|
|||||||||||||||||||
|
29.2.04
Úff, það var alveg brjálað að gera í dag. Þurfti að baka brauð, skella í rúllutertubrauð og baka sænska súkkulaðiköku, ryksuga og hafa mig til og allt þetta á mettíma.
Mamma kom svo með 2 kökur og einn heitan rétt. Þetta var svo mikið að ég bauð bara aukalega Bergþóri frænda, Ásdísi Maríu og syni þeirra Maríusi sem var mjög hress eftir allan sykurinn sem hann var búinn að innbyrða. Sóley frænka mín frá Egilsstöðum og maðurinn hennar kíktu svo líka við og því var brjálað stuð á Eggertsgötunni í dag. Síðan ætlaði ég að flýta boði með vinkonum mínum úr saumaklúbbnum um einn dag þar sem ég sá ekki fram á að ná að útbúa eitthvað handa þeim á morgun - er lengi í skólanum og svona. En þær þurfa greinilega meiri fyrirvara en 4 tíma og því verða þær bara að missa af kökum þetta árið. Ég er svo skrýtin að iðulega ef ég fæ boð um að kíkja í köku neita ég því ekki - enda sést það á mér ;) Þeir sem hafa áhuga á að borða leifarnar geta kíkt við í kvöld! Góðar stundir, Hafdís skrifaði klukkan 8:38 e.h. | Ef þið hefðuð átt að velja nafn á Náttúrufræðahúsið og hefðuð átt að velja af eftirtöldum hvað hefðuð þið valið? Askja Ljósheimar Mýrin Stuðlaberg Hafdís skrifaði klukkan 11:57 f.h. |
28.2.04
Ég skellti mér í sund í gær með þremur ofurskvísum í gær, Ernu Dögg, Kristínu Birnu og Sæunni vinkonu Ernu. Lenti í mjög áhugaverðum samræðum við þær um mataræði þar sem við vorum ekki allar sammála - ok, ég var sú eina sem var ósammála en það er ekki nýtt af nálinni!
Ég fór síðan niður í bæ og sótti strákinn minn á Pravda og við fórum snemma heim að sofa enda aldurinn farinn að segja til sín ;) Undirbúningur fyrir foreldraboð stendur sem hæst, ég dunda mér við að hringja í vinkonur mínar vítt og breytt um landið til að fá dýrindis uppskriftir. Á morgun hyggst ég baka Litlu Syndina sem er súkkulaðikaka sem er mjög blaut í miðjunni og geggjuð með ís og jarðarberjum. Síðan ætla ég að baka eplabrauð og alla vega einn heitan rétt og svo ráðfæri ég mig væntanlega við móður mína um restina. Gæti farið svo að ég biðji hana um að baka svo sem eina marengstertu fyrir mig og hana þarf þá væntanlega að baka í dag því eins og flestir vita er marengs betri þegar hann er búinn að standa í svolítinn tíma! Það mikilvægasta er reyndar eftir en það er að bjóða gestunum - það hefur einhverra hluta vegna farið framhjá mér að gera. Ég reikna þó ekki með að foreldrar og tengdaforeldrar mínir séu mjög uppteknir um miðjan dag á morgun! Reyndar er tengdamóðir mín í Svíþjóð í þessum skrifuðu orðum en þau hin eru væntanlega bara að hafa það gott. Hafdís skrifaði klukkan 2:02 e.h. |
27.2.04
Ég er vel geðveik...
Ég... er hrifnari af öllu heitu og hita því iðulega hluti í örbylgjunni. eins og til dæmis -ostaslaufur -pítsusneiðar -skinkuhorn -jógúrtkökur (möffins) og svo mætti lengi telja ýmislegt sleppur þó inn sem hinum almenna borgara dytti aldrei í hug að setja nálægt bylgjunum get til dæmis nefnt -skúffuköku -smákökur (ef það er súkkulaði í þeim) Mér finnst sem sagt í stuttu máli ostur betri bræddur og súkkulaði langtum betra, ég hef oft hitað kökur í örbylgjunni! Efast um að einhver geti toppað þetta... Hafdís skrifaði klukkan 4:29 e.h. | Ég er greinilega ekki mesta SPSS séní sem fyrir finnst, gleymdi meira að segja hvernig átti að skipta gögnum í hópa - geri aðrir betur en reddaði mér þó úr því. Heyrði á tal nokkurra krakka eftir prófið og þar spáðu þau sér í mesta lagi 4 - já, sanngjarnt mjög. Ég er að spá í að fara á æfingu í dag og dobbla e.t.v hana Ernu ofurskutlu til að fara með mér í sund! Hvar fær maður svona heilgalla eins og Örn Arnarson notar? Hafdís skrifaði klukkan 1:27 e.h. | Letin hefur heltekið líkama minna! Það eru tveir dagar síðan ég fór á æfingu síðast, ég nenni varla að standa upp úr sófanum og við Sveinbjörn þurftum að keppa um það hvort færi EKKI til að afla matar! Ég tapaði og fór... Reyndar sýndi ég smá hörku í gær þegar ég skellti í eina skúffuköku, Sveinbirni og Margréti vinkonu minni til mikillar ánægju! Ég brá líka út af vananum og var bara nokk dugleg að læra og vil ég þakka Margréti fyrir það aðhald sem hún sýndi mér, takk, takk. Við horfðum annars á Cold Mountain í gær, hún er bara ágætis afþreying en þó nokkuð fyrirsjáanleg. Fríðleiki Law tekur stakkaskiptum en Kidman er alltaf jafn fögur og fín - heldur grönn fyrir mig en... Ég er að fara í próf á eftir, próf í verklegri Tilraunasálfræði en hún felst í því að læra á tölfræðiforritið SPSS, mjög skemmtilegt. Æ, líf mitt einkennist af leiðindum þessa dagana! Ég er búin að prófa Burger King í Smáralind og verð ég að fullyrða að Burger King á Spáni er MUN betri og 100% ódýrari. Held að þetta sé ekki alveg sniðugt hjá þeim að rukka 849 krónur fyrir máltíð þar sem það er dýrari en að fara á American Style og stylinn slær burgarana út með léttum leik. Ég held mig bara við Subway í Smáralind! Hafdís skrifaði klukkan 9:50 f.h. |
25.2.04
Í örvæntingarfullri tilraun til að vera pæjuleg setti ég á mig gervineglur í gær. Eins og þeir sem þekkja mig vita er ég ekki með fallegustu neglur í geimi og því ákvað ég að taka til þessa ráðs.
Það hlakkaði svo í Sveinbirni í gærdag þegar ég ætlaði að fara að skrifa athugasemd á bloggsíðu. Honum fannst þetta ekki leiðinlegt og sá fram á að geta eytt meiri tíma með kærustunni sinni án þess að hún væri í tölvunni! Þar skjátlaðist honum, ég er eiginlega bara meira í tölvunni þar sem ég er ennþá lengur að skrifa með þetta drasl framan á puttunum... Minnkaði þær nú samt talsvert í gærkvöldi en til þess að ég nái upp mínum vanalega hraða þarf ég að minnka þær enn meira. Það er þó enn erfiðara að skrifa á fartölvuna þar sem takkarnir eru svo grunnir - ekki mikið pláss fyrir extra neglur. Ég hef heyrt af fleirum sem klúðruðu dönskunni á prófinu en veit ekki um neinn sem þurfti að lýsa mynd eins og ég - ég hefði nefnilega alveg bjargað mér með því að spjalla bara á dönsku í staðinn fyrir að lýsa brúðarkjól og hálsmeni. Bara rugl, skil ekki að þær láti það sama ekki ganga yfir alla! Ein kunningja,,kona" mín lenti líka í því að það tóku bara 2 viðtal við hana en ekki 3 eins og hjá mér. Það voru sem sagt 3 flugfreyjur í hvoru herberginu - nice! Engin pressa! Jæja, er hætt að velta mér upp úr þessu...þetta kemur í ljós eftir 2 vikur! Hafdís skrifaði klukkan 4:48 e.h. | Nú er orðið nokkuð ljóst að ekki verður mikið af flugfreyjudraumum mínum, dönskuslys er nóg til þess að rústa þeim draumum mínum og það að vita ekki hvernig seinasta sumar er á þýsku fyrr en ég heyrði það! Mér gekk ágætlega í því sem fram fór á íslensku en klúðrarði tungumálunum með þvi að byrja á íslensku fara yfir í þýsku og klára svo á dönsku - ekki snjallt move. Reyndar stjórnuðu þær á hvaða tungumáli ég talaði, en ég hefði átt að vera sniðug og byrja á dönsku, fara yfir á þýsku og klára á ensku þá hefði ég alla vega klárað með style í stað þess að tala þýska dönsku. Nafna mín bað mig nefnilega um að lýsa mynd sem var í blaði af brúði og brúðguma sem var með angistarsvip. Akkúrat á því augnabliki mundi ég ekki hvernig maður segir kjóll, jakkaföt, brúður, skartgripir, blóm, gulur, bleikur, grænn....þetta gekk sem sagt ekki alveg smurt! Þetta kemur bara næst, að ári verð ég búin að stúdera tungumálin eins og sumir sem ég frétti af! Hafdís skrifaði klukkan 9:17 f.h. |
24.2.04
Heimsóknarfjöldinn er að fara upp úr öllu valdi - ég er eðlilega mjög lukkuleg með það. Þætti vænt um ef þeir sem lesa síðuna mína án minnar vitundar skrifuðu í gestabókina!
Ég var upptekin af skýrsluskrifum í gær og síðan fór ég í fyrsta skipti á æfingu í marga daga og losaði mig við smá af aukaorku. Var alveg að springa á sunnudagskvöldið - úff. Reyndi að skrifa smá pistil hérna í gær en blogger var ekki alveg sammála því og að lokum gafst ég upp! Annars er ég að fara í tíma svo að skemmtilegheit verða að bíða betri tíma... P.S ég þvoði nokkrar vélar í morgun, vaskaði upp og gekk frá blöðum og dóti. Datt í hug að áhugasamir vildu heyra af þessu ;) Hafdís skrifaði klukkan 1:11 e.h. |
23.2.04
Helgin hefur farið í að vera með hausverk og að gera skýrslu í Lífeðlislegri sálfræði, upphaflega hélt ég að þetta væri skýrsla dauðans en í ljós hefur komið að þetta er bara alls ekkert svo leiðinlegt þegar maður kemur sér inn í þetta. Ég hef bara lúmskt gaman af sjónsviði og viðtakaskyni. Skýrslan er sem sagt um skynjun.
Ég tók mér samt frí frá náminu í gærdag og við fórum til mömmu í árlegt bollukaffi en það er siður heima hjá mér að borða bollur á sunnudeginum og taka restin með sér í nesti daginn eftir! Mjög svo sniðugt kerfi sem sagt! Við höfðum það svo bara gott fyrir framan sjónvarpið fram eftir kvöldi og Sveinbjörn gerði sér svo lítið fyrir og keypti dýrindis American Style handa liðinu og færði okkur mömmu jafnframt rós - hann er svo sætur þessi elska! Hann ætlaði að bjóða mér á dansnámskeið en það datt upp fyrir sökum slappleika okkar og einstakrar leti. Við förum bara seinna! Óska öllum þeim sem settu íslandsmet um helgina innilega til hamingju en það eru bara 6 stykki! Hafdís skrifaði klukkan 1:15 e.h. |
21.2.04
Far til Hveragerðis, Sigurjón sæfari-mjög gott
dúll fyrir mat, greiðsla-stress forréttur, humarsúpa-mjög góður aðalréttur, nautafillé-ágætt eftirréttur, ís-ekkert spes heiðursgestir-sérlega skemmtilegir skemmtiatriði-mjög góð herbergjapartý-sehr leiðinlegt ein inn í herbergi að horfa á Will og Grace-þægilegt Dans við Sveinbjörn m/haldi-hápunktur kvöldsins Gæjar sem fóru drukknir í sund í morgun-DAUÐI Svefn-hvað er það? Þetta er allt sem ég þarf að segja um árshátíðina, auk þess sem ég heiti því hér með að gista aldrei aftur á Hóteli eftir árshátíð heldur fara bara heim í rúmið mitt. Mæli ekki með Hótel Örk, rúmin eru vond og hljóðeinangrun þekkist ekki í orðaforða þess! Góða nótt Hafdís skrifaði klukkan 6:47 e.h. |
20.2.04
Hafdís flugfreyja?
Hafdís stóð sig greinilega nógu vel í inntökuprófinu og fer í viðtal n.k miðvikudag. Hún er að vonum mjög lukkuleg með þetta og vonar að hún geti verið pæja í einn dag og heillað þá sem taka viðtalið upp úr skónum! Hafdís skrifaði klukkan 10:43 f.h. |
19.2.04
Alveg týpískt - alltaf þegar ég hyggst vera dugleg hamlar veðrið mér. Var svo búin að ákveða að fara út að skokka í morgun þar sem ég missti af æfingu í gær vegna jakkafatakaupa og saumaklúbbs en þegar veðrið er svona er ekki séns að letibrækur eins og ég hætti sér út úr húsi!
Ég þoli ekki svona rok og rigningu, maður verður svo latur og nennir ekkert að fara út svo er líka svo leiðinlegt að skokka í þessu þar sem maður getur nánast hlaupið á staðnum. Vonandi verður búið að lægja í kvöld svo að ég geti skokkað almennilega af mér spikið fyrir morgundaginn en þá er einmitt árshátíð Verkfræðinema! Ég verð á borði með heiðursgestinum sjálfum, forstjóra Opinna Kerfa og frú, ég þekki hina á borðinu jafn vel og því verður áreiðanlega súper stuð hjá mér að tala við sjálfa mig ;) Ég hugsa að það verði mun skemmtilegra ef ég drekk bara dáldið mikið. Reyndar hef ég ekki drukkið í langan, langan tíma og því reikna ég með að borðvínið verði nóg fyrir mig ;) Ég hef annars nóg að gera á morgun, þarf að mæta í tvo verklega tíma, fara í ríkið, sturta mig, greiða, mála og gera sæta. Þarf líka að sækja kjólinn góða og koma mér upp í Hveragerði! Það verður sem sagt stuð á minni á morgun - reyndar vinn ég best undir álagi og lít yfirleitt best út þegar ég hef lítinn tíma til umráða! Vonum bara það besta. Fékk þá flugu í hausinn í dag að það gæti verið flott að vera með svona hanska sem ná upp að olnbogum við kjólinn. Hvítir og svartir koma bæði til greina. Ef til vill bæti ég því á to-do list fyrir morgundaginn! Get alltaf á mig blómum bætt. Sveinbjörn er einmitt alltaf að hlægja að tímaskyni mínu - ég held alltaf að ég geti gert svo margt á stuttum tíma! Einu sinni var ég að undirbúa Þorrablót Grunnskólans á Vopnafirði til hálf sex og ég átti að mæta í miðasöluna kl.6. Sem betur fer bjó ég bara í þriggja mínútna fjarlægð frá Félagsheimilinu og hljóp því bara heim í sturtu, mamma var með kjólinn, maskarann og glossið tilbúið og ég skellti mér bara í fötin og skokkaði aftur niður í félgasheimili. Leit svo ljómandi vel út að ég var kosinn Vinsælasta stelpan ;) Það borgar sig að drífa sig! Jæja, best að fara í tíma... Hafdís skrifaði klukkan 1:01 e.h. |
18.2.04
Alveg að vesenast í dag - búin að keyra bæinn þveran og endilangan. Minnir mig soldið á tímann þegar ég var sendill hjá SÍF - æ, það voru góðir tímar. Ég hef nefnilega lúmkst gaman af því að þeytast um bæinn með útvarpið hátt stillt syngja og tralla.
Reyndar lenti ég næstum í bílslysi áðan, einhver druslu Suzuki Baleno, meira að segja grænn ;). svínaði svona vel fyrir framan mig. Hann var að koma frá hægri en ég var á vinstri akgrein og þessi elska ætlaði sem sagt að komast til vinstri. Það var bara lukkan og gott viðbragð sem bjargði fallega hnakkabílnum okkar! Hefði pottþétt verið hálshöggvin ef ég hefði klesst þessa elsku. Núna er ég að dunda mér við að bíða eftir Sveinbirni svo að við getum farið í verslunarleiðangur - ætlum að reyna að klæða kallinn upp fyrir árshátíðina á föstudaginn. Ég fór með ömmu á kjólaleigu og á meðan ég var að klæða mig í fötin aftur eftir að hafa mátað nokkur stykki, skrifaði amma undir leigusamning og borgaði - ég fékk sem sagt ekki miklu um það ráðið. Þetta var reyndar mjög fallegur kjóll - svona prinsessu ;), eini gallinn er sá að hann er svartur og ég var í svörtu í fyrra :( Þeir sem þekkja mig vita að ég er mjög litaglöð kona og því er þetta þrautin þyngri. Ég ætlaði alltaf að máta rauðan sérlega fallegan kjól sem Tóta á, fannst hann svo gæðalegur en þar sem kjólinn er greiddur kemur ekkert annað til greina en að vera svart hvít! Hafdís skrifaði klukkan 1:39 e.h. |
17.2.04
Bætti tveimur nýjum tenglum við, fann það út að besti kvenkyns spjótkastari landsins ætti síðu og var ekki lengi að smella henni inn.
Auk hennar bættist Erla Margrét aftur í fylkinguna, hún tók sér það langt bloggfrí að ég var búin að fjarlægja hana en er hoppandi kát yfir endurkomu hennar! Veit reyndar að Sveinbjörn gleðst seint yfir því að það bætist í daglega hópinn - þær síður sem ég skoða daglega eru nefnilega í tenglunum mínum ;) Viðurkenni alveg að það kemur fyrir að ég skoði þær tvisvar á dag... Batnandi manni er best að lifa ;) Hafdís skrifaði klukkan 3:21 e.h. | Alveg eins og ný María vinkona hans Sveinbjörn heiðraði okkur með nærveru sinni í gærkvöldi og eftir heimsóknina erum við skötuhjú alveg eins og ný. Hún er nefnilega hárgreiðslukona og tekur sig stundum til og klippir af okkur lubbann. Núna er ég sem sagt ekki lengur með illa klipptan topp - hún lagfærði handbragðið mitt á augabragði mér til mikillar ánægju. Reyndar fékk ég smá skömm í hattinn og lofaði að gera svona vitleysu aldrei aftur. Ætli ég verði ekki að taka nokkra tíma hjá snillingnum Silju áður. Við brugðum líka út af vananum og skelltum okkur í einn ljósatíma. Það er rúmlega ár síðan ég fór seinast og því var ég voða varkár og bar á mig krem og lækkaði andlitsljósin fljótt! Það dugði hins vegar ekki til þar sem öll mín viðkvæma húð er rauðþrotin og aum! Ekki gott þar sem harðsperrur dauðans voru loksins að hverfa! Ég gat varla labbað upp og niður stiga í gær og íhugaði nokkrum sinnum að láta mig bara gossa niður á maganum eða eitthvað - hann er hvort eð er með stóru varnarlagi ;) Hætti þó við og lét mig hafa það. Er samt skárri eftir skokk, drillur, teygjur og smá þrek í gær en ég get ekki líst því hvað fyrsti hringurinn var hræðilegur - ji, minn eini. Hungrið kallar... Hafdís skrifaði klukkan 12:24 e.h. |
15.2.04
Hvað er dyndilmennska?Hafdís skrifaði klukkan 5:08 e.h. | Ég keppti í fyrsta skipti í rúmlega ár í gærdag. Ég var búin að koma með miklar yflrlýsingar um að ég ætlaði bara að keppa mér til gleði og ánægju og hafa gaman af. Sú gleði var þó skammvinn þar sem keppnisskapið var ekki lengi að brjótast upp á yfirborðið. Ég stóð mig bara ágætlega, stal einu bronsi og varð svo 5. í þrístökki en þá var bossinn aðeins farin að síga og mín orðin heldur þreytt. Var alveg búin að gleyma hvað það er erfitt að keppa! Við Sveinbjörn höfðum það svo bara gott í gærkvöldi, horfðum á Fighting Temptation í tölvunni og á hálfan Sinbad! Sveinbjörn var svo sniðugur að ná í nokkrar vel valdar myndir. Reikna með að næstu dagar fari í að horfa á Lost in Translation, Cold mountain, The Last Samurai, LOTR ROTK og margar aðrar góðar. Annars vil ég bara óska Silju innilega til hamingju með íslandsmetið í 200 innanhúss - 24.26, glæsilegt! Hafdís skrifaði klukkan 1:07 e.h. |
13.2.04
Ég á ekki að vera mikið falleg næstu daga/vikur/mánuði.
Þannig er mál með vexti að seinustu daga hef ég ekki náð að sofa almennilega. Það er alltaf eitthvað sem truflar fegurðablundi mína. Ef það eru ekki ruslakallar, veðrið, ógleði, óþolinmæði eða ólæti maka míns eru það nágrannarnir. Þau á efri hæðinni eru alltaf að færa einhver húsgögn, mjög oft einhvern stól fram og tilbaka og þá helst seint á kvöldin og snemma á morgnana! Í fyrri nótt voru þau að rífast og þar sem glugginn okkar var opinn heyrði Sveinbjörn frekar vel í þeim og það hélt fyrir honum vöku - ég slapp reyndar í það skiptið. Í nótt sofnaði ég ótrúlega fljótt og svaf á mínu græna alveg fram til 5, þá vaknaði ég við Röskva svaf í heila öld, heila öld, heila öld - nokkur vers! Þá voru þetta einhverjir sem voru í kosningavökum og komu svona borubrattir í húsið og sungu og trölluðu. Sveinbjörn athugað hvar þessir vitleysingar voru staddir og þá voru þeir í íbúð 203 en við búum í 201! Þeir spiluðu tónlist, fengu einhverjar gellur í heimsókn sem gengu harkalega um á pinnunum og töluðu mikið og hátt saman. Við urðu eðlilega mjög pirruð og gátum ekki sofið fyrir hávaða! Eftir nokkra stund þögnuðu þeir og við héldum að garðprófastur hefði loksins unnið vinnuna sína og þaggað niður í hávaðaseggjunum. Gleðin var þó skammvinn þar sem tónlistin hækkaði og gleðin samhliða því. Ég er ekkert skárri en allir hinir og vonaði að einhver annar færi til að biðja þá um að sýna smá tilitsemi svona kl.6 á virkum degi. Stelpa af fyrstu hæð fór síðan upp um 6 leytið og bað þá/þau um að hafa hljótt. Þessari beiðni hennar var sinnt og yndislega þögnin tók við. Enn og aftur var gleðin skammvinn þar sem nágranni okkar á efri hæðinni lét klukkuna sína á ,,snooze" í tuttugu mínútur frá því kl.6:30. Sveinbjörn gafst þá upp og fór fram og fékk sér að borða! Ég náði að leggja mig með hléum til 9 og er því nokk hress miðað við að vera vakandi í 2 tíma í nótt og sofna tæplega 1! Ætli ég endi ekki á því að sofna á bókunum í dag - reyndar kann ég ekki að leggja mig á daginn og því verð ég örugglega bara það þreytt að ég næ engu inn í hausinn á mér. Verð nefnilega að vera súper-dúper dugleg að læra í dag! Próf á morgun og svo keppni = sehr góður dagur. Í nótt saknaði ég þess næstum því að sofa í næsta herbergi við systur mína sem vaknar ekki við klukkuna sína og sofnar við tónlist með leiðinda bassa. Það var eiginlega skárra en Röskva svaf í heila öld! Ég sem er að vinna í því að sýna mína innri fegurð - það gengur ekki ef ég næ ekki að sofa almennilega á næturna! Missionið hjá mér er því að læra að ganga með eyrnatappa og að lokum að sofna með þá! Hafdís skrifaði klukkan 12:30 e.h. |
11.2.04
Mín tók sig til í morgun og var ofur pæjuleg annan daginn í röð, reyndar var ég mjög svefndrukkinn í tímanum mínum kl.8:40 í dag og ekki bætti úr skák að kennarinn minn er sehr leiðinlegur og segir ekki neitt sem gagnast manni.
Ég gafst upp eftir klukkutíma, fór heim og gekk frá fullt af íþróttadóti og öðrum skemmtilegheitum. Í leiðinni ákvað ég að það væri sniðugt að fara bara í íþróttafötin - ég var líka orðin dáldið þreytt í tánum eftir að vera í hælaskóm í klukkutíma og labba 500m - var í íþróttaskóm það eftir lifði dagsins. Þrátt fyrir vonbrigðin með kvenlegheit mín í dag held ég að þetta sé allt að koma - ég finn það. Kraftaverkin gerasta síðan enn og aftur um helgina þegar undirrituð tekur þátt í fyrsta mótinu sínu síðan í febrúar 2003! Það ætti að trekkja áhorfendurnar að - það minnir mig á það, hvar ætli keppnisbúningurinn minn sé? Ætli ég passi ennþá í hann? Annars sýndum við skötuhjúin hörku í dag þegar við keyptum okkur Serrano í stað þess að kaupa Pizzu á Dominos. Reyndar vorum við bæði sammála um að okkur langaði ekki í Dominos - Sigurjón ég veit af hneykslun þinni! Ætli það sé ekki best að taka bækurnar upp áður en ég fer að sofa... Get alla vega horft á þær í smá stund! Hafdís skrifaði klukkan 9:20 e.h. | Ég elska ruslakalla - þeir eru yndislegir allir saman. Mér finnst ofsalega gaman þegar þeir koma snemma á mánudagsmorgnum og draga tunnurnar út úr ruslageymslunni, raðað þeim harkalega upp og henda þeim svo upp í bíl. Svo er ekki verra þegar þeir drösla tunnunum aftur inn í ruslageymslu og henda þeim upp við veginn. Best finnst mér þó þegar ruslabíllinn sjálfur bakkar inn götuna - það er uppáhalds hlutinn minn. Í þessari viku var þó tvöföld ánægja, ekki nóg með að þeir kæmu á mánudagsmorguninn - daginn sem ég mæti ekki í skólann fyrr en 13:15, heldur komu þeir líka eftir hádegi í dag og tóku sig til og þvoðu ruslatunnurnar með háþrýsidælu! Tunnurnar eru allar aðrar og örugglega allir ánægðir sem ætluðu að vera heima að læra í dag! Ég elska skipulagið á þessari borg! Hafdís skrifaði klukkan 9:15 e.h. | Ég hlýt að komast áfram í flugfreyjuprófunum - sér í lagi ef ég sendi þeim póst til að segja þeim frá því sem ég gerði í dag. Í fyrsta lagi var ég ekki bara pæjulega klædd, vel tilhöfð og ilmandi með krullað hár og með fallegar spennur heldur eyddi ég mest öllum deginum í að mála vinkonu mína og dúllast í hárinu á henni - hve kvenleg er ég? Áður en ég fór var ég búin að hafa til æfingadót handa mér og ástmanni mínum og koma því haganlega fyrir í aftursætinu og íþróttaskórnir voru á botni töskunnar. Auk þess var ég búin að hafa heilsudrykki til í brúsa og koma vítamínunum fyrir. Ég er greinilega mjög skipulögð, æfð í að pakka niður og get greinilega verið mjög hugguleg og þjónustulipur þegar ég tek mig til - hvað þarf meira til? Ég þarf reyndar greinilega að æfa mig aðeins í þýskunni en...ég hringi bara í Sigmar frænda í Þýskalandi reglulega! Sigmar: Er Notausgang, neyðarútgangur á þýsku? Sætti mig ekki við það fyrr en ég heyri það frá honum ; ) Í dag hef ég komist að því að ég klikkaði á 2 spurningum af þessum 20 - alla vega af þeim sem ég man! Held að það sé bara ágætt! Efast reyndar um að ég hafi verið jafn hjá í tungumálunum en... Þarf víst að hunskast í bólið, skóli kl.8:40 Hafdís skrifaði klukkan 12:29 f.h. |
9.2.04
Þá er inntökuprófi mínu hjá Icelandair lokið. Spurningar um hver höfuðborgin í Kenýa, hver stærsta eyja japans væri, hvaða íþrótt Annikka Sorenstam stundaði, hver væri upplýsingafulltrúi Icelandair, Hvar EM var haldið, hver sé ríkissáttasemjari, hver hafi verið valinn maður ársins af Frjálsri verslun, hver sé samgönguráðherra, hvað gengi Evrunnar sé, hver hafi skrifað leikritið Sporvagninn girnd sem nú er verið að sýna í Borgarleikhúsinu og aðrar áhugaverðar áttu hug minn allan fyrr í kvöld. Síðan reyndi ég að sýna færni mína í ensku, þýsku og dönsku - lét vera að sýna færni mína í frönsku og spænsku þar sem hún er af MJÖG skornum skammti og lét vera að skrifa ritgerð á einhverju öðru tungumáli en þessum 5 sem ég taldi upp að framan - ég mátti ekki skrifa á íslensku. Það sóttu einungis 1100 manns um starf svo að líkurnar á því að tungumálaskussi eins og ég komist áfram eru hverfandi. Ég vona samt það besta.
Á staðnum voru líka mjög margar sérlega glæsilegar stúlkur og nokkrir myndarlegir piltar. Ég skar mig út á einn hátt, ég var sú eina sem ekki var á pinnahælum ;) Þetta var samt bráðskemmtileg lífsreynsla og gott að rifja tungumálakunnáttuna upp svona öðru hverju. Það kom mér á óvart hvað ég mundi í þýsku og þakka ég hér með frænda mínum og frændsystkinum í Þýskalandi kærlega fyrir að tala mikið þýsku í kringum mig. Þó vafðist eitt fyrir mér! Hvernig er neyðarútgangur á þýsku? Ég sagði að það væri Ausgang en einn möguleikinn var Notausgang og annar Not og sá þriðji Eingang. Þýskiséní sýnið snilli ykkar! Þess ber þó að geta að sökum mikillar snyrtimennsku og lélegrar þjónustu á Nestistöð Esso í Ártúni fékk ég ekkert að borða fyrir prófið! Var of mikið að vanda mig við að vera sæt! Ælta að kíkja aðeins í bók áður en CSI byrjar - eða þá að ég horfi bara aðeins á SURVIVOR. Hafdís skrifaði klukkan 9:32 e.h. |
8.2.04
og enn gerast kraftaverkin.
Ég er búin að vera að læra frá því á hádegi - reyndar með smá MSN-pásu en... Er alveg að koma sterk inn. Með þessu áframhaldi verð ég búin að klára spurningarnar í Greiningu og mótun hegðunar fyrir morgundaginn. Lísa vinkona mín ætlar svo að koma í heimsókn í kvöld. Ég ætla að æfa mig á að mála hana, ég verð snyrtifræðingurinn hennar fyrir árshátíðina sem er 10.feb. Vona að þetta gangi vel og hún verði sætari en vanalega - þá verð ég sátt. Annars er bara sama vandamál og síðustu ár, mig vantar árshátíðarkjól. Er að hugsa um að leigja mér bara kjól. Allar vinkonur mínar eru svo mjóar eða ganga ekki í kjólum. Ég fór í brúðkaup í sumar og þá leigði ég afskaplega fallegan kjól og ég sá einn mjög fallegan í auglýsingu frá leigu um daginn og ætla að skella mér í hana í næstu viku. Núna hringir síminn og gefur mér til kynna að þvottavélin sé búinn ;) Hafdís skrifaði klukkan 2:07 e.h. |
7.2.04
Kraftaverkin gerast enn!
Undirrituð fór í sund í dag með mjónunni Ernu og félaga okkar og svertingjanum honum Andra. Reyndar er Erna svartari en... Ég hef sem sagt ekki farið í sund síðan einhvern tímann árið 2002 held ég ;) Það er alla vega MJÖG LANGT síðan. Ernu hefur örugglega tekist að koma einhverju af þessum æluvírus í mig þar sem maginn á mér hefur ekki verið stilltur seinustu tvo daga! Mér er mjög óglatt og hef litla matarlyst. Ældi næstum því matnum mínum í gær en þrjóskan bjargaði því. Ég hef engan tíma til að vera veik núna og því nenni ég ekki svona vitleysu. Er líka að æfa svo mikið að þetta kemur ekki til greina! Vona að þessi aðferð virki betur hjá mér en elsku Ernu. að Í kvöld er síðan bara stuð og stemning, er að fara í afmæli! Reikna með hörkufjöri en sökum mikillar skynsemi ætla ég að fara snemma heim. Verð að druslast til að læra eitthvað á morgun þar sem dagurinn í dag fór í sundferð, hádegismat í Kringlunni og Everton - Manchester, eftir þann leik var ég með taugarnar svo þandar að ég hefði ekkert getað lært hvort eð er. Góð afsökun! Góða helgi! Hafdís skrifaði klukkan 7:37 e.h. |
6.2.04
Flottasti hamur landsins eða stelpan sem á hann er byrjuð að blogga.
Kristín Birna er kominn í heim rugludallanna - til hamingju með það elskan! Við Guðný eigum að vera að gera spurningarnar við 5.kafla en Sveinbjörn dró okkur niður í svaðið og því erum við að horfa á Oceans 11 í staðinn! Við vöknuðum reyndar fyrir allar aldir til að fara að gera verkefni í Tilraunasálfræði svo að við höfum alla vega gert eitthvað í dag og þá eru komnir tveir dagar í röð - jei! Við óskum okkur til hamingju með það afrek! Hafdís skrifaði klukkan 2:51 e.h. |
5.2.04
Við skötuhjúin brugðum út af vananum og skelltum okkur á æfingu kl.4, borðuðum kvöldmat kl.6 og erum núna í mestu makindum að horfa á Tomb Raider 2 - þið sjáið á þessari færslu hvað ég er mikið að fylgjast með og spennumarkið á mér!
Ég man eftir svipuðu áhugaleysi í bíó á fyrstu myndinni. Ég er einmitt að hugsa um að skella mér bara í sturtu og fara jafnvel að læra! Reyndar heillar mig svolítið að fara í Skipasundið til mömmu og pabba þar sem mér skilst að litli frændi minn ætli að fara í heimsókn í kvöld og það er soldið langt síðan ég sá hann seinast. Vantar að fá smá knús frá þessari elsku. Við Guðný ákváðum að vera mjög duglegar í dag og vorum að læra saman, það endaði þó ekki betur en það að við svöruðum 5 spurningum og gáfumst svo upp vegna gífurlegra leiðinda. Ofsalega leiðinlegt að svara spurningum á íslensku út frá flóknum enskum texta. Það væri lítið mál að svara þeim á ensku ef væri ekki fyrir umræðutíma sem fara víst fram á íslensku og fjalla um svörin við spurningunum. Æltum hins vegar að byrja daginn snemma á morgun og gera saman verkefni í tilraunasálfræði og fara undirbúnar í tímann en það er nokkuð sem gerist ekki oft hjá okkur stöllum. Mjög gaman að eiga eina vinkonu sem borðar hratt og mikið alveg eins og ég og finnst súkkulaði gott. Ég á nú reyndar fleiri svoleiðis vinkonur en upp á síðkastið hef ég ekki haft mikið tækifæri til að hitta þær. Ég var frekar svekkt þegar ég leit út um gluggann í morgun - trúði ekki mínum eigin augum. Sveinbjörn sagði mér síðast í gær að það hefði verið spáð rigningu og því var ég gjörsamlega grunlaus. Ég skil ekki afhverju þetta hvíta helvíti þarf að vera á götum úti. Mig langar að flytja til útlanda! Spurning um að pakka þessu drasli í stóra kæligáma og senda til Silju - hún yrði pottþétt glöð ;) Hafdís skrifaði klukkan 7:11 e.h. |
4.2.04
Ég er búin að finna mjög hentugt starf fyrir mig í framtíðinni. Það bíður upp á mikið af ferðalögum sem mér finnst skemmtileg. Ég kynnist nýjum menningum - bara skemmtilegt. Ég hitti mikið af fólki og það finnst mér skemmtilegt. Ég get boðið fólki heim til mín reglulega og haldið boð - mér finnst það skemmtilegt. Þá þarf ég reyndar að vera soldið mikið fín en það er líka bara skemmtilegt. Ég fæ að knúsa og kyssa börn af og til og það finnst mér mjög skemmtilegt. Allir vita hver ég er og þegar ég á afmæli, er flaggað. Er til eitthvað betra en það?
Frú Hafdís Ósk Pétursdóttir forseti Íslands hljómar líka mjög vel. Það eina sem stendur í vegi mínum er titilinn á Sveinbirni greyinu. Hvað myndi hann vera? Sveinbjörn Jónsson forsetaherra? Hugsa að sálfræðimenntunin nýtist mér vel í þessum efnum! Ég kann að koma fyrir mig orði og á ekki í miklum vandræðum með að halda ræður - ég er jú einu sinni búin með námskeið í tjáningu og samskiptum. Þegar ég þarf að skrifa samúðarkort - hringi ég bara í mömmu! Eða nei, ég leyfi mömmu náttúrulega að búa hjá mér á Bessastöðum - frítt. Er ég ekki góð dóttir? Kannski pabbi fái líka að koma með - það eru jú einu sinni fínar skokkleiðir í kringum Bessastaði og það er nálægt sjó og þar vilja fiskar víst vera. Hann getur líka haft ofan fyrir Sveinbirni og passað að hann geri ekki of mikið grín að forsetanum! Æ, Sveinbjörn er ekki nógu alvarlegur í starfið og e.t.v ekki ég heldur. En hvernig væri að hafa hressan forseta sem kann að skemmta fólki og hafa gaman. Ég kann líka að baka... Mynduð þið ekki kjósa mig? Hafdís skrifaði klukkan 11:59 f.h. |
3.2.04
Ég verð ekki viðræðuhæf næstu daga sökum mikils álags og leiðinda. Er að fara í próf á fimmtudaginn og svo er annað laugardaginn 14. og mín stendur ekki vel í þeim efnum. Það er átak á öllum sviðum í gangi - verð bráðum orðin lærdómshestur, hollustumjóna og fyrirmyndar húsmóðir! Gefið mér bara svona 10 ár!
Er að lesa kafla í lífeðlisfræði sem inniheldur svona milljón upplýsingar á hverri blaðsíðu og þær eru 36 bara í þeim kafla - gott etta! Fagna því að CSI the real thing byrjaði aftur á Skjá1 í gær. Asnaðist svo til að horfa á fyrsta Survævor í gær - lofar ekki góðu. Ætla að reyna að vanda mig við að hætta þeirri vitleysu. Var samt að læra á meðan og notaði því bara annað augað! Stóðst freistinguna á því að baka eplaköku í gær og fékk mér bara appelsínu í staðinn - öll að koma til greinilega. Samkvæmt nýju átaki þarf ég að hætta þessari vitleysu og fara að læra................... Hafdís skrifaði klukkan 2:44 e.h. |
2.2.04
Þá er enn ein vinnuvikan gengin í garð - ótrúlegt hvað þessar helgar eru fljótar að líða. Ég hef heldur aldrei skilið afhverju helgin er ekki þrír dagar og vinnuvikan 4 - það yrði sanngjarnari skipting.
Ég gerði heiðarlega tilraun til að vera dugleg að læra í gær, þó að ég hafi ekki náð takmarki mínu var ég duglegri í gær en alla hina dagana til saman - húrra fyrir mér. Við Sveinbjörn fórum svo og fylgdumst með Meistaramótinu í Fífunni og glöddumst mikið eins og sjá má á pistli mínum hér fyrir neðan. Mamma var síðan svo góð að bjóða okkur í fisk í gærkvöldi sem bjargaði alveg deginum. Við höfðum það síðan bara gott fyrir framan sjónvarpið þar til tími var kominn til að halda áfram lestri. Nágrannar okkar eru í einhverju bandalagi um að vera háværir þessa dagana. Þau sem búa fyrir ofan okkur eru annað hvort meiri brussur en ég eða bara einstaklega hávær - jafnvel bæði. Þau gera í því að missa hluti í gólfið núna, skella hurðum og klósettinu og bara eru með læti. Ég er ekkert sérlega ánægð með þessa nýju stefnu hjá þeim og ef þetta heldur áfram sem horfir þá fer ég að gera eitthvað róttækt í málunum. Efast um að þau hafi einhvern tímann búið fyrir neðan einhvern! Æ, ég á eftir að lesa svo mikið. Verð víst að halda áfram! Hafdís skrifaði klukkan 11:56 f.h. | ÍR-íslandsmeistari í flokki 15-22 ára! Ég get ekki líst gleði minni og hamingju yfir því að fyrsti bikar ársins hafi lent í okkar kjöltu! Ég er búin að vera að deyja úr stolti alla helgina og litla ÍR hjartað mitt sló ört og títt á meðan ég fylgdist með mótinu í gær. Það var svo gaman að sjá hvað hvað og einn var tilbúinn til að gera fyrir sitt lið. Flestir kepptu í mörgum greinum og 62 persónuleg met litu dagsins ljós - þetta sýnir bæði styrk íþróttamannana og færni þjálfaranna. Enda eru ekki mörg lið sem geta státað sig af þjálfara í hverri grein! ÉG HEF SJALDAN VERIÐ STOLTARI AF ÞVÍ AÐ VERA ÍR-INGUR OG AKKÚRAT NÚNA! Hafdís skrifaði klukkan 11:50 f.h. |
1.2.04
Til hamingju með 25 ára afmælið Begga!
Hún hélt hins vegar upp á það í gær og var mikið gaman og mikið grín. Það er orðið nokkuð langt síðan ég hló svona svakalega mikið. Fékk meira að segja harðsperrur í magann og allt ;) Reyndar voru nokkuð margir brandararnir á minn kostnað en ég hló bara að þeim líka - maður verður jú að hafa smá húmor fyrir sjálfum sér. Mér fannst nú samt ekki allir fyndnir! Sveinbjörn hitti annars jafnoka sinn í gær. Kærasti einnar þarna gerir jafn mikið grín að henni og Sveinbjörn af mér. Reyndar áttum við mjög margt sameiginlegt á báða bóga. Hún er soldil brussa eins og ég og tókst að brjóta einn disk! Hann elskar kvikmyndir og veit endalaust um þær alveg eins og Sveinbjörn. Þeir voru báðir í versló og við vorum báðar í MS. Hún er reyndar ljóshærð voða sæt með spékoppa en ég er ekki alveg þannig eins og þið vitið. Reyndar kann kærastinn hennar að elda voða vel og eldar alltaf en sumir sem ég þekki vita varla hvar pottarnir eru geymdir. Ég vona bara að Sveinbjörn og þessi Bragi verði góðir vinir svo að Sveinbjörn læri að elda! Það yrði mjög indælt. Þó að mig dreymi um að verða jafn myndarleg og mamma mín hef ég engan sérstakan áhuga á því að elda á hverjum degi í 40 ár. Við sýndum miklar tillitsemi þegar við komum heim í gær og lögðum í smá fjarlægð frá húsinu. Kl. var að verða 1 og því örugglega margir farnir að sofa. Á þessum 50 m fundum við hins vegar út að það voru 5 partý í gangi í húsunum í kring og þegar við vorum komin inn heyrðum við að nágrannar okkar í 202 voru líka með partý. Við gátum sem sagt ekki farið strax að sofa. Ég tók líka eftir því að voða flottum Nissan Patrol var lagt hérna fyrir framan húsið. Eigandinn hafði meira að segja haft fyrir því að bakka honum í stæðið! Kl. hálf níu í morgun ákvað svo þessi jeppakall að fara og var með bílinn í gangi hérna fyrir utan all lengi, þurfti að gefa honum soldið inn og svona svo að það dræpist ekki á honum. Þetta endaði náttúrulega með því að við fengum þessa dýrindis olíulykt beint inn í svefnherbergi þar sem við sofum alltaf með gluggann opinn. Sérlega huggulegt af honum. Mjög sniðugt að bakka bílnum þannig að púströrið snúi að svefnherbergisgluggum hjá fólki! Ég er samt mjög þakklát fyrir vegalengdina á milli okkar og Hallgrímskirkju, ég heyri smá óm af kirkjuklukkum en ekkert sem drepur mig. Þeir virðast heldur ekki hringja bjöllunum á 5 mín fresti í svona 5 mín eins og félagar þeirra í Breiðholti og Langholtskirkju! Ég trúi því nefnilega að þeir sem ætli í kirkju á annað borð þurfi engar klukkur til að láta sig vita. Ætli það sé einhver sem vakni við klukkurnar og segi já - best að fara í kirkju í dag? En jæja, ég er komin á hálan ís - ég er að hugsa um að fá mér Cheeriosið mitt og læra svo fram að 2 en þá ætla ég að fara að horfa á hetjurnar í liðinu mínu keppa á MÍ 15-22 ára! ÁFRAM ÍR! Hafdís skrifaði klukkan 11:48 f.h. |
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||