|
|||||||||||||||||||
|
29.6.04
Þvottahúsið.
Ég tók mig til um helgina og þvoði smá þvott sem er ekki frásögu færandi nema fyrir þær sakir að lyktin í þvottahúsinu er nánast óbærileg. Ég lenti í því að vera að hengja upp úr þvottavél á sunnudagsmorguninn um leið og einn af nágrönnunum mínum var að hengja upp þvott. Ég hélt að félaginn hefði gefið frá sér þessa viðbjóðslegu lykt og vandaði mig sérlega við að sýna engin svipbrigði til að gera greyið ekki enn vandræðalegri. Eftir smá stund áttaði ég mig þó á því að lyktin var verst yfir niðurfallinu og hló að vitleysunni í sjálfri mér. Ég fór svo niður í gærkvöldi til að sækja þvottinn og lyktin hefur versnað ef eitthvað er. Lyktaði kyrfilega af þvottinum mínum til að passa að það væri ekki vond lykt af honum og hét því að í næsta skipti myndi ég bara hengja þvottinn út á snúru en ekki láta hann mygla þarna í kúkalyktinni. Ég er svo að hugsa um að hringja í umsjónarmanninn og tilkynna honum um þetta og sjá hvort hann getur ekki losað um þessa stíflu! Gengur ekki að hafa kúkalykt af fötunum sínum! Hafdís skrifaði klukkan 11:04 f.h. | Síðan við fluttum á Stúdentagarða hefur miðaldra maður alltaf lagt leið sína hingað til að spyrja hvort við megum missa nokkrar dósir eða flöskur. Ég gaf honum einu sinni þrjár flöskur eða eitthvað álíka sem var hérna uppi í íbúð - hinar geymi ég niður í geymslu og safna þangað til að ég nenni að fara með þær upp í Sorpu. Þessi maður kom fyrir skömmu síðan og gaf mér færi á að koma með snilldartakta. Hann spurði eins og vanalega hvort ég ætti flöskur eða dósir sem ég mætti missa en ég svaraði því til að ég drykki ekki gos - sannleikurinn er sá að ég ætla að reyna að fara að minnka við mig gosdrykkjuna og auka á ný sódavatn og vatnsdrykkju. Það sem ég áttaði mig ekki á fyrr en ég lokaði hurðinni var að það stendur fullur haldapoki af flöskum við hliðina á hurðinni sem ég hef ekki gefið mér tíma til að fara með niður. Ég veit ekki hvort hann tók eftir þessu og ég veit heldur ekki afhverju ég hef áhyggjur af því þar sem mér er alveg sama hvað þessum manni finnst. Ég vorkenni honum reyndar soldið fyrir að ganga um stúdentagarða um hábjartan dag og betla flöskur og dósir. Ég sá hann í haust þegar við bjuggum á Hjónagörðum og ákvað að opna ekki þegar hann bankaði hjá mér. Hann bankaði meira að segja tvisvar til öryggis. Ég hélt bara áfram að læra, nennti ekki að fara að skálda eitthvað upp. Ég er nefnilega svo mikill nískupúki að ég vil fara með þessar flöskur sjálf og fá peninginn fyrir þær! Mig munar alveg um þessar nokkrar krónur! Hafdís skrifaði klukkan 10:57 f.h. |
28.6.04
Mikilvægasta máltíð dagsins?
Matarvenjur fólks eru eins misjafnar og það er margt. Sumir fylgja þeirri reglu að best sé að borða mest á morgnana og minnka svo máltíðirnar það sem eftir líður dags þar sem hreyfingin minnkar iðulega eftir því sem líður á daginn. Aðrir kjósa að borða mjög lítið eða ekkert á morgnana, fá sér jafnvel bara kaffi og borða þar á eftir hádegismat. Enn aðrir borða bara alls ekki neitt en það fólk á við sálræn vandamál að stríða. Sjálf borða ég alltaf frekar mikið á morgnana og líður hreint ekki vel ef þessi uppáhaldsmáltíð mín raskast eitthvað! Dagurinn verður alveg misheppnaður hjá mér ef ég fæ ekki Cheeriosið mitt á morgnana og mér líður eins og hálfri konu. Í morgun komumst við skötuhjúin að því okkur til skelfingar að við hefðum gleymt að kaupa mjólk daginn áður og vorum algjörlega mjólkurlaus. Búðin opnar ekki fyrr en 8 en þá eigum við að vera mætt í vinnuna. Sveinbjörn var reyndar frekar rólegur yfir þessu og ákvað bara að borða skyr í morgunmat. Ég var ekki alveg eins kát með það og gerði heiðarlega tilraun til þess að fá hann til að fara út í bakarí til að kaupa mjólk. Hann sat hins vegar bara sem fastast inn í sófa og las blaðið. Ég endaði á því að bursta tennurnar án þess að borða neitt og fara í vinnuna á fastandi maga - eins gott að ég fékk dýrindis kjúkling og eplaköku í gærkvöldi og borðaði vel. Ég byrjaði á því að fara inn í mötuneyti til að sækja skyrið mitt. Morgunmaturinn minn samanstóð sem sagt af 200 g af skyri og sódavatni - dýrindis, dýrindis! Þetta svalaði reyndar alveg sárasta hungrinu. Ég tók síðan með mér ostaslaufu sem bjargaði mér alveg núna kl.11 - hefði ekki enst á þessu til 12! Ég verð samt örugglega voða mjó í dag og get því ekki vælt mikið en ég stend föst við það að Cheerios sé nauðsynlegt á morganana og tvímælalaust mikilvægasta máltíð dagsins! Hafdís skrifaði klukkan 11:33 f.h. |
25.6.04
Á mínum yngri árum tók ég mig einu sinni til ásamt Ellen vinkonu minni og púslaði 1000 kubba púsl. Við tókum nokkur kvöld í þetta og voru sehr þolinmóðar. Í byrjun reyndi ég að nota aðferðina ,,skoða kubbinn og finna út hvar hann á að vera" á meðan Ellen tók hvern kubb fyrir sig og prófaði á einu stað þangað til hún fann þann rétta. Það leið ekki á löngu þar til ég hafði tekið upp hennar aðferð enda var hin fremur seinvirk - alla vega svona í byrjun. Við vorum alveg í smá tíma að púsla og nenntum því ekki á hverju kvöldi og því var ákveðið að geyma púslið og kubbana bara á stórri spýtu sem ég gat svo ýtt undir rúmið mitt! (Það vantar ekki að vandamálin séu leyst á mínum heimili á snaggaralegan hátt). Þegar líða tók á verkið tók karl faðir minn sig til og ryksugaði herbergi dóttur sinnar - ég vil taka fram að þetta gerðist ekki á hverjum degi og undirrituð hafði ekki lagt fram formlega beiðni um að sog ryks færi fram. Spæjarinn ég var fljótur að sjá að ekki var allt með felldu í herberginu mínu góða og var fljót að fatta að brussan faðir minn hefði ryksugað og þá fannst mér líklegt mjög að hann hefði líka ryksugað undir rúmi og við nánari athugun fannst mér eins og það vantaði nokkra kubba. Pabbi sagði nú ekki mikið við þessum ásökunum mínum að mig minnir annað en að ásaka frumburð sinn um sóðaskap. Ég sætti mig við þetta og vonaði hans vegna að allir bútar kæmu fram. Áfram gekk verkið og þegar kom að leikslokum kom í ljós að það vantaði heila 5 kubb víðsvegar um svæðið. Skapofsinn kom upp í minni þegar hún þaut fram og húðskammaði föður sinn fyrir að hafa ryksugað upp kubbana, núna væri ekki hægt að klára það og svo framvegis. Á meðan rölti karl faðir minn rólegur inn í geymslu og dró fram pokann sem hafði verið í ryksugunni. Hann hafði ákveðið að geyma hann ef ske kynni að kubbarnir kæmu ekki allir til skila. Hann nennti ekki að leita í pokanum til einskis. Ég get ekki líst gleði minni yfir þessar skynsemi og tók gleði mína á ný þegar kubbarnir 5 komu allir í leitirnar mis rykóttir!
Það var ljúft að vera lítill... Hafdís skrifaði klukkan 1:32 e.h. |
24.6.04
Hafdís Ósk Pétursdóttir,
Your ideal job is a Mermaid. Sveinbjörn Jónsson, Your ideal job is a The job you have now. Helvíti sniðugt! Ef ég hins vegar tek íslensku stafina út úr nafninu mínu er er ideal starfið mitt að vera tryggingasvikari. Það ætti kannski vel við mig að vera að svíkja fólk allan daginn! Hafdís skrifaði klukkan 12:47 e.h. |
23.6.04
Ég er búin að komast að því að líkur þess að merjast við hnjask aukast með aukinni fitu! Ég merst þannig betur núna en ég gerði á mínum fitusprengdu árum.
Af þessari uppgötvun minni áætla ég að það sé hægt að mæla fitumagn með því að líta til marbletta en þó verður að gera ráð fyrir brussuskap í útreikningum. Ég finn ennþá meira til núna þegar ég rekst utan í eitthvað en ég gerði áður fyrr - sem er ekki gott þar sem ég rek mig mjög mikið í sökum brussuskaps! Annars ætlaði ég að koma með einhverja ljóskusögu af sjálfri mér sem ég man ekki. Hún rifjast e.t.v upp fyrir mér síðar! Forðumst marbletti - æfum meira! Landlæknir. Hafdís skrifaði klukkan 3:40 e.h. | Ég var að bæta inn nýjum tengli! Sveinbjörn er búinn að virkja háskólasíðuna sína og var að setja inn myndir frá nokkrum viðburðum - þar á meðal nýafstaðinni Kínaferð. Ég er ekki búin að skoða þær allar þar sem þær eru milljón og tuttugu en þið getuð spreytt ykkur þegar ykkur leiðist eða langar að sjá eitthvað fallegt. Það eru nefnilega nokkrar myndir af honum ;) hehe! Við ætlum svo einhvern tímann að halda myndakvöld í höllinni og þá geta áhugasamir fræðst um helstu staði í Kína - svona eftir minni alla vega! Ég ætlaði að gera síðuna hans eitthvað fína en fékk mikla gagnrýni fyrir að vilja ekki ljóstra henni upp fyrr en ég væri búinn að shæna hana til svo að ég ætla bara ekkert að gera hana fína og ljóstra henni hér með upp. Njótið! UPDATE:Var að fatta að Kína-myndirnar virka ekki. Læt strákinn kippa þessu í lag þar sem hann er búinn að læra svo mikið í netfræðum undanfarna daga :) Svo auglýsum við eftir spekingi í Access til að aðstoða við smá verkefni. Kökur í boði fyrir áhugasama spekinga! Hafdís skrifaði klukkan 10:20 f.h. | Það ríkir sorg í mínum herbúðum í dag. Ég komst að því í gær að hárgreiðslukonan mín er kannski að flytja til úglanda í haust! Ég er ekkert sérlega ánægð með þessa ákvörðun hennar og púkinn í mér leyfir ekki annað en að ég óski þess að hennar heittelskaði komist ekki inn í skólann sem hann var að sækja um! Ég get ekkert að þessu gert - ég veit að ég er illa innrætt! Ég hugga mig hins vegar við að ég fer jafnvel út næsta haust og því yrði þetta aldrei meira en ár en hárið mitt verður sko ekki ánægt. Það er nefnilega svo erfitt að finna sér nýja hárgreiðslukona eða mann. Ég er reyndar mjög auðveld - er yfirleitt alveg sama en það getur endað með ósköpum ef ég villist inn á stofu sem ekki kann til verka! Úff, buddan á líka eftir að fá að kenna á þessu...öss. Ég var annars bara ánægð með úrslitin úr leikjum gærdagsins þó svo að ég vorkenndi Ítalagreyjunum í gær. Ég hélt með Sverige og var því frekar kát - jafn kát og tilvonandi mágur minn varð fúll :) Það er líka sérlega upplífgandi að hafa svona gott veður 2 daga í röð. Hafdís skrifaði klukkan 10:14 f.h. | Það er svo gaman að kynnast fólki sem maður hefur fyrirfram gert sér hugmyndir um sem breytast. Fólk sem virkar fráhrindandi getur gert lífið svo skemmtilegt með því að afsanna kenninguna! Það er líka gaman þegar maður kemst að því afhverju sá hinn sami virkaði fráhrindandi! Lífið er sko skondið og skemmtilegt! Hafdís skrifaði klukkan 10:11 f.h. |
22.6.04
Mig langar svo, mig langar SVO
Þetta er einn af mínum uppáhaldsstöðum í heimi! Oh, hvað ég sakna þess að geta ekki bara skellt mér reglulega! Ljótu fjarlægðir! Hafdís skrifaði klukkan 3:42 e.h. | Humm, ég hugsa að ég slái Demi seint út en... ![]() You are going to marry Ashton Kutcher. He is kind and sweet, but pulls a lot of pranks (and probably quite a few on you too!!)and can always make you laugh. Congrats!! Which male celebrity are you going to marry? (14 choices now!!) brought to you by Quizilla Hafdís skrifaði klukkan 10:15 f.h. |
21.6.04
Það er heitara úti en inni. Hversu fúlt er að þurfa að vinna inni þegar sólin skín svona og hitamælirinn sýnir 16° - hann gerði það minnsta kosti þegar ég mætti í morgun. Heimska ég valdi líka þennan dag af öllum til að mæta seinna í vinnuna en vanalega og því þarf ég að hanga hérna til að ganga 5 í dag - Fúlt smúlt.
Ég var reyndar alveg endalaust þreytt í morgun og hafði því mjög gott af því að kúra soldið lengur en ég er ekki enn búin að bæta mér upp svefntap helgarinnar. Ég var alveg búin í fótunum eftir laugardaginn og passaði mig því betur í gær en varð samt soldið þreytt þar sem hausverkur og lystarleysi höfðu áhrif á líðanina. Ég kíkti líka smá á lokahóf í gær og var það hin ágætasta skemmtun. Þessi helgi fór í að rifja upp fyrstu 19 ár lífs míns - það er þegar ég drakk ekki. Ég er alveg búin að komast að því að ég hefði betur aldrei byrjað að smakka áfengi þó svo að ég kunni að fara með það í hófi. Það er svo miklu ódýrara og betra fyrir heilsuna. Núna er ég bara að velta fyrir mér hvort ég eigi að nenna að fara í vinnupartý með Sveinbirni næstu helgi, mér líst ekkert sérlega vel á plönin! Oh, ég er orðin svo gömul og léleg! Annars held ég að ég hafi náð smá lit á þessum 10 mínútum sem ég sat úti í hádeginu - gulræturnar að koma sterkar inn ;) Hafdís skrifaði klukkan 12:36 e.h. |
20.6.04
Ég er alltaf að komast að því hvað ég er fötluð. Ég var að komast að því að ég get bara krosslagt hægri yfir vinstri en get ómögulega skipt um fót. Ég ákvað nefnilega að vígja annan kínakjólinn minn í partýunum sem ég var í og þá hefði verið voða gott að geta krosslagt vinstri yfir en það er eins og vinstri kálfinn sé eitthvað stærri eða eitthvað. Þetta verður eitthvað svo bjagað! ( Bjagað er orð sem ég lærði á Vopnafirði, notað yfir hluti sem eru ekki alveg eins og þeir eiga að sér að vera)
Að öðru - mikið eru nýju auglýsingarnar frá Símanum ömurlegar. Þessar sem fjalla um að vera með allt á einu stað! Veit ekki hvað þau eru að spá með þessum auglýsingum. Eru þær að ná til ykkar? Ég lenti í smá sálfræðitrylli í dag. Ég var aðaldómari á boðhlaupsskitingu nr.2 í 4x100m hlaupi og lenti í því að þurfa að dæma landssveitina okkar úr leik þar sem þær skiptu ólöglega. Þetta var reyndar ekki bara mín ákvörðun sem gerði hana mun einfaldari en það var frekar erfitt að tala við þann sem þjálfar sveitina í símann og útskýra þetta fyrir honum. Fór þá að efast um dóminn minn en eftir að hafa hugsað þetta aftur og aftur og horft á þetta í huganum stend ég við ákvörðun mína. Reyndar lærði ég að maður á ekki að treysta minninum, það er yfirleitt rangt en ég ákvað þetta af því að horfa á og dæmdi út frá því og því væri rangt að breyta dómnum þegar búið er að rugla í mér. Mér fannst þetta samt frekar erfitt. Ég fékk mjög stórt hrós í kvöld, fönguleg ung stúlka kom til mín í partýinu sem ég var í áðan og sagði mér að þessi síða væri skemmtilegust í heimi. Þetta yljaði mér um hjartarætur. Alltaf gaman að komast að því hvaða fólk les skrifin mín. Þeir sem lesa reglulega en láta lítið heyra í sér í athugasemdum mega gjarnan láta vita af sér í gestabókinni. Ég er orðin frekar þreytt af því að standa í allan dag og ætla því að fara að leggja mig. Sveinbjörn á reyndar pottþétt eftir að vekja mig þar sem hann hefur ekki gen læðupúkans í sér. Þeir sem mæta ekki niður á völl á morgun skulu skima eftir mér í dómaragallanum í sjónvarpinu á morgun ;) Hafdís skrifaði klukkan 1:06 f.h. |
18.6.04
17.júní fór í fótboltagláp og almenna leti. Við skötuhjúin hjúfruðum okkur að hvort öðru í La-z-boy sófanum hjá foreldrum mínum og hámuðum í okkur bakkelsi í leikhléi!
Mamma bauð svo upp á kjúkling og læti og því var ekki mikil áreynsla á okkur í gær. Bergur kíkti svo á okkur um kvöldið til að kenna okkur smá internetdót - afraksturinn kemur í ljós fljótlega! Þreyttu við fórum svo að sofa kl.1 og ákváðum af því tilefni að vakna soldið seinna og vinna bara lengur í staðinn. Þetta fór allt fyrir lítið þegar síminn hringdi kl.7, þá varð það liðsttjóri írska liðsins sem vildi að einhver íri yrðu sóttur út á flugvöll sem var ekki skráður í neina ferð og ég þurfti sem sagt að vekja aðra sem standa að mótinu um helgina til að láta sækja þessa elsku. Það var því þreytt kona sem skreið inn um hurðina á Íslandsbanka í Lynghálsi og ég get fullyrt að augun á mér hafa sjaldan verið jafn aum og í dag. Smá vottur af ofnmæmi og skortur á svefni stuðluðu í sameiningu að þessu! Við fengum svo að hætta fyrr í vinnunni í dag til að þjónusta bæði Danina og Írana og lentum í ýmsu get ég sagt ykkur. Maturinn okkar varð meðal annars kaldur af því að við þurftum að sækja írana niður á völl eftir fund sem var haldinn þar af því að þeir gátu ekki hugsað sér að rölta í rigningunni - voru einmitt nýbúnir að segja okkur hvað þeir væru vanir henni. Ég spurði þá einmitt hvort að þeir væru ekki vanir og þeir svörðuðu bara því til að þó þeir væru vanir þá vildu þeir samt ekki blotna. Ég hafði engin svör við þessari heimspeki og lét mig því bara hafa það að skutla þeim þessa 400m sem eru frá Laugardalsvelli og upp á Hótel Ísland. Á morgun byrjar mótið kl.14 og hvet ég alla áhugasama að líta við. Lofa stórskemmtilegu móti. Þegar lítið er að gerast er heldur ekki verra að hafa mig þarna skoppandi út um allt að dæma alla sem geta ekki sagt nafnið mitt óaðfinnanlega úr leik - allir útlendingar eru sem sagt hættu! Annað kvöld er svo bæði útskrift og kveðjupartý svo að það verður í nægu að snúast! Ég er hrifin af því að hafa mikið að gera og byrja því seint að kvarta! Reikna samt með að setja símann minn á HLJÓTT í nótt og þangað til ég vakna á morgun ;) Vonandi hafið þið gott og til þeirra sem eru að fara að keppa: Gangi ykkur vel. Til þeirra sem ætla að mæta á völlinn: Áfram Ísland og til þeirra sem ætla að gera hvorugt: Hver er afsökunina ykkar aumingjar? Hafdís skrifaði klukkan 7:48 e.h. |
16.6.04
Það er nóg að gera hjá mér um helgina.
Ég er leiðsögumaður hjá bæði danska og írska frjálsíþróttaliðinu en þau keppa bæði á Evrópubikar um helgina. Það verða 2 íslendingar með því danska en ég reikna með að þurfa að hafa smá fyrir því írska þar sem einn þeirra tók sig til og kjálkabraut Reyni Loga í fyrra. Ætli ég verði ekki í því að leysa þá út úr fangelsi ;)Við verðum reyndar aðallega í einhverju reddi og skutli. Stöð. Það er hins vegar ekki nóg að vera í þessu því ég verð líka dómari á mótinu. Sem sagt nóg að gera hjá mér um helgina! Það er bara gott. Reikna með að verða þreytt eftir helgi - úff,púff! Hafdís skrifaði klukkan 11:15 e.h. | Ég dró fram keppnisskóna í kvöld og skellti mér á Coca-Cola mót FH í Hafnarfirði. Til að gera langa sögu stutta keppti ég í þrístökki en ætlaði upphaflega í langstökk en það var bara ekki keppt í því að þessu sinni og því svissaði ég bara yfir í þrístökkið. Allt í lagi að taka þrjú stökk víst maður er að þessu á annað borð. En aftur að sögunni. Ég sigraði sem sagt á þessu móti með miklum glæsibrag - stökk þó ekki langt í metrum talið, var rúmlega meter frá mínu besta en það voru þó ljósir punktar í þessu öllu saman. Ég tók stutta atrennu og hljóp bara rólega og stökk samkvæmt því ekki ýkja langt. Þetta var þó jákvæð byrjun og hyggst ég gera betur í næstu viku á bætingamóti ÍR í Laugardalnum. Seinustu tvö stökkin hefðu verið lengri en ég hitti barasta ekki á plankann í þeim þar sem ég hljóp OF hratt ;) Það er þó ekki hægt að biðja um mikið meira en sigur á fyrsta móti! Fyrir þá sem ekki vita keppti ég seinast í þrístökki í maí árið 2002! Rúmlega 2 ára hvíld er hér með lokið! Hafdís skrifaði klukkan 10:56 e.h. |
15.6.04
Ég var að komast að því í gær að Metallica tónleikarnir eru á sama tíma og úrslitaleikurinn á EM! Spurning um að hringja til Portúgal og láta þá flýta leiknum!Hafdís skrifaði klukkan 8:18 f.h. |
14.6.04
Ég gleymdi að nefna að ég fékk atvinnutilboð um daginn.
Ung kona hringdi í mig frá Icelandair og bauð mér að koma á námskeið í júní og starfa í kjölfarið hjá fyrirtækinu í júlí og ágúst. Eini gallinn á gjöf Njarðar ef galla skyldi kalla var að starfið sem mér bauðst var á Ítalíu. Ég er ekki þannig af guði gerð að ég geti svikið eitt fyrirtæki á versta tíma til að fara í eitthvað voða spennandi. Mér fannst fyrirvarinn of stuttur þó að ég hafi velt þessu soldið fyrir mér eftir að ég neitaði. Auðvitað er spennandi að vera á Ítalíu í 2 mánuði og undir öðrum kringumstæðum hefði ég hugsað mig um en ég gat ekki farið að segja upp starfi mínu hjá Íslandsbanka með 3 daga fyrirvara! Ég hefði aldrei getað fyrirgefði sjálfri mér það. Ég var eðlilega mjög uppi með mér vegna þessa, þó að ég hafi verið númer 378 á listanum og hinar 377 hafi allar sagt nei þá var það samt mikill heiður að fá þetta tilboð. Svo að ég sé samkvæm sjálfri mér þá var aðalástæðan fyrir neitun minni þó ekki Íslandsbanki heldur Sveinbjörn Jónsson nokkur en ég hefði ekki getað husað mér að fara án hans - já svona er ég mikill kjáni. Ég hefði pottþétt farið ef hann hefði fengið vinnu í Mílanó! Já, við erum skrýtin og skemmtileg! Hafdís skrifaði klukkan 11:08 f.h. |
13.6.04
Ég fór á Rómeó og Júlíu í Borgarleikhúsinu á föstudaginn. Það er ekki hægt að lýsa þessar sýningu með nógu sterkum orðum, hún er alveg svakaleg! Ég hef sjaldan skemmt mér svona vel og þetta er ein albesta sýning sem ég hef séð ef ekki sú besta! Við vorum öll, Sveinbjörn, mamma og tengdamamma, sammála um ágæti þessarar sýningar og lýstum öll yfir vilja til að fara aftur. Hún er vel leikin, frábærlega leikstýrt og hefur mikið skemmtanagildi. Ég mæli hiklaust með henni!
Okkur var svo boðið í afmæli í gær en við vorum bæði slöpp í maganum og bara almennt slöpp og treystum okkur ekki til að fara! Vona að það hafi verið brjálað stuð hjá þeim sem voru ekki jafn lélegir og við! Dagarnir okkar ganga annars bara út á það núna að horfa á DVD myndirnar sem Sveinbjörn kom með heim. Shrek 2 varð fyrir valinu í gær, mjög góð en kemst ekki með tærnar þar sem 1 er með hælana! Samt fín skemmtun! Núna erum við að horfa á F R I E N D S í milljónasta skiptið, það er ekki hægt að verða leiður á þessum þáttum. Ég get horft endalaust á þá! Hafdís skrifaði klukkan 3:08 e.h. |
11.6.04
Er þetta fólk ekki að grínast?
Ég get alveg sæst á að eigendur megi ákvarða hvort megi reykja eður ei á eignum þeirra en ég er alls ekki sátt við að reykingar séu bornar saman við sykurneyslu, ofneyslu majóness og aðrar neysluvörur sem kunna að valda offitu og hjartavandræðum. Það er ekki hægt að bera saman vörur sem annars vegar valda bara neytandanum skaða og hins vegar vörur sem valda öllum skaða sem eru í nágreni við neytandann þegar vörunnar er neytt. Mér finnst þetta vera algjört rugl og augljóslega hugsaði sá hinn sami og skrifaði þessa grein ekki alveg út í það sem hann var að skrifa. Það er hægt að líta þannig á málið að neysla vara sem eru óhollar líkamanum skaði ekki bara neytandann heldur fjölskyldu hans líka ef neytandi deyr um aldur fram en það er ekki sams konar skaði og að deyja úr óbeinum reykingum. Efast um að þetta komi einhverjum á óvart en... ég er hlynnt banni á reykingum! Hafdís skrifaði klukkan 11:17 f.h. |
10.6.04
Brjálað að gera í dag.
Dó næstum úr ofnæmi í dag, langt síðan ég hef verið svona slöpp. Bólgin augu og ógleði, hausverkur og læti - ekki sniðugt. Í kvöld var svo lokaæfing dómara fyrir Evrópubikarkeppnina sem verður haldin á Laugardalsvelli eftir rúmlega viku og við Sveinbjörn þurftum að vera þar frá 20 til 23 að dæma og starfa. Voða gaman. Ég er strax skárri af ofnæminu, frekar fúlt samt hvað ofnæmistöflur eru lengi að virka og það er ekkert hlaupið að því að fá tíma hjá lækni á þessum síðustu og verstu tímum. Á morgun er það Rómeó og Júlía í Borgarleikhúsinu og svo er afmæli á laugardag - brjáluð dagskrá! Verð að fara að sofa, þarf að vakna snemma! Góða nótt, Hafdís skrifaði klukkan 11:06 e.h. |
9.6.04
Það var ekki nóg með að Sveinbjörn kæmi heim í gær heldur komu jólin og páskarnir líka.
Það var voða gaman að hitta hann aftur, fínt að senda hann út fölan og gugginn og fá tilbaka brúnan og sællegan. Þegar ég segi að jólin hafi komið á ég við að það komu ofalega margir pakkar og þegar ég segi að páskarnir hafi komið á ég við að það kom fullt af nammi! Þessi elska kom færandi hendi og gaf kærustunni sinni alls kyns huggulegheit. Hann keypti líka 200 DVD myndir og þar á meðal eru allir Sex and the City þættirnir og allir Friends þættirnir. Við notum X-box tölvuna okkar fyrir DVD spilara og hún náði að spila lang flesta diskana en ekki alveg alla. Hún spilar alla vega þættina ;) Hann keypti sem sagt allar myndirnar sem eru í bíó núna - frekar sterkur leikur! Ég hef alla vega tekið gleði mína á ný, takk fyrir kveðjurnar elskurnar ;) Hafdís skrifaði klukkan 10:52 f.h. |
7.6.04
Ég held að ég myndi hafa minna fyrir 8 valdamestu höfðingum heims.
Við erum að tala um að íbúðin var ryksuguð og skúruð. Allt var þvegið úr þvottakörfunni og sumt sett í þurrkarann og gengið frá. Það var skipt um á rúminu og klósettið þrifið hátt og lágt. Ég vaskaði upp. Þvoði felgurnar á bílnum og mælaborðið og helstu svæði. Að þessu loknu fór ég í sturtu og er núna að reyna að upphugsa í hverju ég eigi að fara út á flugvöll til að ég líti sem best út. Hugmyndir eru vel þegnar! Á morgun þarf ég svo að ryksuga bílinn áður en ég fer út á flugvöll, taka bensín og kaupa táslu með góðri lykt! Svo þarf ég auðvitað að gera mig súper sæta svo að sá sem ég má víst ekki nefna á nafn verði ánægður með mig. Vá, ég trúi ekki að þessi dagur sé að koma. Finnst reyndar endalaust langt síðan hann fór en ég er samt búin að vera soldið dugleg að hafa eitthvað að gera og því hefur þetta liðið ágætlega hratt. Ég held að ég sé spenntari núna en ég var fyrir jól og afmæli í denn ;) Tíhíhí :) Hafdís skrifaði klukkan 11:21 e.h. | Hve mikil snilld er það að vera með útvarp í símanum sínum. Þetta er alveg að bjarga mér núna í leiðindunum! Áfram Nokia 3200! Hafdís skrifaði klukkan 11:26 f.h. | Tíminn líður alltof hægt! Ég get ekkert gert ennþá og svo bíð ég heldur spennt eftir því að klukkan slái 16 á morgun ;) Ég er eiginlega með smá í maganum yfir þessu öllu saman! Á samt eftir að gera svo margt þangað til að morgun ;) Hafdís skrifaði klukkan 11:21 f.h. | Það er eitthvað vesen með kerfi sem ég vinn mjög mikið með hérna í vinnunni og því get ég voðalega lítið gert. Hef mjög mikið að gera en get bara ekki gert það - alveg óþolandi. Mér leiðist að hafa ekkert að gera, þetta minnir mig á endalaust ráp um netheima seinustu sumur. Það sem mér hefur fundist best við vinnuna hér er að ég hef alltaf haft í nægu að snúast - fúlt, smúlt. Fólk er að tapa sér í fjölmiðlafrumvarpsrökræðum á síðunni hans Sigurjóns, ég hef voðalega lítið lagt til málanna þar sem ég hef einfaldlega ekki haft tíma til að kynna mér þetta mál nógu vel. Núna er ég ekki hlynnt neinum einum stjórnmálaflokk og því kem ég frekar hlutlaus að þessu máli. Ég hef haft það fyrir reglu að kjósa fólk en ekki flokk, það er erfitt að dæma út frá málefnunum einum saman þar sem þau eru oft á tíðum þau sömu eða mjög lík. Ég var samt sátt við ákvörðun forsetans um að leyfa þjóðinni að tjá sig þó svo að þjóðin sé ekki lögfróð. Þetta mál byggist ekki bara upp á lögum, ein rökin með lögunum var að siðfræði væri í lögfræði en siðfræði er í öllum hlutum þjóðlífssins ekki bara í lögfræði. Mér finnst hæstaréttardómarar einmitt oft á tíðum mjög siðlausir! Ég þarf að fara að kynna mér þetta... Hafdís skrifaði klukkan 10:31 f.h. |
6.6.04
Ég fór á Stuðmannaball í boði Íslandsbanka í gær, í stuttu máli sagt var brjálað stuð og ég var heldur hress. Komst að því að Breezer, hvítvín, rauðvín og bjór passa ekkert sérstaklega saman! Ég var þó frekar skynsöm og þegar opni barinn kláraðist sparaði ég pening og fjárfesti ekki í neinu áfengu eftir það.
Ég sýndi þó gamalkunna takta og talaði mikið og hátt og reitti af mér brandarana. Vinkonur mínar voru spurðar að því hvort að ég væri alltaf svona hress þegar ég væri í glasi ;) Gaman af því. Ég dansaði líka mikið og hafði gaman, fór sposk á karlaklósettið til að þurfa ekki að bíða í röð og vakti fyrir vikið mikla athygli! Ég var sjálfri mér þó trú og fór heim um 1 leytið og fór að sofa. Þá var ég líka búin að djamma í 7 tíma og það er svona helst til mikið fyrir mig! Þetta kvöld var sérlega vel heppnað og við viðskiptavers skvísurnar skemmtum okkur svakalega vel - Arnar fékk reyndar að fljóta með og ekki eyðilagði hann fyrir. Hans sérverkefni fólst þó í því að nappa hvítvínsflöskum handa okkur svo að við gætum setið áfram inn í búningsklefa. Hann stóð sig eiginlega OF vel! Það er orðið soldið langt síðan ég skemmti mér seinast svona vel! Ég var ekki eins hress þegar ég vaknaði í morgun! Hafdís skrifaði klukkan 6:05 e.h. | Það að fara á klósettið í barnaafmælinu sem ég var í áðan rifaði upp ljúfsárar minningar. Þannig er mál með vexti að þegar ég var að byrja í menntaskóla átti ég forláta appelsínugula peysu sem var með áletrun framan á. Fyrir enn fleiri árum síðan hafði þessi peysa tilheyrt fótboltakappa úr Einherja sem er íþróttafélagið á Vopnafirði. Það var mikið grín gert að þessu og á vissum tímapunkti tóku nokkrir ungir piltar sig til og sungu GROHE - er vatn og vellíðan í hvert einasta skipti sem þeir mættu mér á göngum skólans hvort sem ég var í peysunni eður ei! Á baðherberginu voru sem sagt ofangreindar vörur sem rifjuðu þetta upp! Hafdís skrifaði klukkan 5:59 e.h. |
5.6.04
Ég þoli ekki þjófavarnahljóð!
Það er alveg óþolandi þegar fólk er á bílum sem eru með þjófavörn og fara í gang út af minnstu vindhviðu eða snertingu og þurfa að hlaupa út til að slökkva á herlegheitunum. Það er þó verra þegar þetta gerist og fólk er í mikilli fjarlægð og getur því ekki slökkt eða áttar sig ekki á að þetta sé bíllinn sinn. Ég vaknaði klukkutíma eftir að ég sofnaði í gær við svona læti en var þó ekki lengi að átta mig á því að þetta var bílinn minn sem gaf frá sér þennan hávaða. Ég fór út í glugga og sá fólk vera að fara upp í leigubíl fyrir aftan minn bíl. Nú hófst leitin að bíllyklunum svo að ég gæti farið út og slökkt á þessu - þar sem ég var svona hæfilega mikið sofandi ennþá fannst hún ekki fyrr en hljóðið hætti og ég gat farið að einbeita mér 100% að leitinni. Ég hljóp svo út á stuttbuxunum, reykjavíkurmaraþonbolnum og inniskónum tilbúin til að berja einhverja bjána sem hefðu verið að fíflast í bílnum mínum. Það var þó enginn nálægur og ég hrósaði happi yfir því að enginn sæi mig í þessari múnderingu.(annað orð yfir ljótan búning) Þegar ég opnaði svo bílinn fór herlegheitin aftur í gang en ég náði að þagga niður í þeim fljótlega! Ég sá ekkert að bílnum í fljótu bragði en viðurkenni að ég skoðaði það ekkert sérlega vel svona fáklædd um miðja nótt. Núna hef ég áhyggjur af þessu þar sem það þarf soldið mikið til að koma þessari græju í gang - hún hefur alla vega aldrei farið í gang áður á þessum tæplega 2 árum sem við höfum haft hana. Ætli sé ekki best að ég fari og líti á vegsummerkin? Hjartað á mér sló á fullu í nokkurn tíma á eftir og ég var í smá stund að sofna aftur. Vona að þetta komi ekki fyrir aftur en ef það gerist verður Sveinbjörn vonandi heima til að redda málunum! Hafdís skrifaði klukkan 9:39 f.h. |
4.6.04
Það var eilítið erfiður dagur í vinnunni í dag, fyrir utan erfiðleikana sem fylgja því að reyna að vera skvísa var ég að vinna í verkefnum sem ég er ekkert sérlega sterk í og þess vegna kröfðust þau allrar minnar athygli og gáfna! Ég lenti í smá samskiptaörðugleikum þegar ég reyndi að vera sérlega góð og almennileg og þetta fékk soldið á mig - maður á ekki alltaf að reyna að vera góði kallinn.
Systir mín, elskuleg, var að útskrifast í dag. Hún er orðin svo gömul þessi elska - er að fara í menntaskóla í haust! Tíminn líður svo sannarlega hratt. Það minnir mig á það að Sveinbjörn kemur eftir 4 daga - vei! Hann er búinn að fjárfesta í öllum Sex and the City þáttunum og sömuleiðis kemur hann færandi hendi með allar vinaseríurnar. Já, það verður gaman hjá okkur þegar hann verður kominn heim ;) Ég var að horfa á seinasta vinaþáttinn, frekar blendnar tilfinningar. Ég á eftir að sakna þess að geta aldrei aftur horft á nýjan vinaþátt en samt var gott að þættirnir voru enn í miklum gæðum þegar þetta hætti. Hefði ekki afborið að horfa á ömurlega þætti. Reyndar fóru ein/tvær seríur soldið niður á við en þeir náðu sér aftur upp í þessar að mér fannst! Það er ógisla gott veður, mig langar út í körfubolta. Vildi að ég væri á Vopnafirði núna þá gæti ég pottþétt platað einhvern með mér... Reyndar eru ekki allir til í að fara í körfubolta kl.10 á föstudagskveldi en... Hugsa að ég sýni hörku og taki æfingu í morgunsárið, áður en ég fer niður á völl. Tvær æfingar gætu litið dagsins ljós á morgun þar sem ég hef verið frekar léleg seinustu daga og borðaði kökur í kvöld - þetta er ekki rétti andinn ungfrú Hafdís sem ætlar að vera ofurskvísa þegar mjói, sólbrenndi kærastinn hennar kemur heim frá Kína! Best að fara að einbeita sér að maga,bak og höndum ;) Hafdís skrifaði klukkan 9:47 e.h. | Það á að banna innivinnu í svona góðu veðri! Það væri voða ljúft að geta skutlast með tölvuna út og sitja bara og pikka í sólinni. Í tilefni dagsins skellti ég mér í pils og er því skvísuleg mjög í vinnunni! Sveinbjörn kemur eftir 4 daga - ég get varla beðið. Veit reyndar að tíminn á eftir að líða hratt þar sem ég hef svo mikið að gera þangað til. Á eftir að taka til heima, ég er svo lítið heima og því hendi ég dótinu bara hingað og þangað þegar ég er heima við. Systir mín er líka að útskrifast í dag, smá líkur á því að ég láti sjá mig þar! Ég er svo að fara að starfa á frjálsíþróttamóti um helgina og horfa á það um leið! Á laugardagskvöldið er svo stuðmannaball Íslandsbanka, það verður pottþétt mikið stuð - Koma nú! Á sunnudaginn eftir mótið er ég svo að fara í afmæli hjá litla frænda mínum og það verður væntanlega fjörugt! Hann hringdi sjálfur í mig í gær og bauð mér, hann er svo mikið krútt þessi elska. Verst að Sveinbjörn keypti gjöf handa honum sem hann fær ekki fyrr en í næstu viku - held samt að krökkum finnist alltaf jafn gaman að fá pakka! Ég var stungin um seinustu helgi og var smá sár en sá svo í gær að það var broddur í sárinu og plokkaði hann út. Ein taugin mín var líka með leiðindi í gær, mig verkjaði frá þumalputta og upp í háls - þetta var akkúrat taugin sem sárið var hjá! Mamma spekingur hélt að þetta væru kannski einhver ofnæmisviðbrögð hjá mér - mér líður alla vega betur í dag. Annars er ég bara langþreytt og þarf að sofa í svona 10 tíma í nótt. Ekki gott að sofa lítið margar nætur í röð - ísbjörninn sem sefur við hliðina á mér er ekki alveg að standa sig. Hann er ekki flinkur knúsari - vill bara fá knús. En back to business... Hafdís skrifaði klukkan 9:40 f.h. |
3.6.04
Hvort hafið þið símtólið við hægra eða vinstra eyrað þegar þið talið í símann?
Getið þið skipt um eyra ef þið eruð orðin þreytt í öðru? Persónulega hlusta ég með hægra og er frekar vonlaus í að skipta um eyra... Hafdís skrifaði klukkan 2:56 e.h. |
1.6.04
Það er mikið að gera í vinnunni hjá minni þessa dagana og því lítið um tíma fyrir skriftir og lestur. Stelst til að kíkja á nokkrar velvaldar síður einstaka sinnum, tek svona 2 í einu en næ ekki miklu meiru en það!
Sveinbjörn kemur eftir viku, finnst mér það gleðilegt mjög. Ég er búin að vera slöpp og drusluleg í allan dag og endaði á því að skella mér til læknis til að láta athuga hvort að ég væri með streptokokka, einn frændi minn greindist í seinustu viku og ég var einmitt að leika við hann um daginn. Ég reyndist vera einkennalaus og því gat ég dregið mig upp úr volæðinu og kom sterkari en nokkurn tímann áður tilbaka! JEI. Ég tók mér frí á æfingu þar sem ég var ennþá drusluleg um það leiti og svo var veðrið ekki upp á marga fiska. Ótrúlegt hvað rigning getur virkað óaðlaðandi! Ég gleypti hvorki meira né minna en 3 flugur uppi á Laugarvatni og þar af var ein hlussa, það var virkilega ógeðslegt og viðbrögðin mín urðu til þess að skokkfélagarnir stoppuðu allir og héldu að ég væri að deyja - get ímyndað mér sjokkið hjá þeim. Það væri ekki gott að missa þann eina sem getur haldið uppi samræðum í 5 km þegar Erna er fjarverandi - öss. Annars stóðum við Erna okkur best í því að sjokkera Albert saklausa, greyið lenti með okkur í herbergi og blygðunarkennd hans bíður ekki bætur í bráð! Hann hefði betur verið með hinum skvísunum :) Reyndar hefði ég þá verið í hættu þar sem Ernu er ekki treystandi þegar hún er í ham - eða með tognun í ham...hahaha, vá hvað ég er ekki fyndin. Sveinbjörn var einmitt að kvarta yfir því áðan hvað hann saknaði þess að einhver hlægi að honum, þess vegna yljaði það honum um hjartarætur þegar hann náði að kitla hláturtaugar mínar. Ég færði mig um stað í vinnunni í morgun. Var ekki lukkuleg með það þar sem nýju félagar mínir eru víst andfúlli en hinir og það var eiginlega ekki á það bætandi! Úff, ég er ekki svo mikið hrifin af líkamslykt fólks. Það virkaði heldur ekki nógu vel að bjóða þeirri sem er verst tyggjó - úff, verð að finna önnur ráð. Það væri alveg gott að fá smá kvef! Jæja, fegurðarblundurinn bíður... Hafdís skrifaði klukkan 10:32 e.h. | Ég er komin heim úr heiðardalnum. Var í hörku æfingabúðum um helgina, byrjaði reyndar á því að vera algjör aumingi en það rættist úr mér eftir því sem leið á helgina og á seinasta degi var ég farin að stökkva langstökk og labba yfir grindur eins og herforingi! Þetta voru fínustu æfingabúðir, við höfðum það mjög gott. Lágum í leti, spiluðum og spjölluðum. Ég svaf reyndar alls ekki vel þar sem Erna og Albert voru hávær mjög! Nei, ég sef bara svo svakalega laust... Ég er í vinnunni og hef þetta því ekki lengra... Hafdís skrifaði klukkan 8:05 f.h. |
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||