|
|||||||||||||||||||
|
30.4.04
Nokkrar staðreyndir:
1. Það er erfitt að vera með eyrnatappa í langan tíma, næst er betra að fá vinnuhlýfarnar hans pabba lánaðar. 2. Það eru mikil læti í strákum sem eru búnir að læra yfir sig 3. Það má sukka í prófum, það er erfitt að sitja á rassgatinu allan daginn og þykjast hafa áhuga á misskemmtilegu efni. 4. Það er nauðsynlegt að hreyfa sig í prófum, annars verður maður pirraður og fer að berja fólk. (ef maður heitir Hafdís) 5. Sjónvarpsgláp og vafr á netinu getur komið sér vel í spurningum um almenna skynsemi. 6. Það er bannað að læra á föstudagskvöldum nema þegar það er próf daginn eftir. 7. Það má leggja sig á daginn í prófum því það er erfitt að hugsa svona mikið um leiðindi. 8. Knús eru nauðsynleg til að viðhalda geðheilsunni. 9. Maður sparar fullt af tíma með því að panta óhollustu take away í stað þess að elda 10. Það er bannað að fitna í prófum svo að allt nammið og óhollustan verður bara eins og fiskur og ávextir. 11. Það er eðlilegt að eyða tímanum í að taka til í fataskápum og laga til. Manni líður jú betur þegar allt er hreint. 12. Það þarf samt að læra á milli svo að.... Hafdís skrifaði klukkan 2:27 e.h. |
29.4.04
Í dag er dagur dugnaðar.
Það þýðir að ég verð með nefið ofan í bókunum fram eftir degi og hyggst lítið vafra á netinu!( Sigurjón þegar ég segi vafra meina ég skoða síður sem vinir mínir eiga en ekki eitthvað fólk út í bæ sem telur sig vera frægt). Ég er að hugsa um að fara út í bakarí að kaupa mér heilsubita í tilefni dagsins og eyða restinni af deginum upp í VRII með eyrnatappa. Ég finn á mér að þetta verði góður dagur! Hafdís skrifaði klukkan 12:09 e.h. | Stórhlauparinn, erkifjandinn og hörkugellan Þórunn Erlingsdóttir a.k.a Tóta fljóta er 23 ára í dag, ég sendi henni hugheilar afmælis-og saknaðarkveðjur. Hafdís skrifaði klukkan 12:06 e.h. |
28.4.04
Ég er búin að komast að því að ég sé með þeim frægari sem hafa fæðst 1.mars. Fletti þessu upp á einhverri síðu og komst að því að þeir einu frægu sem hafa fæðst þennan dag eru sápuóperuleikarar í sápum sem ég hef aldrei séð. Einn reyndar út Days of our lives en ég haf náttla bara séð þá þætti í FRIENDS.
Ég var rétt í þessu að komast að nokkru STÓRMERKILEGU. Samkvæmt biblical scholar/ minister/astrologer, Rev. Don Jacobs fæddist Jesú 1.mars árið 7 B.C kl. 1:21 am. Með þessu hlýt ég að slá ALLA hina út :) Ég er ánægð með þennan mann! Fyrir þá sem vilja vita hvað gerðist 1.mars er sniðugt að skoða þessa síðu. en já, ÉG VANN :) Hafdís skrifaði klukkan 9:10 e.h. | Það er svo gaman að vera til þegar veðrið er gott. Reyndar er alls ekki skemmtilegt að læra þegar veðrið er gott en það er mun skemmtilegra að taka æfingar. Ég borðaði hádegismatinn minn úti í góðum félagsskap ungfrú Margrétar danadrottningar og Sveinbjörns hins sæta. Við Sveinbjörn vorum sérlega hollustuleg og fengum okkur BOOZT en matseðill Margrétar verður ekki opinberaður hér. Gestagangnum var þó ekki lokið þá því Eva Mjöll ofurnágranni kom í heimsókn um hálftíma eftir að Margrét rauk út í veður og vind og sat lengi lengi og hámaði í sig jógúrtkökur. Það var mjög gott þar sem þær sem hún borðaði setjast þá ekki á rassinn á mér :) Mamma bauð svo upp á dýrindis kvöldmat sem toppaði daginn. Núna þarf ég að fara í sturtu til að þvo af mér skít og svita og svo þarf ég að tækla skemmtilegu,skemmtilegu lífeðlisfræðina þar sem ég tafðist mjög í dag og þarf að vinna upp :) Hafdís skrifaði klukkan 8:13 e.h. |
27.4.04
Sveinbjörn verður ekki ánægður með mig núna. Ég átti að vera lítið á netinu í dag en samkvæmt þessari síðu er ég búin að vera óvenju mikið á netinu í dag. Það segir þó ekki alla söguna þar sem ég er líka búin að vera soldið dugleg að læra. Er næstum búin með HEILAN kafla og það tekur sko tímana tvenna. Vona bara að hann lesi þetta ekki...Hafdís skrifaði klukkan 2:33 e.h. | Það er svo gaman að opna skyrdollu þar sem ekkert skyr hefur slest upp á lokið, svo að maður þarf ekkert að hafa fyrir því að taka gumsið af álfilmunni. SNILLD. Hafdís skrifaði klukkan 2:32 e.h. | Ég er að lesa um hvað botox meðferð getur verið hættuleg ef efnið er ekki nógu útþynnt. Smá hluti af þessu efni getur lamað alla starfsemi líkamans, þannig að öndunarvél og læti þarf til að halda lífi í viðkomandi þangað til að mótefni berst. Ég myndi ekki fara í svona meðferð nema að vera viss um að efnið væri VEL útþynnt - annars nei, ég færi ekki í svona meðferð held ég. Nema ef ég myndi afmyndast í slysi eða eitthvað! Hafdís skrifaði klukkan 2:29 e.h. | Þegar ég er búin í prófum, nánar tiltekið 12.maí, ætla ég að fjárfesta í einhverri dummies bók. Við Sveinbjörn rákumst á Fitness for Dummies í gær, Weightlifting for dummies, Calculus for dummies og Guitar for dummies á leið okkar í gegnum Bóksölu stúdenta í gær. Þetta eru sérlega áhugaverðar bækur. Ég kynnti mér fitness for dummies og komst að því að ef maður getur ekki sagt HELP MOMMY á meðan maður hleypur er nauðsynlegt að hægja á sér. En ef maður getur sagt Viva da vida loca án erfiðleika (e.without a belt) er hægt að auka hraðann. Tal er sem sagt ágætur mælikvarði á hraða. Ég hef löngum verið þekkt fyrir að samkjafta á skokkinu en ég vil nú ekki halda því fram að það sé vegna þess að hraðinn sé ekki nægilega mikill. Stundum á ég reyndar í meiri erfiðleikum með það en ég læt það iðulega ekki aftra mér frá því sem ég geri best - tala þ.e. Ég held samt að Guitar for dummies sé sniðugt fyrir okkur skötuhjúin þar sem við höfum bæði mikinn áhuga á gítarspili. Nú þegar kann ég byrjunina á einu lagi þrátt fyrir að hafa bara snert gítar svona þrisvar á ævi minni. Þetta er að sjálfsögðu byrjunin á Nothing else matters með Metallicu. Ég held að ég verði bara hæfileikarík og þegar ég segi bara hæfileikarík meina ég ekki að ég verði alltaf bara hæfileikarík heldur að ég verði pottþétt góð í þessu eins og öllu öðru. Stúlkukind í bekknum mínum sagði alla vega við mig í 8.bekk að ég þyrfti alltaf að vera fyrst og best í öllu - þar hitti hún sko á það. Sjáið mig bara í dag. Ætli helstu hæfileikar mínir í dag séu ekki að baka oft kökur, sjónvarpsgláp, netflakk og að ferðast með námsbókina á milli staða. Ég er nefnilega mjög dugleg í því að taka bókina mína með mér út um allt en ekki eins dugleg við að lesa hana. Ætli það væri ekki sniðugt ef þetta væri á hinn veginn. En eníhú, ég ætla að vera dugleg að skoða bækur fyrir treggáfaða í sumar ;) Over and out. Hafdís skrifaði klukkan 1:35 e.h. | Þeir sem sitja sveittir yfir bókum allan daginn og taka sér bara örlitla pásu til að skoða á netinu, þeir eru hvattir til að lesa þessa síðu sér til dægradvalar og skemmtunar. Ég er alveg dolfallin yfir þessari visku - þeim hluta sem hin treggáfaða ég skil alla vega! Hafdís skrifaði klukkan 1:23 e.h. | Þau ykkar sem eruð heróínfíklar og eruð að hugsa um að hætta getið haft samband við mig til að fá nákvæma lýsingu á withdrawal symptoms. Lífeðlisleg sálarfræði er svaðaleg! Hafdís skrifaði klukkan 1:20 e.h. | Rakst á þessa síðu sem Dr.Gunni skrifar á og fannst þetta nokkuð sniðugt hjá honum. Maðurinn er náttúrulega snillingur. Hvet ykkur til að skoða viðbæturnar við fjölmiðlafrumvarpið. Hafdís skrifaði klukkan 11:26 f.h. | Það var yndislegur dagur í gær. Mér gekk vel að læra, var bara nokkuð dugleg. Það er voða uppörvandi að sitja út á svölum með sólgleraugu og lesa. Við Sveinbjörn fórum líka snemma á æfingu til að ná góða veðrinu og hún gekk bara prýðilega. Í gærkvöldi var líka skemmtilegt sjónvarpskvöld. Horfðum á the O.C og svo horfði ég á Survivor með öðru auganu á meðan ég skoðaði disk sem fylgdi bókinni minni og er með animations af líffærunum og sjálfsprófi og öðru sniðugu. Að sjálfsögðu horfði ég svo á CSI en það er einn af þeim þáttum sem ég á má ekki missa af. Í seinustu viku sýndu þeir einmitt gamlan þátt án nokkurra skýringa og það kætti mig ekki mikið. Við vorum búin að koma okkur vel fyrir og vorum ekki lítið spennt þegar þáttur sem við höfðum séð byrjaði og það leiðréttist ekkert. Ég sendi skjánum harðorðan póst um þetta en fékk engin svör - frekar lélegt. Ég veit að þetta er ókeypis en það gefur þeim ekkert leyfi til að svindla á okkur. Ég verð líka alltaf jafn pirruð yfir þessu íslandsmeti í lestri hjá Fréttablaðinu. Er ekki eðlilegt að fleiri lesi fréttablaðið en Morgunblaðið þar sem að annað þeirra er ókeypis? Ég fæ það reyndar sjaldnast svo að ég er væntanlega ekki inn í þessari tölu. BULL. En aftur að gleðinni. Árni hvatti mig til þess að finna út hvað ég væri búin að halda svona síðu lengi úti - ég byrjaði að skrifa um sumarið 2002 þegar ég var að vinna hjá SÍF. Fyrst hélt ég síðunni minni úti á tripod en breytti yfir í blogspot þegar Bergrós nokkur Ingadóttir hélt úti síðu þar. Spurning hvort að hún hafi ekki bara verið frumkvöðull að þessu blogspot æði ;) Hún gafst reyndar upp á því að skrifa fyrir nokkru og ekki lái ég henni það. Það er brjálað að gera hjá henni í úglandinu og verður víst engin breyting þar á fyrr en hún kemur aftur heim í lok sumars. Síðan mín á sem sagt afmæli í kringum 2.ágúst en það er merkisdagur fyrir mig að mörgu leyti, Árni Pétur frændi minn sem nú er dáinn fæddist á þeim merka degi og bróðir hans og konan hans eiga von á sínu öðru barna 2.ágúst. Mjög sniðugt að ég hafi einmitt byrjað að skrifa á þessum degi. En jæja, heilinn bíður mín! Hafdís skrifaði klukkan 11:23 f.h. |
26.4.04
Ég gleymdi víst að nefna að ég er búin að fá vinnu!
Ég fékk vinnu í Íslandsbanka fyrir páska en einhvern veginn láðist mér að nefna það! Ég verð sem sagt að vinna í Íslandsbanka upp á Lynghálsi en það er einmitt viðskiptaver bankans svo að ég sinni ekki gjaldkerastörfum heldur öðru spennandi ;) Þar sem ég er ekki alveg með á hreinu hvað ég er að fara að gera kem ég ekki til með að útskýra það fyrr en þar að kemur....vona að ég skilji það þegar ég byrja að vinna við það :) Hafdís skrifaði klukkan 11:46 f.h. | Ég missti af Kill Bill á laugardaginn sökum þess hvað Íslendingar eru orðnir tímanlegir. Þess í stað varð videóspóla fyrir valinu og þægilegheit hérna í kotinu með Gingu vinkonu og Ingva Við skelltum okkur svo bara á Bana Bill í gærkvöldi með Evu og Gunna og seinu skötuhjúunum sem boðuðu mætingu kl.19.30 en mættu ekki sjálf fyrr en 19.55 - gott. Það er ekki hægt að segja mikið um seinni hluta myndarinnar Bana Bill hún er bara SCHNILLD, ekkert annað. Það skyggði þó soldið á myndina hvað poppið var ógeðs salt, ég náði ekki einu sinni að borða helminginn af mínu þar sem ég var farinn að þjást af vökvaskorti - ekki gott. Hvað er það svo að geta ekki fengið sódavatn úr vél þegar maður drekkur ekki gos? Rugl! Mæli sem sagt eindregið með þessari mynd og Evu og Gunna sem félögum en síður með Rakel og Himma sökum seinleika ;) Hafdís skrifaði klukkan 11:44 f.h. |
24.4.04
Sveinbjörn stóð sig vel í að spilla mér í dag. Dró mig í Skipasund til að horfa á Man.Utd - Liverpool og gerði mig vægast sagt brjálaða á meðan leiknum stóð. Fyrir þá sem ekki vita held ég með fyrrgreinda liðinu en hann því síðara auk þess er ég tapsárari en allt sem tapsárt er og því varð ég ekki sérlega ánægð í dag. Sveinbjörn hvatti sitt lið eðlilega áfram á meðan ég hótaði honum öllu illu. Við þekkjumst reyndar það vel að fyrirgefningin var ekki lengi á leiðinni en ég fann blóðflæðið aukast aftur þegar hann fagnaði yfir íþróttafréttunum. Pabbi var reyndar mættur á svæðið þá og því hafði Sveinbjörn sig hægann.
Í kvöld er það bara KILL BILL vol.2 - ég er ekki lítið spennt. Vona að freknan hérna að neðan hafi glatt ykkur, Góðar stundir, Hafdís skrifaði klukkan 7:25 e.h. |
23.4.04
Myndaalbúm var að líta dagsins ljós, úr því eru nokkrar myndir úr innflutningspartýi Tótu og Orra. Við vorum reyndar mest að fikta í myndavélinni svo að það eru engin sérleg gæði á þessum skotum okkar ;)
Þarf samt að redda mér svona alvöru albúmi sem ég geymi á háskólasvæðinu mínu. Ég fiffa það þegar ég verð tölvunörd :) Fleiri myndir koma væntanlega við betra tækifæri, skoðið þessar bara nokkrum sinnum á meðan :) ![]() Hafdís skrifaði klukkan 11:58 e.h. | Ég er orðin svo fær í því að horfa á stöð 2 ruglaða að það er bara rugl. Ég rústa heilu og hálfu þáttunum. Reyndar munar mjög um að hafa hljóðið en ég er líka mjög góð í því að lesa textann. Rétt í þessu var ég að klára að horfa á Friends, ágætur þáttur. Sveinbjörn var svo latur að nenna ekki í sturtu á réttum tíma svo við kæmumst í Skipasund til að horfa á þáttinn óruglaðann. Núna ætla ég samt að drífa mig heim til mömmu og horfa á IDOL. Hafdís skrifaði klukkan 9:01 e.h. |
22.4.04
Það er mikið svekkelsi sem felst í því að hýrast ein í sófakitru, horfa á stráka í körfubolta og heyra í vinkonum sem eru í sundi og bláa lóninu, að lesa um boðspennu. Nei, þetta var sko ekki ánægjulegur dagur í dag!
Við Sveinbjörn fórum þó út að skokka í morgun og fengum jafnvel eina freknu á meðan því stóð. Góð tilfinning að skokka í stuttermabol á Íslandi. Ég keyrði Sveinbjörn svo í vinnuna þar sem hann er sérlega duglegur og fór og keypti blóm handa elskulegri móður minni til að gleðja hana smá. Hún hefur svo oft gefið okkur systrum sumargjöf án þess að fá mikið tilbaka og því ákvað ég að segja það með blómum. Gular rósir urðu fyrir valinu en eins og mín er von og vísa tók slatti langan tíma að velja litinn. Ég er sem sagt ekki mjög dugleg þegar kemur að ákvarðanatöku og hyggst bæta mig í því í framtíðinni. Síðan ég fékk smá pönnukökur heima í Skipasundi hefur dagurinn farið niður á við. Mér finnst ósköp leiðinlegt að hanga ein heima og lesa þessi leiðindi og hlakka mjög til að geta farið og sótt Sveinbjörn og skutlað okkur aftur í Skipasundið til að fá okkur mad í maven. Mér er skapi næst að fara bara að breyta og færa húsgögnin úr stað. Sveinbjörn hinn flinki teiknaði nefnilega íbúðina okkar og húsgögnin upp í AUTOCAD og núna get ég skrattast með þau upp að öllum hugsanlegum veggjum og séð hvernig það kemur út í tölvunni áður en ég legg á mig óþarfa líkamlegt áreiti. Er soldið að spá í að breyta til í svefnherberginu en ég geymi það e.t.v til morguns og sýni smá lit og les nokkrar blaðsíður áður en ég fer. Vá, hvað þetta hlýtur að hafa verið skemmtileg lesning. Með þessu áframhaldi verð ég bitrari en Ívar. Hafdís skrifaði klukkan 5:58 e.h. |
21.4.04
Hver er uppáhalds liturinn ykkar og afhverju?Hafdís skrifaði klukkan 4:56 e.h. | Það ætti að banna lærdóm á svona fallegum dögum, alveg til skammar að hýrast inni í þessum hita og fallega veðri. Það verður bara ljúft að skella sér á æfingu á eftir. Ég gerði mér lítið fyrir í gærkvöldi og eldaði fyrir tengdamömmu og tilvonandi mág minn. Sveinbirni langaði svo að horfa á fótboltaleikinn og ég ákvað þá að það væri sniðugt að elda bara handa þeim í leiðinni. Við höfðum það sem sagt bara gott í gærkvöldi í stað þess að læra - ég er ekki að standa mig nógu vel í þessum undirbúningi. Líka farin að velta fyrir mér hvort að það sé sniðugt að ætla að lesa trilljón kafla fyrir próf eða hvort sé betra að lesa vel valda kafla og læra bara feitletruðu orðin í hinum og skoða disk sem fylgir bókinni - alveg að hallast að því! Ætli ég heyri ekki bara í proffa vinkonum mínum og spyrji þær ráða. Ég er annars búin að vera ólík sjálfri mér í dag, vaknaði snemma og skellti mér í sturtu og svo hef ég verið alveg sérdeilis hollustuleg í dag. Langar eiginlega bara í eitthvað hollt. Greyið skúffukakan fær alveg að kenna á þessu og er bara borðuð af Sveinbirni. Erna kom reyndar um daginn og reyndi 2 sneiðum ljúflega niður á meðan ég borðaði vatnsmelónu - úff, soldið öfugsnúið :) Í nótt dreymdi mig að ég væri á ferju, í klefa með fullt af öðrum og við Lísa vinkona vorum búnar að stilla klukkuna á eitthvað ákveðið og þegar síminn hans Sveinbjörns pípti í morgun var ég alveg rugluð...svakalegt þegar maður lifir sig svona inn í draumana og er heil lengi að jafna sig! Hafdís skrifaði klukkan 4:56 e.h. |
20.4.04
Ég mætti í umræðutíma í einu fagi áðan ásamt 10 öðrum, það eru einmitt 220 skráðir í þennan áfanga en einhverju færri í prófið þó! Heimska fólk, hann gaf upp fullt af atriðum sem gagnast vel í próflestri.
Þar sem það voru svona fáir var þetta sérdeilis góður staður fyrir mig til að vera fyndin - öllum til mikillar ánægju og yndisauka runnu brandaranir út úr mér! Já, ég er bara ennþá jafn sniðug og ég var á laugardaginn. Veit ekki hvað þetta er! Við Sveinbjörn fengum senda rukkun frá Intrum Justica eða hvað sem þetta heitir nú vegna skuldar á videoleigunni sem við verslum við. Hún hljóðaði sem sagt upp á rúmar 6000 krónur. Við tókum nefnilega SHINE sem fríspólu fyrir jól en karlinn fann hana ekki í kerfinu og skrifaði spóluna okkar á annað númer. Núna lítur sem sagt út fyrir að við höfum aldrei skilað þessari spólu - algjört rugl. Á seðlinum voru líka skuldir vegna aukadags spólu og fríspólu. Ég vissi ekki að maður fengi sekt á fríspólu. Sveinbjörn fór núna í massabol og er að redda þessu...Hringdi reyndar í mig til að spyrja hvort ég myndi hvað spólan héti en ég kom bara með snilldar ráðleggingar í staðinn. Sagði honum bara að biðja gaurinn um að leita að spólum sem var skilað 30.12 eða daginn eftir að við tókum spóluna. Við munum hvaða aðalmynd við tókum og eðlilega nafnið á aukamyndinni en ekki nafnið á myndinni sem spólan var skráð undir. Þetta mál er allt hið óskiljanlegasta og það versta er að víst það er komið í þetta innheimtufyrirtæki er voðalega fátt sem við getum gert. Það var sem sagt sendur seðill til okkar um að þetta færi í innheimtufyrirtæki ef við borguðum ekki fyrir einhvern ákveðinn dag en gallinn var að hann var sendur á Eggertsgötu 2 og pósturinn hefur ekki klikkað að þessu sinni! Þá man ég að um daginn fékk ég bréf sem var sent 6.1 - sérdeilis skemmtilegt. Alltaf gaman að fá bréf í byrjun apríl sem voru send í janúar - þetta kallar maður góða þjónustu! Spurning um að skipta bara við aðra videoleigu í framtíðinni Hafdís skrifaði klukkan 2:57 e.h. |
19.4.04
Til hamingju með daginn litla krúttið mitt!
Rauða ljónið mitt er nefnilega heilu ári eldra í dag ;) Congrats! Hafdís skrifaði klukkan 9:50 e.h. |
18.4.04
Viðburðarík helgi er nánast að baki.
Á laugardaginn var minn fyrsti samlestur í sálfræði. Við hittumst nokkrir vitleysingar og reiknuðum dæmi fyrir próf - reyndar töluðum við líka soldið mikið en það gerist held ég alltaf. Ég var með miklar yfirlýsingar í byrjun um að ég ætti enga vini og þess vegna væri aldrei hringt í mig en þær kolféllu þegar ég fékk 3 símtöl á jafn mörgum tímum. Reyndar var ástæða fyrir því, það var innflutningspartý um kvöldið og alla vantaði hugmyndir ;) Ég ætlaði svo að skella mér í Smáralind til að finna mér einhvern sætan bol fyrir kvöldið því ég er eins og aðrar stelpur að því leyti - ég á aldrei nein föt. Sveinbjörn sannfærði mig þó um að sleppa því þar sem hann nennti ekki og ekki nennti ég að fara ein að máta föt. Það er ekki sérdeilis skemmtilegt. Þá nenni ég oftast ekki að máta og kaupi bara blint. Tóta og Orri buðu okkur skötuhjúunum svo í mat fyrir partýið góða, Tóta sýndi þar með og sannaði að hún er ekki bara góð á brautinni heldur líka í eldhúsinu. Sérlega ljúfengt! Við átum náttúrulega á okkur gat eins og okkar er von og vísa. Þegar leið á kvöldið fór fólk að týnast inn og ég sýndi aukin merki þess að hafa skrópað á æfingu - ég gat ómögulega setið kyrr! Sumir rauðhærðir gestir gerðu óspart grín að iði mínu og kenndu áfengismagni þar um og notuðu tækifærið til að segja aulabrandara sem ég hló náttúrulega mikið af og á einum tímapunkti grenjaði ég úr hlátri en þá náði aulahátturinn hápunkti! Það var ágætt að losna við rauða ljónið því þá gat ég hætt að þykjast vera róleg en ég varð róleg af því. Guðný heimtaði svo bæjarferð og karl faðir minn gerði sér lítið fyrir og skutlaði okkur á Hverfis þar sem ég hitti margt gott fólk Sveinbjörn hitti æskuvin sinn, ég hitti góðan frænda minn og við höfðum um margt að spjalla - eiginlega það margt að lítið fór fyrir dansi. Fleiri Vopnfirðingar létu svo sjá sig þegar leið á kvöldið og því var nánast um árshátíð að ræða þar sem við vorum 6 og eins og alþjóð veit búa ekki margir fleiri fyrir austan! Fleira frjálsíþróttapakk skreytti svo þetta ágæta kvöld og við vorum ekki komin heim fyrr en seint og um síðir - já, hálf fjögur er seint og um síðir! Við voru svo þess heiðurs aðnjótandi að fara í fermingarveislu í dag - það sem þær eru ekki leiðinlegar. Við þekktum heldur engann en kynntumst fyrir vikið mörgum en ég var guðs lifandi fegin þegar við komum heim. Fínt að fara úr hælaskónum - já, þið lásuð rétt. Kakan olli líka miklum vonbrigðum, við hefðum ekki þurft að bíða eftir henni. Það var mexíkankst þema og ég er nú enginn sérstakur aðdáandi þess konar matar! Samt ágætt alveg hreint! Hafdís skrifaði klukkan 5:44 e.h. |
16.4.04
Það er ekki sniðugt að vera duglegur að læra í tvo daga og latur í tvo. Held að það séu ekki sniðug skipti svona rétt fyrir helgi. Það verður í nægu að snúast hjá mér um helgina! Ég tek trúlega tvær æfingar á morgun þar sem ég skrópaði í gær. Svo er innflutningspartý hjá Tótu og Orra annað kvöld sem verður eflaust fyllt stuði.
Mér finnst leiðinlegast af öllu að brjóta saman þvott hvað finnst ykkur? Hafdís skrifaði klukkan 2:11 e.h. |
15.4.04
Ég er eitthvað slöpp og sljó í dag, finn til í fótunum og hausnum og hef voðalega lítið getað lært sökum þessa í dag. Ég svaf eitthvað asnalega í nótt og dró Sveinbjörn niður í svaðið með mér og því komum við ekki miklu í verk í dag! Ég er að hugsa um að panta mér bara tíma í nudd í dag en taka mér annars frí frá æfingum og spriklum og hvíla lúin bein. Þarf svo að komast í nudd þar sem ég er kominn með sýru í lappirnar áður en ég legg af stað - það er ekki mjög sniðugt.
Ég lærði af þessum sökum ekki mikið í dag og aukadagurinn minn fer væntanlega fyrir lítið með þessu áframhaldi. Ég er bara að dunda mér við að horfa á SPIDERMAN með Sveinbirni - er reyndar búin að sjá hana áður svo að ég get horft með öðru auganu. Æ, það er erfitt að vera svona latur! Magga vinkona var reyndar líka eitthvað slöpp svo að það getur verið að þetta sé eitthvað að ganga - gangandi leti :) Ég massa bara lærdóminn á morgun! Ég heyrði í gamalla vinkonu minni í dag sem ég hef ekki heyrt í í nokkur ár. Ótrúlega gaman að ná sambandi við gamla vini sína. Enn þann dag í dag eigum við margt sameiginlegt og mér þótti afskaplega vænt um að heyra í henni! Maður á aldrei nóg af vinum, nema maður heiti Erna Dögg eða Árni - þá á maður tonn! Væri kannski sniðugt hjá mér að skipta um nafn... Hafdís skrifaði klukkan 4:10 e.h. |
14.4.04
Það hlaut að koma að því...
Mér hefur gengið mjög vel að æfa síðustu vikurnar og hef verið svona nokkuð spræk þegar ég á að vera það en í dag datt ég alvarlega á rassinn. Skeit svoleiðis illalega á mig í 150m sprettum en það var ekki það versta. Ég var í fyrsta skipti í langan tíma að hlaupa með einhverjum öðrum en Sveinbirni og Þóru sem er svipað ,,fljót" og ég eða það kurteis að hún vilji ekki svekkja mig með því að hlaupa hraðar. Í dag var að ég að hlaupa með stelpum sem eru báðar mjög snöggar og þá var ég náttúrulega akkúrat lélegust í dag - gott! Er búin að vera ótrúlega svekkt síðan þá. Strax í fyrsta spretti fann ég að ég var ekki góð og fann hvað ég var þreytt í fótunum. Fannst ég líka var súr strax og eftir það lá leiðin bara niður á við. Ég var alveg dauð eftir þrjá spretti en er til að mynda nýbúin að taka 5 stykki á meiri hraða með jafn stuttum hvíldum. Æ, ég er drullu svekkt! Það gekk nú samt ekki allt á afturfótunum, ég náði að klára að lesa Tilraunasálfræði í dag, var búin að áætla að það yrði á morgun svo að í fyrsta skipti í sögu minni er ég á UNDAN áætlun. Nokkuð ánægð með það. Ég fæ því auka dag fyrir aðferðafræðina sem er mjög gott þar sem hún er frekar erfið og af því að það eru fæstir dagar fyrir það próf! Ég er búin að vera að læra upp í Lögbergi með Möggu vinkonu, það er sérlega gott. Mjög fyndið að hún skuli eiga aðra vinkonu sem er meiri sluxi en ég - ánægjulegt mjög fyrir mig! Ég held nú samt að ég sé bara frekar dugleg að læra á daginn núna. Næ nokkuð góðri einbeitingu þarna. Ég er ennþá drullu þreytt eftir æfingu og er held ég komin með sýru í hendurnar á því að skrifa þessi orð svo að ég læt þetta dugaaaaaaaaaaaaa Hafdís skrifaði klukkan 8:15 e.h. |
13.4.04
Úff, Óli M var ekki að gera góða hluti í kvöld. Hann átti að koma og borða páskaeggið mitt en í staðinn kom hann með púkaegg nr.4 púkinn, hann spillti okkur síðan enn meira með bjór og hér sátum við í góðu yfirlæti, drukkum bjór, borðuðum snakk og páskaegg og spjölluðum um útskriftarferðir og gifs ;)
Sérlega gaman að fá hann í heimsókn þó að húsmóðirin ég sé óvön því að fá gesti sem koma með nesti með sér. Ég lofaði honum þó köku við tækifæri. Baka handa honum þegar hann er búinn að standast prófin með láði! Ég opnaði páskaeggið þó ekki eftir að hann fór - léleg. Hefði átt að láta hann hjálpa mér. Málshátturinn í því eggi var nokkuð skondinn. Oft njóta hjú góðra gesta - gæti ekki átt betur við ;) Annars bara kát... Hafdís skrifaði klukkan 11:40 e.h. | Það er erfitt að vera brussa! -Þá ertu alltaf með ferska marbletti hér og þar um líkamann eftir að hafa labbað á eða rekið þig í hluti sem þú veist að eru á staðnum en gerir þér ekki grein fyrir að þú sért að labba of nálægt þeim. -þú ert alltaf rennandi blaut eftir uppvaskið þar sem meira vatn fer á þig og upp fyrir vaskinn en ofan í vaskinn og á diskana! -það er algengt að missa hluti í gólfið -það að brjóta eitthvað er ekkert nýtt og því fá stell sem eru HEIL -það kemur ósjaldan fyrir að eitthvað GLEYMIST Já, það er erfitt að vera ég. Rétt í þessu rak ég hendina alvarlega í hilluna og fékk bæði sár og fæ trúlega marblett í kjölfarið... Hafdís skrifaði klukkan 9:17 e.h. | Ég stóð við mitt, ég er byrjuð að læra! Ég er líka á svakalegri ferð, þetta flýgur alveg áfram hjá mér. Tók mig til í gærkvöldi og bjó til lærdómsplanið góða. Eins og er lítur út fyrir að ég standi við fyrstu þrjá dagana á planinu en ég ætlaði mér þrjá daga fyrir síðasta prófið mitt, 4-5 fyrir próf númer 2 og restin af dögunum fer í próf nr. 1 en það er mesta lesefnið fyrir það próf. Sökum heimsku minnar forðum daga fer ég bara í þrjú og tek eitt sumarpróf en í því prófi þarf ég einmitt að læra ljótu hugtökin á ný, gera eitt stykki tilraun og skýrslu í kjölfar hennar og svo kemur prófið góða! Ég brá á að það ráð að skella mér upp í Lögberg, annað heimili ungfrú Margrétar vinkonu minnar og smitast af lærdómsmóð hennar í stað þess að kúldrast ein heima og eyða tímanum frekar í að taka til, þvo, vaska upp og horfa á sjónvarpið! Já, þetta var sko sniðugt plan hjá mér. Það gladdi mitt litla hjarta mikið að hitta meiri sluxa en sjálfa mig - vinkonur Möggu voru að byrja að læra síðan ég kom hingað en þar áður voru þær að flissa yfir einhverjum lágkúrulegum myndum af horuðum strákum í þröngum búningum á netinu! Ég er nánast sambandslaus við umheiminn, samdi bara í smá stund við Ungfrúnna góðu um að lána mér tölvuna sína! Hún er góð kona! Með þessu kem ég líka í veg fyrir óþarfa hangs á MSN hjá stúlkukindinni en ég hef þurft að fylgjast nokkuð náið með þessari hegðun hennar og hef gert mitt besta til að refsa þeirri hegðun en styrkja lærdómshegðun. Hef til dæmis spurt hana út í námsefnið og annað sem hvetur til náms - já, ég er líka góð kona ;) Vitið þið hvað það er að vera dyntóttur? Ég sagði Sveinbirni að ég yrði örugglega dyntótt þegar ég yrði ólétt, datt þetta í hug í kjölfarið á því að hafa horft á auglýsinguna um greyið manninn sem þarf að fara að kaupa eitthvað handa konunni sinni um miðja nótt þar sem hún er svöng. Finnst líklegt að ég verði svoleiðis...Við áttum miklar samræður um merkingu orðsins dyntóttur í kjölfarið. Mér reynist oft erfitt að útskýra hvað orð þýða - ég veit hvað þau þýða og hvernig á að nota þau en finnst oft erfitt að útskýra með öðrum orðum hvað þau merkja. Annars er ég bara góð! Hafdís skrifaði klukkan 3:01 e.h. |
12.4.04
Líf mitt einkennist af svefni, æfingum, matarboðum og öðrum skemmtilegheitum þessa dagana. Ég er búin að taka 7 æfingar á 5 dögum. Er því líka búin að vera soldið þreytt og 10 tímar á nóttu hafa ekki verið nóg til að fullnægja svefnþörf minni. Ég hef reyndar líka verið hálf lystarlaus og ef til vill skýrir það hluta af svefnpurkusemi minni.
Stefni að því að hafa það gott í síðsta skiptið í kvöld. Sveinbjörn er búinn að elda handa mér og við ætlum að horfa á the OC og svo e.t.v í bíó þar sem við erum ekkert búin að fara en en er samt alveg líklegt að letin yfirtaki okkur og við höfum okkur ekki einu sinni upp úr sófanum. En maturinn bíður mín, catch you later! Öppdeit - ég nenni ekki að laga þetta. Var greinilega of lengi að skrifa þetta þar sem ég var að tala við Árna, Guðnýju, Kristínu og Möggu vinkonu á MSN á meðan! Öppdeit2: Lagaði spurningamerkin loksins...Nenntum ekki í bíó en höfðum okkur þó upp úr sófanum og í kökur til tengdó, eins og hina dagana langaði mig þó ekkert í en fékk mér smá svona fyrir kurteisissakir. En það var voðalega lítið! Bíóið verður bara að bíða betri tíma og svo er það bara lærdóur dauðans á morgun. Hafdís skrifaði klukkan 7:57 e.h. |
10.4.04
Afmælisbarn dagsins er Björn Þór frændi minn sem er nánast orðinn frægur þar sem hann er í hljómsveit með hinum eina sanna Kalla Bjarna. Ég þarf að fara á ball með þeim einhvern daginn!
Til hamingju með daginn frændi! Hafdís skrifaði klukkan 3:59 e.h. | Hef lítið verið í sambandi við umheiminn síðustu daga. Tók íbúðina svakalega í gegn á fimmtudaginn og fór á frekar erfiða en samt þægilega æfingu með Rach babe seinni partinn. Um kvöldið komu svo Sigurjón, Jóhanna og Kristín Birna í heimsókn til okkar skötuhjúa. Af því tilefni skellti ég í eina köku og einn heitann rétt, ég gleymdi kökunni reyndar aðeins inni í ofni þar sem við vorum að tala um eitthvað voða skemmtilegt og hún varð því ekki blaut eins og hún á að vera heldur bara svona eins og venjuleg kaka. Hún var samt alveg ágæt á bragðið. Í gær horfðum við á Liverpool - Arsenal, ég eyddi síðan seinni partinum af deginum í að hugga Sveinbjörn sem var soldið svekktur með sína menn. Við dreifðum huganum og þvoðum bílinn hátt og lágt, hann er eins og nýr! Í gærkvöldi var svaka matarboð í Skipasundi, nánast öll stórfjölskyldan. Ég fékk kalkúnn í fyrsta skipti og var nokkuð hrifin af honum. Þráinn þjálfarinn minn er samt ekki að gera góða hluti þessa dagana, hann er alltaf inni í hausnum á mér að segja mér að passa upp á hvað ég borða og því borðaði ég ekki mikið í gærkvöldi - ekki alveg ánægð með hann. Seinna um kvöldið hittum við svo vinkonur mínar úr saumaklúbbnum, það átti víst að vera stelpukvöld en við Rach misskildum það eitthvað og tókum gæjana okkar með en hinar skildu þá eftir heima :( Óheppnir þeir... Ég byrjaði svo daginn í dag á því að skokka, teygja og taka smá líkamsæfingar. Þegar ég var rétt komin úr sturtu og búin að borða Cheeriosið mitt frétti ég að félagar mínir Jóhanna og Kristín væru að fara að taka æfingu niður á velli og dreif mig þá aftur í fötin og skellti mér niður á völl. Við áttum reyndar ekki að gera það sama en ég vissi að ef ég myndi ekki drífa mig færi ég ekki á æfingu í dag. Það er nefnilega ekki auðveldast í geimi að taka æfingar einn - trust me I know! Ég er svo að hugsa um að læra soldið í dag en eftir það er allt óráðið. Spurning um að kíkja á Starsky and Hutch í bíó í kvöld. Annars óska ég ykkur bara gleðilegra páska elskurnar mínar, hafið það gott og passið ykkur á páskaegginu á morgun og Sigurjón, þú passar þig bara á namminu :) ( Sigurjón borðar nefnilega ekki páskaegg - skil það reyndar ekki en...) Hafdís skrifaði klukkan 3:57 e.h. |
7.4.04
Ég hélt að Bylgja hin fagra væri dauð en hún kemur greinilega alltaf aftur, bætti henni því AFTUR inn á tenglalistann minn þar sem hún er skemmtileg mjög og ekki skemmir fyrir að hún er Austfirðingur og nánast í fjölskyldunni :)Hafdís skrifaði klukkan 11:43 e.h. | Góð byrjun á góðum degi... Dagurinn hófst með morgunskokki, Sveinbjörn sýndi hörku og dró mig fram úr rúminu og út að hlaupa - já, það þarf soldið til þess! Á meðan ég hafði mig til tók hann sig til og gekk frá fullt af dósum og flöskum sem við erum búin að vera að safna. Eftir skokk, sturtu og morgunmat tók hann sig svo til og vaskaði upp og gekk frá á eldhúsbekknum, þreif eldavélina og var í alla staði mjög duglegur. Ég er eðlilega mjög lukkuleg með endurbætta útgáfu af kærastanum mínum og vona að þessi haldist óbreytt eða endurbætist enn meir en fari ekki aftur tilbaka. Núna erum við að fara að sýna dugnað og ætlum upp í skóla að læra í smá stund! Síðan bíður okkar æfing nr.2 seinni partinn í dag og hún er sko ekki af verri endanum. Kvöldið endar svo trúlega heima í Skipasundi þar sem Sveinbjörn er að fara að hitta fólkið sem tók við af honum í stjórn Naglanna - ætli ég horfi ekki bara á leikinn með pabba! Kominn tími til að hann fari að tala aftur um fótbolta við mig en ekki bara alltaf við Sveinbjörn :) Hafdís skrifaði klukkan 2:29 e.h. | Ég skemmti mér nokkuð vel yfir þessu. Gaman að sjá að það er allt við sama heyrgarðshornið á þessum bæ :) Hafdís skrifaði klukkan 12:12 e.h. |
6.4.04
Langþráð páskafrí er hafið - ég hyggst eyða því í lestur og í að nema hin skemmtilegustu fög! Þessi önn hefur reyndar bara verið leiðinleg og því get ég ekki beðið eftir því að hún endi. Næsta verður pottþétt skemmtilegri.
Annars eyddi ég deginum í IKEA með Evu og í að skipta um dekk á bílnum okkar. Sveinbjörn tók fyrstu tvö dekkin en svo leyfði ég honum að fara inn að horfa á leikinn og skipti um seinni tvö! Hann þurfti reyndar að losa felgurnar þar sem ég var ekki nógu þung - JEI :) Í kvöld hef ég haft það gott, fínn matur a la mamma, leikur, stöð 2 og núna er ég að horfa á Unce upon a time in Mexico og var að enda við bragðaref - Erna, það er svona ís með nammi í :) Það verður ljúft að sofa aðeins lengur út á morgun og taka svo bara æfingu snemma og reyna að læra smá í hausinn á sér! Hafið það gott þangað til, hvar svo sem þið eruð! Hafdís skrifaði klukkan 11:52 e.h. |
5.4.04
Ég gleymdi víst að taka fram að árshátíðin var sehr skemmtileg og eiga vinkonur mínar mikinn heiður í því hvað við skötuhjúin skemmtum okkur vel. Við sátum á borði með Ástu, Agnesi, Lilju og Gylfa en þau eru öll með mér í sálfræði og Gylfi er auk þess skýrslufélagi minn! Þau höfðu tekið forskot á sæluna og byrjuðu að drekka fyrir mat :) Við Sveinbjörn þurftum því að ná þeim síðar um kvöldið, ég byrjaði ekki fyrr en eftir mat þar sem ég einbeitti mér að því að borða á mig gat og hafði engan tíma fyrir fyllerí. Eftir að hafa borðað súkkulaðikökuna mína, hluta af Agnesar og látið mig dreyma um kökuna hennar Ástu fór ég á barinn! Það voru svaka tilboð og þar sem ég er alltaf að spara lét ég mig hafa það að drekka bjór, það munaði rúmum þrjú hundruð kalli á bjór og stelpubjór svo að ég sýndi hörku.
Að loknu happdrætti þar sem við Sveinbjörn fórum heim með 3 spólur og miða fyrir tvo í bíó drifum við okkur á dansgólfið og dönsuðum af okkur ýmislegt - ég af mér skóna og eyrnalokk, Sveinbjörn ef sér fötin, Lilja af sér hressleikann, Ásta dansaði aðallega af dansgólfinu en Agnes var hin kátasta og hélt uppi stuðinu. Ég hitti Ernu sem keppti í IDOL, hún er enn fallegri í persónu en í sjónvarpinu og syngur eins og engill. Við vorum ekki lengi að bonda og líst mér jafnvel og ef ekki betur á stúlkuna núna. Við Sveinbjörn fórum þó frekar snemma heim þar sem við höfðum samið við móður mína um að sækja okkur. Við erum líka orðin gömul og lúin og þolum ekki skemmtanir langt fram á nótt. Við vorum líka heldur slöpp í gærdag og það varð því ekki mikið úr deginum! Ég er hins vegar öllu hressari í dag, ánægð með sólina og er að reyna að vera dugleg að læra. Svo byrjar páskafríið formlega eftir hádegi á morgun - víha! Hafdís skrifaði klukkan 3:33 e.h. |
4.4.04
Börn sem fæðast í dag mega vera mjög lukkuleg. Ég væri alveg til í að vera með svona flotta kennitölu...040404-xxx0Hafdís skrifaði klukkan 3:45 e.h. | Hér að neðan eru úrslit úr fyrstu könnun af þremur um sjálfa mig. Mamma mín sigraði með glæsibrag og þess má til gamans geta að hún klikkaði bara á því hvar ég hefði kynnst Sveinbirni en það var reyndar tricky spurning þar sem ég sá hann fyrst í skólanum, hefði svo átt að hitta hann í partýi þar sem við vorum bæði í sama partýi en við fórum framhjá hvort öðru, síðan dansaði ég við hann á balli og heillaðist af þessari elsku og elti hann svo á skemmtistað og nældi mér endanlega í hann í þar :) Æfingafélagar mínir til margra ára, systir mín og Rakel saumaklúbbsfélagi fylgdu mömmu svo fast á eftir með 70 stig og heill herskari af fólki fékk 60 stig. Erla Margrét stóð sig án efa best í þessu prófi þar sem við þekkjumst ekkert svakalega mikið, vorum að vinna saman en ég held að ástæðan fyrir góðu skori hennar en lélegu hjá Ragnheiði sem var líka að vinna með okkur sé að við Erla erum báðar fiskar og eigum því margt sameiginlegt og það hefur án efa hjálpað henni. Sigurjón olli mér miklum vonbrigðum þar sem hann flaskaði á mikilvægum spurningum, já MIKIL vonbrigði í Sigurjóni :) Auga fyrir auga... Nei, svona í alvöru tala þá olli Ellen besta vinkona mín mér mestum vonbrigðum með skor upp á 40, veit ekki hvernig hún fór að því að klúðra svona! Hún mundi ekki einu sinni eftir hömstrunum mínum. Aðeins 2 mundu ekki eftir afmælisdeginum mínum og ég er nokkuð lukkuleg með það, ég man samt eftir þeirra...BJÓRDAGURINN strákar, þið ættuð að geta munað það! Það gladdi mig mjög hvað fólk þekkir mig vel, ég hélt að það yrði mun lægra skor! Hælaskórnir voru erfiðir enda þurfti ég sjálf að telja þá upp :) Næsta verður jafnvel skemmtilegri svo fylgist vel með, besta skor úr tveimur samanlagt gildir í keppninni og verðlaunin eru ekki af verri endanum. Matarboð fyrir sigurvegara og gest í Höllinni! Megi sá besti vinna! 1 Mamma 90 2 Jóhanna 70 3 Kristín Birna 70 4 Sæunn 70 5 Rakel 70 6 Sigurjón 60 7 erla perla 60 8 Robbi 60 9 Guðný 60 10 Árdís 60 11 Erna Dögg 60 12 Steingrímur 50 13 Ívar Örn 50 14 Árni.hamstur.is 40 15 Ellen Ellertsdóttir 40 16 Halla bjalla 40 17 Vigdís 30 18 Mimma 30 19 Elías 30 20 Ragnheiður 30 21 Bergur 30 22 Auður 20 23 Andri 20 Hafdís skrifaði klukkan 11:44 f.h. | Fyrsta skipti: Ég tók strætó á æfingu í fyrsta skipti í gær. Ég fór seinast í strætó þegar ég var pínulítið peð og þá fannst mér það geðveikt spennandi og fannst voða merkilegt að fá að ýta á stopp takkann og var mjög svekkt þegar ég var að fara niður á Hlemm með ömmu og mátti ekki ýta á stopp takkann þar sem strætóinn stoppaði hvort eð er þar :) Ég fór á fyrstu árshátíðina hjá minni skor í kvöld. Dró Sveinbjörn meira að segja með mér og skemmti mér mjög vel og kynntist skemmtilegu fólki. Alltaf gaman að fara á árshátíð með kærastanum sínum þar sem hann þekkir fleiri en maður sjálfur... Núna er ég að skrifa inn á síðuna mína í fyrsta skipti drukkin :) og ég efast ekki um að þið hafið gaman af því ;) Þið heppin að ég er ekki að bulla eitthvað fullt :) INNSKOT kl.11:45> það er ekki lengur gaman að fara í strætó, ég fékk reyndar heldur ekki að ýta á takkann :( Hafdís skrifaði klukkan 2:37 f.h. |
1.4.04
Er ég eitthvað skrýtin eða er maður bara útbúinn til að hafa hliðartösku á annarri hliðinni?
Þegar ég er með hliðartösku get ég bara verið með hana öðru megin, hægra meginn því að vinstri hliðin kann ekki að vera með svona tösku nema að hægri höndin hjálpi til og haldi borðanum á öxlinn, annars dettur taskan bara af. Ég er líka svona með fína veskið sem ég fékk í jólagjöf, mér gengur mun betur að vera með það hægra meginn! Líka þegar ég var lítil og var alltaf að burðast með íþróttatöskuna mína með mér, þá hélt maður á henni þannig að önnur höndin var við öxlina og taskan aftan á baki - vitið þið hvað ég er að meina. Þá voru bara svona höld og þá hélt ég líka alltaf með hægri - nema þegar ég var ekki með skólatöskuna, þá setti ég litlu höldin á axlirnar á mér og var með töskuna á bakinu, svona eins og bakpoka - voða klár. Efast um að einhver skilji þessar útskýringar þar sem ég geri það varla sjálf en...hvernig gengur ykkur að skipta töskunni á milli axla? Eða eruð þið alltaf með bakpoka? Hafdís skrifaði klukkan 4:31 e.h. | Setti inn link á Tótu mína, veit samt að hún á eftir að skamma mig fyrir að hafa skrifað Þórunn en hefðin hjá mér er að láta alla heita sínu rétta nafni og hún fær enga sérmeðferð í því, þessi elska. Um daginn bætti ég líka inn nokkrum án þess að láta fólk mikið vita af því. Annars er ég að hugsa um að láta Sveinbjörn hlaupa soldið á æfingu á eftir :) Vá, aulahúmor dauðans ;) Hafdís skrifaði klukkan 4:18 e.h. | Ég hef ákveðið að hafa þrjár kannanir um sjálfa mig og mitt líf. Það verður síðan samanlagt skor úr tveimur bestu af þremur sem ákveður hver þekkir mig best. Reikna samt ekki með að setja hinar kannanirnar í gang strax, væntanlega ekki fyrr en eftir páska þegar allt liðið er komið heim frá útlöndum og páskafríi innanlands. Ég veit að það eru nokkrar kvikindslegar spurningar á þessu prófi en það kom mér skemmtilega á óvart hvað margir vita mikið um mig - eða eiginlega meira hvað margir virðast hlusta á bullið í mér - eru greinilega góð í því að skilja mikilvæg atriði frá :) Bíðið spennt eftir næstu könnun og fylgist vel með... Hafdís skrifaði klukkan 1:19 e.h. | Ég þarf stundum að vera eins og aðrir. Endilega takið þátt: Take my Quiz on QuizYourFriends.com! Gangi ykkur vel ;) Hafdís skrifaði klukkan 12:26 f.h. |
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||