fram og tilbaka og við áttum fótum okkur fjör að launa! Sveinbjörn svitnaði sem sagt ekki af þessum 50 mínútna reyna-að-forðast-kúluna leik okkar. Erna hefði getað unnið okkur hin 3 þar sem ekkert okkar er sérstaklega sterkt í þessari grein enda mörg ár síðan við snertum spaða seinast og þá vorum við heldur ekkert sterk!
Við kíktum svo í smá mini-innflutningspartý til Ingva og Gingu um kvöldið þar sem við hámuðum í okkur veigarnar og höfðum það gott.

Laugardagur:
Lærði í 8 tíma sem er persónulegt met hjá mér þegar það er ekki próf daginn eftir. Er sérlega stolt af þessu og vona að það verði framhald á þessum dugnaði mínum! Áfram Hafdís.
Við Sveinbjörn gerðumst svo myndarleg og elduðum okkur dýrindis kjúklingabringur og aumkuðum okkur yfir Miss Smass og buðum henni að koma og fá sér smá óhollustu. Við skötuhjúin opnuðum rauðvínsflösku með matnum sem undirrituð drakk hressilega af og varð svona líka hress og kát á meðan matnum stóð og kom með fögur fyrirheit um djamm og skemmtilegheit. Auðvitað uppveðraðist Erna þar sem ég er ekki vön því að eiga frumkvæði að djammi. Kvöldið var mjög skemmtilegt þar sem nokkrir sehr-skemmtilegir einstaklingar kíktu í heimsókn og enduðu niður í bæ. Ég er alltaf að gleyma hvað mér finnst leiðinlegt niður í bæ, skil ekki hvað ég er alltaf að fara þangað. Reyndar förum við alltaf á Hverfis og það finnst mér voða lítið skemmtilegur staður. Þarf að fara að finna mér einhvern skemmtilegri. Það var ekki einu sinni góð tónlist í gær - þvert á móti. Bara svona tónlist sem er EKKI hægt að dansa við, maður stendur bara hálf kyrr og dillar sér smá! Fúlt! Þegar ég er á annað borð að dansa við ég hafa smá ACTION og fjör! Nenni ekki svona hálfkáki!
Þegar við komum heim um nóttina var búið að brjóta bréfalúguna okkar af hurðinni og setja feitt svart skófar í staðinn - skemmtileg aðkoma! Ég lét Sveinbjörn spæjó taka mynd af þessu til að senda CSI svo að þeir geti fundið eiganda skófarsins. Bíð spennt eftir niðurstöðunum. Eitt er víst - ég ætla ekki að borga fyrir heimskupör einhverrar fyllibyttunnar sem ákvað að það væri fyndið að sparka bréfalúguna mína af. Vona svo sannarlega að hann hafi meitt sig í fætinum!

Sunnudagur:
Einhver þreyta í mannskapnum sem ætlar að vera ofur duglegur að læra í dag. Ennþá í náttfötunum og kl. að ganga þrjú! Mamma gaf mér svo notalegar náttbuxur um daginn og ég fæ mig eiginlega ekki til að fara úr þeim. Svo sakar ekki fyrir að þær eru bleikar og ég á bleikan hlýrabol, náttslopp og allt í stíl :) Ég er svo efni í Löglega ljósku! Pink is the new Red!

Hafdís skrifaði klukkan 2:10 e.h. |


24.9.04
Týpískt!
Ég var búin að gera svaðalegar ráðstafanir um hreyfingu í morgunsárið. Alveg búin að skipuleggja þetta frá A-Ö. Auðvitað grunaði mig að það yrði vont veður, gerði ráð fyrir rigningu þar sem það var svo fallegt veður í gær en ég gerði kannski ekki alveg ráð fyrir stormi.
Ég held að heimurinn vilji bara hafa mig svona feita og fallega! Gerir alla vega í því að koma í veg fyrir að það verði aðeins minna til af mér!

Ég ætla þó að reyna að storka þessum örlögum með því að fara bara í Sporthúsið á eftir og hamast á stigvélinni í hálftíma eins og allar ofur skvísurnar gera.

Ætla að skella í eins og eina skúffuköku áður en lærifélagi minn mætir á svæðið!

Hafdís skrifaði klukkan 11:28 f.h. |


Ég hef alveg gleymt að tilkynna eitt það markverðasta sem gerst hefur hér á Eggertsgötunni undanfarið. Fyrir rúmri viku síðan var hringt í Sveinbjörn og hann beðinn um að taka þátt í Herra Ísland, ég ætla ekkert að nefna hver benti á hann en það var mamma hans. Jú, mikið rétt, hverjum þykir sinn fugl fagur. Ég er að sjálfsögðu búin að reyna að sannfæra hann um að hann sé ekki nógu fallegur í þess keppni* en hann hlustar ekkert á mig. Þess vegna dreif hann sig í viðtal og sprangaði um á nærbuxum og sýndi fram á að það væri eitthvað á milli eyrnanna á honum. Til að gera langa sögu stutta var hringt í hann fyrir viku og honum tilkynnt að hann hefði verið valinn úr hópi trilljón umsækjanda. Hann er enn að íhuga hvort hann taki þátt þessi elska þar sem keppnin verður haldin 17.desember en þá er hann á fullu í prófum. Þessar konur sem stjórna þessu eru greinilega ekki að leita að neinum háskóla og menntaskólamönnum í hópinn með smiðunum, múrurunum og sjómönnunum. Ég veit ekki hvað þessar fegurðardrottningar og wannabe drottningar eru að hugsa - hvað er ég að segja auðvitað hugsa þær ekki, þær kunna það ekki!* Svona í alvörunni þá veit ég ekki hvað þær eru að pæla, það geta engir strákar tekið þátt í þessu sem eru í skóla þar sem þeir eru í prófum og það er vitað mál að seinustu vikurnar fyrir keppnina eru erfiðastar. Þetta eru svo mikil atriði sem þeir sýna.*
Hann var svo heppin þessi elska að fæðast á röngunni þar sem fegurðin kemur innan frá...
Hann er sem sagt ekki búin að ákveða hvort hann keppir eður ei, ég læt ykkur bara vita þegar nær dregur svo að þið getið beðið spennt fyrir framan sjónvarpið til að gera grín að honum.
Brandarar eru líka vel þegnir! Ég er vön því að það sé bara gert grín að mér - ég er auðveldur skotspónn. Verður fínt ef fólk finnur það í sér að gefa mér smá frí og gera þess í stað grín að honum. Það myndi vekja kátínu!

*kaldhæðni

Hafdís skrifaði klukkan 10:50 f.h. |


23.9.04
Ég ákvað að verðlauna dugnað minn með því að kaupa mér köku áðan. Ég fékk mér fyrst hollt eins og gengur og gerist og hlakkaði svo mjög til að gæða mér á súkkulaðiköku með karamellukremi og lakkrískurli frá Myllunni. Sveinbjörn sem var ekki búin að fullnægja skilyrðunum til að fá sér köku stalst í boxið áður en ég kom neinum vörnum við og fékk sér kökubita. Þegar hann grettir sig er ekki von á góðu þar sem hann er svaðalegur kökukarl og sælkeri. Kakan var sem sagt það lítið góð að ég borðaði bara lakkrísinn ofan af.
Sé eftir þessum krónum og hyggst spara þær næst og baka frekar köku! Skil ekki fólk sem bakar aldrei og kaupir bara svona kökur út í búð - þær eru sko alls ekkert góðar. Nema rúlluterta frá Myllunni - hún er sko GÓÐ! Svo sæt...

Nóg um sætindi!

Ég var aftur í tíma hjá fyllibyttunni í dag og sat framar svo að ég myndi e.t.v heyra eitthvað í honum í dag en nei - 5.bekkur af 8 var ekki nógu góður ég heyrði bara fyrstu orðin í setningunni og missti af honum þegar hann muldraði restina af setningunni ofan í kjöltuna á sér. Ég er búin að afskrifa fyllibyttuna og fer að aðhyllast að hann sé bara svona leiðinlegur greyið. Næst fer ég að athuga hvort hann búi ekki bara einn einhvers staðar upp í fjöllum. Hann á alla vega soldið bágt finnst mér. Það kom líka í ljós í þessum tíma að ég verð að vera á 2 stöðum á sama tíma í vetur. Bæði í fyrirlestri í 1.árs kúrsinum mínum og í umræðutíma í faginu sem hann kennir. Það sem er verst við það er að hann stjórnar umræðutímunum. Eins gott að þeir eru ekki snemma morguns!

Ég ætla líka að hætta að nota orðið heimsk yfir fólk sem mér finnst ekkert heimskt og er að reyna að gera grín að. Held að þetta sé ekki alveg sniðugt hjá mér! Svo er ég líka að hugsa um að bæta einhvers konar kaldhæðnimerki inn hjá mér svo að ég sé ekki svona misskilin alltaf hreint. Hvernig líst ykkur á það?

Hafdís skrifaði klukkan 5:25 e.h. |


Ég hef ákveðið að breyta þessari heimskulegu grein minni.

Það sem ég skrifaði var annað hvort misskilið eða gagnrýnt svo að ég ákvað að einfaldast væri bara að taka það út og skrifa eitthvað gáfulegra.

Málið var sem sagt að ein sérlega athyglisgóð vinkona mín veitti því athygli að ég skrifaði hlægja en ekki hlæja og benti mér góðfúslega á þetta svo að ég gæti lagað þetta. Ég var á því að ég hefði verið að skrifa rétt með því að nota g en hún var á því að þetta væri vitlaust.
Við erum búnar að útkljá málin og í ljós koma að:

Hlægja: að kæta, vekja hlátur
Hlæja: gefa frá sér hlátur.

Þá er það komið á hreint.
Annars vil ég koma því á framfæri að mér finnst fólk ekki heimskt sem gerir stafsetningarvillur. Ég er bara þannig af guði gerð að ég er ekki mikið hrifin af þeim og bið því Burkna að gera í því að fræða mig en um leið vil ég biðja hann að leiðrétta mig ekki bara benda mér á villurnar.

Takk fyrir og góðar stundir,

Hafdís skrifaði klukkan 10:37 f.h. |


22.9.04
Það getur stundum verið erfitt að búa með verkfræðing!
-Ég veit mjög mikið um hluti sem venjulegt fólk hefur ekki hugmynd um.
-Ég er reglulega yfirheyrð um hvaða átt við séum að fara í.
-Ég veit að verkamenn á Íslandi eru mjög latir.
-Ég skil hvernig margar brýr eru uppbyggðar og hvar þær eru styrktar, hvað gerist ef það kemur flóð.
-Ég skil hvernig hús eru byggð, að hverju þarf að huga.
-Ég veit hvernig svalir eru gerðar.
-Ég veit að meirihluti þjóðarinnar aðhyllist NIMBY!

Ég skil vegaframkvæmdir og malbikunarframkvæmdir og þar af leiðandi er ég ósammála 76% þjóðarinnar (800 manna úrtak) sem vilja frekar fá mislæg gatnamót á Kringlumýrarbraut og Miklubraut heldur en Sundabraut. Ég vil endilega láta laga gatnamótin fyrrnefndu þar sem það er vonlaust að beygja frá Kringlumýrarbraut og yfir á Miklubraut - sér í lagi núna eftir að það er ekki lengur hægt að beygja frá Bústaðarvegi og hingað í hverfið með því að aka framhjá Umferðarmistöðinni. Ég veit samt að fólk yrði geðveikt á meðan framkvæmdunum stæði þar sem þær myndi raska umferðinni í langan tíma og lausn gatnamótanna yrði lítil. Stíflan myndi bara færast yfir á næstu gatnamót á eftir - gatnamótin Miklabraut-Langahlíð! Það er greinilegt að fólk er ekki alveg að hugsa þetta í gegn. Auðvitað vil ég auka umferðaröryggi á þessu svæði - ég er jafn lítið hrifin af umferðarslysum og hver annar. Ég held að framkvæmdirnar sem R-listinn hyggst gera á títtnefndum gatnamótum séu einmitt til þess gerðar að bæta umferðaröryggi. Þar sem sér beygjuás verður á hverri akgrein.
Ég skil ekki þessi 76% - langar að vita hvað þau eru að hugsa! Hvernig eru mislægu gatnamótin betri en Sundabraut? Jú, það eiga margir leið niður í bæ - þar sem fólk er svo vitlaust að búa í allt öðru hverfi en það vinnur. Reykjavík er svo heimskulega uppbyggð að fólk býr í einu hverfi og vinnur í öðru sem er oft 20-30 km í burtu. Þess vegna eru 2-3 bílar á hvert heimili- þess vegna er umferðaröngþveiti - þess vegna er verið að tala um ný gatnamót hér og þar. Þegar við verðum stór ætlum við að reyna að búa sem næst staðnum sem alla vega annað okkar vinnur á svo að við þurfum ekki 2 bíla! Foreldrar mínir voru svo sniðugir að gera þetta þegar við fluttum. Pabbi vann hjá ÍS sem var með höfuðstöðvar í Sigtúni og því labbaði hann í vinnuna á hverjum degi og mamma fékk að hafa bílinn. Mamma er að vinna upp á Höfða og þarf því eðlilega að fara á bílnum. ÍS sameinaðist svo SÍF og flutti til Hfj. og þar með þurftum við á öðrum bíl að halda. Þetta var mér reyndar til góðs þar sem ég fékk afnot af þeim bíl!
Skipulag Reykjavíkurborgar er í molum og í raun er ekkert skipulag á borginni. Hún er skipulagslaus!
Fólk vill fá mislæg gatnamót og tvöföldun akgreina hér og þar en ekki NIMBY - NIMBY er Not In My BackYard. Fólk vill með öðrum orðum fá fullt af hlutum en það vill ekki hafa það nálægt sér. Fólk er ekki hrifið af öllum þessum bensínstöðvum en það vill ekki missa þá sem er næst þeim. Í raun hugsa allir um sinn hag en ekki hag heildarinnar!
Ég vil þakka honum Sveinbirni mínum fyrir að hvetja mig til rökhugsunar og að velta þessum hlutum upp með mér. Hann kom þó ekki nálægt skrifum þessarar greinar þar sem hann var upptekin í tölvuleik og líklega kommentar hann ekki á hana þar sem hún er of löng til að hann nenni að lesa hana til enda. Vonandi nennti samt einhver að lesa þessar hugleiðingar mínar.


Hafdís skrifaði klukkan 11:24 f.h. |


21.9.04
Ég veit ekki hvað er að gerast með mig!
Sveinbjörn kom heim í gærdag, ég sótti hann og hinar fyllibytturnar út á flugvöll og fyrsta stopp var síðan American Style þar sem það er nauðsynlegt mjög eftir gott fyllerí og þeir tóku jú fjögur strákarnir! Það er hins vegar ekki það skrýtna að ég sé að sukka, það myndi frekar teljast vera ósköp eðlilegt! Við komum heim og höfðum það gott á meðan við biðum eftir leiknum, Sigurjón og aðrir viðkvæmir eru beðnir að lesa ekki næstu línuna, náðum upp nokkrum knússtundum og bættum okkur upp kossamissi. Ég veit síðast af mér kl.6 þar sem ég bíð eftir leiknum og næst kl.7 þegar tengdamamma hringir - þá skríð ég upp í rúm og ranka ekki við mér fyrr en kl.8. Þarna var ég sem sagt búin að leggja mig í tvo tíma um ,,há"bjartan dag! Þetta er MJÖG ólíkt mér og ég veit ekki hvað gerðist. Ég væri hins vegar ekki jafn sjokkeruð ef þetta hefði ekki komið fyrir aftur í dag þegar mín sofnaði ofan á annarri höndinni og bókinni minni og vaknaði rúmum klukkutíma síðan við blóðleysi, náladoða og önnur óþægindi í höndinni góðu. Ég veit ekki hvað þetta á að þýða. Ég hef ekki nennt að leggja mig áður svo að ég skil þetta ekki! Mig grunar að 24 aldursárið sé að færast yfir mig og þar með veit ég að samkomulag mitt við æðri máttarvöld um að ég myndi ekki eldast meðan á rjúpnaveiðibanninu stæði er ekki að standast. Ég ákvað í samráði við máttarvöldin að ég myndi yngjast í stað þess að eldast næstu árin en ég finn að eitthvað hefur klikkað í þessu ráðabruggi. Ég óttast að ég verði 24 eftir alltof fáa mánuði og ég veit ekki hvað gerist þá. Fyrir nokkrum árum var ég búin að ákveða að eignast mitt fyrsta barn 24 ára - mamma var að verða 24 þegar hún eignaðist mig og mér fannst það skemmtilegur aldur til þess að eignast barn. Núna er ég á öndverðu meiði - mér finnst ég vera allt of ung. Spurning um að sannfæra sig bara um að ég yngist alltaf um eitt ár næstu 2 árin í viðbót og þá get ég frestað þessu um svona 5 ár eða svo :) Gott plan!
Mamma verður reyndar ekki ánægð með að fá ekki barnabarn fyrr en eftir 5 ár þar sem ég var búin að lofa henni því innan 3 ára...sjáum bara til. Ég sættist kannski við að fara milliveginn og punga bara einu út eftir 4 - það er að segja ef Sveinbjörn endist svona lengi...
En nóg af barnahjali...

Ég var að bæta Guðnýju vinkonu minni og að hluta sálufélaga inn - hún var að byrja að blogga. Ef síðan verður eitthvað lík henni verður hún alveg frábær - kíkið á hana!

Hafdís skrifaði klukkan 7:17 e.h. |


19.9.04
Ég hélt smá teiti í gær - var voða dugleg að takmarka en það fór samt eitthvað út úr böndunum og ég endaði á því að hringja í elskulegan föður minn og fá hann til að koma með nokkra kolla hana mér! Hann tók gestina í létta yfirheyrslu um leið...greyin hafa aldrei lent í öðru eins. ,,Hverra manna ert þú?" Vinsæl spurning á mínu heimili.
Það var svaka fjör. Ég ákvað að búa til ídýfu og kaupa smá snakk og nammi. Það var vinsælt - svo vinsælt að nokkrir ungir menn tóku sig til og settust bara við matarborðið og hámuðu í sig ídýfu. Mér fannst það bara gott hjá þeim - hefði átt að hafa vit á því að rétta þeim bara disk - veit ekki hvað ég var að hugsa. Þessi gleði var óhefðbundinn á þann hátt að það var ekki einungis gert grín að mér að þessu sinni heldur fengu aðrir gestir líka sinn skammt - gleðilegt mjög.
Við enduðum svo á því að fara niður í bæ en ég var ekki langlíf þar sökum leiðinda. Ég hef bara afskaplega lítið gaman af því að fara niður í bæ og láta fullt fólk traðka á mér, brenna á mér hendurnar með sígarettum, hella yfir mig og almennt troðast. Ég hef miklu meira gaman af því að vera bara heima og spila og spjalla og hlæja! Ég er hugsa um að halda mig bara við það.
Ég skemmti mér hins vegar mjög vel og þakka þeim sem áttu þátt í því.

Sveinbjörn Jónsson a.k.a fylliraftur dauðans kemur heim á morgun. Reikna með að skutla honum bara beint á Vog af flugvellinum - held að það sé skynsamlegast. Hann sló djamm dömunnar sinnar út með því að skemmta sér frá því 11 um morguninn til 7 um morguninn - 20 tíma djamm takk fyrir. Ég heyrði í honum seinni partinn í dag og þá var hann enn fullur svo að það er greinilega fjör í Köben! Hann hefur þó nýtt tímana á milli fyllería - þessa 2 til að skoða skóla og ákveða hvort að við förum þangað eður ei. Skilst á honum að hann sé ekki mikið spenntur svo að við þurfum að fara að gera aðrar ráðstafanir!

Ég fór á Grindavík-Víkingur með Tótu í dag. Ákvað að fara að styðja Víking í fjarveru Sveinbjörns. Þetta leit allt vel út í byrjun en skransans Grindvíkingarnir þurftu að eyðileggja þetta fyrir okkur í blálokin. Þeir þykjast hafa verið betri en ég er því alls ekki sammála. Mér fannst ,,mínir" menn miklu betri. Stuðningsmenn G-liðsins voru heldur ekki að gera góða hluti. Ég hefði giskað á að þetta væri einhverjir ofbeldisseggir og vitleysingar þar sem þeir görguðu einhver leiðindi að Víkings-mönnum allan leikinn. Voru bara með leiðindi. Ég komst nálægt því að berja mann og annan en hafði ekki tíma þar sem Tóta var að drífa sig heim...annars hefði ég sko tekið í lurginn á þessum vitleysingum. Æsti mig þó smá við einhverja 18-19 ára gutta í fyrri hálfleik þar sem þeir voru með eintóm leiðindi og eftir það færðu þeir sig! Ég hef sem sagt ennþá áhrif og get auðveldlega verið leiðindabykkja!
Ég er alla vega svekkt með þessi úrslit. Vildi að Fram og Ka hefðu fallið frekar en Víkingar. Þessir framarar eiga að vera löngu fallnir - þetta er bara rugl með þessa heppni þeirra. Reyndar höfðu þeir gott af því að tapa 1-6 í dag - ég hafði bara gaman af því. Smá huggun harmi gegn! Reyndar var svo sem ágætt að Víkingar féllu - þá þarf ég ekki að eyða dýrmætum þúsundköllum í að fara á völlinn næsta sumar!

Ég er að hugsa um að fara bráðlega í rúmið - náði voða lítið að sofa í nótt þar sem SUMIR vöktu mig fyrir allar aldir - allar aldir eru 11.15!

Sæl að sinni!

Hafdís skrifaði klukkan 9:11 e.h. |


Ætli einhver annar en ég geti klárað 567 gr af Cheeriosi í 4 máltíðum á 3 dögum? Svo stendur á pakkanum 30g per serving - my ass!
Ég var að komast að því rétt í þessu að ég gæti hæglega lifað á Cherriosi einu saman - ég þyrfti reyndar mjólk út á...

Cheerios-bezt í heimi!

P.S Sigurjón - það var annar tvöfaldur úti í bíl ;)

Hafdís skrifaði klukkan 9:09 e.h. |


17.9.04
Annað hvort er ég að verða geðveik, einhver var að reykja eitthvað sterkt fyrir utan gluggann minn sem barst ofan í vitund mín og ég var HI, mig var að dreyma eða þá að einhver fékk afmælislagið spilað fyrir sig á básúnu, eða eitthvað álíka, í morgun kl.7.40 og fullt af fólki var mætt til að fagna! Mér finnst líklegast að mig hafi verið að dreyma en samt er ég nokkuð viss um að ég hafi vaknað og ég man ekki eftir að mér hafi liðið neitt furðulega. Reyndar var ég búin að sofa extra lítið þar sem mér gekk eitthvað erfiðlega að sofna í gærkvöldi og náði ekki að pína ofurþreyttu augun mín saman fyrr en kl.3.
Hve mikið rugl er það að hlusta á afmælissönginn og he´s a bloody good fellow kl.7.40? Ekki yrði ég kát ef ég yrði vakin mygluð snemma morguns til að hlusta á básúnu spila og fullt af fólki myndi horfa á mig með stírurnar í augnum og slefið út á kinn - reyndar slefa ég ekki í svefni, mér fannst það bara áhrifaríkara með því!

Ég get samt alveg vakið einhverja áhugasama með því að panta básúnu, túbu eða trompetleikara - jafnvel saxófón. Ég hefði til að mynda mjög gaman af því að vekja nokkra vini mína svona á afmælisdaginn - nefnum enginn nöfn en ég held að sá hinn sami viti hvern ég er að hugsa um ;)

Ég vaknaði svo fyrir 20 mínútur við það að einhver gella hafði misskilið auglýsinguna mína á kassi.is - hélt að ég væri að selja heftin en ekki að óska eftir þeim. Vonandi lærir hún að lesa áður en hún heldur áfram í náminu!

Hafdís skrifaði klukkan 10:20 f.h. |


16.9.04
Hvort er verra að kennarinn sé drukkinn í tíma eða að hann tali bara alltaf þvoglumælt og æði úr einu í annað? Ég er að velta því fyrir mér hvort að hann sé ekki örugglega einhleypur eða hvort konan hans sé heyrnarlaus - annað kemur eiginlega ekki til greina!
Þetta er tvímælalaust leiðinlegasti fyrirlesari sem ég hef orðið vitni að! Hann er svo leiðinlegur að mig langar að missa heyrnina!



Hafdís skrifaði klukkan 1:57 e.h. |


15.9.04
Merkilegur dagur í dag!

Tengdamamma á afmæli. Ef hún yrði spurð myndi hún segjast vera 16 ára í anda en að líkaminn væri 85 ára! Spurning um að ég skelli í eins og eina köku handa henni og færi henni! Þá fengi ég áreiðanlega prik!

Við Sveinbjörn eigum þriggja ára afmæli í dag. Hann pikkaði mig sem sagt upp á balli fyrir þremur árum! Í stuttu máli var ég að læra þetta kvöld, þá var ég í sjúkraþjálfun og nennti stundum að læra. Rakel vinkona mín hringdi í mig úr einhverju verkfræði-hjúkkupartýi og var a leyfa mér að heyra stemninguna og hvetja mig til að mæta á svæðið. Þar sem ég var hvort eð er búin að horfa á sömu blaðsíðuna í all langan tíma dreif ég mig bara í fötin og skutlaðist í partý. Þar fékk ég mér 1-2 og tók rútuna á ballið frá Skipholti og skildi kaggann eftir. Á ballinu var frekar fámennt en góðmennt. Við vinkonurnar dönsuðum við fullt af gæjum og þar á meðal einn sætann í skyrtu með bindi. Við tvö tókum einn svaðalegan dans á miðju gólfi þar sem hann fór úr jakkanum og henti honum yfir mig og dansaði með mig fram og tilbaka og lét mig beyja mig niður í gólf aftur og aftur - gott að ég var í góðu formi. Á meðan ég kíkti á barinn með vinkonum mínum hvarf þessi myndarlegi maður en þar sem ég kannaðist aðeins við einn vin hans grunaði mig hvar ég gæti fundið hann aftur. Ég rölti því upp í Skipholt og sótti bílinn enda margir tímar síðan ég drakk þess 2 bjóra, rúllaði niður á Felix eða Sportkaffi eins og það hét þá og fann strákinn á dansgólfinu. Ég var ekki lengi að draga hann afsíðis og táldraga hann! Á þessum árum var ég nefnilega skæður daðrari og með kúlurass dauðans svo að þetta var ekki mikið mál. Hann var líka bara 60 kíló svo að ég hefði léttilega getað tekið í lurginn á honum! Þegar ég sagði honum að ég væri edrú rann fljótlega af honum en hann kættist þegar ég bauð honum far heim! Í fyrsta skipti á ævinni komst ég ekki að þar sem hann samkjaftaði alla leiðina. Ég varð fljótlega mjög heilluð og beið spennt næsta dag eftir símtali frá honum. Hann hringdi ekki fyrr en um kvöldið þar sem hann vildi hafa eitthvað að gera þegar hann hringdi í mig. Hann var sem sagt á videoleigu með strákunum og tilkynnti mér þar að hann hefði viljað hafa eitthvað að gera þegar hann hringdi! Mér fannst þetta mjög krúttlegt og hló bara að honum. Ég sótti hann svo til vina sinna um kvöldið og síðan þá höfum við verið nær óaðskiljanleg. Núna er hann reyndar í rómantískum hádegisverði með vinum sínum á American Style og á morgun fer hann í rómantíska fyllerísferð með strákunum til Köben á meðan ég sit heima með sárt ennið!
Ég er einverunni hins vegar vön - hlakka bara til að fá allt rúmið og geta djammað af mér rassinn öll kvöldin ;) Þá verðir enginn til að draga mig heim...snemma!



Hafdís skrifaði klukkan 11:37 f.h. |


14.9.04
Heppna ég hitti eina NYLON gellu í Sporthúsinu í gær. Hitti þessa ljóshærðustu. Hún var minni og ljóshærðari en hún virðist vera í snilldarþáttunum sem voru á Skjá Einum. Samt virtust einhver tveir vera voða spenntir fyrir henni og vorum eitthvað að spjalla við hana og sýnast.
Það er samt eitt sem hún er greinilega ekki nógu góð í og það er að klæða sig í stíl. Íþróttafötin hennar voru alveg út úr kú! Maður er ekki í dökkbláu buxum við skærgulan hlýrabol með mynd af einhverju í lit og engu bláu. Veit ekki hvað hún var að spá.

Ég tók greinilega vel á því þar sem ég er með frekar miklar harðsperrur í rassinum og lærunum en það eru einmitt tveir af 12 stöðunum sem ég er hrifin af harðsperrum. Vona bara að þetta sé allt að minnka... ;)

Ég þurfti að fara á 4 staði í dag til að kaupa lítið batterí í þráðlausa símann hennar Begg´ömmu og þegar ég kom loksins með símann tilbaka með nýju batteríunum virkaði hann ekki, það heyrðist bara eitthvað suð í tækinu þegar ég setti hann í hleðslu. Þurfti að fara aftur á staðinn sem ég fór með batteríið til að láta athuga þetta og kallinn var á því að síminn væri ónýtur. Frekar fúlt! Begga amma var ekki mikið hrifin af þessu - hún tekur símann nánast með sér hvert sem hún fer!

Eitt sem ég er búin að vera að velta fyrir mér - hvort segið þið amma x eða x amma. Ég hef alltaf sagt nafnið á undan og titilinn á eftir en undanfarið hef ég heyrt það hinsegin.

Hafdís skrifaði klukkan 4:22 e.h. |


12.9.04
Ég gekk í barndóm í gær þegar ég lá á gólfinu og litaði með 6 ára frænku minni. Ég hafði alveg gleymt hvað það er gaman að lita og gleyma sér í smá stund. Er þess vegna að hugsa um að kaupa mér litabók og liti, fá lánaðann plötuspilarann hennar tengdó og ganga enn meira í barndóm. Þegar ég var yngri var ég mjög dugleg við að liggja fyrir framann annan hátalarann inni í stofu með einmitt litabók og litina mína og hlusta á Smjattpattana, Dýrin í Hálsaskógi. Kardemommubæinn og fleiri góðar plötur. Þetta voru góðir tímar. Hefði ekkert á móti því að sitja fyrir framann sjónvarpið og lita - það er voða notalegt.

Hvernig dunduðuð þið ykkur þegar þið voruð lítil?

Hafdís skrifaði klukkan 1:25 e.h. |


10.9.04
Brussuskapur Hafdísar - 14.kafli.

Í gærkvöldi langaði mig allt í einu svo mikið í vöfflur með súkkulaði og gervirjóma. Myndarlega húsmóðirin sem ég er bætti 2 dl af vatni út í deig og hrærði í smá stund og setti svo slurk í vöfflujárnið. Á meðan þessu stóð var ég líka að búa til súkkulaði í potti - mér finnst mjög nauðsynlegt að vera að gera margt í einu. Taka skal fram að vöfflujárnið okkar er frekar leiðinlegt, vöfflurnar eiga það til að festast í járninu þrátt fyrir að það sé olíuborið og dekrað við það í alla staði. Í gær var ég sem sagt að vesenast við að opna járnið án þess að kippa vöfflunni í tvennt þegar ég smellti litla puttanum mínum einhvern veginn undir það á stað sem að ég hélt að væri hættulaus en þá var hann bara 100° heitur eða eitthvað og ég brenndi mig svona skemmtilega framan á greyinu. Í fyrstu hélt ég að þetta væri bara smávægilegt en eftir baksturinn fann ég að hann var ekkert að skána og dró því fram ALOE VERA gel sem ég fann einhvers staðar. Það linaði aðeins sársaukann en þó ekki mikið. Ég komst þó í gegnum CSI áður en ég fór að kanna skaðann. Skyndilega fann ég mun meira til í puttanum og áttaði mig á því að þetta væri áreiðanlega 3 gráðu bruni og að puttinn myndi detta af.Þá kom í ljós að ég væri með þessa líka feitu og fallegu blöðru á puttanum. Eftir að hafa sett fjall af Aloe vera á hana og sofið með bómullarhanska held ég að bruninn sé að lagast og að ég verði sem ný. Mig grunar líka að puttinn haldist á...
Núna er ég með þrjú ör eftir bruna á vinstri hönd - gerir aðrir betur.

Hafdís skrifaði klukkan 10:33 f.h. |


9.9.04
Ég steingleymdi að koma í leðurbuxunum mínum í skólann! Veit ekki hvað ég var að hugsa. Mundi það bara þegar ég sá stelpuna fyrir framan mig í sínum fínu...

Note to self: Muna að fara í leðurbuxunum á morgun!

Hafdís skrifaði klukkan 8:51 f.h. |


8.9.04
Ég fjárfesti í nokkrum námsbókum í gær í tilefni áframhaldandi náms míns við Félagsvísindadeild. Bækur fyrir 4 fög kostuðu mig rúmar 22000 krónur. Mér fannst þetta þó nokkuð vel sloppið miðað við oft áður og prísaði mig sæla. Í dag komst ég hins vegar að því að ég þarf að kaupa aukalesefni í einu fagi í mestu okurbúllu bæjarins - Háskólafjölritun. Þar kosta 4 hefti í sama fagi mig 6600 krónur - takk fyrir. Þar með nálgast ég þrjátíu þúsundin hratt...
Ég ætlaði að reyna að redda þessu með því að fá heftin lánuð hjá vinkonum mínum og ljósrita þau en þegar ég frétti að þau væru 833 bls. hætti ég all snarlega við. Ég hef ekki svo mikla þolinmæði. Vitlaus ég er heldur ekki búin að vera dugleg að kynnast eldri nemum svo að ég get ekki fengið heftin neins staðar ódýrari...peningaplokk! Mér finnst líka soldið hart að aukalesefnið í Félagslegri sér dýrara en námsbókin sjálf...GREAT.

Í bjartsýni minni setti ég samt inn auglýsingu á kassi.is - vona að hún skili einhverjum árangri en efast samt stórlega um það.

Gott að ég er búin að vera í fríi i allan dag og áorka að lesa samtals um 10 síður! Góður vinnudagur. Reyndar þvoði ég fullt af þvotti, vaskaði upp og eldaði...

Hafdís skrifaði klukkan 10:23 e.h. |


Ég keypti námsbækurnar mínar í gær - 22000 takk fyrir. Fannst ég samt sleppa nokkuð vel þar sem þetta hefur oft verið verra. Komst svo að því í dag að ég þarf að kaupa auka lesefni í Félagslegri sálfræði og heftIN í því fagi kosta 6600 samtals. Þau eru sem sagt 4 aukalesheftin og kosta samtals meira en bókin sjálf sem ég þurfti að kaupa! Í þessu fagi eru sem sagt bækur/hefti að andvirði rúmlega 13000 króna! Mér finnst þetta heldur mikið rugl. Heftin eru reyndar 833 bls að lengd svo að blaðsíðan er á tæpar 8 kr. en þetta er samt alltof mikið. Halda þessir kennarar að við séum multimillar eftir sumarið? Ég þekki engan eldri nema svo að ég get ekki fengið þessi hefti neins staðar. Setti reyndar inn auglýsingu á kassi.is en ég er ekki viss um að hún virki.

Ég er fátæk!

Hafdís skrifaði klukkan 2:58 e.h. |


7.9.04
Sexa fyrir sexý...

Ég fékk heilum hærra í prófinu en ég þurfti. Frekar stolt af því. Ánægð með að það hafi verið nóg að lesa bara glósur en líta varla í bókina! Þakka Agnesi vinkonu minni kærlega fyrir að hafa lánað mér glósurnar - annars væri ég grenjandi núna! Ég skulda henni svo ís - gleymi því sko ekki svo glatt! Spurning hvort að ég bjóði henni ekki bara í heimatilbúinn ís...

Ég er alla vega frekar lukkuleg með þetta og er að hugsa um að fagna þessu með því að fara út í bóksölu og kaupa mér fullt af rándýrum bókum. Oh, það er svo gaman að eyða pening í bækur!
Annars datt mér líka alveg í hug að drekka allt áfengið sem við eigum til akkúrat núna - Árna félaga mínum fannst það mun betra plan heldur en bókaplanið. Ég ætla samt fyrst að borða Cheeriosið mitt og svo ætla ég að sjá til!

Stundaskráin mín er snilld! Ég þarf að mæta í skólann kl.8 á mánudögum og fimmtudögum. Ég er í frí á miðvikudögum og föstudögum og þarf ekki að mæta í nema einn tíma á þriðjudögum og hann er kl.14.40 ;) Ég er reyndar í feitu gati á mánudögum og fimmtudögum en það er bara gott því að þá labba ég bara heim og fer að læra. Undanfarið hef ég labbað heim og horft á vini eða sex and the city en núna fer ég að læra...pottþétt ;)

Sveinbjörn ljóti skóti ætlar að láta mig labba út í bóksölu í þessu veðri. Ojts. Ég er að hugsa um að skipta honum út fyrir einhvern sem á tvo bíla...ekki nógu gott að eiga kærasta sem á bara einn bíl og hugsar ekkert um að passa að kærastan sín blotni ekki! Í hefndarskyni sagði ég honum að hann yrði að fara út í búð. Svo er ég að hugsa um að þvo bara mín föt í dag og skilja hans eftir óhrein....
Æ, ég veit samt að ég geri það aldrei...ég er ekki alveg nógu illkvittin!

Hafdís skrifaði klukkan 10:42 f.h. |


6.9.04
Merkilegt nokk:

-Amma mín er 88 ára í dag!

-Ég er í fyrsta skipti ever að blogga í tíma

-Ég keyrði eins og svín í gær - afhverju segir maður eins og svín! Fáránlegt.

-Ég svaf út í morgun og skrópaði í tíma. Það var hvort eð er ekkert merkilegt en ekki nógu gott að skrópa á þriðja skóladegi!

-Ég er að fara að baka eftir skóla - rabbabaraköku takk fyrir. Reikna með að ég klúðri henni á einhvern hátt þar sem þetta er mikilvæg afmæliskaka. Ég þarf að brytja rabbabara í litla bita og ég er léleg að brytja smátt. Er svo mikil brussa og því vil ég hafa allt STÓRT! hehe



Hafdís skrifaði klukkan 2:05 e.h. |


4.9.04
Margt hefur á daga mína drifið.
Ég var álitin skrýtin á miðvikudaginn þegar ég sást skokka og tala upphátt við sjálfa mig um leið. Ástæðan var þó sú að ég var að skokka með útvarpið mitt sem er lukkulega staðsett í símanum mínum og Ernan mín hringdi í mig til að segja mér eitthvað svaðalega merkilegt og þegar ég hafði lokið við að tala við hana fannst mér soldið skondið að hringja bara í Tótu og spjalla við hana í smástund. Henni fannst ég bara fyndin, ég lét hana mása í símann svo að það væri eins og hún væri að skokka með mér ;) Fólk sem mætti mér horfði skringilega á mig og var nokk viss um að ég væri hálf vangefin eitthvað. Vonandi hafa einhverjir haldið að ég væri svona busy að ég þyrfti að sinna nokkrum málum á meðan ég hlypi. Djöfull væri fyndið að þykjast vera að tala við einhvern verðbréfamiðlara eða eitthvað á meðan maður hlypi! Ég ætla að prófa það einhvern tímann...

Í gær var frí í skólanum. Mín skellti sér af því tilefni í klippingu þar sem svona eins og þrjú þúsund hár fengu að fjúka - aftur orðin voða stutthærð. Þetta voru þó blendnar tilfinningar þar sem klippikonan mín góða flutti til Danmerkur í ágúst og ég sakna hennar mikið. Ég þurfti að fara til nýrrar og var eiginlega ekki par hrifin af því. Hún klippti mig þó ágætlega svo að ég get svo sem ekki kvartað....

Í gærkvöldi fórum við nokkur úr ÍR-FH og UMF Auður að líta á nýju íbúð Sigurjóns og Jóhönnu sem er btw sérlega hugguleg. Það var sérlega gaman. Ég var búin að ákveða að þetta yrði bannað-að-gera-grín-að-Hafdísi dagur en þetta varð gerum-bara-grín-að-Hafdísi dagur. Voða gaman fyrir alla nema mig. Þar urðu til að mynda til nokkrir nýjir Cheerios brandarar, hláturinn minn var tekinn upp öðrum til skemmtunar, kertaljósastemning var rifjuð upp auk margs annars. Sérlega skemmtilegt fyrir alla nema mig sem sagt! Annars er ég orðin svo vön þessu að ég hlæ örugglega bara mest! Ég fékk þó bara einu sinni harðsperrur í magann í gær af því að ég hló svo mikið...fínt að gera auk magaæfingar á kvöldin.

Í dag er árshátíð Saumóz, sem er saumaklúbburinn minn. Við erum 8 skvísurnar - ein er reyndar í Köben að læra og er því löglega afsökuð en við hinar ætlum að skella okkur út að borða á Við Fjöruborðið og svo förum við í sumarbústað upp í Laugarás sem er einmitt rétt hjá Laugarvatni. Ég er í skipulagsnefnd svo að þetta verður pottþétt geðveikt skemmtilegt. Við erum búnar að plana fullt skemmtilegt til að gera uppí bústað. Ég hlakka svakalega til! Sveinbjörn ætlar að nýta tækifærið á meðan yfirvaldið fer út úr bænum og ætlar að djamma feitt með strákunum. Mýsnar bregða á leik á meðan kötturinn bregður sér frá...
Þetta verður sem sagt væntanlega góður dagur í dag...

Vona að hann verði góður hjá ykkur líka!

Hafdís skrifaði klukkan 1:32 e.h. |


2.9.04
Lok, lok og læs og allt í stáli!

Ég lenti í frekar neyðarlegri aðstöðu í dag. Ég þurfti að fara á klósettið á milli tíma og þar sem milljón stelpur voru í röð á fyrstu hæð hljóp ég bara upp á aðra þar sem bæði voru laus. Ég valdi af handahófi það sem var fjær og læsti. Lásinn var þó eitthvað skrýtinn og ég þurfti því að snúa tvisvar til að læsa. Um leið og hurðin var læst grunaði mig að ég ætti eftir að eiga í vandræðum með að komast út - sá grunur minn reyndist á rökum reistum. Þegar ég hafði lokið mér af komst ég ekkert. Það var hægt að snúa takkanum í báðar áttir í marga hringi án þess að neitt gerðist. Ég sýndi smá þolinmæði og þrjósku og snéri í báðar áttir í smá stund, lyfti upp húninum og snéri, togaði í hurðina og snéri, prófaði að taka lausar á takkanum og fastar og til að gera langa sögu stutta prófaði ég allar aðferðir sem mér datt í hug. Þegar ég var u.þ.b að gefast upp kemur stelpa og opnar fyrir mér. Þá hafði hún heyrt mig snúa og rykkja í hurðina og var svo sniðug að taka tíkall og snúa lásnum að framan. Þetta var sko svona sérstakur lás. Gaman að því að hún hafi vitað að tíkall myndi opna klósettið - hver ætli hafi sagt henni það? Ég var henni mjög þakklát þar sem ég var ekki alveg hrifin af því að hringja í vinkonur mínar til að tilkynna þeim að e´g væri læst inni á klósetti. Ekki góð byrjun á skólaárinu að ræsa út einhvern húsvörð til að opna hurðin á klósettinu. Kemst ekki hjá því að hugsa hvernig það hefði litið út ef ég hefði verið að gera nr.2...það hefði nú verið gaman!
Gott að ég er ekki með innilokunarkennd eða claustrophobic eins og það heitir á sálfræðísku!

Hafdís skrifaði klukkan 5:21 e.h. |




Fyrsti skóladagurinn var í dag. Ég mætti ræs and shæn í Odda kl.8:15 og náði að einbeita mér þokkalega að því sem kennarinn sagði. Ég veit alla vega núna að ég þarf að lesa svona 2000 bls. í því fagi á þessari önn+það að gera feitt rannsóknarverkefni. Tillögur að rannsóknarverkefnum eru vel þegnar og fyrir hverja tillögu fæst ein kökusneið. Sú sem ég vel síðan fær kaffiboð í verðlaun og þá er ég að tala um kökur og brauðrétti að eigin vali í eins miklu magni og óskað er eftir! Eina skilyrðið sem ég set er að rannsóknin fari fram á háskólasvæðinu ástæðan fyrir því skilyrði mínu er að kennarinn sagði að við ættum að gera það!
Þið getið annað hvort skrifað ykkar tillögu í athugasemdaboxið hér að neðan eða sent mér hana í pósti. Ég mun velja bestu tillöguna fimmtudaginn 16.september.
Sem dæmi um rannsókn get ég nefnt að tvær stelpur rannsökuðu hvað fólk gerir þegar einhver kemur inn á þeirra ,,svæði". Þær settu upp myndavél á háskólasvæðinu og voru með vitorðsmann sem að labbaði mjög nálægt fólki vissa vegalengd og viðbrögð þess voru könnuð. Eftir á var fólk spurt afhverju það hefði hagað sér á þann hátt sem það gerði. Í ljós kom að mjög margir þurftu allt í einu að reima skóna sína eða laga sig á einhvern hátt sem hafði þær afleiðingar að fólkið þurfti að stoppa eða hægja á sér. Mér finnst þetta frekar áhugaverð tilraun þar sem ég hef fylgst með viðbrögðum fólks þegar ég labba hraðar en það og dreg smám saman á það þangað til að ég er komin mjög nálægt. Viðbrögðin þeirra eru yfirleitt þau að hægja á sér svo að ég sé fljótari að fara fram úr. Mér finnst þetta nokkuð skondið. Hvað ætli einhver myndi gera ef hann væri að taka fram úr mér og ég myndi gefa í og labba á sama hraða og viðkomandi? Ætli hann myndi hægja á sér og leyfa mér bara að vera á undan eða hlaupa til að komast fram fyrir? Áhugavert - ég get kannski bara athugað þetta?
Sendið mér alla vega tillögu ef ykkur dettur eitthvað í hug!

Hafdís skrifaði klukkan 5:04 e.h. |


1.9.04
Ég var soldið svikin í morgun!

Ég hafði soldið fyrir því að taka með mér eitthvert góðgæti í vinnuna þar sem þetta er seinasti dagurinn minn í dag. Í gærkvöldi keypti ég tonn af ávöxtum, bakaði svo ísköku og frysti og ákvað að vakna soldið fyrr til að skella í eina skúffuköku. Ég kom þessu haganlega fyrir úti í bíl. Setti ískökuna í framsætið þar sem skálin sem hún var í var brothætt og viðkvæm. Sér í lagi þar sem ég var nýbúin að frysta hana vel og rækilega! Ég kom svo skúffukökunni fyrir í aftursætinu, var samt ekki búin að setja á hana krem þar sem hún var ennþá alltof heit! Ég keyrði extra varlega þar sem ég vissi að snöggt brems myndi henda kökunum fram og tilbaka. Þegar ljótur skóti svínaði svo á mig þegar hann kom út úr hlíðunum og inn á Miklubraut gerðist það einmitt. Ofursnögg viðbrögð mín leiddu til þess að ég keyrði ekki á hann og gat forðað ískökunni frá því að hendast í mælaborðið. Ég gat hins vegar ekki gripið skúffukökuna sem hentist í sætið og datt svona skemmtilega í tvennt niður á mottu. Hún var ennþá of heit til að ég gæti komið henni aftur í formið í góðu ásigkomulagi og því bíður hún bara í bílnum eftir því að vera borðuð á Eggertsgötu. Á Eggertsgötunni er fólk nefnilega ekki pjattað yfir útliti kaka og kippir sér ekki mikið upp við að borða upp af eins og einni hreinni bílmottu. Ég er að hugsa um að bræða bara krem ofan á kökuna þar sem hún er þannig í laginu að erfitt er að smyrja á hana...
Konurnar urðu því af dýrindis skúffuköku og bentu mér á að ég hafði átt að teygja mig aftur í og kasta bita af kökunni í kallinn. Það hefði verið helvíti fyndið en mikil sóun á góðri köku. Það er nefnilega vel hægt að borða hana...
Ískakan vakti þó mikla lukku - hún er líka sérlega góð. Ég er því búin að bæta einni enn góðri köku í safnið. Gjörðaforði minn stækkar ört!

En ef ég finn kallinn aftur sem svínaði þá á hann ekki von á góðu. Gleymdi nefnilega að taka fram að það var ENGINN bíll fyrir aftan mig svo að hann hefði bara þurft að bíða í nokkrar sekúndur í viðbót. Karlmenn gera sér greinilega ekki grein fyrir því að konur eru stundum með kökur í aftursætunum!

Hafdís skrifaði klukkan 2:19 e.h. |