|
|||||||||||||||||||
|
30.11.03
Ég var sem sagt í prófi í gær og hef ekki hugmynd um hvernig mér gekk. Það er nefnilega þannig með krossapróf. Í fyrstu yfirferð set ég hring utan um svarið ef ég er viss - eða svona allt að því, annars set ég punkt fyrir framan það sem ég held að sé rétt ef mig grunar það annars geri ég ekki neitt og skoða spurninguna aftur í næstu umferð. Þegar ég hef lokið þessari yfirferð á spurningarnar 60 skrifa í ritgerðina - en ég skoða ritgerðarefnin ekki fyrr en ég er búin að fara yfir krossana í fyrstu umferð - annars dey ég bara úr stressi og aumka mig yfir lítilli vitneskju minni.
Ég fékk líka sjokk í gær þegar ég las ritgerðarspurningarnar tvær - eigum að velja eina. Síðan þegar ég las þær í 10 skipti fann ég út að ég gæti e.t.v skrifað smá um þá síðari - og endaði á því. Eins og gerist svo oft mundi ég miklu meira þegar ég byrjaði að gera beinagrind á krassblaðið mitt og ég held að þetta hafi svona bjargast í lokin. Reikna nú samt ekki með því að ég fái marga punkta fyrir hana en vonandi eitthvað þó - ætli ég lækki nú samt ekki eins og vanalega samt. Þegar ég var búin að fara tvær umferðir í viðbót yfir krossana, sagði ég þessi lokið og fór heim nákvæmlega 1 mínútu áður en próftíminn rann út. Að prófi loknu beið mín laufabrauðsgerð hjá systur mömmu þar sem hele familien var mætt á svæðið. Eftir að hafa skorið út nokkrar var ég alveg komin með nóg en lét mig þó hafa það! Bunkinn ætlaði þó engan endi að taka og undir lokin voru allir komnir með aðferðina hans pabba. Hún er sem sagt þannig að renna bara járninu í gegnum kökurnar í miðjunni og segja það gott. Laufabrauðin verða sem sagt sehr hugguleg hjá okkur þetta árið. Fyndið hvað maður er alltaf hugmyndaríkur í byrjun en verður síðan uppiskropa undir lokin. Ég þarf alltaf að vera soldið öðruvísi og mamma var sérlega ánægð með mig. Ég föndraði kerti á grenigrein, jólahús með greni, blóm, H og fjöldann allan af sérkennilegum mynstrum - bara stuð sem sagt. Svo á eftir var sviðaveisla og hangikjöt fyrir þá sem ekki vildu svið - hangikjötið var svo feitt svo að ég borðaði bara lítið og bætti mér tapið upp með eplakökunni sem var í eftirrétt. Krakkarnir voru vel fjörug eins og vanalega og eyrun á öllum voru heldur aum að heimsókn lokinni. Rakel og Himmi komu svo í heimsókn til okkar eftir leikhúsferð þeirra skötuhjúa og nutu góðs af myndarlegheitum mömmu þar sem afgangurinn af eplakökunni var þeirra! Þau voru nú samt frekar léleg og því er ennþá of mikill afgangur. Held að við Sveinbjörn getum haft eplaköku í öll mál þangað til á þriðjudaginn! Fleira er ekki í þættinum í kvöld, sjáumst að viku liðinni! Hafdís skrifaði klukkan 2:01 e.h. |
28.11.03
Ég held ég sé ein af þeim mest seinheppnu í geimi.
- Ég svaf lítið í nótt þar sem ég er svo stífluð í nefinu og það er ógeðslega vont að anda í gegnum munninn. Þrátt fyrir stórt vatnsglas var ég samt skrælnuð í kjaftinum þegar ég vaknaði. - Ég snýti mér á 5 mínútna fresti og það tekur svona 5 mínútur þar sem ég er með endalausar birgðir. - Ég hnerra líka þess á milli og þegar ég hnerra er sko tekið á því, ekkert bælt. - Mér tókst hið ómögulega, fékk tak í bakið með því að sitja kyrr - held að hnerrarnir eigi þó hlut að máli. Núna er ég sem sagt hálf bækluð fyrir framan tölvuna að sjúga upp í nefið og drekka til að halda munninum á mér blautum. Þetta er hið ljúfa líf! Hafdís skrifaði klukkan 12:11 e.h. |
27.11.03
Ég er orðin örvæntingarfull. Þegar ég var að skokka Laugarásveginn í dag fann ég ÞVÍLÍKA rjúpnalykt og fékk vatn í munninn og læti. Var meira að segja næstum búin að renna á lyktina og stela steikinni...munað MJÖG litlu. Sveinbjörn náði að hemja mig með því að segja að þetta væri eins og hrossalykt - lamdi hann að vísu fyrir það. Guð hvað ég öfunda fólkið.
Ykkur til mikillar ánægju hef ég þó einsett mér að hætta að væla yfir þessu og vera bara sterk - ég get þetta. Dagurinn hefur annars bara farið í lærdóm og skemmtilegheit. Þvoði þó ekki neitt í dag enda óhreinatauskarfan tóm eftir duglegheit gærdagsins. Í dag lærði ég meðal annars að börnin mín ættum samkvæmt rannsóknum að vera bæði hjálpsamari og meira leiðbeinandi en börnin ykkar. Það er mjög líklegt að ykkar börn verði annað hvort beitt of miklu harðræði ( þeir sem hafa lágar tekjur aðallega) og verði þar af leiðandi líklegri til að láta undan freistingum þegar þær bjóðast - reykja sem sagt og drekka mikið. Ef þið leyfið börnunum ykkar að ráða sér sjálf og gefið þeim allt er líklegt að þau verði taugaóstyrk og vanti aðhald. (Bróðir þinn Robbi). Fólk sem menntar sig í þessum skemmtilegu fræðum verða hins vegar leiðandi foreldrar, útskýra reglur fyrir börnunum sínum og hlusta á útskýringar þeirra. Ég er reyndar ekki alveg sammála þessu en.... Frændi minn er reyndar sálfræðingur og elur börnin sín einmitt upp með þessu leiðandi kerfi - verður gaman að sjá hvað verður úr þeim. Jafnframt komst ég að því að ég er ekki góð að búa til lærdómsáætlanir, þær bregðast alltaf. Veit ekki hvað ég geri vitlaust! Átti sem sagt að komast yfir að glósa 4 kafla í dag en so far er ég bara búin með tvo og klukkan að verða 10... Það sem drepur mann ekki herðir mann víst... Ég vildi óska að maður ætti bara að skila verkefnum í skóla og allt sem heitir próf yrði lagt niður. Annars gekk mér bara frekar vel í prófinu sem ég fór í síðustu helgi - kom mér á óvart. Próf eru samt afkvæmi djöfulsins. Hafið það gott... Hafdís skrifaði klukkan 9:43 e.h. |
26.11.03
Lærði frekar mikið í dag. Núna er hægt að yfirheyra mig um allt sem tengist geðsjúkdómum. Var líka dáldið klár yfir bráðavaktinni áðan ;)
Skemmti mér þó við að þvo þvott, hengja upp úr vélinni og taka úr þurrkaranum í dag og svona til að setja punktinn yfir i-ið tók ég smá til í fataskápnum hans Sveinbjörns. Þetta var sem sagt mjög skemmtilegur dagur hjá mér í dag. Þeir sem vita ekki hvað kaldhæðni er mega vinsamlegast spyrja hann. Fleira er ekki í fréttum að sinni, fréttir verða næst sagðar eftir heilann dag. Hafdís skrifaði klukkan 10:45 e.h. |
24.11.03
Ég er búin að finna jákvætt atriði við rjúpnabannið. Ég hef áður sagt að það verði engin jól sökum rjúpnaskorts og hef mikið verið að velta fyrir mér lausn á þessu erfiða vandamáli. Mamma er búin að koma með uppástungur um að elda hreindýrakjöt en það þykir víst keimlíkt rjúpukjötinu. Sjálfri datt mér í hug að hafa bara svartfugl þar sem mér finnst hann góður og honum svipar til rjúpu á bragðið. Fjölskyldan mín er vön því að borða rjúpur tvisvar á ári, á aðfangadag og svo á gamlársdag. Ég fór að hugsa um þetta í gær og komst í framhaldi af því að þeirri ályktun að víst að það verða ekki jól þá verða heldur ekki áramót og ég eldist þar af leiðandi ekkert fyrr en rjúpnabanninu verður aflétt og verð því 22 ára næstu 3 árin í viðbót - : ) Get ekki líst því hvað ég var glöð þegar ég komst að þessu, finnst nefnilega alveg svakalegt að hugsa til þess hvað árin líða hratt. Næst þegar ég borða rjúpu verð ég því ekki 25 ára heldur 22 og þá er þetta nú barasta alls ekkert svo langt.
Spurning dagsins er svohljóðandi: Hvernig kom ég mér í skólann þegar ég var í MS? Á þessum 4 árum fór ég aðallega í skólann á tveimur faraskjótum - hverjum? Aukaspurning gefur aukastig - undantekning frá þessu voru 3 vikur, hvað gerðist þá? Í framhaldi af svarinu við aukaspurningunni má koma með getgátur um fyrir hvað ég var þekkt í MS - já ég var einu sinni þekkt ; ) Held að þetta sé bara erfiðasta þrautin til þessa! Hafdís skrifaði klukkan 1:43 e.h. |
23.11.03
Í tilefni þess að ég fer svo sjaldan í bíó hef ég farið tvisvar í þessari. Við fórum með Rakel og Himma á Kill Bill á miðvikudaginn og ég get ekki annað sagt en að þessi mynd sé snilldin ein. Þvílíkt flott atriði - heldur blóðug fyrir minn smekk en ég lifði, geðveik tónlist - er einmitt með bang gang hit the floor á heilanum ennþá og svo er myndatakan ein sú besta sem ég hef á ævinni séð. Ég er reyndar bara nýfarin að pæla í henni en þarna tók maður svo sannarlega eftir því. Mjög mörg atriði sem aldrei gleymast og þvílíkt flott bardagaatriði. Samt var hún ekki það ógeðsleg að mér liði eitthvað illa þar sem þetta er ekki haft það raunverulegt. Skildi eftir myndina hvert þessir 1000 lítrar af blóði fóru. Get ekki beðið eftir framhaldinu - og ég sem ætlaði ekki að fást til að fara.
Núna rétt í þessu vorum við svo að koma heim af Scary Movie 3 - hún var ágætis afþreying en ekkert meira en það. Pamela Anderson fer reyndar á kostum og ég segi fyrir mitt leyti að hún hafi aldrei sýnt betri leik enda fædd í hlutverkið! Þvílík B R J Ó S T... Flest góðu atriðin eru í trailernum eins og vanalega en ég gat samt alveg hlegið að nokkrum þeim til viðbótar. Samt voðalega vitlaust allt saman! Veit ekki hvernig mér gekk í prófinu í dag, það var heldur strembið. Fékk samt mjög góða einkunn fyrir ritgerðina mína sem ég skrifaði um áhrif erfða og umhverfis á greind, mjög ánægð með það þar sem meðaleinkunin er víst alltaf í kringum 3-4. Er að hugsa um að taka upp aðferð Robba og skrifa allt sem mér dettur skemmtilegt í hug inn í símann minn, datt eitthvað voða sniðugt í hug í fyrradag en er náttla búin að steingleyma því. Steingleymdi að hrósa happi yfir sigri Jen í Bachelor, ég hélt sko með henni en ekki þessar undirförlu druslu. Leiðinlegt þegar fallegt fólk verður ljótt þegar maður kynnist persónuleikanum, jafn leiðinlegt og þegar ófrítt fólk verður fallegt vegna yndislegs persónuleika. Mér fannst Jen fríkka með hverjum þættinum, virtist vera svo indæl. Ég vona að þau verðir hamingjusöm. Hafdís skrifaði klukkan 12:47 f.h. |
21.11.03
Ég hef greinilega fleiri kæki en ég ályktaði upphaflega. MUN FLEIRI.
Held að listinn hans Sveinbjörns hafi þó meira verið það-sem-fer-í-taugarnar-á-mér-sem-Hafdís-gerir. Ég á það nefnilega til að syngja lög í bílnum sem eru alls ekki í útvarpinu eða er aðeins á undan laginu...svo á ég það líka til að flauta þegar spennandi atriði eru í bíómyndum... Hann hefur oft hlegið af því að einu sinni kom hann í Sal 1 í Háskólabíó til að sækja mig, þar inni vorum svona 400 viðskiptafræðinemar og það tók hann ekki nema 2 sekúndur að finna mig - ég var nefnilega að snúa upp á hárið... Ætli ég verði ekki bara að fá mér hárkollu og gervineglur... Ég er að reyna að hætta að ,,blaka" vængjunum þegar ég undirbý mig undir stökk - geri það með því að stökkva ekkert. Held að ég sé bara svona OFUR kvenleg! Það að klóra er ekki kækur heldur sjúkdómur sem heitir EXEM. Reyndar barnaexem en ég er ennþá barn... Kláraði að reikna öll tölfræðidæmin mín í gær - dugleg og á þá bara eftir að fara yfir aðferðafræðina! Er búin að vera hálfslöpp síðan í fyrradag, með kvef og hausverk og leiðindi. Ekki ánægð með þetta. Held ég sé líka búin að smita Sveinbjörn, ég hélt vöku fyrir honum í alla nótt með látum og nefsogum - ekkert smá erfið kærasta. Næst fer ég að snúa upp á hárið í svefni og naga neglurnar - er ekki ennþá byrjuð á því! Jæja, þetta gengur ekki lengur... Hafdís skrifaði klukkan 2:06 e.h. |
19.11.03
Ekkert smá erfitt að gera verkefni sem maður skilur mest lítið í, ég er að gera rannsóknarskýrslu og hef ekki HUGMYND um hvað ég er að gera - gott etta.
Ég er orðin fræg, fyrir ykkur sem vissuð ekki af þessari skyndilegu frægð minni bendi ég á íþróttasíðu morgunblaðsins. Frændi minn sem les íþróttablaðið alltaf bara til að leita að mér, hann þykist vita að ég birtist einhvern tímann þar, varð áreiðanlega mjög glaður maður í gær. Núna get ég loksins farið að klippa út í úrklippubókina mína ; ) VEI! Spurning dagsins: Ég er með nokkra kæki, nefndu tvo þá mest áberandi! Eins og áður er mikill heiður og virðing í boði fyrir þann sem svarar rétt! Hafdís skrifaði klukkan 2:10 e.h. |
18.11.03
Sambandslaus við umheiminn hef ég verið undanfarna daga - what else is new?
Helgin mín var sérlega notaleg. Við Sveinbjörn tókum Charlie's Angels FULL THROTTLE og ég var svo mest hneyksluð alla myndina, þetta er mesta bull og vitleysa sem ég hef nokkurn tímann séð og ég hélt að ég hefði séð margt. Hefði frekar nennt að horfa á allar þrjár MATRIX myndirnar heldur en að horfa á þetta bull, held meira að segja að MATRIX sé SKEMMTILEG í samanburði. Textinn minn hér að neðan hefur greinilega hneykslað margan manninn, ég hafði nú bara sérlega gaman af því. Sérstaklega hafði ég þó gaman að XO sem gat ekki srkifað undir nafni, ég þekki því miður engan með því nafni og tek því ekki hót mark á hans/hennar orðum. Sá hinn sami hefur líka ekki góðan smekk víst að myndirnar af Sveinbirni eru ekki að hans skapi - mér finnst hann svo sætur á þeim ;) Tók upp á þeim ósóma að leggja mig í morgun og þó að mér finnist mjög erfitt að viðurkenna það var það ótrúlega gott...ótrúlega. Er búin að vera að gera minnistilraun í sálfræði og nýddist á nokkrum krökkum sem eru að æfa með mér í gær og svo nýtti ég mér saklausar vinkonur mínar í fríhafnarnammifjöri í gær - ein úr saumaklúbbnum var að koma að utan og bauð okkur í dýrindis nammi, þar sem ég er svo þykk fékk ég mér þó ekkert - dugleg! Er í þessum skrifuðu að vinna úr rannsókninni minni og verð ég að segja svona fyrirfram að ég telji að hún komi bara vel út, hlakka til að skoða gögnin þegar ég hef sett þau upp í töflu og svona fíneríi. Við Sveinbjörn vorum að fá aðra íbúð, stærri. Það munar heilum 18 m2 og við fáum sérinngang og allt ;) Flytjum inn 5.janúar og hlökkum mikið til! Þá verður kannski eitthvað úr þessum innflutningspartýi sem eitthvað hefur dregist á langinn... Ég á víst að vera að gera skýrslu, segi þetta því gott í bili. P.S ég tel engar líkur á því að Tinna sé dóphaus, var nú eiginlega bara að fíflast með þetta allt! Vona bara að hún hafi góð áhrif á kærastann sinn og haldi honum þurrum ; ) Hafdís skrifaði klukkan 3:50 e.h. |
15.11.03
Eftir IDOL í gær dró ég ERNU mína aðeins með mér út á lífið. Tilgangurinn var að hitta hann Sveinbjörn en þar sem hann Sveinbjörn var orðinn dáldið drukkinn varð sú athöfn heldur erfiðari en ætlast var til. Það gekk þó að lokum og tókst okkur að dansa smá og tralla niður í bæ áður en undirrituð gafst upp á mannfægð og dröslaðist heim.
Í dag er ég frekar pirruð þar sem ég verð alltaf þunn þegar ég fer edrú niður í bæ en ef ég fæ mér aðeins í glas gerist ekkert slíkt. Er sem sagt með leiðindahausverk og er frekar pirruð, erfitt að læra þegar hausinn er ekki til friðs, get lesið og lesið án þess að hafa hugmynd um hvað ég er að lesa - held að þetta sé einhvers konar náðargáfa. Gleðst mjög yfir því að fullt af fólki viti hvað uppáhalds morgunmaturinn minn er. Í nokkurn tíma hef ég beðið eftir því að Nathan & Olsen bjóði mér auglýsingasamning fyrir hönd Cheerios á Íslandi. Ég myndi glöð uppljóstra því að allur minn einstaki árangur sé þessi stórgóða morgunkorni að þakka og að ég hafi aldrei notað sykur út á hringina mína þar sem ég myndi ekki tíma að skemma einn disk. Ég myndi líka bæta því við að versti tíminn í mínu lífi hafi verið um og eftir hálskirtlatökuna mína þar sem ég mátti ekki borða Cheerios - sorgarsaga alveg hreint, enda hefur mér sjaldan liðið jafn illa, snökt, grát og grenj. Skil barasta ekkert í þeim, afrekskona eins og ég! Eins og ég ýjaði að hér að framan horfði ég á IDOL í gær eins og alla aðra föstudaga og skemmti mér hreint ágætlega. Vissi reyndar fyrirfram hvernig úrslitin færu en það dregur ekkert mikið úr spennunni. Hef reyndar alltaf vitað hvernig þetta fer - gæti verið forspá! Heyrði reyndar áðan að hún Tinna Marína væri dóphaus sem gladdi mig ekki lítið þar sem hún reyndi að stela þessu af mér. Samkvæmt þessu og þessu passa þau bara ágætlega saman... Ég læt hann þó ekki svo auðveldlega af hendi rakna og hún færi ekki vel út úr baráttunni við mig held ég, dóphausinn! Er þetta ekki bara orðið gott í bili? Hafdís skrifaði klukkan 4:33 e.h. |
14.11.03
Ég held að seinasta færslan mín hafi bara verið sú allra leiðinlegasta í sögu bloggsins, mér datt bara ekkert í hug fyrr en eftir að ég hætti í tölvunni - gott etta.
Horfði á Bachelor í gær og það er alveg með ólíkindum hvað stelpur eru stelpum verstar. Þessi þjóðflokkur er ótrúlegur, ég er svo alls ekki að segja að ég sé ekki svona því að ég veit að ég er það, það er samt erfitt að horfa á þetta svona í lit. Mér finnst líka hún Kirsten vera algjör tík, hún er svo kjaldrifjuð og asnaleg eitthvað. Er samt alveg viss um að hann velji hana og ég segi að þau skilji fljótlega. Ef hann hefði eitthvað vit í kollinum myndi hann velja JEN. Ég er að hugsa um að byrja með nýjan lið inn á þessari síðu, koma með spurningar sem þið eigið svara og það sem þær eiga sameiginlegt er að þær fjalla um sjálfa mig ; ) Getur ekki klikkað... Fyrsta er svohljóðandi (frekar létt svona í byrjun) Sá sem svarar fyrstur fær ekki bara aukna virðingu heldur flyst sá hinn sami líka ofar á vinalistann minn (sem er bara hugarburður minn) Hvað hef ég borðað á hverjum degi síðan ég var 2 ára og stundum oftar en einu sinni á dag? Hafdís skrifaði klukkan 4:01 e.h. |
13.11.03
Einn kennarinn minn eyddi í dag korteri af tímanum í að útskýra fyrir okkur út frá einu grafi að könnun á meðal nemenda sýndi að meirihlutanum fyndist yfirferðin hæfilega hröð og að fæstum fyndist hún of hæg þrátt fyrir að hún hefði fengið póst þess efnis að yfirferðin væri alltof hæg. Mér fannst soldið skondið hjá henni að útskýra þetta fyrir okkur svona lengi, þar sem flestir sem eru með yfir 70 í greind voru búnir að skilja þetta á 2 mínútum í mesta lagi og þá tel ég með 1 og hálfu mínútuna sem fólk notaði til að spjalla í upphafi tímans. Gaman að þessu!
Hafdís skrifaði klukkan 9:27 e.h. |
11.11.03
Ég gleymdi náttla að setja teljarann inn þegar ég breytti síðunni um daginn, frekar fúl. Ef þið viljið vita afhverju ég er stundum pirruð getið þið lesið þennan pistil hér Hann ætti að útskýra allar ykkar spurningar.
Ritgerðin gengur bara ágætlega, er samt drullu hrædd við að gleyma einhvers staðar tilvísun og fá brottvikningu úr skóla fyrir vikið - verð samt að vona það besta! Ætla að helst að vera komin langleiðina kl.5 svo back to business... Hafdís skrifaði klukkan 4:12 e.h. | Ég vildi að erfðir og umhverfið hefðu haft þau áhrif að ég hefði meiri greind til að skrifa ritgerð um hvaða áhrif erfðir og umhverfi hafa á greind. Er að mestu leyti búin að ákveða hvað ég skrifa en það er bara déskoti erfitt að tengja það saman. Svo þarf þetta allt að vera svo tipp topp, kommur á réttum stað, heimildaskráin gallalaus og svona skemmtilegheit. Ég get þó huggað mig við að ég er búin með forsíðuna og er að gera heimildaskránna jafn óðum og bæti tilvísunum inn um leið og ég skrifa svo að ég þarf ekki að gera neitt nema lesa yfir þegar þessu líkur. Ég er örugglega komin með eina blaðsíðu af þremur og fer að komast á flug ; ) VONANDI. Tók fyrstu æfinguna mína í gaddaskóm í gær og er heldur stíf fyrir vikið í dag, fór líka í smá grindahlaup og þess vegna er ég ennþá stífari en ætla mætti. Komst að því í gær að það er mjög sniðugt að æfa einn, hljóp 2x300 með ,,hinum" og Kristín Birna fór fyrir okkur á 80% hraða en það misfórst eitthvað hjá henni þannig að flestir voru vel þreyttir eftir fyrri sprettinn og lærin mín kvörtuðu undan sýru - enda engin smá stykki þar á ferðinni. Ég tók síðan seinni bara eftir mínu nefi og hann gekk mun betur. Í framhaldi af umræðum hér að neðan mæli ég eindregið með því að Erna og Bergur stofni matarklúbb. Hér með er það komð til skila, þeir sem hafa áhuga á matargerð fá áreiðanlega inngöngu. Mælst er til þess að þeir hinir sömu aðhyllist hollan mat og setji nammi ekki inn fyrir sínar varir! Hafdís skrifaði klukkan 1:17 e.h. |
10.11.03
Ég fékk svohljóðandi sms um daginn:
Ertu búin(n) að kjósa? Munið, eindagi 7.nóv. Kveðja, FBM. Fékk þetta skilaboð á meðan ég var að tala við mömmu í símann og spurði hana hvort hún vissi hvað FBM væri. Hún vinnur í Prentsmiðjunni Odda og svaraði því að bragði, félag bókagerðarmanna. Við hljógum nú bara að þessu og núna rétt í þessu mundi ég eftir því að athuga hverjum númerið tilheyrði og hvað haldið þið, Félag bókagerðarmanna er skráð fyrir þessu símanúmeri svo að mamma er bara alls ekkert svo galin. Reyndar veit ég ekki afhverju ég ætti að borga í félagið þeirra þar sem ég er ekki bókagerðarmaður, langt fá því. Myndi frekar halda að ég væri bókaormur ef eitthvað er. Mér líður miklu betur nú þegar ég veit frá hverjum þetta var og get því farið að skrifa ritgerðina mína á fullu... Hafdís skrifaði klukkan 2:58 e.h. | Þarf að hrista eitt stykki ritgerð fram úr erminni í dag. Hef ákveðið að eyða ekki lengri tíma til að skrifa hana en nemur deginum, þarf nú samt auðvitað að fara á æfingu og svo eru nokkrir skemmtilegir þættir í kvöld, svo að ég skrifa hana bara á 5 tímum - það ætti nú ekki að drepa mig. Gerði mjög svo heiðarlega tilraun til að lesa heimildirnar um helgina en önnur greinin sem ég átti að lesa (30 bls) var svo DREP leiðinleg að ég gat ekki lesið nema bút og bút í einu og endaði á því að lesa valda búta og sleppa meirihlutanum. Komst svo að því í skólanum í morgun að fleiri en ég notuðu sömu aðferð. Guðný misreiknaði sig aðeins á dögum, hélt að við ættum að skila eftir viku og því stendur hún væntanlega í ströngu í dag að lesa heimildir og skrifa. Auk þess gerði ég heimildanotkunarverkefnið fyrir okkar beggja hönd og því vefst það áreiðanlega soldið fyrir henni - en hún er svo klár að þetta bjargast. Helgin var bara hin rólegasta eins og sjá má af færslunum hér að neðan. Í gær var ég bara heima hjá mömmu og pabba að horfa á fótbolta og hafa það gott á meðan ég reyndi að lesa leiðindin. Í gærkvöldi var svo saumaklúbbur hjá Guðrúnu Ingu og tókst hann sérlega vel. Mér tókst alla vega að borða á mig gat og sulla helmingnum af bláberjaostakökunni í kjöltuna á mér - mjög mikið ég. Þetta vakti að sjálfsögðu mikla kátínu viðstaddra og því miður náðust heimildamyndir af þessu. Ég fór því frekar seint að sofa í gær og vaknaði mun fyrr en seinustu daga - seinustu daga hefur talan 11 verið það fyrsta sem ég sé ; ) Eins og gerist og gengur í saumóz var mikið slúðrað og þar ber hæst að nefna að Birgitta Haukdal er víst forfallin kókaín-neytandi og er víst í meðferð - ég trúi því reyndar seint en... og svo á hann Jónsi félagi hennar að vera orðinn hommi og félagi hans er víst Svavar Örn klippikarl - ég trú því reyndar heldur ekki. Ótrúlegt hvað slúður er sterkt á Íslandi. Stórar fréttir í mínu lífi eru svo þær að ég er að hugsa um að falla frá öllum mínum fordæmingum og éta ofan í mig margar, margar greinar sem ég hef skrifað og skella mér á Grease með mömmu. Eftir Djúpu-laugar þáttinn sem Jónsi og Birgitta stjórnuðu held ég að ég þurfi að fara að sjá þetta með eigin augum og gagnrýna svo... Ég er reyndar mjög þrjósk og því ótrúlegt að ég falli svona frá skoðunum mínum. Samkvæmt sálfræðinni hefur hér skapast misræmi og til þess að leiðrétta þetta misræmi þarf ég að breyta hegðun minni eða skoðunum. Þar af leiðandi þarf ég að breyta skoðunum mínum til að geta farið á Koppafeiti. Hér með er ég búin að því og það skjalfest. Ritgerðin bíður mín hins vegar. Held að það sé gáfulegt að ég fái mér smá í svanginn og horfi á Dhörmu og Greg áður en ég sest við skriftir. Áhrif erfða og umhverfis á greind - here I come... Hafdís skrifaði klukkan 12:27 e.h. |
8.11.03
Var ég nokkuð búin að lýsa hneykslun minni á því að það sé bara hægt að kaupa vatn á Hverfisbarnum. Það kostar heilar 150 krónur og kemur í flöskum. Mín var ekki ánægð þegar barþjóninn tilkynnti þetta nýja fyrirkomulag. Í raun finnst mér ekkert nema eðlilegt að það kosti eitthvað að fá vatn þar sem þeir leggja til glös og klaka en mér finnst 150 krónur heldur mikið. Afhverju geta þeir ekki bara keypt plastglös og selt þau á kostnaðarverði eða aðeins dýrar. Finnst fáránlegt að refsa þeim sem ekki drekka með því að rukka verðið á vatni. Heldur ekki gott fyrir fylliraftana þar sem mikilvægt er að drekka vatn fyrir svefninn og því allmargir sem enda á því að drekka vatn og þar á meðal er undirrituð. Hún hefur fyrir reglu að sofna aldrei undir áhrifum áfengis og hingað til hefur það undantekningalítið tekist. Það er mun skemmtilegra að vakna daginn eftir hress sem fress.
Jæja, ég er að fara að horfa á einhverja væmna þvælu. Ég er næstum búin að ákveða að grilla bara um jólin, held að það komi best út! Bý með sannkölluðum grillmeistara. Hafdís skrifaði klukkan 11:24 e.h. |
7.11.03
Síðan er Helgi Rafn sæti sæti í næsta þætti, það þarf mjög mikið að gerast til að ég kjósi hann ekki. Hann hefur ekki klikkað hingað til og ég reikna ekki með að hann geri það í næstu viku. Vá, ég er bara strax farin að hlakka til.Hafdís skrifaði klukkan 10:30 e.h. | 1. sæti með 24% greiddra atkvæða er Rannveig 2. sæti með 21% greiddra atkvæða er Ardís Ólöf 3. sæti með 16% greiddra atvkæða er Arndís Ósk Hvað sagði ég? Ég hef aldrei klikkað... Hafdís skrifaði klukkan 10:28 e.h. | Þetta var samt alltof jafn hópur, enginn sem var áberandi lélegri en aðrir. Ég hélt að dómararnir myndu velja í hópana svo að þeir yrðu jafnir. Fyrstu tveir voru jafnari, færri sem skáru sig úr! Þessi hópur var svakalegur! Hafdís skrifaði klukkan 10:16 e.h. | Ég held að Ardís og Rannveig komist áfram, get ekki giskað á hvor verður hærri þar sem þær voru báðar mjög góðar. Hafdís skrifaði klukkan 9:47 e.h. | áður en úrslitin koma spái ég því að Ardís Ólöf, Rannveig og Oddur Carl komist í úrslit. Þegar þetta er skrifað er seinasti keppandinn ekki búinn að syngja lagið sitt en ég er að hlusta á það á netinu og hún kemst pottþétt ekki áfram. Fínt hjá henni en ekki eins gott og hjá hinum. Ætla að hlusta aftur á lögin hjá fyrri þremur áður en ég segi hver vinnur... Hafdís skrifaði klukkan 9:19 e.h. | Var líka að komast að því að lögin eru komin inn á tonlist.is áður en þau eru flutt í sjónvarpinu! Þetta styður skoðanir mínar enn frekar um að þetta sé upptaka!!! Hafdís spæjó. Hafdís skrifaði klukkan 9:15 e.h. | Ég vissi að IDOL poppstjörnuþættirnir væru ekki sendir beint út, gæjinn sem var rekinn úr keppni er þarna og hefur bara verið klipptur út úr sem flestum senum. Búin að halda þessu lengi fram en núna fékk ég staðfestinguna, ég er að vísu að horfa á þetta ruglað en ég held að ég sjái þetta nú samt...er það ekki annars? Hafdís skrifaði klukkan 9:04 e.h. | Letidagur dauðans í dag. Sváfum endalaust í morgun, veit ekki alveg hvað er með þessa svefnsýki, er alla vega að verða frekar ÞREYTT á því að vera þreytt. Fór í prófsýningu í dag og komst að því afhverju ég klúðraði ritgerðinni. Í rauninni klúðraði ég henni ekkert, gleymdi bara að segja að ákveðið dæmi sem ég tók væri dæmi um misræmi í kjölfar hlýðni og fékk því ekkert fyrir það, hefði átt að fá svona helmingi meira fyrir ritgerðina en þetta er ekki menntaskóli, maður verður að útskýra allt sem maður gerir og segir, fær ekki stig fyrir það sem þú skrifar því að kennarinn veit hvað þú meinar. Ég verð bara að taka því eins og manneskja. Reiknaði út hvað ég hefði fengið fyrir krossana ef ekki væri dregið niður fyrir rangt svar - hefði hækkað um tæplega 1 heilann. Gaman að vita hvað maður getur, var oftast að hugsa rétt í sambandi við krossana, klikkaði á 1 og 2 eru réttir eða 1, 2 og 3 eru réttir yfirleitt. Gott að vita hvað maður getur! Spurði sem sagt konuna hvað ég hefði gert vitlaust í ritgerðinni og núna veit ég það og því sé ég ekkert því til fyrirstöðu að ég brilleri á næsta prófi ;) Við Sveinbjörn fórum á íþróttavöruútsölu í gær og töpuðum okkur, keyptum fyrir ALLTOF marga peninga. Ég fékk til að mynda 9000 króna afslátt af mínum vörum - frekar nett! Ekki á hverjum degi sem ég kaupi mér íþróttaföt, sérstaklega ekki fín íþróttaföt. Held að ég verði alveg í vandræðum með að finna í hverju ég eigi að fara í dag...ætli ég máti ekki bara dressin og velji það besta! Við Sveinbjörn fórum á Vöruhótel Eimskipa í dag, ekkert smá stórt hús, og heilmikið vesen að komast að því og að fá það sem maður ætlaði að fá en samt einfalt þegar maður hefur gert það einu sinni. Hef ekki alveg ákveðið hvað ég ætla að gera í kvöld, IDOL heillar mjög heima hjá MÖMMU MINNI en Sveinbjörn er að stjórna einhverju Bingói í kvöld og mér finnst BINGÓ skemmtilegt og því gæti farið svo að ég kíkji í BINGÓ og horfi bara á upptöku af IDOL seinna um kvöldið. Vill einhver koma með í BINGÓ? Endilega hafa samband! Hafdís skrifaði klukkan 4:39 e.h. |
6.11.03
Æ, ég gat ekki lagfært ljósu stafina svo ég setti bara upp bráðabirgðar síðu á meðan ég kemst til botns í stafaruglinu.
Verðið að sætta ykkur við litagleði þangað til, ég kolféll bara fyrir sæta stráknum... Mér finnst rigningin líka alveg ágæt!!! Nenni ekki meiru í bili, later... Hafdís skrifaði klukkan 3:57 e.h. | Ég held ég hafi aðeins náð að dekkja stafina, hef ekki tíma til að gera þetta fínna í bili - vona að þetta sé alla vega aðeins skárra. Gerði mér grein fyrir ómöguleika litasamsetningarinnar en gaf mér ekki tíma til að breyta þessu fyrr en núna og á ennþá eftir að fullkomna verkið. Þakka samt gagnrýnina - gaman að fá réttmæta gagnrýni. Ég er þó sérlega lélegur forritari og því er þetta SVOLÍTIÐ mál fyrir mína ; ) Skil samt ekki afhverju enginn nema Erna sér hvað ég yrði góð Trinity, aðeins stærri en sú upprunalega - á suma kanta alla vega, en annars held ég að ég myndi spjara mig! Hafdís skrifaði klukkan 3:10 e.h. |
5.11.03
Veðurguðirnir eru mér greinilega hliðhollir og svöruðu því bænum mínum um að hækka hitann um 5 leytið í gær. Fyrir það er ég þeim mjög þakklát og vona að þeir haldi þessum hita í einhvern tíma - athugið enginn ákveðinn gefinn upp!
Það er nefnilega öllu skemmtilegra að hita upp í +° en -°. Í gær var kalt fyrri hluta dags og því klæddi mín sig í tvennar buxur, tvennar peysur, væna vettlinga og derhúfu og kafnaði því úr hita þegar á hólminn var komið. Þess ber að geta að peysurnar tvær voru úr flísefni auk jakka og bols. Eftir æfingu í gær fór ég til að hvetja blakliðið mitt til sigurs. Ég hef ekki enn æft mig nógu mikið til að komast í liðið en minn tími mun koma! Ég hef að vísu engan sérstakan áhuga á að keppa í stuttbuxum fyrir framan alþjóð (þessa 9 áhorfendur sem mættu). Sveinbjörn er sérlega upptekinn þessa dagana og því er mín bara ein í kotinu. Hef ekki farið í búð í ALLTOF marga daga og þarf að bæta úr því sem fyrst. Í þessum skrifuð orðum átti ég að vera að verlsa en þið hafið svona slæm áhrif á mig - skammist ykkar. Fékk niðurstöður úr sálfræðiprófinu mínu í dag og gekk MUN betur en í því fyrsta en samt sem áður dró ritgerðin mig aftur niður og núna um 0.6. Skil ekkert hvað er að gerast þar sem mér gekk ljómandi vel með ritgerðina og áður en ég hóf nám á sálfræðibraut hafði mér yfirleitt gengið betur með ritgerðir en annað. Ég þarf að kynna mér heimsku mína á föstudaginn. Finnst gott að krossatæknin mín sé að lagast þar sem mér gekk ljómandi vel með krossana. Veit að ykkur fannst þetta sérlega áhugavert. Þakka gestabókarskrifurum af öllu hjarta fyrir falleg orð - þið eruð yndi. Ég þarf að drífa mig á æfingu, góðar stundir. Hafdís skrifaði klukkan 4:59 e.h. | Var að henda inn nýjum tenglum. Erna, Óli og saumaklúbburinn minn hafa gert ýmislegt gott til að verðskulda þá... Hafdís skrifaði klukkan 4:53 e.h. |
4.11.03
Frekar spookie hvernig þeir vita hvað tölu maður er að hugsa um...kíkið á þetta!
Fyrst hélt ég að þetta væri bull þegar hann kom ekki með réttu töluna en þá kom í ljós að ljóskan hún ég gerði smá mistök. Annars er bara verið að skipta um hurðir í húsinu mínu og þessir duglegu verkamenn ráða við EINA hurð á dag. Verða sem sagt út nóvember og aftur í janúar að klára að skipta. Þeir taka líka frekar furðulega röð á þetta - virðist vera nokkuð random. Hélt að þeir ættu að geta skipt um tvær hurðir hlið við hlið en NEI. Ég flúði upp í skóla þar sem hávaðinn var heldur mikill fyrir mig - svo er ég líka einstaklega dugleg að taka til í stað þess að læra. Jæja, best að sanna að ég geti lært á daginn - farin upp á bókasafn. Hafdís skrifaði klukkan 2:17 e.h. | Ákvað að athuga hver ég væri þar sem ég hyggst reyna að horfa á þessar myndir aftur með opnu hugarfari. Hvernig líst ykkur á - er þetta ég? ![]() You are Trinity, from "The Matrix." Strong, beautiful- you epitomize the ultimate heroine. What Matrix Persona Are You? brought to you by Quizilla Hafdís skrifaði klukkan 1:50 e.h. |
3.11.03
ALIAS er sem sagt búinn!
Tókum góða æfingu í dag, frekar ljúft að taka smá á og pústa smá! Annars var ég frekar dugleg að læra í dag - eins og vanalega. Las 5 blaðsíður á milli þess sem ég þreif klósettið, gekk frá þvottinum, blöðum sem ég var hætt að lesa, internetsnúrunni og uppvaskinu. Ég get fundið mér ótrúlegustu hluti að gera þegar ég er í HLÉI frá bókunum...Í prófum tek ég undantekningalaust til í fataskápnum - gerist sem sagt tvisvar á ári og þess á milli fer hann FREKAR mikið í rúst. Alltaf gaman að finna föt sem maður var búinn að gleyma að maður ætti. Ég er þó ekki búin að gleyma tights-buxunum, bolunum og hinu dótinu sem ERNA DÖGG er með í láni hjá mér. Í mínum fataskáp luma ég líka á tveimur bolum sem hún á sem ég hef ekki not fyrir lengur - dottnir úr tísku ; ) Mátt endilega taka dótið mitt með á æfingu í vikunni elskan! Þið hin sem eruð ekki með neitt í láni hjá mér megið endilega lána mér eitthvað ef þið viljið. Mig vantar soldið flotta kápu svo að...þið vitið símann! Annars er ég bara pirruð yfir kuldanum, þarf að taka 10x100 á morgun og ég nenni ekki að vera í milljón fötum á meðan svo að það er eins gott fyrir veðurguðina að vera búin að hækka hitann úr -7° fyrir kl.17:30 á morgun. Með fyrirfram þökk Þín Hafdís Ósk. Hafdís skrifaði klukkan 11:30 e.h. | Það er megavika á Dominos þessa vikuna og því finn ég mig knúna til að segja frá því að um daginn pantaði Sveinbjörn pizzu og ekkert með það nema að hann hafði heyrt að það væri megavika. Þegar hann hefur lokið við pöntunina - eina dominos extra- segir stúlkan að þetta kosti tvö þúsund og eitthvað krónur. ,,Bíddu er ekki megavika" segir þessi elska og þá svara hún ,, bara fyrir þá sem vita af því." Á undan okkur í röðinni var svo kona sem borgaði fúlgu fjár fyrir pizzuna sína og horfði svo á okkur borga 1000 kall fyrir okkar - ég hefði verið lengi að ná afgreiðslustúlkunni úr taugunum á mér. Finnst þetta frekar skítt hjá þeim samt sem áður að bjóða bara þeim sem vita af megaviku upp á megaviku. Okkur fannst þetta alla vega soldið skrýtið. Ég hélt e.t.v að stelpan hefði verið að rugla eitthvað í Sveinbirni þar sem hún hefði gert mistök en þegar ég sá fólkið á undan okkur og á eftir okkur sá ég að hún var ekkert að bulla. Ég er ekki alveg viss hvað markaðsfræðin segir um þessa þjónustu en hjá mér fær hún ekki marga punkta - þó fleiri en hún hefði fengið ef ég hefði ekki fengið pizzuna á 1000 kall! Hafdís skrifaði klukkan 11:24 e.h. | Ætlaði að skrifa en þarf að fara að einbeita mér að ALIAS - svo að þetta verður að bíða betri tíma... Hafdís skrifaði klukkan 10:22 e.h. |
2.11.03
Ég veit ekki hvað amar að mér þessa dagana. Ég er bókstaflega alltaf þreytt - nema seint á kvöldin þegar ég á að fara að sofa. Þá er ég frekar spræk bara! Held að ég sé komin með Sigurjóns-syndrome. Líst ekkert á þessa þróun. Náði að lesa svona 5 blaðsíður í dag áður en augun á mér fóru að mótmæla, svo fórum við aðeins í heimsókn til tengdamömmu og þar var ég hálf sofandi yfir Leicester - Blackburn, náði varla að halda augunum opnum. Samt get ég ekki lagt mig á daginn, skil barasta ekkert í þessu. Reyndar hef ég gleymt að taka lýsið mitt tvo daga í röð sem hlýtur að skipta einhverju máli þó reikna ég ekki með að það skipti sköpum þar sem ég var líka þreytt í síðustu viku og þá tók ég samviskusamlega inn lýsið mitt.
Reyndar hef ég verið að íhuga framtíð mína síðustu daga og fiskar (stjörnumerkið mitt) eru víst ekki þeir bestu í að taka ákvarðanir. Þetta lýsir sér sérstaklega vel þegar ég er að stinga upp á kvöldmat handa okkur skötuhjúunum, kem alltaf með svona 5 hugmyndir en get ómögulega valið eina - greyið Sveinbjörn. Leyfi honum svo að ákveða en vel svo eitthvað annað... Við höfðum það bara gott í gærkvöldi, vorum heima í Skipasundi og fengum heimatilbúna pizzu, köku og brauðrétt - frekar ljúft. Mamma er svo myndarleg! Í kvöld er stefnan tekin á spólu og notalegheit. Confidence varð fyrir valinu í sérlega litlu úrvali Bónusvideós! Sveinbjörn er orðinn eitthvað æstur, kominn með súkkulaðirúsínurnar og er að horfa á Beoncie Knowles fáklædda...held ég setji spóluna bara í.... Hafdís skrifaði klukkan 8:02 e.h. |
1.11.03
Fór óvænt út á lífið í gær þegar Rakel vinkona mín hringdi í mig frá Hverfis í þvílíku stuði. Var þó ekki langt fram á kvöld þar sem ég er enn þreytt eftir lítinn svefn undanfarnar vikur. Skemmti mér þó mjög vel enda voru verkfræðinemar að koma úr haustferð og voru frekar hress og kát! Ég dansaði heilmikið og bætti mér þannig upp æfingaleysi dagsins. Í dag hygg ég hins vegar á mikar vegalengdir og ætla að draga Rakel með mér þar sem hún dró mig út í gær. Hún hefur gott af því að hlaupa af sér slenið.
Annars er ég bara þreytt og ætla að hafa það gott í fram að æfingu. Hafdís skrifaði klukkan 2:31 e.h. |
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||