31.1.06
Ellismellur!

Ég farin að hallast að því að líkaminn minn sé talsvert eldri en hugurinn! Líkaminn virðist alla vega talsvert lúnari heldur en rest og skilur ekkert hvað hugurinn vill alltaf gera mikið og reynir að hægja á huganum með því að setja bremsur hér og þar. Þessar bremsur eru til dæmis mikil þreyta í baki og mjöðmum, miklar bólgur í ristum og hnjám og eymslu á svona tuttugu stöðum til viðbótar! Því miður get ég ekki kennt ströngum æfingum um þessa elli mína en ég get kennt ellinni um að ég geti ekki æft af alvöru! Morgunskokkið fékk að víkja fyrir blundi þar sem bakið hafði ekki verið sátt við stellingarnar sem ég valdi í nótt og vakti mig því mjög reglulega til að láta mig rétta úr sér!

En ég læt þetta sem vind um eyru þjóta og ætla galvösk að sýna þessum aumingja (líkamanum) í tvo heimana með því að fara á æfingu í dag og láta hann þjást soldið meira. Ég fann reyndar minna til í nótt og í dag en daginn þar áður og vil helst trúa því að það stafi af því að ég var extra dugleg að teygja á aumu stöðunum í gær!

Annars er það helst í fréttum að ég fæ reglulega aðvaranir frá stjórnendum Hi-netsins þar sem ég er með allt að 2% af allri umferð um netið. Sú gamla er nefnilega að sækja sér Prison Break þættina og lenti á OF góðri tengingu sem hefur þessi áhrif! Ég verð bara varkár næstu daga og sæki bara smá og smá í einu á meðan ég er í tímum!

Um helgina væri ég ofsalega til í að kíkja í sumarbústað eða einhver huggulegheit. Vantar soldið að komast í burtu, hvíla mig, borða góðan mat og vera í góðra vina hópi! Reyndar er próf hjá mér á þriðjudaginn og ég þyrfti því líka að læra! Það er samt bara skemmtilegt!

Ég ætla að horfa á handboltaleikinn núna á eftir og vera svo djörf að fórna leiðindatíma fyrir hann og skammast mín lítið fyrir það! Ég á glósur úr þessu fagi svo að ég hef ekki mikla samvisku!

Ég ætla að drífa mig í að taka lýsi og liðamín og vona að liðirnir mínir fari að komast í gírinn fyrir æfinguna!

Leikurinn er að fara að byrja, Áfram Ísland!

Hafdís skrifaði klukkan 2:32 e.h. |


30.1.06
Ég er þreytt!
Seinustu dagar voru erfiðir. Ég fór að snemma að heiman og kom seint heim! Hafði engan tíma til að hafa það gott (sem er slæmt) og svaf alls ekki nógu mikið!

Helgin var þó afskaplega skemmtilegt þrátt fyrir mikinn eril. Ég varð vitni að einu skemmtilegasta frjálsíþróttamóti sem haldið hefur verið á Íslandi. Ég fór á ágæta uppskeruhátíð, fékk skemmtilegt fólk í heimsókn og mjög góðan mat hjá mömmu minni í gær sem bjargaði gjörsamlega helginni!

Ég svaf reyndar afskaplega illa í nótt sökum elli - ég er orðin svo gömul að bakið á mér er ekki hrifið af því að liggja mjög lengi en allir aðrir líkamshlutar vildu fá að hvíla sig svo að ég var í hálfgerði krísu! Þetta endaði þó með því að bakið þurfti að lúta í lægra haldi og ég svaf lengur en ég átti að gera. Þurfti á því að halda að vinna upp smá svefn og hvíla lúin bein!

Annars þarf ég að fara að taka soldið til áður en ég massa lærdóminn. Hvort tveggja hefur fengið að sitja á hakanum út af bílamálum og vígslumóti en það breytist í vikunni!

Vona að þið hafið haft það gott!

Hafdís skrifaði klukkan 11:54 f.h. |


27.1.06
Við skötuhjúin erum frá og með deginum í dag stoltir eigendur að Opel Östru, árgerð 2002. Bílinn er að sjálfsögu (ÍR)blár og afskaplega fagur í alla staði!
Þeir sem hafa eitthvað slæmt um bílinn að segja geta bara röflað við sjálfa sig. Við höfum ekki áhuga! Erum búin að fá nokkrar ræður um hvurslags beygla þetta sé en blásum á slíkt þvaður og gleðjumst bara yfir kagganum sem er bæði fagur að utan sem innan, eyðir litlu og er ekki með hávær götuhljóð eins og sá gamli!

Ég ætla reyndar ekki að skora á ykkur í spyrnu bráðlega þar sem kagginn er með AÐEINS minni vél en sá gamli! Þessi bíll kemur þó ekki til með að verða langtímaeign þar sem við hyggjumst fá okkur AÐEINS meiri kagga þegar fjárráð verða betri!

Þó að það séu trilljón bílar til eru fáir á okkar verðbili eins og staðan er í dag! Við teljum okkur hafa gert góð kaup og fengum ásættanlegt verð fyrir gamla sem var að okkar mati að hruni kominn þó svo að hann hafi verið yndislegur í alla staði!

Nýji bílinn er til sýnis fyrir utan Eggertsgötu 34 (það var ekki laust stæði fyrir utan okkar)!

Sjáumst í höllinni á morgun - ég verð til sýnis í sjónvarpinu frá kl.16.40 - 18.50 - Njótið ;)

Hafdís skrifaði klukkan 11:58 e.h. |


24.1.06
Vikan byrjar soldið skringilega!
Við Sveinbjörn settumst upp í glænýjan lúxus bíl í gær og leið eins og við værum svakalega fancy! Ekkert smá gaman að koma í glænýja bíla sem eru með góðu new-car lyktinni. (Ég er reyndar búin að heyra að maður geti keypt svoleiðis lykt í bílinn en ég myndi ekki vilja kaupa svoleiðis í dolluna okkar - það væri bara fake)
Í dag settumst við síðan í annan glænýjan bíl og fórum út að borða í tilefni dagsins - þ.e heimkomu nýja bílsins. Tengdamamma og tengdapabbi (sem eru þó ekki hjón) voru bæði að kaupa sér nýja bíla í seinustu viku og fengu þá afhenta í gær og í dag! Við fengum að sjálfsögðu að prufukeyra og VÁ þvílíkur lúxus.
Tengdapabbi fékk Hyundai Santa Fe í gær - flottustu týpuna með sóllúgu, loftkælingu (hægt að stjórna hitanum með gráðum), cruise control, leðri í sætum, skyggðum rúðum og öllum græjum. Æðislegur bíll!
Tengdamamma fékk svo Hyundai Tucson afhentan í dag (þessi þar sem maðurinn fer upp á fjall til að sækja sér klaka í bílinn). Hann er líka æðislegur. Ofsalega flott inn í honum og það er rosalega gott að sitja í honum!
Við fórum á Ruby Tuesday í tilefni dagsins og borðuðum á okkur gat. Þetta var í annað skiptið sem ég fór á þann stað. Finnst þó staðurinn í Skipholti betri en þessi upp á Höfða - alla vega þjónustulega séð en maturinn var ofsalega góður!

Mér líður því soldið eins og stjörnu í dag - dubba mig upp til að setjast í bíl beint úr kassanum og fer svo út að borða og fæ eftirrétt og allt - er hægt að hafa það betra?

Komst að því í gær að mér er ekki ætlað að hafa það gott á 25 ára afmælisdaginn (1.mars) því að ég skila ritgerð þann dag, fer svo í próf 2 dögum seinna og svo aftur mánudaginn eftir (6.) Ég er ekkert sérstaklega hrifin af þessu þar sem mig langaði afskaplega mikið að halda upp á að vera orðin tuttugu-og fimm ára! Ætli ég reyni ekki bara að fresta afmælinu eitthvað nú eða halda upp á seinustu dagana sem tuttugu-og fjögra ára!

Annars er lærdómsgírinn minn eitthvað vanfundinn. Er ennþá bara að lulla áfram í letingagírnum. Afraksturinn dagsins var því American Idol síðan í gær og almenn leti! GERI AÐRIR BETUR!

En ég þarf víst að fara að sofa - mín bíður tími kl.9.40 í fyrramálið!

Þangað til næst - verið þið hress, ekkert stress, bless!

Hafdís skrifaði klukkan 10:56 e.h. |


23.1.06
Ég, Hafdís Ósk Pétursdóttir, keypti mér 2 skópör í dag! Það hefur ALDREI gerst í minni sögu en þetta afrekaði ég í dag. Aðrir voru svona hversdags þægilegir skór sem passa ágætlega við íþróttabuxur (það var aðalatriði) og hinir eru aðeins pæjulegri opnir skór sem ég ætla að nota sem spari. Þeir eru þó frekar þægilegir sem leiðir vonandi til þess að ég fer ekki aftur í inniskó við pils sökum þreytu í fótum!

Ég hef reyndar enga trú á því að ég endist í þeim heila kvöldstund en ég má samt halda að ég endist!

Efast um að ,,bjútí" vinkonur mínar verði sáttar við þetta val mitt en þeim get ég tilkynnt hátíðlega að leit stendur yfir að nýjum pæjuskóm - hún hefur ekki enn borið árangur!

Hafdís skrifaði klukkan 2:04 e.h. |


Einn kennarinn minn er ofur svalur! Hann er í HVÍTUM gallabuxum - rosa töffari! Ég held þó að hann sé svona 10 árum of seinn í þessu en ég gef honum séns...

Fyndnir kennarar sem kenna manni í fleiri ein einu fagi - þeir átta sig ekki alltaf á því að einhverjir sitji bæði fögin og hafi þar af leiðandi heyrt sömu brandarana áður!

Gott að ég er með einfaldan húmor og get stundum hlegið að því sama aftur og aftur!

Hafdís skrifaði klukkan 1:20 e.h. |


Ég hef ekki vaknað jafn snemma og ég gerði í morgun í heilan mánuð og gott betur en það. Ég REIF mig á fætur kl.9 þar sem ég átti að mæta í skólann kl.9.40 og fannst ég sko vera alveg svakalega dugleg! Ég er reyndar orðin ótrúlega þreytt í dag og það eru bara milljón tímar eftir af sólarhringnum. Ég hlýt alla vega að geta farið í bólið í kvöld á sómasamlegum tíma. Seinustu daga/nætur hef ég ekki getað sofnað fyrr en í fyrsta lagi kl.2 eftir miðnætti og það var einmitt upp á teningnum í nótt og því svaf ég ,,bara" í 7 tíma í nótt! Ég hef vanið mig á það að sofa í a.m.k 9 tíma í alltof langan tíma svo að þetta er EKKERT fyrir mig! Þetta hlýtur að venjast vel!

Annars var helgin frekar róleg og þægileg. Ég fór í bíó á föstudaginn. Brokeback Mountain. Hún er mjög góð að mínu mati - ofsalega spes en samt svakalega góð og strákarnir tveir leika alveg svakalega vel!

Á laugardaginn var Þorrablót heima hjá foreldrum mínum þar sem við skötuhjúin og Ellen vorum heiðursgestir. Skemmtilegt að fá stundum svona þjóðlegan mat. Ég dó úr hlátri við að horfa á Sveinbjörn greyið reyna að borða hákarl - hann gretti sig meira en góðu hófu gegnir ;)

Við horfum síðan á forkeppnina í Eurovision. Lögin komu mér stórlega á óvart þar sem mér fannst stór meirihluti þeirra vera afskaplega lélegur. Fannst reyndar eitt lagið alveg hreint ágætt!

Í gær horfði ég á Manchester United - Liverpool heima hjá tengdapabba frænda míns. Þar var ég ein með milljón Liverpool aðdáendum og var ekki vinsæl í lok leiks. Ég var líka fljót að forða mér út að leika við frænda minn og hundinn hans (litla frænda minn sem stóð alveg á sama um úrslitin). Góður dagur hjá mínum mönnum og mitt litla hjarta var glatt í gær!

Bið að heilsa í bili,

Hafdís skrifaði klukkan 10:27 f.h. |


20.1.06
Listi yfir kynþokkafyllstu karlmennina er kominn á vísi.is! Ég var ekki lengi að ákveða hver væri kynþokkafyllstur á þeim lista. Björn Sveinbjörnsson ber höfuð og herðar yfir hina. Finnst hann afskaplega sjarmerandi og heillandi.
Sá hann í Kringlunni um daginn og fannst hann afskaplega kynþokkafullur. Held að það sé líka eitthvað við þetta sveinBJÖRNS nafn sem heillar mig svona ;)

Aðrir sem mér finnst huggulegir eru:
Garðar Thor Cortes - mér finnst hann afskaplega myndarlegur en er ekki viss um kynþokka hans þar sem ég hef bara hitt hann einu sinni! En heillandi er hann.


Íþróttaálfurinn of course:


Annars er margt um myndarlega menn - ég hef alltaf verið soldið skotinn í Hilmi Snæ og svo finnst mér Logi Bergmann og Björn Hlynur vera afskaplega myndó. Held að Björn sé samt með meiri kynþokka en sá fyrrnefndi - e.t.v þar sem hann er nær mér í aldri!

Simmi skapar að sjálfsögðu sérstakan stað í mínu hjarta en það er aðallega sökum endalausra skemmtilegheita!

------------

Ég var afskaplega svekkt yfir valinu á kynþokkafyllstu konu landsins. Var því ekki sammála og þessi sem ég man ekki einu sinni hvað heitir kom ekki einu sinni til greina í mínum vangaveltum! Greinilegt að landinn kann ekki gott að meta!

Annars á maður ekki að kvarta yfir því að aðrir hafi ekki sama smekk og maður sjálfur. Maður á frekar að gleðjast yfir minni samkeppni! Annars er ég ekki mikið að fara að reyna við þessar stelpur nú eða hann Björn svo að ég veit ekki hvað ég er að þvaðra!

Held að ég segi bara eins og góðvinur minn - ég held ég fari bara að læra soldið í hausinn á mér!

Hafdís skrifaði klukkan 4:02 e.h. |


Líkaminn minn er lurkum laminn þessa dagana. Ég tók nefnilega upp á því að hreyfa hann svolítið og hann hefur ekki verið ánægður með það!
Ég reyndi nú samt að gera í því að fara rólega af stað en ég þekki kannski ekki alltaf mín takmörk!

Annars hefur skólinn líka farið rólega af stað. Frekar þægileg vika hjá mér! Smá skóli á þriðjudag og miðvikudag, frí í gær og svo einn tími í dag. Get ekki sagt að ég geti kvartað yfir þessu!

Í kvöld ætla ég að smella mér á Brokeback Mountain með móður minni og Ellen. Er búin að heyra að þessi mynd sé æði og því hlakka ég mikið til. Annars er ég strax farin að undirbúa mig undir að gráta mikið. Ég er nefnilega grenjuskjóða og hef einu sinni fengið svo svakalegan ekka í bíó að allur salurinn hristist og allir horfðu á mig - já, gaman að segja frá því! En það er allt í lagi ég er sæt þegar ég græt! Það er alla vega nokkuð ljóst að ég er ekki dauð að innan þar sem ég get nánast grátið yfir hvaða sorglega atriði sem er!

Ég er svöng!
Ætla því að fara að finna mér eitthvað að borða!

Hafdís skrifaði klukkan 2:31 e.h. |


18.1.06
Your Birthdate: March 1
You are a natural born leader, even if those leadership talents haven't been developed yet.
You have the power and self confidence to succeed in life, and your power grows daily.
Besides power, you also have a great deal of creativity that enables you to innovate instead of fail.
You are a visionary, seeing the big picture instead of all of the trivial little details.

Your strength: Your supreme genius

Your weakness: Your inappropriate sensitivity

Your power color: Gold

Your power symbol: Star

Your power month: January
What Does Your Birth Date Mean?

Hafdís skrifaði klukkan 10:15 e.h. |


Dagurinn byrjaði ekki vel hjá mér í dag - ég vaknaði með mesta hausverk sem um getur í sögunni og beinverki í þokkabót. Ég náði þó að sofa þetta úr mér að mestu leyti en var samt sem áður hálf slöpp og sljó í dag og hafði ekki einbeitingu upp á marga fiska!

Við Sveinbjörn gerðum þó góða ferð í Europris í dag og keyptum okkur Asics hlaupaskó á 4990 en þeir kosta vanalega á bilinu 10000-15000. Við vorum sem sagt mjög lukkuleg með þetta! Ekki slæmt að GRÆÐA svona svakalega!

Kraftaverkin gerast enn - ég byrjaði að læra áður en skólinn byrjaði en það hefur ALDREI gerst áður! Og í kvöld er ég að halda því áfram sem ég byrjaði á! Þetta byrjar reyndar rólega en það byrjar þó!

Annars fór ég á æfingu í gær og er svona u.þ.b að drepast í höndunum síðan þá...en það er bara hressandi og þýðir án efa að þær eru að minnka og við kvörtum ekki yfir því! ;)

Eins og þið sjáið er ekki mikið að gerast í mínu lífi þessa dagana! Vona þó að það rætist eitthvað úr því um helgina!

Hafið það gott öllsömul!

Hafdís skrifaði klukkan 9:35 e.h. |


16.1.06
Bókakaup eru alltaf sérstaklega skemmtileg! Ég keypti námsbækurnar mínar í dag og horfði með söknuði á eftir alltof mörgum peningum í kassa bóksölunnar! Ég hefði alveg verið til í að eyða þessum peningum í eitthvað ALLT annað heldur en þetta en svona er lífið! Bækurnar eru áreiðanlega afskaplega skemmtilegar og yndislegar svo að ég ætti ekki að vera að kvarta! Kostnaðurinn var líka lægri í ár heldur en oft áður þar sem ég fékk bækur lánaðar og get notað eina aftur! 3 bækur í 2 fögum voru samt 15000 króna virði - veit ekki hvað ég hefði gert ef ég hefði þurft að kaupa hinar líka - shæsinn!

Við Sveinbjörn vorum að íhuga að fara í bíó í kvöld þar sem það er svo margt að sjá. Ég er soldið spennt fyrir Brokeback Mountain - hef heyrt afskaplega fagrar sögur af þeirri mynd og langar því mikið að sjá hana! Ég á líka án efa eftir að gráta mikið en það er svo sem ekkert nýtt!
Við hættum hins vegar snarlega við þegar við litum út um gluggann þar sem veðrið er ekki fallegt á þessu land í dag! Ég þoli heldur ekki að vera blaut í tærnar af því einu að labba út í bíl og inn í hús! Mér tekst reyndar alltaf á einhvern óútskýranlegan hátt að blotna upp að hnjáum og skvetta slatta á kápuna mína af því að skafa bílinn - jafnvel þó að það sé einungis smá hula á honum! Þetta er einn af mínum mörgum hæfileikum sem fáir geta leikið eftir!

Annars er ég með ansi spennandi fréttir - þeir sem ekki hafa heyrt þær geta haft samband - þær verða ekki birtar hér í bráð! ;)

Hafdís skrifaði klukkan 8:50 e.h. |


Helgin var óvenju viðburðarrík hjá mér! Á föstudaginn skelltum við sálfræðistelpurnar okkur út að borða og í framhaldinu kíktum við aðeins á lífið í bænum! Ég smakkaði meðal annars Mohito í fyrsta skipti á ævinni og líkaði hann bara nokkuð vel! Við tókum kokteilakvöld og smökkuðum nokkra vel valda sem við höfum aldrei smakkað! Ákváðum bara að vera grand á því þar sem við gerðum þetta hvort sem er aldrei annars! Ég fer voðalega sjaldan niður í bæ og í þau fáu skipti kaupi ég yfirleitt aldrei neitt af barnum þar sem hann er okraður svo að einu sinni verður allt að vera fyrst!

Ég varð reyndar græn af reykingum eftir mjög stuttan tíma en lét mig hafa það! Við fórum svo heim í kringum 2 þegar allt liðið var mætt á Olíver - er ekki fínt að fara þegar allir hinir koma?

Á laugardaginn kíkti ég á mót niður í Frjálsíþróttahöllinni. Þar var ég umvafin börnum eins og svo oft áður. Ég hitti Arnfríði Gígju sem ég hef ekki séð í alltof langan tíma og hún leyfði mér að skrattast soldið með börnin sín mér til mikillar ánægju! Gunnhildur mætti svo með börnin ,,okkar" í lok móts og þá fékk ég að skrattast ennþá meira :) Fínt að svala barnaþörfinni með annarra manna börnum! Um kvöldið kíktum við út að borða með fyrrgreindri Gunnhildi og Bjössa og börnum! Við smelltum okkur á Ruby Tuesday en þann stað höfðum við ekki prófað áður! Hann er alveg eðal og hamborgararnir fá margar stjörnur þar! Fer áreiðanlega þangað aftur í bráð! Um kvöldið fórum við til bróður Bjössa, Össa og konunnar hans Möllu, þar sem við spiluðum Carcasonne eins og við ættum lífið að leysa. Undirrituð kom á óvart með því að sigra spilið í að ég held 2 skipti á ævinni! Áttaði mig ekki á því að ég var að vinna Bjössa í fyrsta skipti á ævinni og það er að sjálfsögðu sérlega sætt - hann er nefninlega álíka tapsár og ég, samt kannski ekki alveg ;)

Í gærdag undirbjó ég saumaklúbb! Ég gerði líka eitt sem ég hef aldrei gert áður í gær. Það er að sjóða hrísgrjón! Ég hef nokkrum sinnum soðið hrísgrjón í poka en það jafnast ekkert á við þau venjulegu, hvorki í bragði né soði! Þetta tókst óvenju vel hjá mér og ég er bara nokkuð stolt af sjálfri mér! Ég eldaði líka kjúklingarétt sem ég hef aldrei eldað áður og hann heppnaðist líka bara nokkuð vel og bragðaðist bara ágætlega! Eftirrétturinn var líka sehr góður svo að í það heila tókst mér bara vel upp þó ég segi sjálf frá!

Í dag er svo seinasti í fríi! Skólinn byrjar á morgun og ég hef í nægu að snúast í dag! Þarf að kaupa bækur, telja flöskur, þvo þvott og græja ýmislegt svo að það er eins gott að ég nýti daginn vel!

Bið því bara að heilsa í bili!

P.S allar einkunnir komnar og ég náði öllu :)

Hafdís skrifaði klukkan 11:27 f.h. |


13.1.06
Skrýtið land!

Ætli það sé hægt að sjá snjókomu og sól á sama tíma einhvers staðar annars staðar í heiminum?
Þetta er náttúrulega bara snilld!

Annars er líka voða stuð að búa á Íslandi um þessar mundir þar sem allar árstíðirnar koma fram á einum degi!

Já, það er margt sniðugt á Íslandi!

Hafdís skrifaði klukkan 1:09 e.h. |


Heil og sæl!

Ég tók mig til í gær og hóf brjálaða nýárs-hreingerningu! Ég hafði ekki tíma til að taka jólahreingerningu og ákvað því að taka íbúðina frekar í gegn á nýju ári til að losna við allt stress!
Eftir þennan fyrsta dag í áfanganum að hreinni íbúð get ég sagt ykkur að það að affrysta ískáp og frystihólf er eitt það leiðinlegasta sem hægt er að gera! Ég er auk þess ekki þolinmóð ung kona og því átti ég soldið bágt með mig þegar ég sat á hækjum mér með hárblásarann að vopni og bræddi nokkra cm þykkan klakann af frystihillunum mínum! Þetta hófst þó allt fyrir rest og þegar ég var búin að vaska upp allar hillur og annað tengt ískápnum glansar hann sem aldrei fyrr! Ég tók mig líka til og þvoði allar gardínur! Það var í sjálfu sér lítið mál en að setja gardínuhjólin (þetta sem heldur gardínunni á brautinni svo hægt sé að draga hana frá og fyrir) aftur á er ekki eins mikið stuð! Sérstaklega ekki á ofur svefnherbergisgardínunum sem eru hver um sig með 40 hjól og þær eru þrjár! Ég er alla vega aum í puttunum í dag!

Þetta var nú skemmtileg lesning!

Svona til að gefa ykkur eitthvað til að brosa að ákvað ég að vaska hillurnar úr ísskápnum upp í sturtunni! Það gekk ágætlega til að byrja með, það skvettist voða lítið af vatni á mig og mér gekk ágætlega að þvo hillurnar! Að sjálfsögðu tókst mér, áður en yfir lauk, að henda uppþvottaleginum í gólfið og skvetta uppþvottalegi yfir klósettið og stóran hluta af gólfinu! Að sama skapi tókst mér að bleyta sjálfa mig þegar ég var að affrysta með því að taka ekki eftir því að stríður straumur rann undir ískápinn og náði að lokum fótunum á mér! Hreint út sagt yndislegt að fá svona frostkalt vatn á fæturnar á sér!

Tiltektin heldur sem sagt áfram í dag! Ég reikna með að eiga eftir að rota mig ca.2 - missa eitthvað ofan á lappirnar á mér (tókst það reyndar líka í gær) og svo finnst mér líklegt að ég fái eins og einn stóran marblett!

Í kvöld er ég svo að fara út að borða með sálfræðiskvísunum! Við ætlum að bregða okkur á Vegamót, ég hef aldrei borðað þar en heyrt gott af staðnum og hlakka því soldið til :)

Bið að heilsa í bili,

Hafdís skrifaði klukkan 11:31 f.h. |


10.1.06
Kynþokki

Ég kíki ekki oft inn á Vísi.is en einhverra hluta vegna kíkti ég þangað í gærkvöldi og rak þá augun í kosningu um kynþokkafyllstu konu Íslands undir þrítugu!Þar eru 53 stúlkur tilnefndar af álitsgjöfum vísis og það er hægt að kjósa eina þeirra sem þá kynþokkafyllstu. Ég er örugglega ekki besti dómarinn um kynþokka en af þessu 53 fannst mér aðeins örfáar hafa vott af því sem ég kalla kynþokka! Mér fannst restin samanstanda af svokölluðum sætum stelpum en hjá mér er ekkert samasem merki á milli kynþokka og sætleika! Mér finnst til að mynda eftirtaldar stúlkur vera mjög sætar en að mínu mati eru þær ekki kynþokkafullar: Nylon-gellurnar, allar fegurðardrottningarnar sem eru tilnefndar - þó finnst mér Sigrún Bender komast einna næst því að vera með kynþokka, Birgitta Haukdal, Hildur Vala og svona gæti ég nánast haldið áfram með allan listann! Mjög mikið úrval af fríðum stúlkum en ekki mikill kynþokki!Ég er reyndar mjög skrýtin hvað þetta varðar. Mér finnst Beoncey Knowles vera afskaplega kynþokkafull, sömuleiðis Jennifer Lopez og Selma Hayek, mér finnst líka Scarlett Johannson vera að koma sterk inn um þessar mundir þrátt fyrir að Latín-bombur séu meira MINN stíll!Á ofangreindum lista voru 3 konur sem mér finnst geta flokkast undir að vera kynþokkafullar. Elva Björk sem leikur til að mynda í Rosa góður draumur auglýsingunni, Helga Lind Björgvinsdóttir finnst mér afskaplega falleg og jafnframt kynþokkafull og svo er ein þarna sem ég veit ekkert hver er en myndin af henni lofaði góðu - Katrín Ella Jónsdóttir! Það er þó engin sem mér finnst afar kynþokkafull - þessar þrjár stóðu þó öðrum framar að mínu mati!Ég vil að konur séu með línur - mér finnst þar af leiðandi fyrirsætur yfirleitt ekki mjög kynþokkafullar þar sem þær hafa afskaplega flatar línur. Ég vil hafa smá rass, læri og brjóst! Ávalar línur heilla mig sem sagt! Dulúð kemur líka sterk inn hjá mér og því held ég að Helga Lind heilli mig soldið - hún hefur einhverja dulúð yfir sér!Reyndar hef ég alltaf verið á því að konur verði kynþokkafyllri með aldrinum og því finnst mér soldið skrýtið að velja kynþokkafyllstu konu undir þrítugu! Mér finnst tvítugar stúlkukindur ekki hafa þessa dulúð og kynþokka - er á því að þetta komi einmitt upp úr þrítugu!Misjafn er smekkur manna og minn er allur í latín-bombunum sem kunna að hrista sig og hreyfa!Að mínu mati liggur kynþokki í hreyfingum eins og ég greindi frá hér að ofan, dulúð og felst að miklu leyti í augum og látbragði öllu saman!Ef ykkur langar að kíkja á listann góða er hann hér að finna

Hafdís skrifaði klukkan 8:41 e.h. |


9.1.06
Maraþon hreingerning.

Við móðir mín tókum okkur til í gærdag og þrifum eldhúsið hennar ömmu hátt og lágt. Amma er að verða níræð á þessu ári og getur því ekki staðið í stórræðum sem þessum og því tókum við mæðgur þetta að okkur með glöðu geði.
Eftir að hafa þrifið stanslaust í um 6 tíma og hent öllu sem var orðið úr sér gengið og ógeðslegt vorum við báðar uppgefnar og þreyttar bæði á sál og líkama! Ég var búin að hoppa upp á alla skápa og þrífa ofan og neðan, síðan vorum við búnar að draga fram eldavélina og þvo allt leirtau og hnífapör upp og það er eins og eftir meðalstóra veislu...

Ég fann hins vegar ekki mikið fyrir neinum eymslum fyrr en ég vaknaði í morgun, þá skildi ég ekkert í því hvað væri að bakinu á mér - hélt fyrst að ég hefði sofið eitthvað skringilega en svo áttaði ég mig á því að það að bogra yfir eldhúsinnréttingu í 6 tíma og setjast bara niður í svona korter af þeim tíma fer kannski ekkert sérlega vel með bakið! Ég er hins vegar bara aðeins aum í því og finn að það var álag en annars er ég bara góð. Ákvað nú samt að fresta megahreingerningunni á minni íbúð aðeins fram í vikuna til að fara nú ekki alveg með mig. Ég á það líka til að ofmetnast aðeins og sé núna að það er langtum sniðugra að gera þetta á 2 dögum en reikna þó með að ákveða þegar ég er á annað borð byrjuð að klára þetta bara! Það verður án efa fjör þar sem það heyrist alltaf frekar vel í mér þegar ég er að taka til. Alveg sama hvað ég reyni ég verð held ég alltaf hávær!

Ég kláraði jólabókina mína í gær - þriðja táknið sem er spennusaga eftir Yrsu Sigurðardóttur. Hún var ansi spennandi og soldið öðruvísi. Ég fræddist heilmikið við lestur hennar enda fjallaði bókin um ungan sagnfræðinema sem var myrtur og því lærði ég ýmislegt í sagnfræði við lestur bókarinnar. Að mínu mati er það mikill plús að læra eitthvað um leið og maður les. Spurning um að ég fari að lesa námsbækurnar mínar aðeins betur...

Annars er voða lítið að frétta - ég byrja ekki í skólanum fyrr en eftir viku og veit ekki hvað ég á af mér að gera þangað til þá! Reyndar er hreingerning á dagskrá eins og áður sagði en annars er ekkert planað! Mig langar samt ekki beint til að byrja aftur í skólanum strax, fékk alveg nóg af lærdómi í desembermánuði! Ég á líka enn eftir að fá eina einkunn, hinar tvær komu jákvæðar í hús!

Ég er að hugsa um að skora á Sveinbjörn í tölvuleik - þangað til næst - verið góð hvort við annað!!

Hafdís skrifaði klukkan 4:30 e.h. |


Niðurstöðurnar úr segulómuninni eru komnar - það kom ekkert óeðlilegt fram á myndunum svo að ég get farið að bryðja Voltaren Rapid eins og vitleysingur í von um að þetta lagist sem fyrst!

Ég er sem sagt bara aumingi með hor og slef!

Spurning um að fara á æfingu í dag og taka verulega á því? Eða þá að fara varlega af stað og láta þetta smá saman jafna sig - hugsa að ég taki þann pól í hæðina til að vera samkvæm sjálfri mér!

Þetta voru sem sagt góðar fréttir fyrir mig - núna þarf ég ekki að hætta eins og ég hafði ætlað mér ef um brot væri að ræða!

Leiðinlegt fyrir ykkur hin sem þurfið að umbera mig og mínar skoðanir áfram :)

Hafdís skrifaði klukkan 2:53 e.h. |


7.1.06
Nágrannarnir eru í singstar með einhverjum félögum sínum! Þetta er greinilega brjálað stuð þar sem það er stappað og klappað og bassinn er á fullu svo að það skelfur allt og nötrar hérna - með því meina ég að sjálfsögðu gólfið! Sveinbjörn er spenntur á gólfinu með eyrað niður í gólf til að heyra orðaskil! Já, þetta kryddar tilveruna okkar til muna! Fínt að hafa svona ,,hressa" nágranna!

Reyndar langar mig soldið að banka upp á og spyrja hvort ég megi vera með þar sem ég hef aldrei prófað singstar en hefur alltaf langað að prófa - ég syng jú eins og engill sem er alltof skrækur! Hlyti því að RÚSTA þessu prógrammi!

Lifið fjörið, singstar og nágrannarnir í neðra!

Hafdís skrifaði klukkan 1:07 f.h. |


6.1.06
Segulómuð

Ég fór loksins í segulómun í morgun. Átti fyrst að fara í lok desember en þurfti að breyta því og fór því fyrst í dag! Herlegheitin kostuðu um 18000 krónur í viðbót við slatta af þreki og tárum en þetta er ekki þægilegasta myndataka sem ég hef farið í! Í fyrsta lagi er ég ekki sterk í því að liggja kyrr í 2 tíma og því var það heljarinnar þrekraun út af fyrir sig! Ég gladdist þó yfir því að hafa tekið bókina mína með og svo hlustaði ég soldið á útvarpið líka! Ómunin var einna helst óþægileg þar sem tækið er ekki beint gert til að skanna ristar þannig að ég þurfti soldið að vanda mig við að vera kyrr í hólknum sem var til að hvíla fótinn á - hann var nefnilega bæði of stór og of lítill og því þurfti ég að passa að renna ekki út fyrir hann og ekki til inn í honum - stórskemmtilegt! Þetta hófst þó að lokum eftir nokkra taugakippi og skemmtilegheit og niðurstöðurnar berast snemma í næstu viku!

Ég ætla svo að skella mér niður á tryggingastofnun til að fá afsláttarkort í kjölfarið á þessari blóðtöku úr pyngjunni og ætla svo að reyna að nýta það til hins ítrasta! Gott að ég sleppti því að fara í lok des - það hefði ekki verið gott að fá afsláttarkort 29.desember!

Annars er ég soldið aum eftir þessa kyrrsetu og ætla því að reyna að gera eitthvað mér til hreyfings!

Bið að heilsa í bili!

Hafdís skrifaði klukkan 2:01 e.h. |


5.1.06
Ég smellti mér á útsölur í dag ásamt 99.9% kvenna á Höfuðborgarsvæðinu! Ég var reyndar ekki alveg tilbúin í átökin og treysti mér því ekki inn í margar búðir. Ég ásamt aðstoðarverslunarmönnunum mínum, Kristínu Birnu og Jóhönnu, fórum inn í NEXT í Kringlunni en komum okkur jafn skjótt út aftur þar sem þar voru konur í hundraðatali að berjast um hverja flík og við treystum okkur ekki í þann barning þrátt fyrir mikinn umfram-styrkleika. Það þýðir einfaldlega að við erum mun sterkari en allar hinar en nenntum ekki að lúskra á þeim!

Ég stóð mig reyndar bara nokkuð vel á þessum fyrsta degi! Keypti mér eðal-flíspeysu á hálfvirði og svo tvo boli og tvær peysur! Nokkuð ánægð með afraksturinn og sú trú mín styrktist bara þegar ég kom heim og mátaði aðeins betur. Ljósin heima eru svo miklu betri en þessi halógenljós í búðunum - maður virkar ekki eins og offitusjúklingur í þeim!

Annars er ég að horfa á Alias og má því ekki vera að þessu lengur!

Hafið það gott!

Hafdís skrifaði klukkan 9:14 e.h. |


4.1.06
Þetta er fréttastofan NFS - eða með öðrum orðum þetta er fréttastofan Nýja Fréttastöðin! Gáfulegt? Neibb, það finnst mér ekki! Spurning um að það verði stokkað soldið upp í markaðsdeildinni hjá 365!

Hafdís skrifaði klukkan 6:33 e.h. |


3.1.06
Velkomin á nýja og vonandi betri síðu! Hér á eftir er annáll seinasta árs - helst til langur en þið hafið vonandi gaman af!

Annáll 2005

Janúar:
Ég byrjaði árið aldeilis hressilega! Sveinbjörn veiktist á Þorláksmessu og var veikur fram í janúar en ég veiktist hins vegar ekki fyrr en á milli jóla og nýárs og því vorum við bæði uppfull af slími, hóstandi og hnerrandi til skiptis og með verulega mikla beinverki og eyrnaverki um áramótin. Þeim eyddum við því bara heima hjá tengdó þar sem við spiluðum og hnerruðum til skiptis! Mér tókst að fegra heimilið örlítið á meðan ég var lasin en það olli e.t.v því að ég var veik fram í miðjan mánuðinn og hef sjaldan verið veik jafn lengi. Afar leiðinleg byrjun á annars góðu ári! Nágrannarnir í neðra voru dugleg í næturbröltinu og héldu iðulega fyrir okkur vöku ? nokkuð sem átti ekki eftir að breytast fyrr en á haustönn 2005 eftir að lokaviðvörun barst þeim! Í þessum mánuði ákváðum við skötuhjúin að fara í æfingaferð til Kanarí um páskana með ÍR, UMSS og HSK!

Febrúar:
Ég fór í fyrsta skipti í líkamsræktarstöð í febrúar í fyrra og hef ekki farið síðan þá! Ellen vinkona dró mig í tíma dauðans sem olli því að ég var nánast lömuð næstu 3 daga á eftir með nístingsverki í öllum vöðvum og gat varla glósað í tímum! Átakið í bikíní fyrir Kanarí átti hug minn allan og ég fór út að skokka á morgnana eins og ég fengi borgað fyrir það! Ég komst að því að röddin á mér er viðbjóður þegar ég hlustaði á upptökur af sjálfri mér syngja! Ætlaði að einbeita mér að því að verða djúpraddaðari en það verkefni hefur ekki skilað tilætluðum árangri ? spurning um að taka það upp að nýju?

Mars:
Ég varð 24 ára í mánuðinum og þurfti smá tíma til að melta það! Upphaflega hafði ég ætlað að vera búin að eignast börn og buru á þessum aldri en það hefur ekki aldeilis ræst úr því! Hugsa að ég fresti þeim plönum um nokkur ár í viðbót!
Þurfti að læra eins og vitleysingur til að komast til Kanarí ? þar sem við fórum fyrir páska þurfti ég að fá nokkrar undanþágur og skila verkefnum fram í tímann ? nokkuð sem ég hef aldrei gert áður á ævinni! Við fórum svo til Kanarí 15.mars og komum til baka aðfaranótt 30. Þessi ferð var ógleymanleg í alla staði. Frábær hópur, gott veður, skemmtileg staðsetning og góðar æfingar! Held að þessi ferð verði seint toppuð!

Apríl:
6.apríl er merkur dagur í mínu lífi. Þennan dag var ég ráðin í tvær vinnur á sama degi! Þar af leiðandi var hann sérlega gleðilegur og stressliðkandi. Tvær af greinum mínum á heimsíðunni minni komust í blaðið ? ég var ekkert sérlega hrifin af því en tók ekkert sérstaklega eftir auknum heimsóknarfjölda og gladdist soldið yfir því! Er nefnilega ekkert sérlega kát með að fólk sem þekkir mig ekki sé að skoða vitleysuna sem vellur upp úr mér og frægð er ekki eitthvað sem ég þrái þó ég hafi oft bullað um annað!

Maí:
Í maí kom 15000 gesturinn á síðuna mína, í desember voru 40000 gestir búnir að koma á síðuna og þykir mér það bara nokkuð gott afrek! Próf, ritgerðir og þýðingar áttu annars hug minn allan þennan mánuðinn! Þau gengu ágætlega að einu undanskildu. Þá áttaði ég mig á því fyrir alvöru að ég er með meinloku fyrir heimspeki! Ég byrjaði svo að vinna hjá Icelandic Group og leist bara vel á mig og hafði sérstaklega orð á því að mötuneytið væri mér að skapi ? það sannaðist bara þegar á leið sumarið! Eitt besta mötuneyti ever! Eins og svo oft áður var mér tíðrætt um kalóríur, fitu og hollystu og að ég væri byrjuð í átaki! Eins og svo oft áður var ég mikil í orði en lítil á borði! Spurning um að reyna að minnka þetta fitutal!

Júní:
Ég keypti mér linsur ? hef aldrei átt linsur og fannst þetta voða mikið pæjuskref! Ég hef þó ekki notað þær eins mikið og ég ætlaði og veit því ekki hvort af áframhaldandi fjárfestingu verður ? sjáum til! Grein frá mér birtist í Blaðinu þrátt fyrir heiðarlega tilraun til að dulkóða! Ég hét því að sama skapi að starfa aldrei aftur sem ræsir og hef staðið við það loforð mitt hingað til! Ég æfði mjög mikið á þessum tíma og var mjög dugleg en eins og svo oft áður missti ég það fljótlega niður! Ég vann með sjónvarpinu á Bikarkeppni FRÍ og í kjölfarið sá ég fram á að ég myndi hafa gaman af því að vinna í sjónvarpi. Kunni alla vega ágætlega við mig með höfuðtól J Í júní spilaði ég Catan í fyrsta skipti og hef verið óstöðvandi síðan ? verst að spilafélagar fæðast ekki á trjánum...

Júlí:
Við skötuhjúin skelltum okkur á Austfirðina. Slógum tvær flugur í einu höggi þegar við hittum bekkjarfélaga mína úr grunnskóla á Vopnafjarðardögum og sömuleiðis alla mína gömlu félaga fyrir austan. Þetta var að sjálfsögðu mjög skemmtilegt og ég þarf greinilega að drífa mig oftar á heimaslóðir. Sömu helgi fórum við á Meistaramótið á Egilsstöðum. Ég keypti í þrístökki en þar sem mér hafði tekist að rota mig kvöldið áður var árangurinn í því ekki upp á marga fiska! Við lentum síðan í svaðalegustu flugferð í okkar sögu þegar við þurftum að gera 3 tilraunir til að lenda í Reykjavík og lentum síðan að lokum í Vestmannaeyjum til að taka bensín og brunuðum síðan aftur suður og lentum 4 tímum á eftir áætlun!

Ágúst:
Verslunarmannahelgin var róleg þetta árið eins og árið áður. Við frjálsíþróttakrakkarnir hittumst eins og í fyrra og höfðum það gott. Ég fór í 2 sumarpróf og þau áttu að mestu hug minn allan þann mánuðinn! Við frjálsíþróttastelpurnar gæsuðum svo Bergrós og komum henni þar með á óvart í fyrsta skipti á ævinni! Ótrúlega skemmtilegt kvöld! Nýtt sófaborð og nýr fataskápur litu dagsins ljós í höllinni og fegruðu hana um helming! Ég lýsti auk þess yfir stríði við nágrannana sem varð til þess að það hefur varla heyrst í þeim síðan þá...ég er augljóslega hörð í horn að taka! Ég varð veik í prófunum enn á ný og það setti strik í reikninginn ? hefði betur sleppt öðru prófinu þar sem ég hafði ekkert náð að einbeita mér í aðdragandanum né í prófinu sjálfu! Það varð brjálað að gera hjá mér í vinnunni í lok ágúst þar sem ég var að leysa yfirmanninn minn af en ég hafði það af án þess að fá magasár! Ég fékk að vita að ein besta vinkona mín væri ólétt og ætti að eiga 1.mars ? það breyttist reyndar í 3.mars en hún er að vinna með mér í því að færa þetta fram um 2 daga!

September:
Það var brjálað að gera hjá mér í vinnunni í september út af sjávarútvegssýningunni. Það var golfmót í vinnunni á sama tíma sem ég hjálpaði til við að skipuleggja. Þann daginn keyrði ég um á golfbíl með Þórólfi Árnasyni og gaf mishressum golfurum hressingu! Skemmtilegur tími en afar erfiður. Við skötuhjúin skelltum okkur til Kaupmannahafnar í heimsókn til Rakel og Himma! Þetta var ótrúlega skemmtilegur tími og við höfðum það afar gott saman! Verður án efa endurtekið í bráð þar sem þau eru höfðingjar heim að sækja! Við stefnum reyndar á ansi mörg ferðalög á þessu ári þar sem alltof margir góðir vinir okkar eru fluttir úr landi!

Október:
Ég byrjaði að æfa af krafti eftir langt hlé og það tók sinn toll þar sem æfingar í október eru ekki fyrir alla! Þetta var mjög erfiður tími þar sem all flestir vöðvarnir í líkamanum voru stífir, skakkir og skældir meira og minna allan mánuðinn! Þetta var samt ljúfsárt þar sem það er ótrúlega góð tilfinning að finna hvernig maður kemst í form á ný! Við skelltum okkur í eina af mörgum spilaferðum upp á Laugarvatn til að spila við kennarahjúin þar, Bjössa og Gunnhildi. Þau hafa með öðrum bjargað okkur algjörlega síðan fyrrum spilafélagar okkar númer eitt fluttu til Bandaríkjanna. Veit ekki hvað við gerum ef þau flytja líka til Bandaríkjanna næsta haust ? ætli við verðum þá ekki bara að vona að Bergur eignist kærustu fyrir þann tíma? ;)
Sveinbjörn átti loksins afmæli og varð jafngamall mér ? gott fólk heiðraði okkur á þeim tíma og við fórum út að skemmta okkur í fyrsta skipti í LANGAN tíma!

Nóvember:
Mánuðurinn einkenndist af æfingum, svefni, skóla og barnaskoðunarferðum. Ég var móðir í einn dag þegar Bjössi og Gunnhildur lánuðu okkur Guðmund Gígjar. Mér til mikillar mæðu var hann eins og ljós í stað þess að haga sér eins og almennileg getnaðarvörn ? hann stendur sig ekki í stykkinu strákurinn sá!
Annars var ég afskaplega þreytt í þessum mánuði og enn og aftur voru æfingarnar að taka stóran toll! Ég var þó afar hissa á því hversu vel ég var að þola allt þetta álag og hefði í raun átt að átta mig á því þá að þetta var of mikið álag ? ég var ekki nógu skynsöm og í kjölfarið fékk ég mikla verki í ristarnar sem ég hef verið að glíma við síðan þá!

Desember:
Próf, Próf, Próf, Próf og Próf ? fátt annað komst að fyrir utan einstaka æfingar og smá hittinga hér og þar! Eftir að við kláruðum prófin höfum við verið dugleg að hitta vini og kunningja ? frjálsíþróttakrakkarnir hafa verið ansi duglegir að hittast mér til mikillar ánægju. Ég hafði það ótrúlega gott um jólin og fékk fullt af fallegum jólagjöfum.

Jólaglaðningar ársins:
Sveinbjörn gaf mér ecco-skó til að nota hversdags og ofsalega fallegt demantshálsmen sem er bæði úr gulli og hvítagulli! Hann er smekkmaður þessi elska! Ég gaf honum aftur á móti iPod nano sem hann var að sama skapi lukkulegur með og hefur glaður hlaupið með undanfarið! Foreldrar mínir gáfu mér svo ofsalega fallega kápu sem smellpassar á mig og mér finnst æði! Systir mín gaf mér flotta peysu og listaverk sem minnir mig á hvað hún er einstök! Ellen vinkona gaf mér pæjupeysu sem kemur sér án efa vel í pæjuupphafningu minni og mynd af okkur saman sem hefur nú þegar fengið sérstakan stað á skrifborðinu mínu. Ég fékk líka flotta inniskó frá Árdísi vinkonu minni sem ég hef notað óspart síðan. Ég fékk líka pening sem ég ætla að nota til að kaupa mér eitthvað fallegt á útsölunum í vikunni! Sameiginlega fengum við skötuhjúin matarstell frá tengdamömmu sem kemur sér vel þar sem við áttum bara nokkra diska héðan og þaðan! Hún gaf okkur líka startkapla ? ég fékk þann svarta og Sveinbjörn þann rauða. Hugmyndin á bak við þá er að þeir virka bara saman en ekki í sitthvoru lagi!

Áramótin:Áramótinum eyddum við heima hjá mér og kvöldinu með frjálsíþróttakrökkunum sem var þó ekki ákveðið nema með nokkra tíma fyrirvara! Við kíktum þó líka aðeins á vini hans Sveinbjörns, Bigga og Magney, þar sem þau héldu partý í villunni sinni í Grafarholti!

Þakka öllum sem komu við sögu í okkar lífi á þessu ári kærlega fyrir og vona að samverustundunum fjölgi á því næsta!

Hafdís skrifaði klukkan 9:10 e.h. |