|
|||||||||||||||||||
|
28.5.04
Allar einkunnir þessarar annar eru komnar í hús. Mín gerði sér lítið fyrir og náði öllu, reyndar ekki með alveg jafn miklum glans og hún hefði kosið en þetta gengur víst út á að ná prófunum - það er alla vega betra en að falla. Til þess að komast áfram yfir á annað ár er nauðsynlegt að fá 6.0 í meðaleinkunn úr 5 fögum, samtals 20 einingum. Ég þarf að ná 5 í sumarprófinu mínu til að ná þessari einkunn. Ég ætti að ráða við það en það próf var mjög erfitt núna í vor og ég þarf auk þess að þylja hugtökin upp enn á ný og skila skýrslu svo að þetta verður smá vinna en ég ætti að ráða við það! Þarf að reyna að byrja á þessari skýrslu sem fyrst, nota tímann á meðan ég er ein! Spurning um að nota næstu helgi í þetta!
Ég verð að halda áfram að vinna... Hafdís skrifaði klukkan 3:30 e.h. |
27.5.04
Það er soldið skondið að drekka sódavatn úr brúsa...
Loftbólurnar koma upp í gegnum stútinn :) Lítið gleður lítið hjarta... Hafdís skrifaði klukkan 3:22 e.h. | Fann þennan leik á síðunni hennar Bergrósar. Eftir að hafa reynt nokkrum sinnum án árangurs fattaði ég þetta. Eins gott að það tók bara smá tíma - ég verð alltaf að halda áfram þangað til ég fatta, hefði örugglega ekki verið vel liðið í vinnuna ef ég hefði verið að skoða þetta í allan dag ;) Endilega reynið ykkur... Hafdís skrifaði klukkan 1:43 e.h. | Tíminn líður hratt... Ég hef nóg að gera í vinnunni, er alltaf að læra eitthvað nýtt og á meðan ég hef engar umsóknir til að skrá inn dunda ég mér við annað tilfallandi svo að ég hef ALLTAF eitthvað að gera. Ég er búin að vera að drepast í mjöðminni, vaknaði bara frekar slæm seinasta laugardag og var svo slæm í fyrradag að ég fann stöðugt til og var hreint út sagt bara að drepast. Verkurinn var frá mjöðm og niður í ökkla - frekar óþægilegt. Það verður reyndar seint sagt um mig að ég sé nagli sem þolir mikinn sársauka - mjög seint. Ég skellti mér svo í nudd og nálastungur í gærdag og er öll önnur í dag, það á ekki að trassa það að fara til nuddara í langan tíma. Svona er það bara þegar maður borgar himinhá æfingagjöld í hverjum mánuði. Ég gerði þau mistök að fara AÐEINS á netið í gærkvöldi og heyrði svo aðeins í tengdamömmu og fór því ekki að sofa fyrr en seint og lítið varð úr morgunskokkinu mínu í morgun - ég fer bara seinnipartinn í staðinn. Ætla að taka þessu rólega í bili, ekki reyna um of á hægri hliðina mína, bara fara rólega af stað svo að ég lifi af æfingabúðir um helgina. Það ætti að banna að hafa fjörug lög í útvarpinu á morgnana - ég er oft í rífandi stuði á leiðinni í vinnuna og finnst eins og það sé föstudagur. Það eru líka ár og aldir síðan ég dansaði seinast - ekki nógu gott. Þarf eiginlega að komast í smá dansstuð. Helgina 5.-6. júní er Stuðmannaball á vegum bankans - við stelpurnar hérna uppí Viðskiptaveri erum að hugsa um að mæta galvaskar og dansa af okkur rassinn. Ég er eiginlega strax farin að hlakka til. Tímin líður líka hratt, það styttist óðum í að ég endurheimti Sveinbjörn minn. Bráðum er bara vika og það er sko ekki NEITT! Ég er samt eiginlega orðin einverunni vön, sofna eins og skot á kvöldin og hef haft í nægu að snúast. Samt á ég eftir að heimsækja ALLA! Sveik Ernu illilega í gær, ætlaði með henni í sund en sveik hana í anddyri Laugardalslaugar, efast um að hún sé kát með mig í dag! Gott í bili... Hafdís skrifaði klukkan 8:19 f.h. |
25.5.04
Ég vaknaði kát kl.6 í morgun - ég sef alltof laust. Elskurnar fyrir ofan mig eru reyndar ekkert duglegust í heimi við að slökkva á klukkunni en þennan morguninn slepptu þau stuðinu og fóru frekar hljóðlega svo að ég gat sofið til 7 - lúxus. Ég var reyndar alveg óhemju þreytt í morgun - væntanlega þar sem ég svaf lengur en í 6 tíma, er ekki vön svona miklum svefni.
Mjöðmin mín er eitthvað að angra mig, ég finn til í hverju skrefi sem ég tek og á því frekar erfitt með að taka æfingar. Komst þó að því á æfingu í gær að ég finn minna til eftir því sem ég hleyp hraðar og því hafði ég mjög gaman af því að skella mér í gaddana í fyrsta skipti í langan tíma - ég leit reyndar bara vel út fyrstu 70 af 120 en ég leit þó vel út meirihlutann ;) Dreif mig í að panta mér tíma í nudd en fékk ekki tíma fyrr en 7.6 - veit ekki hvernig ég verð orðin þá. Sé hvort ég get platað einhvern til að ýta aðeins í mjöðmina á mér eða þá hvort ég hleyp þetta ekki bara úr! Gæti líka druslast í sund til að reyna að liðka mig soldið - veit að Erna yrði ánægð með mig! Ég horfði svo á helminginn af Intolerable cruelty í gær en varð svo að fara að sofa þar sem ég var of þreytt. Steinsofnaði um 11 leytið. Það var heldur ekki neitt sérlega spennandi að gerast í myndinni-trúi ekki að ég hafi fórnað CSI fyrir þetta...tek það upp næst! Mikill kostur við Skjá einn að geta horft á þáttinn í endursýningu, maður missir alltaf af einhverju. Heyri reglulega í Sveinbirni, hann er bara nokkuð sprækur. Verslar eins og hann fái borgað fyrir það - veit ekki hvað er að koma yfir hann. Í dag er akkúrat vika síðan hann fór, mér finnst hún hafa liðið nokkuð fljótt. Er alla vega ennþá á lífi og það hlýtur að vera jákvætt! Næstu helgi eru svo bara æfingabúðir á Laugarvatni, förum á laugardaginn og komum á mánudaginn - hlakka barasta soldið til. Ætla pottþétt að fara að heimsækja Bjössa, Gunnhildi og sæta grísinn þeirra. Alltof langt síðan ég sá þessa elsku! Erna var mest ánægð með að sjá sund/sauna og heita potta á planinu - skil ekki hvaða nýja æði það er hjá henni. Annars eru einkunnirnar að láta standa á sér - ég er ekki glöð. Hafdís skrifaði klukkan 8:45 f.h. |
24.5.04
Nú er mér nóg boðið!¨
Það er ekki hægt að vera svona ótillitsamur. Ég fór upp til að ræða við nágranna mína í efra en þau svöruðu ekki! Ég er farin að hallast að því að þau séu eiturlyfjasjúklingar! Þau hlusta alla vega á sama lagið aftur og aftur og aftur og aftur og í morgun hoppuðu þau meira að segja í takt við tónlistina í hælaskónum sínum! Klukkan var sem sagt 6.20 þegar ég vaknaði! Þið getið ímyndað ykkur hvað ég er kát. Ég hringdi meira að segja í lögguna til að spyrja hvenær væri leyfilegt að vera með hávaða á morgnana. Hann sagði að þetta væri á mörkunum, það má víst ekki raska næturró manna. Fyrir mér er ennþá nótt. Ég ætlaði ekki að biðja hann um neitt, þurfti bara að sjá hvað hann myndi segja. Strákurinn sem svarðaði á 112 var skilningsríkar, sagði að þetta væri nú full snemmt en löggunni fannst ég held ég bara vera rugluð ung kona! Ég ætla að tala við umsjónarmanninn hérna á eftir og láta hann gera eitthvað verulega andstyggilegt við þessi gerpi. Núna veit ég hvað þau heita þar sem ég fór upp og hringdi bjöllunni til að segja þeim til syndanna - þau þorðu ekki að opna. Sáu örugglega hvað sauð á mér! Núna eru þau hætt að spila og ég ætla að hvíla mig í hálftíma! R U G L! Hafdís skrifaði klukkan 6:44 f.h. |
23.5.04
Já, það er fjör - já, það er fjör...já, það er fjör á spilakvöldum.
Það var spilakvöld á Eggertsgötunni í kvöld. Nokkrir velvaldir einstaklingar fengu boðskort og mættu galvösk, reyndar sumir soldið mikið seint þar sem náttúrulega fegurðin var ekki alveg að gera sig. Kát spiluðum við Trivial þar sem strákarnir svindluðu og sigruðu þar með en við hefndum okkar í Partý&Co - what else is new. Það voru þvílíkar sálfræðintengingar okkar á milli að annað eins hefur sjaldan sést! Við kíktum siðan nokkur niður í bæ um 2 leytið en vorum fljót að komast að því að fm-hnakka og hnátur voru að gera bæinn vitlausan og því stoppuðum við ekki lengi við. Voru þó nógu lengi til að sjá einn hnakka rífa sig niður í rassgat við Ernu, veit ekki alveg um hvað en held að hann hafi verið að saka hana um að stela af sér 5000 kalli eða eitthvað álíka. Hann var ekki gáfulegur pilturinn. Ég öfunda hana ekki af því að vinna við að þjóna svona leiðindaliði. Það markverðasta niður í bæ var að þessu undanskildu það að hitta bæði Audda Blö og Val í Buttercup á sama stað - ótrúlegt helvíti. Ég dansaði ekki neitt þar sem ég þoli ekki að dansa á engu plássi með rassgatið á næsta manni þétt upp við mig - ekki hrifin af annarra manna rössum. Nema sumum rössum sem eru úti í Kína og tilheyra mér. Ég er að hugsa um að sofa vel á lengi á morgun og fara svo jafnvel á æfingu, hefði held ég gott af því. Nammidagurinn var tekinn létt í dag, borðaði bara nokkrar kúlur svo að Sígurjón æti ekki 560 heldur bara 550. Það á að taka VÖRUMERKI út úr Partý&Co, þetta er rugl reitur sem gerir alla brjálaða og sumt er vonlaust að geta. Í kvöld fengum við til að mynda Peningaskápur og fiskamatur - gott! Ég er ekki hrifin af þessu ég verð að segja það. Annars kát... Hafdís skrifaði klukkan 4:21 f.h. |
22.5.04
Ég hef skrifað 645 pistla síðan ég hóf ferð mína á þessum tveimur blogspot síðum. 387 pistlar litu dagsins ljós undir nöfnum bjútíkvín en hingað til hef ég skrifað 258 pistla á þessa elsku. Þetta gera samtals 645 eins og ég kom að áður. Mér finnst þetta bara nokkuð gott á ekki lengri tíma!
Ég á ofsalega góða vini sem eru voða góðir að bjóða mér hingað og þangað til að stytta mér stundir. Magga vinkona mín var að enda við að bjóða mér í mat upp í sumarbústað - ofsalega góð. Ég varð samt að afþakka það fallega boð þar sem ég var búin að skipuleggja spilakvöld með góðum hópi fólks í kvöld. Þetta verður þó nokkuð sérstakt kvöld þar þetta verður samtíningur fólks úr öllum áttum lífs míns. Skólafélagar, æskuvinir, netfélagar og æfingafélagar. Held samt að þetta verði bara öflugt! Ég vil óska sjálfri mér og öðrum aðdáendum Manchester United til hamingju með titilinn, huggun harmi gegn að fá þó eitt málmstykki! Þeir stóðu sig nú líka ágætlega í dag þessar elskur. Ég var alla vega ánægð með þá. Ég fékk símhringingu kl.9 í morgun - skakkt númer. Ég er alltaf jafn heppin kl.9 á morgnana. Ég ákvað þó að láta þetta ekkert trufla mig og lagði mig bara áfram. Sveinbjörn lét líka aðeins heyra í sér og það skemmdi ekki fyrir. Voða gott að heyra aðeins í honum þó að það kosti marga, marga peninga. Hann er alveg þess virði þessi elska. Hann er víst búinn að vera duglegur að versla enda er sehr ódýrt þarna úti. Held samt að hann versli mest bjór - eru strákar ekki flinkastir í að versla hann? ;) Bið að heilsa í bili, Hafdís skrifaði klukkan 6:20 e.h. |
21.5.04
Nágrannarnir mínir hættu að hafa FEVER, SUMMERTIME og eitt enn lag á REPEAT kl.10 í gærmorgun og því gat ég lagt mig eftir það. Það var ósköp ljúft og endurbætt ég vaknaði fersk kl.12 ;)
Þá skellti ég mér heim með afganginn úr saumaklúbbnum og lék við litlar frænkur mínar og hafði það gott. Ellen vinkona mín kom svo keyrandi frá Akureyri seinni partinn en hún verður að vinna hérna í sumar - vei,vei. Ég hjálpaði henni að flytja dótið sitt inn og færði húsgögnin sem voru fyrir í íbúðinni soldið til til að gera hana huggulegri - ég hef yfirleitt mjög sterkar skoðanir á röðun húsgagna ;) Ég leyfði henni þó að ráða mestu, kom bara með hugmyndir að bættu skipulagi. Við vorum svo bara að vesenast í gær, ég gerði heiðarlega tilraun til að stilla STÖÐ2 inn hjá henni án mikils árangurs. Ég náði stillimyndinni en fékk aldrei fram nógu skýra mynd - þess ber þó að geta að sjónvarpið er síðan 1727 svo að það er ekki von... Í kvöld er svo mót í Borgarnesi sem mig langar dálítið að kíkja á og taka jafnvel bara æfingu í leiðinni! Það fer þó soldið eftir þessari elsku þar sem ég nenni ómögulega að fara ein! Svo langar mig að gera eitthvað skemmtilegt í kvöld en ég er voða hugmyndasnauð! Sé til hvað elskan mín segir um það! Annars er ég bara orðin nokkuð klár í greiðsluþjónustunni... Hafdís skrifaði klukkan 1:16 e.h. |
20.5.04
Hvað ætli ég myndi fá langan fangelsisdóm fyrir að drepa nágranna mína? Ég get pottþétt borið geðveiki fyrir mig þar sem þau eru að gera mig geðveika. Ég sofnaði ekki fyrr en kl.1 í nótt og þar sem ég er ekki búin að bæta mér upp svefntapið mikla ennþá hefði ég þurft að sofa til svona 11 helst en nei. Núna er þau að hlusta á gamla tónlist í hæsta styrk, veit ekki hvað þau eru að gera annað. Það eru allir gluggar lokaðir og því ætti ég ekki að heyra svo mikið - þau hljóta að vera með þetta á gígantískum hávaða. Ég held reyndar enn í vonina um að þau séu að flytja þar sem það virðist vera svo hljóðbært uppi - ég hef alla vega ekki heyrt svona í tónlist áður - vona að þau hafi ekki verið að kaupa ný hljómflutningstæki og séu að prófa þau. Reyndar soldið skrýtið að prófa þau kl.9 á fimmtudagsmorgni. Mér finnst alveg eins og það sé laugardagur. Maður verður svo ruglaður þegar það eru svona frídagar inn í miðri viku.
Ég er búin að heyra aðeins í Sveinbirni. Ferðin gekk ágætlega. Það voru smá tafir í Leifsstöð og því fór flugvélin ekki kl.7.20 heldur um 9 leytið. Hann beið svo í Amsterdam í nokkra tíma eftir fluginu til Peking. Flugvélin sem flaug með hann til Peking var víst HUGE en þröng að sama skapi - ekki alltaf sem þetta tvennt fer saman ;) Hann sefur líka illa þar sem herbergisfélaginn hrýtur svo mikið...erfitt að skipta á mér og hrotubrjót! Ísbjörnin (bangsi) sem er minn rekkjunautur þessa dagana er einmitt til mikillar fyrirmyndar. Gæti ekki kvartað. Það er reyndar dáldið erfitt að halda uppi samræðum við hann en...ég læt mig hafa það. Það var saumaklúbbur hjá mér í gærkvöldi. Svaka stuð. Ég bakaði eitthvað smá handa þessum elskum. Þær voru reyndar ekki næstum nógu duglegar að borða þar sem það er ennþá talsverður afgangur og ekki dunda ég mér við að borða þetta ein. Er að hugsa um að fara með þetta heim í Skipasund og færa foreldrum mínum og systur. Ég á að taka morgunskokk, langt og rólegt. Er samt eiginlega of þreytt ennþá. Hefði verið til í að sofa í svona klukkutíma í viðbót að minnsta kosti. Er soldið að spá í að fara í föt og segja nágrönnnum mínum til syndanna. Verst að ég veit ekki hvaða rétt ég hef til þess. Veit ekki hvenær maður má byrja að hafa læti á morgnana! Ég ætla að reyna að finna mér eyrnatappa... Hafdís skrifaði klukkan 8:59 f.h. |
19.5.04
Missti vatnið...
Ég sýndi mína innri konu ítrekað í vinnunni í gær. Þegar ég var að fá mér vatn í flöskuna mína tókst mér að ýta of oft á takkann af einskærri óþolinmæði - það er víst ekki sniðugt að fikta, og með því bunaði út úr vélinni löngu eftir að flaskan mín var full. Ég neyddist til að horfa á vélina sulla á gólfið og sækja svo klósettpappír til að þrífa. Þetta vakti nokkra lukku frammi á gangi þar sem enginn þekkir mig - gat þó hrósað happi yfir því að þetta kom ekki fyrir inni á deildinni minni. Þær hefðu sko hlegið að mér. Síðar um daginn ákvað ég að ég þyrfti að gera eitthvað róttækt til að halda mér vakandi fram til 4 og ætlaði að fá mér soldið kaffi. Mér fannst þó líklegt að ég yrði svakalega ofvirk af svona koffein skammti og ákvað því að fá mér te í staðinn. Mér tókst að setja heitt vatn í bolla án nokkurra áfalla og taka mér tepoka. Hins vegar flæktist það eitthvað fyrir mér hvernig maður setur bolla á skrifborð og því helltist helmingurinn úr bollanum yfir skrifborðið, lyklaborðið slapp þó sem betur fer. Enn á ný þurfti ég að fara fram til að sækja klósettpappír til að þurrka skrifborðið. Í þetta skiptið hellti ég á mitt borð og því sáu þetta flest allir og hlógu að mér. Það er reyndar skemmtileg tilbreyting þessa dagana þar sem Sveinbjörn á heldur erfitt með að gera grín að mér í gegnum símann! Núna geymi ég klósettrúllu í skáp hérna rétt hjá þar sem slysin gera víst ekki boð á undan sér ;) Hafdís skrifaði klukkan 1:46 e.h. |
18.5.04
Ég hélt ég myndi deyja úr þreytu kl.13 í dag en ég komst yfir það, held að teið hafi hjálpað mikið til!
Núna er ég bara frekar spræk og í tilefni þess ætla ég að fara út að hlaupa á eftir. Veit ekki hvort ég geri eitthvað meira, líkaminn verður að ráða því. Held samt að ég taki bara Hafdísina á þetta og verði skynsöm og geri ekki neitt ;) Það er alveg nóg að hlaupa svona til að byrja með. Ég er að hugsa um að reyna að sofa heima hjá mér í nótt, borgar sig að prófa það fyrst áður en ég fer að gera aðrar ráðstafanir. Mér finnst oft voða gott að vera ein með sjálfri mér, þá get ég sungið og dillað mér að vild! Annars er ég búin að vinna kl.16 og ætla því að fara að legga lokahönd á plóginn ;) Later, Hafdís skrifaði klukkan 3:42 e.h. | Ég er búin að vera vakandi síðan kl.4 í nótt, þess ber að geta að ég sofnaði kl.hálf tvö og því er mín heldur þreytt þessa stundina. Ég er búin að vinna um 4 leytið og þá verður ljúft að hvíla sig í smá stund og skella sér svo á æfingu upp úr 5. Þið getið fylgst með gleði minni með því að horfa á niðurtal daganna hér efst á síðunni. Ég er annars næstum búin að ákveða að flytja bara í Skipasundið í þrjár vikur - alla vega svona með annan fótinn! Það er voða leiðinlegt að vera svona einn í fjarskanistan! Ég er svo mikil félagsvera. Annars vantar mig bíófélaga - langar að fara á Troy sem fyrst ;) Hafdís skrifaði klukkan 11:38 f.h. | Sveinbjörn fór til Kína fyrir tæplega klukkutíma síðan. Ég get ekki sagt að ég hafi staðið mig eins og hetja þar sem ég HATA kveðjustundir og get bara alls ekki haldið tárunum niðri. Ég hef alltaf verið svona og verð áreiðanlega alltaf. Ég var þó örugglega búin að taka út eitthvað af skammtinum þar sem ég byrjaði að væla á sunnudaginn - ég veit að ég er erfið. Gerði honum sko ekki auðvelt fyrir. Bauðst meðal annars til þess að hjálpa honum að taka upp úr töskunni í morgun en það var síðasta úrræðið - ég var búin að bjóða honum ýmislegt áður sem var meira spennandi. Minnti hann til að mynda reglulega á að það væri 21 dagur þangað til að hann kæmi heim! Ég ætla að reyna að standa mig í vinnunni í dag og halda haus, ekki gott að eyða öðrum deginum í vinnunni í það að grenja. Ég sit líka svo langt frá klósettinu svo að það væri ekki alveg að gera sig. Ég reikna með að drepast úr þreytu þar sem ég veit ekki hvort ég sofna eitthvað aftur (klukkan er að verða sex). Ég hef verið að velta því fyrir mér að flytja bara heim til mömmu og pabba á meðan. Reyndar þyrfti ég að sofa í herberginu hennar Sæunnar á meðan og rúmið hennar er ekki eins gott og okkar - heitir væntanlega mitt rúm núna! Þeir sem vilja ekki sjá mig grenja í dag eru vinsamlegast beðnir um að minnast ekki einu orði á það að Sveinbjörn sé farinn eða vorkenna mér á neinn hátt. Já, ég er vælukjói! Úff, þetta verða langar vikur... Hafdís skrifaði klukkan 5:53 f.h. |
17.5.04
Sveinbjörn fer í nótt.
Blóm, kransar og félagsskapur eru vel þegin. Hafdís skrifaði klukkan 9:33 e.h. |
16.5.04
Tók eitthvað próf og komst að því að ég er 37% slut -skora hér með á Ernu Dögg að gera slíkt hið sama og ykkur hinar líka. Það tekur smá tíma en ég hafði alla vega gaman af!
Prófið má finna hér! Staðreyndir: -Meðalkonan er 46% drusla -Flestar konur myndu vilja sofa hjá Brad Pitt- Bill Clinton komst á listann. -Flestar konur myndu vilja breyta andlitinu á sér fengju þær að breyta einhverju! Hafdís skrifaði klukkan 4:27 e.h. | Leiðinleg júróvisíonkeppni náði ekki að drepa steminguna hérna hjá okkur í gær. Við grilluðum saman í gær og borðuðum yfir keppninni. Umh, þetta var svo góður matur. Grillað lambafillét er eitt af því besta sem ég fæ...svo grilluðum við banana með súkkulaði þegar það fór aðeins að sjatna í fólki - hann var líka góður! Við sátum svo bara og skemmtum okkur, nema kannski akkúrat á meðan stigagjöfin fór fram. Þessi keppni er komin út í bull, það er ekki verið að velja besta lagið heldur er verið að gefa nágrönnum og félögum stig en reyndar stundum pólitískum andstæðingum til að sleikja þá soldið upp. Það var alla vega augljóst hver fengi hvað mörg stig frá hverjum! Það er augljóst að það þarf að endurskoða reglurnar í þessu eitthvað! Við töpum líka svo á því að eiga enga nágranna! Annars fannst mér strákurinn standa sig vel og reyndi að halda uppi heiðri hans hérna í gær þar sem vinir mínir telja hann vera homma, ég er ekki sammála. Við kíktum svo aðeins niður í bæ í gærkvöldi en það var bara voða stutt, röltum bara smá og fórum svo heim - ég var dauð úr þreytu enda lítið búin að sofa. Svo voru líka raðir alls staðar og mín hefur ekki mikla þolinmæði í svoleiðis bull. Í dag hef ég verið að undirbúa brottför míns heittelskaða. Ef ég dúlla mér nógu mikið við þetta er ekki víst að hann komist...Nei, ég er svona að vinna í að sætta mig við þetta. Bergrós á eftir að vera í Flórída í rúmlega 85 daga og því ætti ég að lifa 21 af...haldið þið það ekki? Ég er nú soldill nagli þó að ég sé líka grenjuskjóða! Hafdís skrifaði klukkan 3:43 e.h. |
15.5.04
Ég, Sveinbjörn, Ellen vinkona og Steingrímur vinur minn a.k.a Glúbbi erum á leið á Metallicu tónleika 4.júlí! JEI :)
Snillinn hún ég ákvað að hætta mér ekki í röð dauðans og ákvað að vera bara heima undir teppi og ýta á refresh takkann! SNILLD. Ég er mjög lukkuleg. Ég var samt MJÖG stressuð yfir þessu þar sem ég var ekki bara að kaupa miða fyrir mig, hafði framtíð vina minna í höndum mér og það er ekki besta tilfinning í heimi að ef ég hefði klúðrað þessu hefðu þau ekki séð tónleikana... hjúkket. Annars er ég bara að mygla úr þreytu. Svaf ekkert í nótt sökum háværu nágranna minna sem voru að ýta húsgögnunum sínum í nótt - held að þaú hafi verið að því í pinnahælum. Vona að þau séu að flytja...annars ætla ég pottþétt að kvarta. Gleymdi líka að nefna að vekjaraklukkan þeirra hringdi fyrir allar aldir og þau létu hana hringja í 20 mínútur. Þau eru heppin að ég fór aðeins á línuskauta í gær því annars hefði ég haft svo mikla orku að ég hefði neyðst til að lemja þau! Ég er farin að horfa á frjálsíþróttamót - áfram ÍR. Hafdís skrifaði klukkan 12:16 e.h. |
14.5.04
Ég gleymdi alveg að nefna að Mission Mjóna hófst í gær. Þetta mission felst í því að losa bolluna mig við nokkur vel valin kíló héðan og þaðan.
Sveinbjörn Jónsson nokkur fer einmitt til Kína eftir alltof fáa daga og hefur heitið því að koma ekki aftur heim fyrr en kærastan hans er orðin mjó - úff, hann verður sem sagt þarna í nokkur ár! Þetta byrjaði nú samt ekkert svi aðalega vel ég laumaðist smá í snakk í gærkvöldi en framan af var ég dugleg, neitað mér um eigin skúffuköku og læti! Sveinbjörn er svo að spilla mér í dag, held að hann vilji bara búa út í Kína, farin að fá það ískyggilega á tilfinninguna - öss! En ég hugsa að það verði dugnaður í minni meðan yfirbollan er fjarverandi, bara próteinhristingar og ávextir - finnst ykkur það ekki líklegt? Nei, ég gæti það aldrei ég er of mikill sælkeri. Auk þess finnst mér lífið of stutt til að neita sér um það sem mann langar til! Ég hugsa að ég reyni bara að hreyfa feita rassagatið á mér meira! Í þeim skrifuðu er ég rokin... Hafdís skrifaði klukkan 5:05 e.h. | Hvað þarf maður að vera seinheppinn til að reka hnéið, tvisvar á einni mínútu, frekar harkalega í ryksuguna? Hafdís skrifaði klukkan 1:21 e.h. |
13.5.04
Það er erfitt að versla...
Ég skellti mér í byen í dag með vinkonum mínum og við löbbuðum mikið. Þar sem þær eru alltaf ofur skvísulegar lét ég mig hafa það og fór í mestu pæjuskónum mínum. Ég var nokkuð góð svona framan af en um 5 leytið var ég orðin MJÖG þreytt - við fórum held ég um hálf þrjú...Ég var reyndar búin að vera í skónum síðan hálf tvö! Við Eva enduðum svo einar og skelltum okkur í ríkið og svona eftir verslunarleiðangurinn, fannst ekki mikið mál að keyra upp á Lyngháls til að geta hitt Guðnýju - hún gaf mér líka heilan poka svo að ég sé ekki eftir bensínpeningnum þangað ;) Nei, við þurftum að kaupa svona sérdót sem er bara til þar! Við Eva hvíldum okkur svo í smá stund og fengum okkur að borða og fórum svo aftur til að leita að skóm...ég er ekki nógu pæjuleg samt svo að ég fann enga sem ég tímdi að kaupa mér. Það er erfitt að kaupa skó sem eyðileggja á manni lappirnar fyrir marga marga peninga! Ég vildi að það væri hægt að kaupa svona cover yfir hina skóna sem maður á fyrir - ef ég á svarta skó gæti ég til dæmis sett svona hvítar hlýfar yfir og VOLLA - hvítir skór ;) Skil ekki afhverju ég er ekki skóhönnuður. Annars þykist Erna vera eitthvað voða sniðug í dag, getið tjékkað hér! Hafdís skrifaði klukkan 9:34 e.h. | Haldiði ekki að stelpan hafi skellt sér út á lífið í gær? Ég ákvað að hitta vini mína úr sálfræðinni á Viktor í gær en eftir að hafa farið í sturtu og komið mér í föt sá ég fram á að nenna ekki að fara að hafa mig eitthvað meira til og tímdi eiginlega ekki að skipta á sápulyktinni fyrir reykingafnyk! Ég var sem sagt búin að ákveða að beila og ætlaði bara að hafa það gott og horfa á þáttinn um EM í sjónvarpinu! Stúlkurnar sáu þó við mér og hringdu til að láta mig vita að ég yrði sótt eftir korter - þær eru strax farnar að þekkja mig OF vel! Ég er of opin held ég og augljós! Við skemmtum okkur konunglega á Viktor þó svo að við þekktum ekki marga og ýmis málefni voru afgreidd í gær! Agnes er svo að fara til Köben í dag og Ásta verður að vinna úti á landi í sumar svo að það verður lítið um hitting! Annars er það Kringlan með Evu og Gingu - júhú! Hafdís skrifaði klukkan 1:42 e.h. |
12.5.04
Ég held að skóreimarnar mínar séu andsetnar. Þær vilja ekki vera reimaðar. Það er eiginlega alveg sama hvernig ég reima, hvort það er fast eða laust eða með tvöföldum eða hvað - þær losna ALLTAF!
Þarf að láta afanda þær! Annars er ég að fara að kíkja út á lífið - já, kraftaverkin gerast enn :) Hafdís skrifaði klukkan 9:06 e.h. | Það eru HORROR lög í þessari undankeppni. Flestir eru alveg svaðalega falskir og aðrir eru bara hallærislegir. Það reyndar gerir þessa keppni að því sem hún er :) Reyndar eiga lögin það til að venjast vel en ég hef barasta ekki gefið mér neinn tíma til að horfa á þetta. Horfði reyndar á lögin sem eru nú þegar komin í úrslit í einhverjum spekingaþætti frá Norðurlöndum þar sem Eiríkur rauði Hauksson ofur töffari var okkar framlag! Hann stóð sig reyndar ágætlega og sýndi gamla takta! Lögin þar voru langt um skárri en þessi hryllingur. Helmingurinn er náttúrulega stolinn! Ég hlakka nú samt til á laugardaginn, þó að ég þurfi að horfa á þetta augnayndi aftur. Þá verð ég í góðum félagskap og með skáldmjöðinn mér við hönd. Hafdís skrifaði klukkan 8:38 e.h. | Seinasta prófi þessarar annar er lokið. Ég veit ekki alveg hvernig mér gekk þar sem þetta var krossapróf og því erfitt að segja. Það er reyndar ekki dregið frá fyrir rangt svar svo að líkur á góðu gengi eru meiri en ella. Það var enginn neitt sérlega kátur með prófið enda var það heldur strembið og að mínu mati ekki alveg í takt við námskeiðið! Ég er þó alla vega komin með 15% rétt svo að það er þó nokkuð jákvætt. Í dag ætla ég að njóta þess að gera mest lítið og fara á æfingu. Reyndar hafði ég hugsa mér að þrífa svínastíuna hátt og lágt en ég hugsa að ég nenni ekki að gera það fyrr en á morgun! Sumarið er komið! Hafdís skrifaði klukkan 3:32 e.h. |
11.5.04
Afhverju get ég ekki skotið steinunum úr vatnsmelónu út úr mér eins og Tommi gerði?
Skil þetta ekki! Hafdís skrifaði klukkan 3:15 e.h. | Dísa draumur. Seinustu nætur hafa verið sérlega spennandi hjá mér. Það hefur tiltölulega mikið verið að gerast í kollinum á mér og draumarnir hafa verið skemmtilegir í samræmi við það. Fyrir utan hryllingsmyndina sem ég fékk upp í kollinn í nótt. Í fyrrinótt dreymdi mig að Helgi Skúli, félagi minn úr MS og verkfræðinemi, væri prins og að hann væri að velja sér prinsessu. Þarna voru helstu skvísur bæjarins mættar á svæðið og ætluðu sko að heilla gæjann. Helgi Skúli er lofaður maður en hann mátti ekki velja spúsu sína þar sem hún var með of stutt hár - merkilegt nokk. Ætli það felist einhverjar leyndar þrár í þessu hjá mér, ég hugsa þó að það sé ekki þrá til hans Helga þó að hann sé mannsefni mikið heldur e.t.v einhverjar síðhærðar þrár ;) Í nótt dreymdi mig svo að einhver gömul kona væri að spyrja Davíð Oddson að einhverju og ég var þarna með þeim, ég leysti málið sem á milli þeirra fór með einfaldri lausn. Hún var að velta fyrir sér hvað sjóndaprir gætu gert til að kjósa. Ég sagði henni einfaldlega að þeir gætu fengið starfsmann kjörklefans til að krossa fyrir sig í þann reit sem þeir kysu. Eitthvað fór svarið mitt fyrir brjóstið á Davíð og hann reddist mér eitthvað - veit ekki alveg hvurs vegna. Ég hef reyndar heldur ekki mikið álit á þeim manni og því tók ég þetta ekki mikið nærri mér. Komdu fram við aðra eins og þú vilt að aðrir komi fram við yður segi ég nú bara! Hann á það ekki skilið að komið sé fram vð hann af virðingu! Alla vega ekki mikilli! Ég var að fræðast um skipulagsmál á Íslandi rétt í þessu, var að hlýða Sveinbirni yfir. Ég er sem sagt orðin nokkuð klár um hvernig skipuleggja skal svæði og hvernig hin ýmsu svæði eru skipulögð. Reyndar komst ég líka að því að mikið erum skipulagsleysi. Alltaf gaman að læra eitthvað nýtt. Hafdís skrifaði klukkan 10:59 f.h. |
10.5.04
Hver vill eyða smá quality time með mér á laugardagsmorgun? Hafdís skrifaði klukkan 4:28 e.h. | Nú dámar mér, það er búið að breyta uppsetningunni á blogger. Ég veit ekki alveg hvað ég er hrifin af þessu breytta útliti. Ég er reyndar yfirleitt hlynnt breytingum en þegar kemur að einhverju svona tekur það tíma að venjast nýju. Kunni alveg á hitt en þarf að skoða þetta eitthvað betur sýnist mér. Reyndar eru allar sömu stillingarnar en núna get ég ekki lesið hvað ég skrifaði seinast - humm, ég þarf að hugsa þetta aðeins áður en ég tek ákvörðun. Ég er annars bara búin að hafa það gott seinustu tvo daga, hef lært mjög takmarkað. Er of lítið stressuð fyrir þetta seinasta próf mitt þar sem það er ekki mikið námsefni til prófs! Ég er samt sem áður að hugsa um að tækla þetta allt einu sinni í dag og svo aftur á morgun. Ég þoli ekki þegar ég reskt í snertiflötinn svo að örin færist ofar í textann og allt ruglast sem ég er að skrifa - þetta gerist mjög reglulega. Reyndar fara msn gluggarnir líka oft niður hjá mér - tekst að henda þeim niður með peysunni. Fötin mín eru svo ofur klár að þau kunna á tölvur! Nýja hárið mitt er ekki bara gleðilegt, ég þarf að blása það og slétta til að það sé almennilegt og ungfrúin nennir því sko ekki alltaf. Hárblásarinn minn tók líka upp á því að bila strax eftir klippinguna svo að ég verð alltaf að láta það þorna og slétta það svo! Núna þarf ég líka að setja einhver efni í það svo að það haldist fínt og þá verður hárið fyrr skítugt og allt í tómu tjóni bara! Ælti ég þurfi ekki bara að læra betur á þetta! Það fylgja þessu reyndar líka endalaust margir kostir, hárið á mér þornar á 2 tímum í staðinn fyrir 4! Svo er þetta svo miklu léttara og betra... Best að einbeita sér að réttmæti í rannsóknum, Ciao. Hafdís skrifaði klukkan 11:33 f.h. |
8.5.04
Skransans, ég var að komast að því að ég er ekki að gera góða hluti.
Ef þú ert 12 kg. of þung(ur) jafngildir það því að hjartað þurfi að dæla blóðinu um 7 km. lengri vegalengd en annars. Ég verð greinilega að fara að gera eitthvað í þessu núna, gengur ekki að láta þessu elsku puða. Reyndar áttaði ég mig líka á þessu á æfingu í morgun þegar ég hljóp 300 á tíma - hreyfðist voðalega lítið. Reyndar gruna ég klukkuna mína um að telja of hratt, hún er alla vega alltaf 3 mínútum á undan þvottavélinni sem telur niður! Já, ég hef pottþétt hlaupið ógislega hratt í dag - það var bara klukkan sem hljóp hraðar... Fór og horfði á mót í dag, fannst ekki leiðinlegt að horfa bara á. Það vottar ekki fyrir keppnislöngun í líkama mínum. Annars er ég bara búin að vera löt í dag, hefði átt að vera búin að lesa heilan helvítis helling! Geri það bara á morgun :) Hafdís skrifaði klukkan 4:10 e.h. |
7.5.04
Var að koma heim úr prófi - núna á ég bara eitt eftir - JEI og það eru svo margir dagar í það ;)
Þetta var alveg soldið erfitt próf en ég held samt að það lendi réttu megin! Það voru reyndar dáldið margar spurningar á þann veg að maður ætti að velja sér mælitölu og það er úr nægu að velja. Vona að ég hafi skilið þetta rétt. Það voru reyndar 14% sem ég var alls ekki nógu sterk í en ég náði að hripa eitthvað á blað og vona að ég fái nokkur stig fyrir það. Annars er kennarinn þannig að maður þarf að skrifa allt það rétta til að fá stig þú færð ekkert stig fyrir viðleitni eða það að komast nálægt því sem verið er að spyrja um! Ég er að hugsa um að skella mér á æfingu eftir klukkutíma og því væri ekki vitlaust að fá sér eins og einn banana. Ætla svo bara að njóta þess að gera ekki neitt í kvöld. Sveinbjörn er reyndar að fara í próf á morgun en hann verður líklega upp í skóla að læra svo að ég get ekki truflað hann mikið. Var ég búin að nefna að ég á bara 1 próf eftir? :) Hafdís skrifaði klukkan 4:27 e.h. | Góðann daginn. Próf númer tvö hefst stundvíslega hjá mér kl.13:30 í dag og stendur til 16:30 mikið hlakkar mig til þegar klukkan slær hálf fimm. Þá er ég búin með 67% takk fyrir! Seinasta prófið er líka það þægilegasta í þessari törn og 5 dagar eru feyki nóg! Ég skellti mér upp í sumarbústað eftir klippinguna en var svo drusluleg að ég varð að snúa heim á leið eftir skamma dvöl með sálfræðifélögunum góðu. Ég var frekar slöpp allan daginn og því varð ekki mikið um lestur en ég reif mig upp af rassgatinu og ákvað að það væru bara aumingjar sem væru veikir - elskuleg móðir mín er þó undantekning frá þeirri reglu þar sem hún er sko nagli. Ég er búin að sturta í mig sólhatti eins og ég fái borgað fyrir það og hann svínvirkar skal ég segja ykkur. Ég gleymdi að taka hann á miðvikudaginn og því fór sem fór. Ég lærði nokkuð vel í gær þrátt fyrir að stelpurnar hefðu reynt að spilla mér upp í sumarbústað með eintómri gleði og ánægju. Við erum næstum orðnar verri en fólkið sem lærir upp í stofu hjá Sveinbirni en það er alvarlega búið að læra yfir sig og segir bara verkfræðibrandara! Mamma mín átti annars afmæli í gær og af því tilefni bauð hún okkur í mat - heppin! Jæja, ég á eftir að lesa alveg heilan helling fyrir próf. Reikna með að senda frá mér skemmtipistil eftir prófið í aðferðafræði! Later, Hafdís skrifaði klukkan 10:37 f.h. |
5.5.04
Jæja, síðu liðuðu lokkarnir mínir fengu að víkja í dag. Núna er bara stutt-og slétthærð snót tekin við. Ég fékk smá sjokk í fyrstu þar sem ég hélt að hárið yrði síðara en þetta venst trúlega. Hef fengið ótrúlega góð viðbrögð í dag, alltaf gaman þegar fólk tekur eftir nýju klippingunni þinni. Sveinbjörn tók nokkrar before myndir af mér, bæði í gærkvöldi og í morgun og svo bjargaði ég mér sjálf rétt í þessu, reyndar koma sjálfsmyndir aldrei nógu vel út en þið verðið bara að láta þær duga þar til þið sjáið mig sjálf!
Hérna sjáið þið mig í gærkvöldi...
og framan á...
Svo kemur nýja lúkkið!
Hvernig líst ykkur svo á? Fleiri myndir af mér eru í myndaalbúminu! ENJOY! Hafdís skrifaði klukkan 5:35 e.h. |
4.5.04
Ég sýndi hörku og lærði eftir hádegi í dag, viðurkenni reyndar að ég var svaðalega þreytt en ég krafsaði mig fram út nokkrum dæmum. Núna er ég bara að hafa það gott, horfa á Fear Factor ruglaðann. Þetta er brjálað spennandi, ég hef reyndar ekkert horft á þetta en...þetta er einhver paraþáttur og sumar stelpurnar eru ekki lítið ljóshærðar og móðursjúkar. Reyndar áttu þær að vera lokaðar ofan í búri með fullt af ógeðis köngulóm en maður lætur sig nú hafa ýmislegt fyrir milljón dali. Reyndar veit ég um einn sem hefði hlaupið út úr herberginu!
Ég ætla að skella inn nokkrum myndum af mér á morgun, er að fara í extreme makeover og viðurkenni fúslega að ég er soldið spennt. Tilbreytingar eru mjög velkomnar á mínu heimili og mér finnst nauðsynlegt að breyta í íbúðinni reglulega og raða og breyta mér eitthvað! Það dugar ekki að vera alltaf eins að mínu mati. Annars vil ég bara benda Sigurjóni á að ég get verið fyndin þegar ég er edrú og máli mínu til stuðnings eru Kristín Birna og Jóhanna tilbúnar að bera vitni! Annars er ég bara hress! Hafdís skrifaði klukkan 9:36 e.h. | RUGL! Prófið í lífeðlislegri sálarfræði var jafn erfitt í ár og það var auðvelt í fyrra. Ég tók prófið frá því í fyrra nokkuð létt í gærkvöldi áður en ég fór að sofa - við vorum með svör við því! En í prófinu áðan var ekki alveg það sama uppi á teningnum. Ég held að það nægi að segja að ég voni að þetta hafi verið góður giskdagur hjá mér og að afmælis-og merkisdagar fjölskyldunnar séu mér happadrjúgari í prófum en í Lottó. Hafdís skrifaði klukkan 10:56 f.h. | Ef maður sofnar sjálfur kl.2 um nóttina og sefur ekkert sérlega vel og byrjar að berja sig í svefn aftur kl.5 er maður ekki smá stressaður þá? Ég er líka glaðvöknuð núna kl.7 - æltaði að sofa til 8 en sagði Sveinbirni í gær að ég myndi örugglega vakna sjálf kl.7 hvort eð er! Ég er yfirleitt stressuð yfir því að vekjaraklukkan klikki daginn sem ég fer í próf. En jæja, best að nýta tímann fyrst að ég er vöknuð á annað borð! Hafdís skrifaði klukkan 7:16 f.h. |
3.5.04
Ég vil þakka Sveinbirni kærastanum mínum, ruslaköllunum félögum mínum, sólinni sem skín glatt og vælinu í flutningabílunum sem fara með vörur niður í 10-11 fyrir að veita mér þau forréttindi að vakna kl.8.30! Svo vil ég þakka sjálfri mér fyrir að þrjóskast við inni í rúmi til 9.30 - finnst líklegt að það bjargi lærdómnum í dag.
Fyrsta prófið mitt lítur dagsins ljós á morgun - það byrjar stundvíslega klukkan 9 svo að mín verður að fara að herða sig. Ykkur er velkomið að hugsa fallega til mín frá þeim tíma og til klukkan 12. TAKK! Það verður síðan major make over á miðvikudaginn. Ég hugsa að ég nýti mér tæknina og setji inn myndir af mér áður og eftir svo að þeir sem eru ekki þess heiðurs aðnjótandi að hitta mig reglulega geti séð hvað ég er mikil skvísa! Ég er sem sagt lokaverkefni Maríu hárgreiðslunema og klippikonunnar minnar til eins árs! Ég leyfi henni alfarið að ráða hvað verður gert, ég veit reyndar hvernig þetta á að vera á hárgreiðslumáli en ég get ekki sagt að ég skilji mikið í því þó að hárið á mér verði solid þarna og með auknum strípum þarna og litun í A og ég veit ekki hvað og hvað og hvað. Held að myndin komi til með að útskýra þetta. Já og svo auglýsi ég eftir fólki til að hanga með mér frá 18.maí til 8.júní - greiðslur í boði! Hafdís skrifaði klukkan 10:05 f.h. |
1.5.04
Vissuð þið:
Að alla dreymir, en sumir muna ekki eftir draumum. Þegar fólk vaknar upp af REM svefni man það eftir draumum. -REM táknar Rapid eye movements sem útfærist sem hraðar augnhreyfingar á íslensku. Að hlauparar eyða hlutfallslega minni tíma í REM svefni á nóttu eftir æfingu? Í stað þess eyða þeir 45% meiri tíma í hægbylgjusvefn! Á REM stigi er líkaminn sem lamaður en aukið blóðflæði er í heila. Losun vaxtahormóna er mest í hægbylgjusvefni og það hlýtur að orsaka mikinn vöðvamassa hlaupara ;) Þó að fólk sé svipt svefni hefur það enga greinilega skerðingu á eðlilegri líkamsstarfsemi, ekki heldur á getu íþróttamanna svo að fólk þarf ekki að hafa miklar áhyggjur af því þó það sofi illa daginn fyrir mót. Alberto sagði líka alltaf að svefninn nokkrum nóttum fyrir væri mikilvægari en sá daginn fyrir. Að fólk sem er svipt REM svefni vinnur missinn upp með því að eyða lengri tíma í REM næstu nætur. Það má vera að REM sé mikilvægt við tilfinninga úrvinnslu (emotional). Að þó að fólk sé lokað niður í helli í 6 mánuði í kolniðamyrkri breytist dagsveiflan ekki. Að við fáum martraðir á hægbylgjusvefni en draumarnir með söguþræðinu eru á REM. Já, lífeðlisleg sálarfræði er skondin og skemmtileg! Hafdís skrifaði klukkan 4:16 e.h. |
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||