31.1.04
Vá, hvað mér líður vel núna. Búin að fara út að skokka og búin að þvo ógeðisfnykinn úr hárinu á mér og þarf því ekki að vera með tagl lengur og íbúðin angar ekki af reykingalykt lengur - ferskt loft er GOTT.

Er frekar stolt af mér að fara út að skokka í þessum kulda - frekar erfitt að anda í svona frosti og ennþá erfiðara fyrir þá sem eru með astma! Það var sehr hressandi.
Núna fer þetta allt að koma - verð að hreyfa mig á hverjum degi annars verð ég geðveik.
Stelpur farið að passa ykkur ég verð orðin horrengla innan skamms ;)

Við erum svo að fara í 25 ára afmæli í kvöld - hlökkum mikið til. Það minnir mig á það, ég á eftir að pakka gjöfinni inn.
Jæja, best að fara að gera sig sæta.

Góða helgi!

Hafdís skrifaði klukkan 5:53 e.h. |


Ég ætla aldrei aftur á Kaffihús!
Þegar ég var lítil reykti ein af uppáhalds frænkum mínum og það fór mjög svo fyrir brjóstið á mér. Ég notaði hvert tækifæri sem gafst til að predikka yfir henni og reyna að fela sígaretturnar hennar. Það gekk ekki betur en svo að hún reykir enn þann dag í dag.
Það er oft sagt að þeir sem tali hvað mest á móti reykingum endi á því að reykja sjálfir. Ég er gangandi dæmi sem sannar að það er ekki satt! Ég held að heimurinn strumpist fyrr en ég fái mér smók. Alla vega þyrfti að pynta mig all rækilega og líklega myndi ég deyja fyrr en að taka smók. Ég er sem sagt ekki efni í leikkonu.
Ástæðan fyrir þessum skrifum mínum er:

Í gærkvöldi eftir æfingu fór ég eins og vanalega í sturtu, þvoði á mér hárið með dýrindis sjampói sem mamma á og notaði aðra eins dýrindis hárnæringu og var hrikalega ánægð með hvað það var góð lykt af hárinu á mér og mýktin angraði mig ekki heldur.
Þar sem ég leyfði hárinu að þorna af sjálfu sér varð það skemmtilega liðað og fínt. Við fjölskyldan skemmtum okkur yfir lélegum söngvurum, góðum söngvurum og lélegum bröndurum fram eftir kvöldi en um miðnætti fór ég á Kaffibrennsluna til að hitta gellurnar, Ernu, Guðný og Tótu og nýji gæji Tótu fékk að fljóta með! Um að gera að skiptast á að leyfa strákunum að kynnast umræðuefnum stelpna á besta aldri! Hann heitir einmitt Orri.
Eftir stutta stund var ég orðin frekar þurr í hálsinum og þreytt á því að anda að mér ógeðis reyknum. Við reyndum að finna okkur reykminni stað en án árangurs!
Ég kom heim eftir rúma 2 tíma af því að reyna að heyra í stelpunum, drekka vatn svo að hálsinn á mér myndi ekki skrælna. Reyna að finna ferskt loft og að reyna að fá fólk til að labba framhjá stólnum mínum en ekki á hann!
Þegar ég kom heim angaði ég eins og versti öskubakki og íhugaði mjög að fara í sturtu aftur! Nennti því hins vegar ekki og sökum mikillar tillitsemi geri ég nágrönnum mínum það ekki að vera með hávaða eftir kl.1 á næturnar! Vildi að nágrannarnir sem héldu partý hefðu haft minn hugsanahátt og einnig þeir sem keyrðu inn götuna á nagladekkjunum kl.2 til að reyna að finna sér stæði! Þumalputtaregla á Ásgörðum segir að eftir kl.21 á kvöldin sé ómögulegt að finna stæði nema í svona 100m fjarlægð og þetta hélt ég að íbúar vissu!

Mér finnst að það ættu að vera til nokkur kaffihús sem leyfa ekki reykingar og einnig að það ættu að vera skemmtistaðir sem banna þær að sama skapi. Þetta er hreinn og beinn viðbjóður og algjör óþarfi hjá fólki sem vill stytta sitt líf að stytta mit í leiðinni. Ég er svo lukkuleg að eiga enga vini sem reykja, ég á nokkra kunningja og ættingja en þeir virða yfirleitt óskir mínar um að reykja ekki í minni nærveru.
Í mínum húsum og híbýlum verða reykingar ekki leyfðar!

Ég vildi að reykingar yrðu bannaðar með öllu!

Hafdís skrifaði klukkan 11:52 f.h. |


30.1.04
Örin farin - nú geta allir verið glaðir.

Ég er víst að fara heim að læra, Magga vinkona mín er með svipuna á mér. Dugir ekkert minna til.

Ég læt væntanlega heyra frá mér meira í aften.

Hafið það gott þangað til!

Hafdís skrifaði klukkan 2:03 e.h. |


29.1.04
Var orðin heldur leið á sjálfri mér og ákvað að fá mér blóm svona á meðan ég hann eitthvað fínna! Eða þá að ný síða birtist þegar þessari elsku leiðist ;)

Hafdís skrifaði klukkan 10:47 e.h. |


Ég skil ekkert í mér að hafa fæðst á Íslandi! Afhverju ekki einhvers staðar þar sem frost, snjór og vindur þekkjast ekki?

Hafdís skrifaði klukkan 4:22 e.h. |


Það er einhver alþjóðleg vika leti þessa dagana. Ég hef varla nennt að opna bók og hvað þá lesa þær. Ég er kominn vel aftur úr en hef ekkert efni á því þar sem fögin sem ég er í núna bjóða ekki upp á að maður geri annað en að lesa fyrir hvern tíma! Ekki sniðugt Ósk.

Það er mikið tilhlökkunarefni hjá mér um helgina. Okkur er boðið í mat bæði á föstudag og laugardag - gæti það verið betra?
Mamma mín bauð okkur í mat á föstudaginn og IDOL í eftirrétt ;)
Á laugardaginn er svo Begga vinkona okkar 25 ára og bíður í smá teiti í tilefni þess :) Þetta verður sem sagt MJÖG LJÚFT.

ÉG gerði mikil mistök í morgun! Ákvað að laga aðeins á mér toppinn þar sem hann er orðinn svo síður - hefði betur sleppt því þar sem ég kann aldrei að hætta! Held alltaf áfram til að laga aðeins meira.
Ég náði þó að sannfæra mig um að hætta þegar ég var búin að klippa heilan lokk af sem ég sakna núna sárt :(
Sem betur fer á ég góða klippikonu sem reddar þessu á morgun - hjúkket. Skil ekki afhverju ég læri aldrei af mistökunum og geri ekki neitt svona sjálf!
Barbie-dúkkurnar mínar fengu ekki góða útreið í denn þegar ég var að ,,snyrta þær" (hvernig gerir maður venjulegar gæsalappir niðri alt og?)

Internet-sambandið hér er að gera mig geðveika. Það er svona happa glappa hvort maður kemst á netið og mjög misjafnt hvað gleðin endist lengi - yfirleitt er hún mjög skammvinn!
Sendi tölvunörra frænda mínum sms áðan og bað hann að aumka sig yfir mig - veit ekki hverju hann svarar. Annars hringi ég bara í einhver netumsjónarmann í kvöld og bið hann um aðstoð.
Þetta eyðilagðist allt þegar Sveinbjörn tengdi tölvuna sína við netið upp í Egilshöll þegar við vorum að starfa á Stórmóti ÍR- spurning um að senda ÍR reikninginn ;)
Þetta kemst vonandi í lag bráðum svo ég haldi geðheilsunni!

Segi eitthvað skemmtilegra þegar netið kemst í lag!

Hafdís skrifaði klukkan 2:31 e.h. |


28.1.04
Internetið í Höllinni hefur eitthvað verið að stríða okkur seinustu daga og því hefur lítið sem ekkert komið frá mér, ég náði þó held ég að laga það í gærkvöldi en það kemur víst ekki í ljós fyrr en við skellum tölvunni í samband í dag.
Vonum bara það besta.

Hafdís skrifaði klukkan 3:48 e.h. |


Ég hef lengi velt því fyrir mér afhverju jafnrétti kynjanna er í sumum greinum en ekki öðrum! Það er til dæmis lítill munur á handbolta, fótbolta og körfubolta á milli kynja. Boltarnir eru jú minni en mörkin eru jafnstór. Körfurnar eru aðeins lægri. Í blaki er netið lægra.
Mér finnst mjög skrýtið að mörkin í knattspyrnu séu jafn stór. Það væri mjög eðlilegt að hafa þau minni þar sem konur eru jú lágvaxnari en karlar að meðaltali. Í knattspyrnu kvenna enda leikirnir líka oft 11-7 eða eitthvað á meðan svoleiðis tölur þekkjast vart í knattspyrnu karla.
Í frjálsum eru áhöld léttari, plankarnir styttra frá í þrístökki og grindur lægri. Þetta er mjög eðlilegt þar sem konur eru ekki eins sterkar og geta ekki hlaupið yfir sömu hæðir á grindum (karlagrindin er 107 cm).
Að undanförnu hefur mikið verið rætt um að breyta sjöþraut kvenna yfir í tugþraut eins og karlarnir fara í gegnum. Þá bætist við 400m hlaup, kringlukast og stangastökk og 800 breytist yfir í 1500. Ég veit ekki um eina konu sem er hrifin af þessu. Reyndar ætti þetta að vera kjörið fyrir Völu okkar Flosadóttir þar sem hún er fjölhæf mjög!
Ég er mjög hlynnt jafnrétti kynjanna en ég er ekki sammála því að allt eigi að vera eins. Mér finnst að konur og karlar eigi að fá sömu laun fyrir sömu störf - það er fáránlegt að laun karla lækki þegar fleiri konur koma í greinina. Mikil umræða er til að mynda innan verkfræðideildar um að innan fárra ára verði verkfræði láglaunastétt þar sem fleiri og fleiri konur útskrifast á ári hverju! Strákum er núna mismunað á verkfræðistofur þar sem stofurnar keppast við að jafna hlutföllin á stofunum og ráða bara konur! Ég er ekkert að kvarta yfir þessu en leyfi mér að velta því upp að innan fárra ára verði til karlmennskufélagið sem vinnur að jöfnum rétti karla á við konur. Staðreyndin er sú að fleiri konur eru í háskólanámi og því er eðlilegt að við verðum ríkjandi á markaðnum.
Er eitthvað óeðlilegt við það að mörk, körfur og áhöld í kvennaíþróttum séu minni og léttari?
Það finnst mér ekki!

Hafdís skrifaði klukkan 3:46 e.h. |


26.1.04
Ákvað að setja eina huge svertingamynd af okkur Sveinbirni hérna inn - var orðin leið á hinni!

Ég fór eins og áður sagði í vísindaferð á föstudaginn. Nokkuð margar fallegar myndir litu þá dagsins ljós!
Við fórum sem sagt þrjú saman ég, Sveinbjörn og Magga vinkona mín.

Hérna fáið þið smá sýnishorn af dýrðinni:

hvítt og svart

Revealing...en samt að lúkka ;)

Sveinbjörn brúni

Tveir litlir svertingar

Kenndu mér að kyssa rétt og hvernig á að...

Hvernig getu pabbi sagt að ég sé ekki efni í módel - heldur bara hryllingsmynd?

Hafdís og Sveinbjörn


Fá einhver orð þessu líst?


Ég brá ekki út af vananum og brussaðist - þarna var ég nýbúin að hella ofan á mig! SEHR GUT.

Hann yrði tvímælalaust ljósmyndafyrirsætan ef hann tæki þátt í Herra Ísland - án vafa!

Hvernig væri að slaka aðeins á brúnkukreminu?


Kannast einhver við þessu sætu spætu?


Get ímyndað mér að mörgum hafi þótt þessi pistill áhugaverður mjög - ég hló alla vega að mörgum myndunum.
Fleiri skemmtilegar myndir af okkur má finna á þessari síðu! Áhugasömum er bent á að á þeirri síðu eru líka myndir af öðrum en okkur!

ENJOY!

Hafdís skrifaði klukkan 4:17 e.h. |


24.1.04
Fín vísindaferð í gær, mín var þó heldur þreytt snemma en hélt sér vakandi til að hitta Ernu sína - gafst reyndar upp rétt eftir hálf tólf þegar ég var ekki enn farin að sjá tangur né tetur af henni og tölti heim á leið. Um leið og ég snerti koddann steinrotaðist ég en það var skammvinn hamingja. Þurfti að veita nokkur olnbogaskot og æsa mig soldið til að losna við mjög svo háværar hrotur. Ég þarf að hafa dauðaþögn þegar ég sef! Ég veit að ég er erfið.
Sökum anna okkur skötuhjúa í gær verður bóndadagurinn okkar í dag. Ég hef nú þegar stjanað við rassgatið á honum og á örugglega eftir að gera meira af því - það gerist reyndar á hverjum degi en ég er kannski bara soldið duglegri í dag.

Hvað er svo meira hressandi en að standa í 4 tíma og starta milljón börnum í 60m hlaupi og grindahlaupi? Ég var sem sagt ræsir og stóð mig held ég bara ágætlega - fékk alla vega engar kvartanir!
Á morgun þarf ég svo að vinna meira við mótið - þyrfti að vera að læra en er eitthvað svo þreytt og södd eftir pönnukökurnar sem amma bakaði handa okkur. Hún er besta amma í heimi!

Er að hugsa um að hafa það gott undir teppi með spólu í annarri og ávexti í hinni - þið lásuð rétt. Það er matarátak í gangi hjá minni núna og alltaf þegar hana langar í eitthvað gott eru ávextirnir dregnir fram. Ég reikna með að endast í þessu í svona viku ;)
Annars er nú eiginlega nammidagur í dag en þar sem ég borðaði pizzu í vísindaferðinni í gær veit ég ekki hvernig fer með hann. Ég er líka búin að borða pönnukökur og samkvæmt frjálíþróttamönnum er það víst SVAÐALEGT sukk alveg eins og kanilsnúður með glassúr!
Ég passa oft svo engan veginn í þennan hóp - er of mikill sælkeri!
Snúður með súkkulaði....hvað get ég sagt!

Hafdís skrifaði klukkan 4:33 e.h. |


23.1.04
Lærdómur ætti að eiga hug minn allan þessa dagana en...hugur minn einbeitir sér að öllu öðru en því!

Í dag er bóndadagurinn og ég er að hugsa um að vera sérdeilis góð kærasta í dag - stjana við karlinn minn ;)
Ætlaði að elda eitthvað gott handa honum en þar sem hann vill frekar fara í vísindaferð en að borða brunarústirnar mínar er líklegt að ég fari bara með í vísindaferð. Það er að segja ef ég finn einhvern til að fara með mér á æfingu fyrr í dag.
Búin að nuða í Ernu og vona að hún gefi sig ;) Hún er svo góð þessi elska.

Ég trompaðist gjörsamlega yfir landsleiknum í gær - ekki næstum því sátt. Sveinbjörn var næstum búin að gefast upp á mér sökum tapsárni og leiðinda - ég var mjög pirrandi!
Veit ekki hvort ég horfi í kvöld þar sem ég var næstum búin að henda sjónvarpinu í gólfið í gær. Frétti að það ætti e.t.v að horfa á leikinn í vísindaferðinni - grunar einhvern veginn að Sveinbjörn setji þá límband fyrir munninn á mér...

Verð að fara að gera eitthvað í þessu!

Hafdís skrifaði klukkan 12:48 e.h. |


21.1.04
Ég gaf blóð í dag - frekar ánægð með mig. Komst í leiðinni að því að ég er frekar sjaldgæf - ein af 10% Íslendinga í B+ blóðflokki. Bara gaman að því! Er víst eins og pabbi minn.
Af þessum sökum var fátt um fína drætti hjá mér á æfingasviðinu. Þess í stað stóð ég mig vel í því að versla hollustu í Hagkaup. Komst að því að það er fullt af hollustu inn í búðum landsins. Sá það aldrei fyrir nammibarnum og kexdeildinni ;)

Byrjaði að læra í dag - það gekk illa :(

Ég er frekar þreytt, svaf lítið í nótt þar sem nágrannar mínir eru sehr háværir. Er þar af leiðandi að hugsa um að fara snemma að sofa!

Þetta er þó smá konfektmoli fyrir ykkur vegna lélegheita minna:
Magga vinkona mín hóf lífsgöngu sína hér á netinu í gærkvöldi með smá aðstoð frá mér. Endilega kíkið á stelpuna.

Getið kíkt á týpískar stelpudjamms-myndir hér ef þið hafið áhuga! Það er líka einhverjar myndir úr innflutningspartýi!


Hafdís skrifaði klukkan 10:10 e.h. |


20.1.04
Þeir sem hafa áhuga á að heyra gamalt efni með Kalla Idolstjörnu geta kíkt inn á þessa síðu þar er að finna tvö gömul lög með honum - alveg þess virði að athuga það!
Auk þess getið þið litið á myndir frá Vopnafirði í leiðinni og séð hvað þetta er ÓTRÚLEGA fallegur bær!

Hafdís skrifaði klukkan 4:28 e.h. |


Systir mín var að byrja að blogga! Mæli með því að þið kíkið á síðuna hennar við tækifæri!

Hafdís skrifaði klukkan 4:00 e.h. |


Mikið svakalega var ég svekkt með seinasta ALIAS þáttinn. Langaði til að grenja þegar hann var búinn - ömurlegt að hafa seinasta þáttinn svona. Ætli ég neyðist ekki bara til þess að fara að leita að þeim á netinu...
Var að vona að þetta væri bara slæmur draumur í restina en grunar að svo sé ekki. Líklegt að eyða nokkrum þáttum í að komast að því hvað varð um Sidney í þessi tvö ár! Vá, hvað ég er fúl.

Gleðiefni gærdagsins var æfingin, ég stóð mig bara ágætlega þó ég segi sjálf frá. Hlaupastíll fer að koma!

Leist líka vel á fyrsta námskeiðið sem ég fór í kennslustund í, sé reyndar fram á mikla vinnu en mig grunaði það fyrirfram. Þarf að vera búin að lesa fyrir hverja viku þar sem ég verð í umræðuhóp og svoleiðis fyrirkomulag hentar mér vel. Próf eða verkefni þarf til að halda mér á réttri braut.

Horfir einhver annar á ALIAS en ég? EF já, hvað fannst ykkur?

Hafdís skrifaði klukkan 12:46 e.h. |


Alveg eins og talað út úr mínu hjarta:

Ég er alls engin dama og það fer mér einstaklega illa að vera í fínum boðum.
Mér var þó einhverra hluta vegna boðið í eitt slíkt fyrir ekki svo löngu og ákvað að slá til.
Eftir að hafa eytt einum 5 klukkustundum í búðarráp, kom ég heim með þennan fína þrönga eldrauða kjól, háhælaða skó í stíl og litla handtösku.
Maðurinn minn fölnaði þegar ég sýndi honum hvað ég hefði keypt og vann það sér inn á staðnum að fá ekki að koma með.
Hárinu var skellt í hnút, varirnar málaðar rauðar og í dressið var farið.
Eins og áður kom fram er ég ekki dama og því ekki vön að vera á svona svakalegum hælum.
Til að ganga úr skugga um að kvöldið gengi áfallalaust fyrir sig á hælunum, ákvað ég að sötra smá hvítvín á meðan ég dressaði mig upp.
Þegar mín var reddí að fara þá runnu á hana tvær grímur, hvítvínsflaskan var alveg að verða tóm og mín orðin skuggalega völt á skónum.
Kallinn skutlar mér á áfangastað kvöldsins og þar eins og við mátti búast var mikið af fínu fólki, og þar af þó nokkrir þjóðþekktir einstaklingar.
Rautt og hvítt í boðinu ásamt snittum og kavíar, og eftir að hafa nælt sér í glas og með því þá settist ég ásamt vinkonum mínum í eitt sófasettið sem þarna var.
Þar var hlegið, borðað og drukkið og þar sem við vorum 7 þá stóð alltaf ein upp í einu og náði í veigar handa hinum og þegar röðin var komin að mér þá byrjaði ballið.. Ætli við höfum ekki setið þarna í rúma klukkustund og sötrað þegar ég stóð upp. Ég rís á fætur og sé bara svart. Hryn í gólfið jafn skjótt og ég stend upp og næ að grípa með annari hendinni í stóra plöntu sem gnæfði þarna yfir sófann. Læt auðvitað "sem ekkert sé" og stend aftur upp og reyni að vera cool..
Það gekk ekki betur en svo að ég ákveð að staulast upp á hæðina fyrir ofan og fara á "the laydies room". Ég hálf hangi á handriðinu þar sem ég reyni að komast upp þar sem hælarnir á skónum ætluðu að stjórna sér sjálfir og leytuðu sífellt í sitthvora áttina.
Ég kemst upp og inn á bað. Pissa og fæ mér svo vatnssopa um leið og ég þvæ mér um hendurnar. Ákveð svo að drífa mig bara niður, en tek skyndiákvörðun rétt áður en ég fer, og skelli smá rauðu á varirnar.
Á leiðinni niður mæti ég manni sem ég var alveg handviss um að ég ætti að þekkja. Hann brosti svo undurblítt til mín að ég dreg hann afsíðis og fer að spyrja hann hversvegna ég kannist svona við hann. Áður en ég veit af er ég búin að taka af honum glasið og byrjuð að drekka úr því. Og að því samtali loknu var ég búin að komast að því að hann er þekktur rithöfundur hér á landi... ég mátti nú svo sem sjá það!
Ég rétti honum tómt glasið og geng í átt að vígalegum stiganum. Þá er það að komast niður... ég á eftir 4 tröppur þegar ég flýg á hausinn. Ólíkt fyrra skiptinu næ ég ekki að grípa í neitt og enda þess í stað á rassinum á milli gólfsins og síðustu tröppunnar. Ég kenni enn í dag hælunum um, ekki áfenginu.
Vinkonurnar drösla mér á fætur og með den samme er ég dregin út í horn og undan kjólnum er kippt klósettpappír sem hafði fests í þessum líka litlu nærum sem ég var í og auk þess var sá rauði kominn hálfa leið upp á nef.
Ég ákvað að þetta væri komið gott og ég skyldi bara fara heim núna.
En ég var ekki komin hálfa leið að fatahenginu þegar enn eitt glasið rataði í
hendina á mér. Þetta verður síðasta glasið hugsaði ég.
Ég er í því að klára úr því þegar myndarlegur maður kemur upp að mér og bíður mér í dans. DANS gala ég yfir allt og alla. Þegar ég sá svipinn á honum, þá tók ég í höndina á honum og sagði, ég skal sýna þér hvernig á að dansa...!
Til að gera langa sögu stutta þá skakklappaðist ég í gegnum dansinn, án þess að detta og sveif svo ein um gólfið dansandi við glasið mitt.
Ég ákvað sjálf eftir þá glæstu framistöðu að hætta á toppnum og láta mig hverfa. Einhverra hluta vegna tók ég eftir að hægri geirvartan hafi ratað upp úr kjólnum þegar ég var að ganga að fatahenginu en mér var bara alveg sama, ég var hvort eð er að fara heim.
Komin í kápuna og reddí að fara heim enda ég svo kvöldið á að FLJÚGA á hausinn í andyrri hússins, niður slattta af tröppum og endaði á slysó með 3 spor í enninu og tognuð á fæti.

Enn í dag kenni ég um skónum.....

Fékk þetta sent í pósti frá elskulegri móður minni sem sagði í leiðinni að þessi saga hefði minnt sig á mig! Hún veit reyndar að ég þarf ekkert áfengi til að hrynja niður tröppur á hælum sem gætu auðveldlega drepið mann! Get það með fullri athygli ;)

Hafdís skrifaði klukkan 11:38 f.h. |


19.1.04
Sumir ekki ALVEG að standa sig hérna.
Háskólanetið utanlands lá niðri í allan gærdag, akkúrat þegar ég var ein heima og með tölvuna. Lét þetta þó ekki fara mikið í taugarnar á mér og skoðaði bara frammistöðu allra krakkanna í IDOL og skemmti mér konunglega.

Við Sveinbjörn ákváðum að eiga nammidag í gær þar sem laugardagurinn okkar var hollustulegur í meira lagi - fyrir utan smávægilegt djamm! Pöntuðum okkur því pizzu á Pizza Hut og létum tengdamömmu vita að við værum á leiðinni! Símastúlkan sagði að við gætum komið eftir svona 20-25 mínútur og þá væri hún tilbúin. Þegar við vorum búin að bíða á staðnum í hálftíma til viðbótar við þessar 25 mínútur fengum við loksins pizzurnar. Þær voru reyndar alveg biðarinnar virði, ótrúlega góðar!

Við fórum siðan á Last Samurai í gær í Álfabakka og sökum þess hvað ég er góð að ryðjast fengum við 7 sæti hlið við hlið fyrir miðjum sal! Frekar góð!
Myndin er tæpir 3 tímar en mér fannst hún fullkomlega þess virði - Tom Cruise er reyndar nógu góð ástæða fyrir mig til að horfa á hvaða mynd sem er ;)
Ég skemmti mér mjög vel og stóð mig vel í að gráta ekki - hreysti!

Í dag rann svo annar skóladagur ársins upp og var bara nokkuð ljúfur. Ég var reyndar ekki eins ánægð að vita hvað bækurnar mínar kosta - 28000 krónur takk fyrir. Heldur stór pakki fyrir fátækan námsmann og næstu jól held ég að það væri tilvalið að gefa mér gjafabréf í bóksöluna. Ég má nú reyndar ekki kvarta mikið keypti ekki mikið af bókum fyrir jól en þær kostuðu nú samt sitt. Það versta er líka að það eru nýjar útgáfur af ÖLLUM bókunum þetta árið og því ekki hægt að kaupa notaðar bækur! Ógeðisógeð.

Skrifaði víst færlu í gestabók á barnaland.is sem allur Vopnafjörður hefur verið að misskilja og mamma hefur verið í óðaönn að neita því að hún sé að verða amma - ég sagði nefnilega að mamma væri farin að telja niður dagana þangað til að ég myndi fjölga mannkyninu en viðeigandi hefði verið að segja ár! Stundum er ekki allt úthugsað hjá mér.

ÉG ER SEM SAGT EKKI ÓLÉTT.

Dreymdi það reyndar í nótt og var hálf rugluð í morgun þegar ég vaknaði! Eins gott að ég er ekki berdreyminn! Hjúkket!
Mér finnst voða gaman að máta börn og leika mér við þau en langar ekki í mitt eigið ALVEG strax - líklega innan fimm ára en ekki mikið fyrr en það! Ég á eftir að læra svo mikið áður!

Þá vitið þið það!

Hafdís skrifaði klukkan 3:38 e.h. |


15.1.04
Æfingin í gær tók heldur betur á - einhver þreyta í konunni eftir lyftingaæfingu og massa spretthlaupsæfingu. Var líka með tveimur mjónum og það eitt tekur svakalega á! Afhverju eru ekki flokkar í frjálsum eins og í Boccia, hnefaleikum og flokki fatlaðra. Finnst að það ætti að vera svoleiðis. Þá gæti ég til dæmis verið íslandsmeistari kvenna í flokki kvenna sem eru yfir 170 cm og 80 kg í þyngd eða eitthvað! Takið eftir að talan 80 er dultala yfir mína þyngd, það þarf að nota flóknar stærðfræðiaðgerðir til að finna út rétta tölu!

Fór síðan í saumaklúbb strax á eftir æfingu og það gefur ekki góða raun að borða heita rétti og kökur strax eftir æfingu. Ég var reyndar með eindæmum þreytt og pirruð eitthvað (kemur sjaldan fyrir) og fór því bara snemma heim og hafði það gott upp í sófa.

Átti svo í smá erfiðleikum með að vakna í morgun þar sem talan 8 er ennþá ókristileg í mínum augum og dagurinn byrjar í raun ekki fyrr en 11. Það var smá stundatöflubull í morgun svo að helmingurinn mætti í tíma kl.8 en hinn helmingurinn kl.8:40 og í þeim hópi var ég, en tíminn hófst víst kl.8! Ég var því bara í tíma í rúmlega hálftíma og átti svo að vera í gati til 11. Þann tíma nýttum við Guðný í að koma okkur vel fyrir upp í sófa og hún lagði sig svo í svona hálftíma! Ég kann, eins og flestir vita, ekki að leggja mig og hvíldi mig því bara í smá stund og skreið aðeins undir sæng til að hlýja mér.

Lífeðlisleg sálfræði beið okkar svo klukkan 11 og ég er næstum því pottþétt á því að þeir tímar eiga eftir að vera strembnir, hann fór alla vega MJÖG hratt yfir sögu. Ég hef reyndar lært margt af þessu áður en það er LANGT síðan og minnið mitt nær ekki einu sinni svo langt aftur í tímann! Er einmitt að fara að kaupa mér bókina svo ég geti byrjað að lesa - ekki veitir af!

Gleðin náði hámarki núna áðan þegar námslánin birtust á skjánum, mjög ánægð með það. En ég fékk seinustu einkunina mína á þriðjudaginn - hraðinn á afgreiðslunni kemur MJÖG á óvart! Gaman að eiga pening í smá stund ;)

Á morgun sæki ég svo Maríus Pétur frænda minn á leikskólann og við skemmtum okkur fram á æfingu og svo reikna ég með að taka hann með mér á æfingu og leyfa honum að sprikla smá - hann talar víst oft um það að hann þurfi að skreppa á æfingu með Hafdísi. Ég hef einu sinni áður tekið hann með mér og þá var hann ekki kyrr í eina mínútu! Gaman að það sé einhver orkumeiri en ég!

Jæja ég þarf að fara að eyða nýfengnum gróða í bækur!

Hafdís skrifaði klukkan 1:54 e.h. |


13.1.04
Æ, mér finnst ofsalega leiðinlegt að gera ekki neitt. Nennti ekki einu sinni að þvo og skúra í dag - letin í hámarki. Var bara að liggja í leti með Guðný í allan dag - sem var reyndar ljúft.
Ég ætla svo að mæta snemma á æfingu í dag þar sem ég er að fara í mat til tengdamömmu í kvöld og við ætlum að borða soldið snemma og svo á ég náttúrulega von á landsfrægum ljósmyndara í kvöld!
Mikið um að vera í dag sem sagt.

Annars hefur ekki mikið á daga mína drifið, mér finnst þetta leiðinlegt veður og veit ekki alveg hvernig fer með skokk í dag!
Sjáum bara hvað setur.

Getið þið ekki sagt mér eitthvað skemmtilegt?

Hafdís skrifaði klukkan 3:47 e.h. |


Undur og stórmerki - haldiði að spikið hafi ekki bara fokið af mér þegar ég þaut 60 metrana á blússandi siglingu? Jú,jú dugir ekkert annað til.
Við Sveinbjörn komum sjálfum okkur og þjálfaranum okkar stórlega á óvart þegar við tækluðum 10x60m eins og við hefðum aldrei gert neitt annað og værum ekki 10 kg of þung - bara eins og að drekka vatn.
Reyndar réð ég ekki alveg við lappirnar á mér í gaddaskónum þær vildu fara hraðar en J-Lo rassinn leyfði en annars var þetta bara gott. ( Gaddaskór, spretthlaupsskór með göddum á sem hjálpa til við að komast hraðar, J-Lo rass= stór rass ) Ég skemmti mér alla vega sérlega vel.
Eins mikið og ég var að hugsa um að hætta að æfa hefur mér snúist hugur og ég stefni ótrauð að frægð og frama - alla vega hvað varðar fitubrennslu, önnur afrek koma e.t.v að henni lokinni! Ætli ég nái ekki markmiði mínu ef/þegar ég næ að vinna Albert Þór Magnússon í starti á nýjan leik ;) Þetta er í seinasta skipti sem ég segi þetta - lofa (grunar reyndar að ég svíki það en...)
Bakaði þetta líka fína eplagums í kvöld, það tókst bara ágætlega en var soldið sætt, Sveinbjörn var alla vega sérlega ánægður með það. Á morgun reikna ég svo með að hann Sigurjón minn klári það upp til agna með dyggri aðstoð Sveinbjörns. Hinir sem hafa áhuga á að fá eplagums er bent á að hafa bara samband með nokkra tíma fyrirvara og bjóða komu sína í Höllina - prinsessan lumar yfirleitt á einhverju bitastæðu ;)

Skil ekki afhverju ég er ekki þreytt - jú, e.t.v af því að ég svaf fram á hádegi! Þarna kom það!
Ælta að reyna að lesa Harry Potter og þreyta augun þannig - úff, einhvern veginn grunar mig að ég lesi þá svona 200 síður áður...
Ef ykkur leiðist á morgun verð ég örugglega að mygla hérna heima...enda örugglega á því að taktu eftir Óli minn: Þvo ÞVOTT og skúra! Bitastæð tilboð óskast!

Góða nótt, góðir hálsar - hvað svo sem þið eruð....hahahahahahah (úr hverju er þessi setning?)

Hafdís skrifaði klukkan 12:25 f.h. |


12.1.04
Lúxus-líf

Ég svaf fram að hádegi í dag, reikna með að ég hafi enn verið þreytt eftir svefnleysi helgarinnar. Fór svo að hafa mig til í skólann en eftir stutt samtal við Guðnýju ákvað ég að hringja upp í skóla til að athuga hvenær kennsla í Félagsvísindadeild hæfist! Hún hófst sem sagt ekki í dag eins og ég hafði ráðgert heldur hefst hún á miðvikudaginn. Ég var ekkert sérlega fúl með þetta og hafði það því bara gott í dag. Dúllaði mér við að ganga frá og fór svo að versla mér skóladót og keppti loksins eitthvað í ísskápinn en hann hefur verið heldur tómur greyið síðan við fluttum - ég vildi ekki teppa hann með matardóti fyrir innflutningspartýið!

Í kvöld reikna ég svo með að skella í eina eplaköku handa Möggu minni þar sem hún komst ekki á föstudaginn, verð að gefa henni eitthvað óhollt og reyna að fita hana - gengur ekki að eiga svona mjónuvinkonur sem geta ekki lánað manni föt ;)

Fyrst ætla ég nú samt á æfingu til að athuga hvort að spikið fjúki ekki af mér - er reyndar orðin heldur vön því og reikna með að ég myndi bara sakna þess!

Þessa dagana er ég líka að skoða stöðu mína í íþróttaheiminum og veit satt best að segja ekkert hvað ég geri! Það er alltaf svo erfitt að koma sér í gang aftur eftir að hafa lent í veikindum og misst þolið og styrkinn niður. Mér finnst svo leiðinlegt að vera ekki í formi en eiginlega leiðinlegra að vinna það aftur upp!

Þráinn nær nú samt vonandi að koma smá viti í kollinn á mér en það er orðið nokk ljóst að innanhússtímabilið verður ekki í mínum orðaforða þetta árið - græt það reyndar ekki mikið þar sem það hentar mér verr - er ekki mikill spretthlaupari!

Hafdís skrifaði klukkan 4:53 e.h. |


11.1.04
Ég vil fyrir hönd okkar skötuhjúa þakka öllum þeim sem glöddu okkur með nærveru sinni á föstudagskvöldið. Við teljum okkur vera mjög lánsöm að eiga svona góða vini. Við fengum fjölmarga fallega hluti sem koma að góðum notum við heimilishaldið.
Húsmóðirin var einnig alsæl með umgengnina þar sem ekkert skemmdist og aðeins einu sinni var hellt niður!

Takk fyrir okkur!

Hafdís skrifaði klukkan 12:21 e.h. |


9.1.04
Allt að verða klappað og klárt!

Fluttum inn á mánudaginn og eyddum þriðjudeginum í að gera holuna fína á ný, eftir skrúbbið okkar mömmu var hún fínni en þegar hún var tekin í notkun! Var alveg svaðalega fín, og ég sá meira að segja eftir því í smá stund að vera að fara úr henni! Ég á hins vegar ekki eftir að sakna eftirtalinna hluta:

- Gólfkuldans
- ruslakallanna á mánudagsmorgnum
- fólksins sem labbaði framhjá svefnherbergisglugganum snemma á morgnana með læti og seint á kvöldin með læti.
- barnagráts
- löngu leiðarinnar í íbúðina
- það að hafa skóna mína fram á gangi

ég er þó nú þegar farin að sakna þess að hafa ekki stóran skáp inn á baði til að geyma handklæðin í og ýmislegt smádót sem ekki kemst fyrir í litlum skáp!

Ég er hins vegar alsæl með 18 auka fermetrana mína, nýja litinn á gólfdúknum - voða ljúft að hafa hann ógötóttan. Stærri ískápur skemmir ekki fyrir og forstofan pirrar mig ekkert sérstaklega. Ég er hins vegar frekar svekkt yfir að hafa misst annan fatakskápinn en við redduðum því með einu stykki kommóðu sem elskuleg systir mín lánaði okkur!

Í dag fór ég með ömmu og SVEINBIRNI (taktu eftir Bergur) til að kaupa gardínur. Við amma erum mjög litaglaðar og vorum frekar sammála strax - við erum báðar MJÖG hrifnar af rauðu, ég held að ég hafi erft það frá henni.
Fengum mjög fallegar eldhúsgardínur, alveg eins og ég vildi og nýjar fyrir stofuna líka. Amma er að sauma þær fyrir mig - veit ekki hvað ég gerði án hennar! Hún saumaði líka gardínur fyrir svefnhergbergisgluggann okkar sem nú þarf að stytta en þær standa að sjálfsögðu fyrir sínu!

Ellen æskuvinkona mín er að koma til mín á morgun, við gáfu hvor annari það í jólagjöf að borga helminginn af flugfargjaldi fyrir hana hingað og jólagjöfin mín kemur snemma í fyrramálið. Get varla beðið!
Við ætlum að hafa það gott saman á morgun, reikna með að við leggjum okkur eftir að ég sæki hana á flugvöllin og svo finnst mér líklegt að við kíkjum í smá búðir!

Þetta verður sem sagt yndisleg helgi!

Ég læt væntanlega heyra í mér um helgina!

Hafdís skrifaði klukkan 12:11 f.h. |


6.1.04
Ég er flutt úr holunni í höllina!
Á eftir að taka upp úr NOKKRUM kössum og ákveða hvar hitt og þetta á að vera svo að ég hef þetta ekki mikið lengra í bili...svo á ég líka eftir að þrífa gömlu :(


Later,

Hafdís skrifaði klukkan 1:36 e.h. |


5.1.04
Undur og stórmerki gerðust í kvöld, stelpan braut odd af oflæti sínu og skellti sér með familíunni á Grease. Þegar ég segi familíunni meina ég að sjálfsögðu mömmu og Sveinbirni. Verri hluti fjölskyldunnar sá sér ekki fært að mæta þar sem systir mín er heldur ekki aðdáandi Birgittu Britney og pabbi fer helst ekki í leikhús og kvikmyndahús sökum þrjósku!

Það er skemmst frá því að segja að ég skemmti mér bara sérlega vel og var bara nokkuð ánægð með stykkið. Gunnar Helgason hljóp í skarðið fyrir einn piltinn í sýningunni í kvöld og hann var einn sá besti.
Birgitta hefur áreiðanlega marga aðra hæfileika ein leiklistarhæfileika þar sem hennar eru af MJÖG skornum skammti.
Jónsi er hins vegar algjör snilld í þessu leikriti og heillaði okkur öll upp úr skónum - ekki skemmir kroppurinn á honum heldur fyrir! Hann syngur líka eins og engill þessi elska.

Síðan þá höfum við bara legið í leti og horft á ekki neitt í sjónvarpinu - mæli með því.

Á morgun er svo flutningsdagurinn mikli. Við eigum eiginlega enga kassa og því erum við eiginlega ekkert búin að pakka niður - mjög gott! Það verður sem sagt nóg að gera á morgun...vei!
Ætli ég fari ekki bara í pæjuföt á morgun og reyni að heilla einhverja miðaldra menn upp úr skónum.

Orðin leið á leiðindunum í sjónvarpinu - ætla að fara að lesa Bettý.

Hafið það gott...

Hafdís skrifaði klukkan 1:05 f.h. |


2.1.04
Lagaði þessa síðu aðeins í gær, reikna þó með að það verði róttækari breytingar á henni fljótlega.
Um leið og ég breytti bætti ég inn nýjum tengli. Vopnafjörður.is er síðan um fólkið í firðinum fallega og ég les hana reglulega til að detta nú ekki alveg út úr menningunni!

Elías frændi minn bættist líka við og er langt síðan ég ætlaði að bæta honum inn í. Við vorum eins og systkini þegar við vorum lítil - alltaf saman! Hann er eiginlega svona uppáhaldsfrændi minn.
Hann átti einmitt afmæli í gær og er því bara 1 ári yngri en ég í smá stund! Vildi að það héldist lengur en í tvo mánuði :(
Kíkið endilega á síðuna hans...

Í dag byrjum við að pakka öllu niður í kassa og undirbúa okkur fyrir brottflutning úr holunni í villuna!
Áform um innflutningspartý standa enn en boð verða ekki send fyrr en allt er komið á hreint! Áhugasamir taki frá föstudaginn 9.janúar!

Hvernig leggst annars nýtt ár í ykkur?

Hafdís skrifaði klukkan 2:03 e.h. |


1.1.04
Gleðilegt nýtt ár







Hafdís skrifaði klukkan 3:20 e.h. |