30.12.03
Það snjóaði örlítið í gær og öll borgin fór í panic. Ótrúlegt hvað það virðist sem Reykvíkingar hafi aldrei séð smá snjó áður. Hlógum alltaf að því þegar ég var lítil hvað það þótti fréttnæmt þegar smá snjó kyngdi niður í Reykjavík. Snjórinn sem var í borginni í gær hefði varla talist vera snjór á Vopnafirði. Þar þurfti mun meira til að eitthvað veður skapaðist af. Það er að vísu mun auðveldara að losa við snjóinn þar og auðveldara að labba í vinnuna! Hérna verður allt brjálað!
Við vorum bara á sumardekkjunum í gær en komumst samt frekar auðveldlega út úr stæðinu og lentum ekki í neinum vandræðum við að komast á milli staða. Skiptum nú samt um dekk bara svona til að vera örugg.

Í gærdag hringdi síðan Eva vinkona mín í mig og bauð okkur í kvöldmat. Þar buðu hún og ástmaður hennar Gunnar upp á dýrindis mexíkanskan kjúklingarétt og svaðalega súkkulaðiköku í eftirrétt - sérlega gott og mjög vel heppnað kvöld.
Við Sveinbjörn vorum þó frekar ókurteis og fengum að horfa á ALIAS þar sem við megum ALLS EKKI missa af því! Þau horfðu bara með okkur og við reyndum að koma þeim inn í en það tókst nú ekkert svakalega vel þar sem þau eru búin að missa af svona 20 þáttum eða svo! Þátturinn í gær var þó ekkert svaðalegur - samt soldið spennandi eins og vanalega.

Við þökkum þeim skötuhjúum kærlega fyrir kvöldið og hlökkum til að endurgjalda þeim boðið.

Í dag bíður okkur leiðindastúss. Þurfum að fara í IKEA og skipta mottu sem við fengum í jólagjöf og fara í Tékkkristal og skipta einhverju dóti sem við fengum þaðan og svona.
Þetta er í fyrsta skipti sem ég skipti jólagjöfum. Tel það vera frekar gott. Finnst oft skrýtið að fólk sem þekkir þig ekkert svakalega vel eða hefur ekki komið heim til þín treysti sér til að velja eitthvað handa þér í búið! Við fengum til að mynda bláa mottu og hérna inn er allt ljóst og beykilitað. Svo fengum við bretti, ostaskera, hníf og ostahníf sem var ekki fallegt og svo eigum við fínan ostaskera og höfum EKKERT við annan að gera! Ég er að hugsa um að velja mér einhvern fallegan kökudisk eða annað huggulegt sem við eigum lítið af! Eigum bara einn kökudisk!

Vona að dagurinn verði ykkur ánægjulegur!

Hafdís skrifaði klukkan 2:23 e.h. |


29.12.03
Æ, hvað það er nú ljúft að slappa svona af...

Af mér er allt gott að frétta - hef eiginlega verið of löt til að senda ykkur línu. Í gærkvöldi komu 2 vinkonur mínar í heimsókn og við spjölluðum fram á rauða nótt - ætíð gaman og gott. Fínt að afgreiða svona mörg mál á einu bretti ; )
Sveinbjörn fór á meðan í bíó til að sjá LOTR - loksins. Hann var þó heldur seinn í bíóið og fékk því bara sæti fremst svo að ég reikna með að við förum einhvern tímann í bráð til að sjá hana aftur. Okkur var reyndar boðið í kvöld en þar sem við vorum að borða dýrindis fisk hjá mömmu nenntum við ekki. Höfðum það gott fyrir framan sjónvarpið í smá tíma og dáðumst að því hvað Jónas R. getur verið endalaust leiðinlegur sem stjórnandi Viltu vinna milljón, held að mér finnist hann vera leiðinlegri en gellan í Íslandi í dag!
Stjörnurnar stóðu sig samt ágætlega, mér fannst Gísli Marteinn og Rúnar Freyr nokkuð skemmtilegir en var ekki eins hrifin af stælunum í Hrafni og Pétri Jóhanni - skil ekki fólk sem tekur áhættu með peninga sem það ætlar að gefa öðrum.
Við skelltum okkur svo á Love Actually sem er fyrirtaks skemmtun, ég hló frekar mikið og stelpurnar sem sátu við hliðina á okkur tóku andköf þær hlógu svo mikið. Sveinbirni fannst hann vera nokkuð góður að fara með mér á svona stelpumynd og viðurkennir væntanlega seint að hann hafi skemmt sér nokkuð vel!
Sólarhringurinn minn er frekar öfugsnúinn og því er ég ekki vitund þreytt klukkan að ganga 3 - ætli ég reyni ekki að pína mig á fætur fyrir hádegi til að reyna að rétta þetta við - geymi það kannski þangað til nær dregur skóla ;)

Við erum svo að fara að flytja á allra næstu dögum og kveðjum því þessa kuldaholu sem krefst þess að maður sé í inniskóm eða teppaleggi íbúðina - hún er dúkalögð.
Þeir sem eiga kassa á lausu mega gjarnan henda þeim í okkur. Ég reddaði okkur kössum í sumar og við lánuðum þá svo og parið sem við lánuðum kassana misskildi samninginn á einhvern hátt og henti þeim öllum - fyrirtaks tölvukössum, ég er jafn svekkt yfir því og ég hljóma. Á morgun þarf ég þar af leiðandi að fara í kassaferð og betla hjá fyrirtækjum sem ég hef unnið hjá og að sama skapi þarf ég að klæða mig upp á til að líta almennilega út - fyrirhöfn!

Á morgun er ráðgert spilakvöld hérna í Eggertsgötunni og áhugasamir eru velkomnir. Lítið verður um fríar veigar en bjór verður seldur gegn vægu gjaldi!

Sjáumst hress!

Hafdís skrifaði klukkan 2:37 f.h. |


26.12.03
Gleðilega hátíð.

Af mér er allt gott að frétta fyrir utan kvef, sífellda hnerra, ljóta hósta, hausverk og ógleði. Þar sem ég er þekkt fyrir mikla hörku og hetjuskap hef ég harkað þetta af mér án lyfja og reynt að bera mig vel!
Ég hefði verið mjög svikinn að finna ekki almennilegt bragð af rjúpunum en þar sem ég borðaði bara hamborgarahrygg kvarta ég ekki! Hann var þó alveg ágætur á bragðið og það er alfarið móður minni að þakka sem er framúrskarandi kokkur. Hún bjó líka til eplasalatið sem er yfirleitt með rjúpunum og það hámaði ég í mig með bestu lyst. Eftir uppvask og frágang tóku pakkaupptökur við og þar biðu mín ýmsar gersemar!
Eftir pakkana fórum við að gera klárt fyrir gestina, hafa til ístertur og kökur, leggja á borð og annað dúllerí. Systir hennar mömmu og fjölskyldan hennar kemur alltaf á aðfangadag og sonur hennar og fjölskyldan venjulega líka en núna var elskan mín hann Maríus Pétur út á Ítalíu á skíðum - þannig að í stað þeirra var tengdamömmu og tilvonandi mági mínum Daníel Þór boðið!
Við spiluðum svo Viltu vinna milljón þangað til að sumir fóru í fýlu yfir því að Stóri-Dímon væri ekki fell á Suðurlandi heldur svissneskur ostur. Eftir miklar vangaveltur var svo komist að því að Stóri-Dímon væri líka á Suðurlandi en ekki kættist strákurinn mikið við það þar sem hann hefði þá unnið miklu meira þar sem hann vissi allar spurningarnar á eftir! Þetta var sem sagt ekki ég sem var svona tapsár! Hvað kemur til?
Í gær sváfum við frameftir og horfðum svo á Harry Potter áður en við lögðum okkur aftur. Síðan beið okkar jólaboð.
Ég er ekki mikil jólaboðakona, fjölskyldan mín er fámenn á þessu svæði landsins og því ekki mikið stuð í jólaboðum. Þetta var hins vegar alveg ágætt en ekkert meira en það. Reyndar var aldrei neitt svaðalegt stuð á Vopnafirði um jólin en ég laumaði mér ávallt í jólaboð hingað og þangað enda heimalingur í flestum húsum í nágreninu ;)
Í dag er ekkert á dagskránni. Okkur langar mjög til að hitta fólk og spila en höfum ekki hugmynd um áhugasama. Við erum nefnilega dáldið rík af spilum núna. Eigum Gettu Betur, Scrabble og Pictionary og höfum aðgang að Viltu vinna 5 milljónir og Leonard. Núna vantar okkur bara meðspilara.
Þeim sem leiðist er bent á að hafa samband við undirritaða.

Hafið það gott yfir hátíðirnar elskurnar mínar!

Hafdís skrifaði klukkan 12:49 e.h. |


24.12.03
Gleðileg jól kæru vinir til sjávar og sveita!


Hafdís skrifaði klukkan 1:14 e.h. |


23.12.03
Sko mína....

Búin að fá tvær einkunnir, náði sálfræðiprófinu með glans og þarf því ekki að taka endurtekt 7.janúar - VEI,VEI,VEI.
Síðan fékk var ég meðal efstu í vinnulagi í sálfræðinámi, það eru ritgerðir og skýrslur. Frekar lukkuleg með þetta. Var með hnút í maganum í alla nótt yfir sálfræðiprófinu þar sem ég var búin að sannfæra sjálfa mig um að LOTR miðarnir hafi verið uppbót fyrir lélegt gengi í prófinu ;) Gott að undirbúa sig alltaf undir það versta...

Núna á ég bara eftir að fá eina einkunn og ég er nokk viss um að það hafi lent réttu megin, vona meira að segja að ég fái svona 6.5 - 7, held að það sé ásættanlegt fyrri ástundun!

Á eftir að versla nokkrar jólagjafir og held að það sé best að rumpa því af! Mér skilst á kallinum mínum að hann sé að fara á tónleika með strákunum í kvöld. Vill einhver miskuna sig yfir mig og taka mig með niður í bæ?

Best að drífa sig í sturtu, við sýndum nefnilega lit og skelltum okkur út að skokka um leið og við vöknuðum og ég var búin að monta mig hæfilega mikið á því að hafa náð prófinu!

Hafdís skrifaði klukkan 1:17 e.h. |


21.12.03
Haldiði ekki að stelpan hafi skellt sér út á lífið í gær?

Kjarninn af Saumóz vinkonum mínum hittist hérna í villunni ég Eggertsgötu, þar gæddum við okkur á pizzum og afhamlandi öli og spjölluðum fram á rauða nótt. Tókum fyrir nokkur af umræðuefnunum sem við höfum aldrei rætt og þar var ég í essinum mínu eins og vanalega. MJÖG SKEMMTILEGT SEM SAGT.

Eftir miklar vangaveltur hringdum við á taxa til að fara niður í bæ en eitthvað dróst það á langinn og þurftum við að bíða uppstrílaðar niður í forstofu í það sem virtist heil eilífið! Þegar við vorum á leiðinni hringdi Sveinbjörn frá Hverfis og sagði okkur að það væri geðveik röð, nokkrum mínútum síðar hafði hann labbað beint inn - ef leigubílinn hefði ekki verið svona lengi á leiðinni hefðum við sem sagt labbað beint inn á Hverfis í staðinn fyrir að rölta á milli staða. Við enduðum þó á Sólon og var þar mikið glens og gaman, þar dönsuðum við meðal annars af okkur rassgatið svo að mitt er orðið pent á ný! Það var þvílíkt góð tónlist en gallinn á gjöf njarðar var sá að þar er bara einn lítill gluggi með örlítilli rifu. Um leið og við vorum búin að ákveða að við gætum ekki verið lengur í þessu gufubaði var hurðin opnuð en sökum stillu úti kom ekkert gott loft inn - alla vega mest lítið af því!

Þaðan héldum við á vit ævintýranna og stelpurnar enduðu á Celtic en við Sveinbjörn höfðum ekki áhuga á því að bíða í röð þar og röltum því lengra. Sveinbjörn endaði á því að hringja í vin sinn sem var að halda upp á afmælið sitt til að athuga hvort partýhöld væru enn í gangi og svo var - svo að við hoppuðum beint upp í leigubíl og í partý. Þegar við runnum í hlaðið voru gestirnir að fara niður í bæ og afmælisbarnið hrópaði ,,ekki láta bílinn fara." Síðan hurfu þeir án þess að við kæmum tauti við þá og eftir stóðum við með sárt ennið. Fórum inn í smá stund þar sem kærasta afmælisbarnsins og vinkona hennar voru! Þær voru á leiðinni niður í bæ þannig að enn og aftur tókum við leigubíl! Það voru sömu raðir og áður niður í bæ og við skötuhjú ekki þau þolinmóðustu! Við enduðum á því að labba bara niður á Nonna þar sem röð dauðans beið okkar og af sömu sökum og áður vorum við ekki lengi þaðan og fórum á Hlölla í staðinn. Að Hlölla loknum var haldið heim - ég var alveg búin í löppunum þar sem ég brá út af vananum og fór í pæjuskóm niður í bæ - nei ekki galdrakonuskóm með pinna! Þessi voru með soldið breiðari hæl svo að ég gæti labbað og með nógu breiðri tá svo að tærnar á mér kæmust fyrir. Næst ætla ég bara í sléttbotnaskónum mínum, þeir eru MIKLU betri og eins og ég hef áður haldið fram tekur enginn eftir þeim!

Ég hitti marga góða í gær og þá aðallega frjálsíþróttafólk sem var mjög kátt á Sólon.
Sigurjón neitaði að leika við okkur á Sólon þar sem við vorum að fara að dansa. Ég sem var að vona að hann lærði af myndbandinu á síðunni ÞEIRRA!

Ég vil þakka Evu, Gingu, Rakel og Möggu fyrir frábært djamm og leyfi mér hér með að stinga upp á að það líði ekki svona langt á milli þess að við förum næst!

Hafdís skrifaði klukkan 1:15 e.h. |


18.12.03
Fékk ábendinguna um að laga scroll-barinn á síðunni. Var sjálf búin að vera að pirrast á þessu en gerði ekkert í því. Gott að fá svona ábendingar svo að maður hunskist til að laga þetta!
Vona að þetta sé betra svona!

Hafdís skrifaði klukkan 1:15 e.h. |


LOTR var S N I L L D - ég segi ekki meira en það. Mæli með henni!
Bíóið byrjaði rúmlega 8 og við vorum að fara út úr salnum kl.23.45 - frekar góð keyrsla ekkert svo langt hlé. Samt tekur maður ekkert svakalega eftir lengdinni þar sem þetta er svo skemmtileg mynd. Ég þurfti nú samt nokkrum sinnum að halda fyrir augunum og grét líka svona þrisvar - já ég er eins og versta stelpa þegar kemur að svona! Sigurjón gerði bara grín að mér og hjálpaði mér að snúa upp á hárið! GOTT.
Vonsvikni kærastinn minn fékk heldur ekki að heyra margt um myndina - veit ekki síðan hvenær ég gat farið að þegja, þetta er ótrúlegt!
Jæja, best að sækja þvottinn á snúruna.

Sveinbjörn er að klára prófin í dag - og hvað það verður gott að geta gert ekki neitt með einhverjum. ÉG er frekar leiðinleg til lengdar svona ein með sjálfri mér.
Sigurjón og Ívar komu þó með mér í verslunarleiðangur í gær, ég held barasta að við höfum skemmt okkur best í Dótalandi! Ekki gott þegar þrjú fífl eru saman komin...

Hafdís skrifaði klukkan 12:08 e.h. |


16.12.03
Föruneyti hringsins hefur verið ákveðið!

Ég sjálf
mun vera í hlutverki Eowyn Strákastelpa sem vill fá að slást - held að þetta sé skrifað með mig í huga ;)
Sigurjón verður Sam, mín hægri hönd - þar koma rauðu lokkarnir vel að notum.
Erna verður Galadriel Fögur og góð að sama skapi og stenst freistingarnar þegar þær bjóðast.
Rakel verður svo Arwen fegurst af þeim fegurstu og gáfuð með eindæmum.

Haldið þið ekki að þau passi vel í hlutverkin?


Hafdís skrifaði klukkan 2:53 e.h. |


:::.....BÚIN Í PRÓFUM.....:::

Já, það er gleðidagur mikill í dag! Ég kláraði seinna prófið mitt í gær og er því komin í langþráð jólafrí. Reyndar verð ég með hjartað í buxunum þangað til að ég fæ út úr sálfræðiprófinu mínu. Ef ég fékk ekki 5 í því þarf ég að taka endurtekt þann 7. janúar og eins og gefur að skilja er ég ekki mjög hrifin af því!
Prófið í gær gekk bara ágætlega að ég held. Náði þó ekki alveg að klára það sökum tímaskorts. Var alveg með tímann á hreinu í byrjun en undir lokin klikkaði mín smá. Byrjaði á 16% spurningu þegar 10 mín voru eftir og það gefur ekki góða raun get ég sagt ykkur. Ég náði þó að klára 4% af þessum 16 alveg ágætlega og náði að skrifa smá stikkorð um önnur 4% svo að ég fæ vonandi eitthvað fyrir það. Frétti svo síðar að flestir hefði sleppt seinni 8% spurningunni þar sem hún var víst bara BULL.
Í gærkvöldi var ég svo almennileg kærasta og hjálpaði Sveinbirni að klára einhverjar skilgreiningar. Var að búa til einhverjar formúlur inn í WORD og var orðin nokkuð lúnkinn í lokin þrátt fyrir örlítil byrjendamistök.
ALIAS kom svo sterkur inn í gærkvöldi og ég er ekki frá því að þessir þættir verði alltaf meira spennandi. Reyndar vissi ég alveg að Vaughn væri ekki vondur, það gat barasta ekki verið, hann er svo sætur og sætir strákar geta ekki verið vondir! - leyfið mér alla vega að halda það smá stund lengur!

Í dag þurfti ég samt að vakna við vekjaraklukku þar sem ég átti að mæta upp í Europay kl.11 til að sækja fallegu miðana mína á LOTR. Mig grunaði að það yrði einhver myndataka og læti þar sem ég átt að mæta kl.11 á þriðjudegi en ekki bara hvenær sem er. Ég reyndi því að fara í aðeins skárri föt og að líta sómasamlega út - veit reyndar ekki hvort það tókst en...vonum bara það besta. Svo var tveimur myndum smellt af mér og einhverri konu sem afhenti mér miðana góðu og forláta LOTR húfu! Hún er reyndar ekki með stærðarstillingu og er því ALLTOF stór á mig, en hún er samt fríð.

Ég reikna með að taka til í dag og gera fínt heima hjá mér. Síðan var ég að hugsa um að baka handa Sveinbirni og henni Möggu minni sem eru ennþá að læra. Þau eru í nágreninu svo að ég get bara skutlast með köku handa þeim. Aðrir áhugasamir um skúffuköku a la Hafdís mega hafa samband!

Oh, hvað það er gott að þurfa ekki að læra!

Hafdís skrifaði klukkan 12:12 e.h. |


15.12.03
Úff, sumir eru orðnir soldið stressaðir!
Hugga mig þó við það að þessari pínu verður lokið eftir 5 tíma - vá hvað ég get EKKI beðið!

Allir að hugsa fallega til mín frá 13:30-17:30 ;)

Hafdís skrifaði klukkan 12:27 e.h. |


13.12.03
Til að hafa þetta á hreinu...
Við Sveinbjörn unnum 6 miða á LOTR frumsýninguna, 2 í venjulegan sal og 4 í VIP sal!
Við viljum selja miðana 2 sem gilda í venjulegan sal!
Hina 4 ætla ég að nota til að eignast vini!
Ég er búin að fá alla vega 2 tilboð í venjulegu miðana og svo fattaði ég í gær að e.t.v var eitt tilboðið í VIP miðana! Sá hinn sami og sendi mér póst gær með tilboði er vinsamlegast beðin um að staðfesta hvort að boðið var í venjulega miða eða VIP ef það var í VIP þá þykir mér leiðinlegt að segja að þeir eru ekki til sölu og bið þá um nýtt tilboð í venjulegu ef misskilningur var með hvaða miðar var í boði.

Ég á það til að vera heldur óskiljanleg og vona ég því að þetta hafi komið málunum á hreint!
Innan skamms fer ég að auglýsa miðana til almennings fyrir utan þessa síðu. Fannst betra að auglýsa þá fyrst hér til að gefa ykkur tækifæri á því að sjá myndina fyrst af öllum á Íslandi!

Hafdís skrifaði klukkan 12:57 e.h. |


Mér sýnist á öllu að Dr. Bjössi sé á leiðinni á sýningu á miðvikudaginn, það hefur enginn annar gert neitt í málinu.
Ég sem hélt að loksins yrði ég vinsæl og ætti marga vini! Það þarf greinilega meira til.
Ég er líka nokkuð svekkt yfir því að hafa bara fengið 3 tilboð í venjulegu miðana og þar af er bara 1 sem er þess vert að íhuga!
Koma svo fólk...næsta sýning er 26. desember og það er uppselt næstu daga þar á eftir svo að þið komist ekki fyrr en í janúar - og það er á NÆSTA ári!

Verð víst að rumpa svona 13 köflum af í dag og hingað til hef ég gert 1 á dag - já þetta er sluxaháttur. Ég get kennt fólki hvernig á EKKI að læra undir próf!


Hafdís skrifaði klukkan 12:26 e.h. |


Ég er sjóheilladís Ósk!

Hvað eruð þið?

Hafdís skrifaði klukkan 12:38 f.h. |


12.12.03
Ég er að horfa á IDOL í faðmi fjölskyldunnar og er bara nokkuð ánægð með frammistöðu keppendanna. Mig grunar sterklega að Jón detti út að þessu sinni en í raun stóð hann sig ekkert illa, bara ekki eins vel og hinir!
Pabbi sló naglann skemmtilega á höfuðið þegar við vorum að tala um frammistöðu Helga Rafns. Hann sagði að ef hann dytti út yrði það bara af því að allar stelpurnar væru inneignarlausar...
Þau eru orðin alveg svakalega góð öll saman, gaman að sjá hvað þau bæta sig mikið. Fannst samt sérlega gaman að Sigga skildi ekki segja ÞÚ HEFUR BÆTT ÞIG! Bubbi var extra jákvæður í dag og Palli setti svo sannarlega sinn svip á keppnina. Mér finnst Simmi og Jói líka alltaf verða betri!
Ég er ef til vill svona jákvæð þar sem ég er enn í geðshræringu. Í tilefni útskritar og yndislegheita Sigurjóns ákvað ég að bjóða honum með mér í VIP en hef ekki ákveðið hverjir fá að fylgja okkur þangað.
Hlý orð í minn garð skaða ekki fyrir ;)

Hverjum á ég að bjóða með og afhverju?

Hafdís skrifaði klukkan 10:10 e.h. |


Lukkan leikur við mig þessa dagana!

Ég var að fá símtal frá forsvarsmanni MASTERCARD núna rétt í þessu og hann var að tilkynna mér að ég hefði unnið miða fyrir 4 á VIP heimsfrumsýningu á Lord of the Rings- hilmir snýr aftur! Þetta er einmitt líka á miðvikudaginn þegar Sveinbjörn er að fara í próf daginn eftir svo að ég veit ekki alveg hvað ég á að gera!

Hver vill vera vinur minn núna?

Hafdís skrifaði klukkan 4:32 e.h. |


Vilt þú sjá LOTR á undan öllum öðrum?

Tveir miðar á FORSÝNINGU á Lord of the rings - the return of the king eða Hilmir snýr aftur ertu til sölu.
Sýningin er miðvikudaginn 17.desember kl.20:00 í Smárabíó, popp og kók innifalið!
Áhugasamir hafi samband við undirritaða í gegnum vefpóst, síma eða með athugasemd hér fyrir neðan!
Miðarnir verða seldir hæstbjóðanda, ef tveir bjóða það sama fær sá sem mér líkar betur við miðana ;)

Uppboðið er hafið!

Hafdís skrifaði klukkan 2:40 e.h. |


11.12.03
Leti, leti, leti, leti líf mitt er, því að ég nenni ekki að læra og er bara þver...
Lagið er Gleði, gleði, gleði en textinn er eftir mig.
Ég er eins og textinn gefur til kynna búin að vera heldur löt seinustu tvo daga, eitthvað eftir mig eftir prófið á þriðjudag.
Hún kom reyndar og truflaði mig í dag og reyndi að koma einhverjum dónahugsunum inn í hausinn á mér en hún náði ekki í gegnum sakleysinginn ;)
Fórum svo á hörku æfingu í dag, tókum VEL á því og að henni lokinni tók Orkan við og svo Hagkaup. Ungfrúin snaraði svo í einn kjúklingarétt með barbeque en myndarlegheitunum var ekki lokið með því, heldur var snarað í eina peruköku með súkkulaði - piparmyntu, umh....
Myndarlegheit mín taka seint enda held ég því að eftir að ég tók kökuna úr ofninum var ástmaður minn slæmur í maganum og mín kippti sér ekki mikið upp við það að skokka út í búð og fjárfesta í magameðalinu góða
Er að hugsa um að fara að gæða mér á köku ;)
Fyrir þá sem hafa áhuga er svar við vangaveltu minni um stafrófið á vísindavef Háskóla Íslands. Þar eru líka mörg fleiri skemmtileg svör eins og Hvar er mamma?

Hafdís skrifaði klukkan 10:59 e.h. |


9.12.03
Var í fyrsta prófinu mínu, öðru af tveimur reyndar frá 13.30 í dag. Var orðin heldur stressuð í nótt þegar ég vissi ekkert hvað væri best að lesa fyrir prófið en náði þó ekki þeim stresstoppi sem ég hélt ég kæmist á og var í raun langt frá því. Eins og sást á þar seinustu færslu minni var ég í raun búin að sætta mig við að eyða jólunum með Freud og Ödipusarduldinni hans og öðru kynórum. Reiknaði með að hún myndi nenna að lesa þetta með mér ef ég sýndi henni eitthvað af myndunum í bókinni ;) Uss, það er skot hérna hægri vinstri!!!
Get reyndar ekki komið með neinar fullyrðingar um þetta próf en þrátt fyrir að það sé ekki minn stíll held ég að ég myndi gleðjast MIKIÐ yfir 5unni. 7a væri reyndar betra en þar sem það er jafn fjarlægt og að ég sé 55 kg verður ekki gælt við þá hugmynd lengur - punktur.
Naut þess svo að horfa á Hommana 5 á Skjánum áðan, þeir eru snillingar þessir drengir og ég get endalaust hlegið enda fíla ég fátt betur en AULAHÚMOR, einmitt af þeim sökum finnst mér Sveinbjörn óeðlilega fyndinn. Ja, hverjum þykir sinn fugl fagur.
Reyndar svindlaði ég soldið í gær og tók upp bæði CSI og Alias og horfði á það á miðnætti og borðaði Freschetta pissu í góðu yfirlæti, hélt svo áfram að læra fram að þrjú en þá voru augun á mér blóðhlaupnari en augun á bolabít eða hvað sem þessi blóðaugnahlaupnatýpa af hundakyni heitir og ákvað því að halla mér. Reyndar var ég þá búin að vera að drepast í augunum í 12 tíma en við förum ekki nánar út í það...
Ég hef sem sagt snúið sólarhringnum hæfilega mikið við og vakna núna rétt fyrir hádegi og læri fram á nótt - held að það henti mér bara betur. Er greinilega ekki eins mikil morgunmanneskja og ég hélt þó að ég eigi aldrei erfitt með að vakna og sé MJÖG SJALDAN morgunfúl - takið eftir, þetta er ekki kaldhæðni.
Á morgun ætla ég svo að skemmta mér yfir því að moppa, skúra, þvo þvott, vaska upp og taka til sálfræðidótið. Lukkulega þreif ég klósettið í gær þar sem mér var farið að blöskra rykið á vasknum og þar með er ég laus við það. Held barasta að þessi tiltekt verði stuð í samanburði við margar af kenningunum sem ég hef verið að lesa undanfarna daga.
Er þetta ekki bara orðið gott í bili?
Ég er nefnilega að spá í að vaska upp núna svo að ég tapi mér ekki áður en ég borða Cheeriosið mitt á morgun. Ef ég fæ góða einkunn á þessi prófi vil ég þakka guði, gæfunni og B-súper!

Hafdís skrifaði klukkan 11:06 e.h. |


Ég ætlaði að reyna að vera betri en Erna í einhverju - öðru en því að eiga stærri föt ;)
Tók því þetta próf hér að neðan og veit ekki alveg hvernig ég á að túlka það. Þar sem nefnið mitt nýttist mér ekki vel seinast ákvað ég að nota VIÐURNEFNIÐ mitt Bjútíkvín og hér er afraksturinn á kynþokka mínum...
What Makes You Sexy? by eva71
Name/NickName
Gender
Sexy Body Part IsEverything
Special Talents AreShowing off
Created with quill18's MemeGen!


Hafdís skrifaði klukkan 10:56 e.h. |


8.12.03
Eitthvað andlaus þessa dagana, allt gengur MJÖG hægt en stressið er þó ekki mikið farið að setja strik í reikninginn. Þá myndi ég kannski læra almennilega.
Því miður held ég að ég sé búin að sætta mig við að taka endurtekt 7.janúar - veit ekki alveg afhverju þar sem þetta á ekki að vera neitt mál. Held að það sé í eðli mínu að búa mig alltaf undir það versta svo að allt annað virðist vera plús. Þetta kemur þó væntanlega í ljós á morgun.
Reikna alla vega með að læra none stop fram að ALIAS og lesa svo eitthvað fram eftir nóttu. Ætla svo bara að sofa fram að prófi það er kl.13:30 og stendur til 17:30 svo að ég verð væntanlega FREKAR þreytt eftir morgundaginn.
Ætla svo að njóta þess að dingla tánum soldið á miðvikudaginn því að næsta próf er ekki fyrr en 15. og það er gagnapróf. Þetta verður ljúft líf!

Hafdís skrifaði klukkan 7:30 e.h. |


7.12.03
Þú sérð hóp af fólki út á götu að horfa á eitthvað, hvað þurfa margir að vera að horfa til að þú stoppir líka?
Þetta er ein af mörgum spurningum sem ég er að velta fyrir mér fyrir utan stafrófið góða sem enginn virðist skilja mig í!
Rannsakendur hafa rannsakað þetta og í ljós kom að það þarf bara 3, sú tala lækkar þó þegar einhver frægur stendur og horfir út í loftið. Frægur Íslendingur gerði þetta víst einu sinni og það kom fullt af fólki til að horfa með honum og var búið að horfa lengi þegar einhver spurði hann á hvað hann væri að horfa! Þá var hann víst bara að horfa á einhvern reykháf eða eitthvað álíka. Það þarf sem sagt bara eina fræga persónu.

Já, þetta var nú soldið skondið!

Hafdís skrifaði klukkan 11:00 e.h. |


Þar sem að það vita hvort eð er allir núna að ég er skrýtin ætla ég að halda áfram að pæla í stafrófinu. Hver ætli hafi raðað því upp eins og það er, afhverju er A fyrst og X seinast?
Mér datt í hug að þetta væri eitthvað í tengingu við gríska stafrófið, alpha, beta, gamma...

Annars er bara gott að frétta úr eldhúsinu!

Hafdís skrifaði klukkan 12:24 e.h. |


6.12.03
Nú verður Robbi ekki lítið svekktur...
Threesome Fun by Mckennat
Username
Favorite Color
Date of ThreesomeMarch 21, 2014
Location of Threesomein a movie trailer
First PartnerWade Robson
Second PartnerCameron Diaz
Created with quill18's MemeGen!


Þurfti að leita að Wade vini mínum þar sem ég hafði ekki HUGMYND um hver hann var.
Ekki alveg viss um að hann sé mín týpa en ég hef víst rúm 10 ár til að skipta um skoðun...
Líka gaman að því að fyrsta threesomið mitt verði í movie trailer - þið verðið þá væntanlega vitni að því líka! Ég er nú samt soldið heppin. Kynlíf í kvikmyndum er yfirleitt sérlega vel heppnað!

Hafdís skrifaði klukkan 3:02 e.h. |


5.12.03
Eitt sem ég hef LENGI verið að velta fyrir mér. Afhverju er M á undan N í stafrófinu. Mér finnst einhvern veginn rökrétt að N sé á undan þar sem hann er svona nokkurn veginn hálft M.
Ég ruglast nánast alltaf þegar ég er að leita í orðabók þar sem mér finnst þetta eitthvað svo rökrétt og þetta passar meira að segja inn í A,B,C,D,E,F,G eftir kemur H,J,K, L, n,m* OG EINNIG P, ætli Q þar standi hjá o.s.framv.
*N og M eru skrifaðir með litlum staf af því að þetta er öfug röð.

Er enginn annar nógu steiktur til að hafa pælt í þessu?
Einhverra hluta vegna grunar mig ekki...þá er ég bara svona sérstök.

I´m so SPECIAL!

Hafdís skrifaði klukkan 1:14 e.h. |


4.12.03
Það er ekki til neitt réttlæti í heiminum!

Hafdís skrifaði klukkan 11:19 e.h. |


Ég hafði soldið gaman af því að sjá hve margir misskildu kaldhæðnina mína hér að neðan. Ég hélt að þetta væri svo augljóst. Ég virðist þó líka hafa misskilið kaldhæðnislegt svar sumra en mér þótti það ekki eins augljóst.
Ég gerði mér glaðan dag í gær og fór í verslunarleiðangur. Keypti í matinn og keypti 2 jólaseríur. Er meira að segja búin að hengja þær upp - ýkt dugleg. Er með eina fína bleika inn í stofu og aðal kosturinn við hana er að það eru 8 mismunandi blikkstillingar á henni - fínt fyrir fólk eins og mig sem þarf alltaf að vera að breyta hjá sér.
Það er miklu skemmtilegra að læra með seríu! Ég er samt ekki komin í neitt svakalegt jólastuð, finnst bara seríur fallegar. Komst jú í smá stuð í gær þegar Sveinbjörn kom af litlu jólunum í skólanum með jólasveinahúfuna sem ég gaf honum og konfekt - sem ég fékk þó ekki að borða. Það er svo gott að halda í barnið í sér.

Ég var reyndar mjög pirruð þegar ég hengdi seríuna upp inn í svefnherbergi, notaði svona sogskálar og ætlaði að gera voða fínt mynstur en sogskálarnar voru alltaf að detta og gerðu mig með því alveg brjálaða. Ég gafst þó ekki upp og eftir nokkrar misheppnaðar tilraunir tókst þetta hjá mér - jei.
Um leið og ég settist aftur niður til að læra heyrði ég sogskálarnar detta niður - var heldur pirruð en lét þær eiga sig. Svo tóku þær líka upp á þessu í nótt þegar ég var á fullu að reyna að sofna - já ég þarf alltaf að reyna að sofna. Sofna voðalega sjaldan um leið og ég leggst á koddann. Ligg yfirleitt og hugsa í svona klukkutíma áður en ég sofna - ekki gott mál. Hef oft legið í svona 4 tíma áður en ég sofna.
Ég er akkúrat komin að svefnkaflanum í bókinni, ætla að lesa hann og vona að ég læri eitthvað sniðugt.

Það er leikur að læra, leikur sá er mér kær, að vita meira og meira, meir´í dag en í gær.

Hafdís skrifaði klukkan 11:36 f.h. |


3.12.03
Líf mitt er greinilega mest spennandi þessa dagana. Það er allt svo yndislegt og fagurt. Það er svo ljúft að sitja á rassgatinu allan daginn og læra um skemmtilega hluti eins og Corpus callosum, disinhibitation, glía frumur, taugunga, myelin og mismunandi gerðir taugaboða og svo mætti lengi telja. Ef ég mætti vera að gera hvað sem ég vildi, myndi ég einmitt vera að lesa þetta. Það er líka svo gaman að fara svona hægt og rólega yfir, gleður lítil hjörtu.
Persónulega myndi ég vilja vera lengur í prófum, þetta er svo alltof stutt. Bara 12 dagar eftir - grát, grenj og gnístan tanna.
Því miður var ég búin að ákveða að taka mér smá hlé frá lestri til að fara að versla inn, það er ekkert til. Síðan var ég soldið búin að ákveða að kaupa seríur í dag en ég veit ekki hvort ég tími að eyða svona miklum tíma frá dýrindis bókunum mínum. Á örugglega eftir að deyja úr söknuði á þessum klukkutíma sem þetta tekur.
Vildi óska þess að lífið ykkar kæmist nálægt því að vera eins yndislegt og mitt.

Lífið er yndislegt og frelsið líka.

Góðar stundir,

Hafdís skrifaði klukkan 12:42 e.h. |


2.12.03
Afhverju er svona misjafnlega erfitt að læra eftir dögum. Stundum get ég setið við lengi, lengi en stundum gengur ekki neitt. Átti frekar erfitt með að læra í dag og var SVO lengi að gera allt sem ég gerði. Er líka enn í þeim pakka að sofna seint og vakna seint. Ætla að reyna að pína mig á lappir snemma í fyrramálið! Bara harkan sex sem gildir.

Úff ég þarf að massa dáldið margar blaðsíður á morgun. Fyrir prófið mitt sem er 9. desember þarf ég að lesa 845 bls. hvorki meira né minna. So far er ég ekki búin með margar! Ég var nú samt í prófi úr 1/3 námsefninsins á laugardaginn og hef því ekki eins mikið efni að fara yfir - thank god.
Ég er bara svo skrýtin með það að þegar ég er nýbúin í prófi gengur mér illa að byrja að læra aftur. Eins og heilinn mótmæli - hann hefur greinilega ekki mikið vinnsluminni þessa elska.

Ég er að hugsa um að byrja á nýjum lið á síðunni. Hann mun bera heitið setning dagsins og þið eigið að reyna að átta ykkur á því hver sagði þessi orð. Spurt var á MSN hvað ætlarðu að borða um jólin.
Svar: KFC eða eitthvað
Þetta er reyndar tekið soldið úr samhengi en...
Sú/sá hin/n sami má ekki gefa upp rétta svarið!

Giskið þið nú!

Hafdís skrifaði klukkan 10:19 e.h. |


Þetta þykir hér heldur skondið:

Hvaðan kemur orðið 'brussa' um klaufskan kvenmann?
Flokkur Málvísindi: íslensk 1.12.2003

Svar:
Uppruni orðsins brussa í merkingunni 'sver og skessuleg kona' er ekki alveg öruggur. Ekkert sambærilegt orð er þekkt í Norðurlandamálum eða í öðrum nágrannamálum.

Ásgeir Blöndal Magnússon tengir það í Íslenskri orðsifjabók lýsingarorðinu bryssinn 'beysinn, burðugur' og norsku sögninni brysja 'láta mikið, hreykja sér'. Brussa væri þá skylt sögninni bryssa í merkingunni 'æða áfram'.

Tekið af vísindavef Háskóla Íslands.


Hafdís skrifaði klukkan 2:02 e.h. |


BOX

Ég hef verið að velta þessu box-máli fyrir mér síðan strákurinn lenti í slysinu í Vestmannaeyjum. Það eru mjög skiptar skoðanir um þetta mál og sitt sýnist hverjum. Ég fyrir mitt leyti skil ekki afhverju þessi íþrótt ætti að vera bönnuð en ekki aðrar. Veit ekki betur en Júdó og öll þessi afbrigði af því séu líka stórhættuleg og hafi valdið slysum. Lenti ekki einhver strákur í alvarlegu slysi í sumar þegar sparkað var í hausinn á honum? Ég er enginn sérstakur box áhugamaður en mér finnst allt í lagi að horfa á þetta og ímynda mér hvað ég væri dauð eftir 20 sekúndur af þessu handapati.
Það er bara svo skrýtið að banna eina íþrótt en ekki aðra. Það eru margar hættulegar íþróttir til í þessum heimi í dag. Seinast þegar ég gáði var box ekki skráð undir extreme sports. Mér finnst bara að fólk megi stunda sínar íþróttir, að stjórnvöld eigi ekki að geta ráðið hvaða íþróttir eru stundaðar á landinu. Það er svo margt hættulegt í þessum heimi. Það er alls staðar hægt að lenda í slysi!
Höldum boxi áfram löglegu á Íslandi!

Hafdís skrifaði klukkan 11:41 f.h. |