|
|||||||||||||||||||
|
31.3.04
Undarlegt mjög:
Eins og glöggir lesendur síðunnar tóku eftir dreymdi mig Ólaf Margeirsson nokkurn aðfaranótt miðvikudags. Núna hittumst við voða sjaldan þar sem vegir okkar liggja ekki mikið saman og því er ekki eins og hann sé mér mikið í huga. Mér þykir jú voða vænt um hann og mun eflaust alltaf gera en... Ég var að tala við hann á MSN áðan og skamma hann fyrir að ásækja mig í draumum og þá baðst hann afsökunar á því og spurði hvernig hann hefði farið að því. Ég áttaði mig þá á því að hann hefði ekki lesið síðuna mína í dag og vakti máls á því og þá sagði hann mér að hann væri búinn að vera að læra fyrir hagfræðipróf og hefði því átt lítið líf seinustu daga - hverjar eru líkurnar á því að mig dreymi hann og hagfræðipróf akkúrat 2 dögum áður en hann fer í eitt slíkt? Mér finnst þetta undarlegt mjög og er núna ekki hrifin af því að mig hafi dreymt að ég væri ólétt. SHIT! Ég hugsa samt að þetta sé svona one of a kind og að ég sé voðalega lítið berdreyminn! Varð bara að segja ykkur frá þessu! Hafdís skrifaði klukkan 11:42 e.h. | Mér finnst auglýsingarnar frá Fréttablaðinu um íslandsmet í lestri nokkuð góðar. Gaman að bera saman blað sem er annars vegar ókeypis og hins vegar blað sem er í áskrift. Að mínu mati er þetta tvennt alls ekki sambærilegt. Persónulega myndi ég kaupa áskrift að Morgunblaðinu ef ég hefði reglulegar tekjur. Inn í þessa könnun taka þeir væntanlega ekki að það telst til tíðinda þegar blaðið kemur á morgnana til okkar á stúdentagörðum, stundum kemur það um 11-leytið en oftast kemur það bara alls ekki neitt. Ég hringdi einu sinni til að kvarta og þá virtist konunni vera alveg sama. Sagði mér að strákurinn hefði verið veikur og að blaðið hefði komið seint úr prentun frá þeim. Auk þess finnst mér fr éttirnar af fræga fólkinu, sem ég les ALLTAF, yfirleitt vera stolnar frá MBL, ég er alla vega oft búin að lesa nákvæmlega sömu fréttina nokkrum dögum áður hjá MBL. Ég er ekki að kvarta yfir því að fá ókeypis blað, mér dytti það ekki í hug. Mér finnst alveg nauðsynlegt að lesa blað á meðan ég háma Cheeriosið í mig. Þess vegna finnst mér þjónustan hér vera til háborinnar skammar. Um daginn var blaðinu hent á stéttina á fyrstu hæðinni og væntanlega ætlast til þess að hver og einn tæki sér blað. Þetta endaði með því að blaðið fauk út um allt og fór í tætlur. Ég tók mitt blað náttúrulega en það hafa ekki allir hugsað eins og ég. Fréttablaðið er samt eins og Skjár 1 í mínum huga, ég nýt þess að fá bæði ókeypis en ég myndi ekki eyða pening í að vera áskrifandi. Ég var að horfa á þáttinn Í fínu formi á meðan ég borðaði hádegismatinn og fór að velta fyrir mér hvort að einhver horfði á hann. Hann gengur stundum hjá mér eftir að ég horfi á nágranna en ég hef aldrei gert æfingarnar með honum. Í dag voru þær að lyfta með vatnsflöskum - spennandi. Ætli það sé gott að horfa á hreyfingu á meðan maður borðar? Hafdís skrifaði klukkan 12:52 e.h. | Ég er eitthvað svo andlaus þessa dagana! Gengur illa að gera allt. Ég er búin að vera eitthvað hálf slöpp og drusluleg í næstum því viku núna. Er alltaf eitthvað svo þreytt og þarf að sofa sérlega mikið. Hef ekki haft orku í að fara á æfingu í alltof marga daga og er bara vægast sagt algjör letibrók. Kannski morgunskokkið í seinustu viku hafi tekið svona mikinn toll. Í nótt var ég að taka eitthvað hagfræðipróf með Óla Margeirs. Sérlega gaman að því. Kennarinn var eitthvað geðveikur og las upp spurningarnar á prófinu fyrir okkur, einu sinni hratt og við áttum að skrifa þær niður og svara þeim. Við vorum eitthvað að samræma svörin okkar og þá merkti kennarinn við það og skrifaði niður alla okkar hegðun. Ég held að okkur hafi ekki gengið neitt sérstaklega vel. Ég held samt að það þýði að okkur gangi vel á alvöru prófum - eða ég vona það! Annars er ég alveg að verða leið á þessum snjó! Hafdís skrifaði klukkan 9:55 f.h. |
30.3.04
Hollustudagurinn í gær gekk ekki alveg upp hjá mér. Var búin að ákveða að vera þvílíkt dugleg að borða bara hollt í gær og þar átti skyr að vera í aðalhlutverki. Ég klikkaði strax í hádeginu þegar Sveinbjörn dró mig í langloku - þó með kjúklingaskinku og hollustusósu. Fékk mér svo skyr um miðjan dag og vorrúllur í kjölfarið. Um kvöldið gladdist Sveinbjörn mjög yfir tilboði frá Mastercard sem hljóðaði upp á 50% afslátt af Dominos pizzum - já, spilling í gangi. Í eftirrétt borðuðum við svo Nóa-kropp.
Veit ekki hvernig fer með hollustudaginn í dag, er með afganginn af pizzunni í nesti en reyndar með skyr og bollasúpu líka! Vonum bara það besta! Annars er það bara ritgerð og ekkert múður. Búin að eyða allt of miklum tíma í þetta - gildir bara 5% og því ætla ég bara að skrifa eitthvað niður á blað í dag! Held að það sé ekkert fleira í bili. Jú, ég komst að því í morgun að Erna vinkona mín er líklega mjög gáfuð :) Hafdís skrifaði klukkan 11:06 f.h. |
29.3.04
Stend í ströngu við að afla heimilda í ritgerðina mína og lesa þær svo að ég geti pússlað henni saman í kvöld. Hressandi mjög. Einnig stend ég víst í ströngu við að keppa við vini mína um sumarstörf, gott að geta hjálpað vinum sínum til frama - reyndar ekki gott fyrir mig ef ég stenst ekki samanburð! Komst að því að umsóknirnar mínar hafa ekki borist öllum og stend því í ströngu við að athuga hvert þær bárust.
Hér eftir ætla ég ekki að ljóstra upp hvar mér dettur í hug að sækja um störf. Annars er ég búin að fá tvö tilboð og er vongóð um það þriðja. Hafdís skrifaði klukkan 4:43 e.h. |
28.3.04
Leikurinn góði er búinn að færa sig og er HÉRNA!Hafdís skrifaði klukkan 11:21 f.h. | Góðan daginn góðir hálsar. Ég get ekki líst vonbrigðum mínum með veðrið úti, langar mest að grenja en finnst ég alveg búinn með minn skammt af því í þessari viku :) Ég íhugaði mikið að kíkja út á lífið í gær eftir að mér var boðið í partý en það gerist jú ekki á hverjum degi...Eftir að hafa eytt rúmlega klukkutíma í að ákveða það var ég orðin svo þreytt að ég ákvað bara að fara að sofa. Já, aldurinn er sko farinn að segja til sín. Ég svaf eins og ungabarn þangað til kl.6:27 í morgun þegar einhver flutningabílstjóri ákvað að hafa bakkhljóðið á bílnum sínum í gangi í svona 5 mínútur. Ég var svo rugluð á þessum tíma að ég gerði mér fyrst ekki alveg grein fyrir því hvaða hljóð þetta væri og ætlaði að fara fram til að athuga hvaða dót sem við ættum væri að gefa frá sér þetta hljóð en áttaði mig þegar ég var búin að standa upp. Alveg notalegt að vakna svona hálf sjö á sunnudagsmorgnum. Ég var letibrók í gær og féll fyrir brögðunum í Ernu og fór með henni í SMÁ stund í sund. Fórum kl.13 og komum ekki tilbaka fyrr en 16 - ótrúlegt hvað hún endist í pottununum stelpan... Við Sveinbjörn grilluðum okkur dýrindis lambafillét í gær og höfðum alls kyns meðlæti og horfðum svo á Master and Commander - ég reyndar bara með öðru auganu þar sem ég er yfirleitt ekki mjög hrifin af blóði og bardögum. Gat horft á atriðin þess á milli! Vona að allir hafi skemmt sér vel í gærkvöldi! Mín bíður ritgerð um notkun dýra í tilraunum og svo leikur kl.14:50 - vonum að Man.Utd hafi tekið sig saman í andlitinu og að Arsenal tapi fyrsta leiknum sínum í ár - það væri ljúft! Áfram Manchester United.... Hafdís skrifaði klukkan 11:21 f.h. |
26.3.04
Vá, hvað ég er þreytt!
Við Sveinbjörn keyptum okkur rúm í sumar á spottprís. Undanfarið hefur rúmið verið að trufla okkur soldið þar sem það brakar í gormunum þegar maður snýr sér og það brakar það hátt að við vöknum bæði við það. Um daginn áttuðum við okkur á því að ef að yfirdýnan er ekki alveg bein þá brakaði ekki í rúminu. Samt asnaðist ég til að laga yfirdýnuna um daginn og því vöknuðum við hress í morgun kl.6.30 og reyndum að koma yfirdýnunni í samt lag bæði jafn geðstirrð og sæt en það gekk ekkert hjá okkur og þá var bara ákveðið að sofa án þess að snúa sér. Það gekk upp í fyrstu en ég snéri mér svo bara ofur varlega þannig að það kæmu ekki jafn mikil læti. Síðar um nóttina og um morguninni tók Sveinbjörn samt upp á því að hrjóta og þá var sko ekki kátt í höllinni. Ég nennti ekki að ýta í hann þar sem hann hefði vaknaði við allt brakið og bramlið og því lét ég mig bara hafa það. Dreif mig svo á fætur myglaðara en allt í heimi hér um hálf tíu til að fara að gera verkefni í tölfræðiforritinu SPSS, ég er nefnilega að fara í próf kl.12. Í dag eftir próf ætla ég svo að hringja í ljótu búðina sem seldi okkur rúmið og kvarta og vera alveg brjáluð því að ég get ekki sofið í svona hávaða. Þetta kennir manni kannski að eyða frekar mörgum peningum í betri búð en að spara og kaupa ódýrara rúm í búð sem heitir Rúmgott - lofar ekki góðu! Hafdís skrifaði klukkan 10:03 f.h. |
25.3.04
I´m back to my old self. Búin að taka Pollýönnu á þetta og er núna sæl með að þurfa bara að taka 3 próf í vor og lesa bara 3 bækur í stað fjögurra um páskana. Allar sálfræðivinkonur mínar dauðöfunda mig á því að losna við þetta og voru búnar að hugsa um að falla bara í þessu :) Já, það er eftirsóknarvert að vera ég.
Fyndið hvað fólk skrifar síður athugasemd þegar fólki líður illa en þegar því líður vel. Held að það sé aðallega af því að það veit ekki hvað það á að segja og ákveður því að það sé bara betra að segja ekki neitt. Það er nefnilega alls ekki raunin. Eitthvað þó að það sé algjörlega út í Hróa hött er alltaf betra en ekkert því að með því að sjá eitthvað veit maður að fólki þykir vænt um mann og hugsar til manns þó að á móti blási. Ég er ekkert að skamma ykkur alls ekki, veit að einhverjum finnst lítiðfjörlegt að falla á svona próftökuréttarprófi en í gær fannst mér eins og himinn og jörð hefðu farist. Mamma var þó fljót að koma mér í skilning um að ég gæti ekki verið heimsk þar sem pabbi væri enn með alla sína heimsku og hún með sína þannig að ég hefði hvergi getað fengið hana...hún náði sem sagt að koma mér til að hlægja á 1 mínútu. Ég er löngu búin að átta mig á því að ég get ekki farið til Bandaríkjanna því að það er of langt frá mömmu minni þess vegna heillar England mig meira - þá getur hún skroppið í heimsókn :) Mömmur eru góðar. Þær lækna mann þegar maður er veikur og hugga mann þegar maður er sorgmæddur og gefa manni að borða og eru bara yndislegasta í alla staði. Alla vega mín :) Gott að ég er annars vegar bitur og hins vegar glöð og svo væmin. Ég er grenilega margbreytileg :) Hafdís skrifaði klukkan 4:13 e.h. | Ég biðst velvirðingar á biturðinni hér að neðan. Þurfti bara aðeins að koma þessu frá mér strax eftir prófið þegar mér fannst ekkert réttlæti vera til í heiminum og að Heimski Hans hefði virkað gáfaður í minni nærveru. Ég er hins vegar búin að sjá ljósið með hjálp foreldra minna og þolinmóðra vina og sætti mig hér með við að vera lélegur páfagaukur. Mörgum kæmi það þó ekkert á óvart að fiskar væru lélegir páfagaukar en ég taldi mig reyndar vera sterkari en raun bar vitni. Núna er ég allt að því sæl með þetta því að það er ekki hægt að kvarta yfir því að fara bara í þrjú próf og losna við eitt stykki lesfag - nú er bara einni færri bók að lesa í páskafríinu og því auðveldara að skipuleggja og það fer mér einmitt vel úr hendi en verr að halda því skal ég segja ykkur. Sveinbjörn er löngu búin að ákveða að taka eitt sumarpróf þar sem að hann átti alltaf eftir eitt fag og því getum við skötuhjúin bara dundað okkur við að læra undir prófin okkar tvö í sumarbústað einhvers staðar í fjarska eins og við gerðum forðum daga þegar við fórum í þetta helvíti sem sumarpróf kallast. Ég er búin að vera að hlægja að því að páfagaukasluxinn í mér hafi fellt mig á einu svona prófi þar sem ég hélt að menn yrði ekki færir í sínu fagi á því að kunna utan að heldur með því að skilja og kunna að nota þekkinguna. Sér í lagi finnst mér sniðugt að þetta hafi verið í Greiningu og mótun hegðunar og nokkuð ljóst að þeir sem brilleruðu á prófinu verða betri greinendur en hinir þar sem þeir muna allt sem þeir lærðu utan að þrátt fyrir að hafa lítið skilið og geta nýtt sér þá þekkingu í framtíðinni - æ, nú er ég aftur orðin bitur. Held að ég sé búin að losa of margar færslur frá Ívari undanfarið. Best að drífa sig í rúmið, tími kl.8 í fyrramálið. Góða nótt, Hafdís skrifaði klukkan 12:21 f.h. |
24.3.04
Ég er svo heimsk. Afhverju er svona heimsku fólki eins og mér leyft að vera í háskóla? Skil ekki að það sé ekki ákveðin greindarvísitala sem fólk þarf að hafa til að vera í skólanum - 100 eða eitthvað.
Ég er alla vega mjög heimsk þegar ég er stressuð og í kvöld var ég mjög stressuð og náði bara að þylja upp 14 af 16 atriðum sem ég náði að fara yfir á tilsettum tíma og því hef ég ekki próftökurétt og verð að taka sumarpróf í áfanganum. Í kjölfarið þarf ég að gera þessa helvítis æfingu aftur og e.t.v skila ritgerðinni aftur og svo ég tali nú ekki um lesa bókina aftur. Já lánið leikur greinilega við mig! Líka mjög gott að fá ekki námslán og vera í djúpum skít í sumar allt út af einu skitnu hugtaki. Já, það þurfti að ná 15 en ekki 14! Já, þetta er yndislegt líf! Gleymdi ég að nefna að núna er ég grenjandi eins og smástelpa! Hafdís skrifaði klukkan 7:16 e.h. | Frændi minn heitir kleinuhringir á kantinum með súkkulaði blingbling á MSN - don´t ask my why ég hætti að ala hann upp þegar hann var 14 ára og það hefur margt farið úrskeiðis síðan þá. En alla vega af þessum sökum langar mig ekki í neitt nema kleinuhring núna og er að reyna að berjast við freistinguna og labba út í bakarí! Ég er nefnilega að fara á kökuhlaðborð í kvöld og ég er ekki viss um að kleinuhringur í dag og kökur í kvöld myndu hjálpa mér í baráttunni við kílóin. Auk þess þarf ég að fara sjálf á æfingu í dag og ég hef ekki enn ákveðið klukkan hvað sá atburður á að gerast. Það er nokkuð ljóst að morgunskokkið verður massað á föstudaginn en ekki í dag eins og áform voru um. Ákvað að fresta þessu til þess að taka ekki morgunskokk kl.10 og fara svo á æfingu nokkrum tímum seinna. Hvernig hljómar æfing á Ægissíðunni kl.16 og svo próf kl.19. Þá næ ég að bæta tímann minn fyrir æfingu og get rifjað upp eftir æfingu! Þá er það ákveðið! Hafdís skrifaði klukkan 2:07 e.h. | Við erum að tala um 19 af 20 orðum gott fólk. Með þessu áframhaldi flæða orðin út úr mér á innan við mínútu en hámarkið er 3 mínútur :) Hafdís skrifaði klukkan 12:41 e.h. | Ég er greinilega skynsöm stúlka. Ef ég fæ brjóstakrabbamein eða sortuæxli skal ég hundur heita. Viðurkenni reyndar að ástæðan fyrir lítilli drykkju minni er ekki þessi þar sem ég var bara að sjá þetta fyrst í dag en ég fer ekki í ljós af því að ég vil ekki auka líkurnar á því að fá sortuæxli auk þess sem það sparar mér marga peninga. Annars er ég bara að tækla hugtökin... Hafdís skrifaði klukkan 11:56 f.h. |
23.3.04
Ég henti langlokunni minni um hugtökin út - ekki einu sinni ég nennti að lesa þetta :) Annars gengur bara ágætlega að læra þetta utan að. Sveinbjörn hlaut það vafasama hlutskipti að hlýða mér yfir í dag - heppinn! Það fyndna við þessi hugtök er að það eru 90% líkur á því að skilgreiningin byrji annað hvort á Áreiti eða atburður eða Þegar... mjög gott. Hjálpar manni mikið.
Nýja drykkjarjógúrtin með karamellubragðinu er mjög góð að á bragðið að mínu mati. Vara þó Ernu við að smakka hana þar sem hún inniheldur of margar kalóríur og sykur fyrir hana og er því algjört sukk. Hún minnir mig á engjaþykkni með karamellu og súkkulaðimúslí sem er náttúrulega bara góð :) Ég sýndi snilli mína í kvöld og eldaði dýrindis eggjanúðlur handa okkur skötuhjúum. Þær eru helmingi betri en venjulegar núðlur og því var þetta sérlega gómsætt. Er barasta ekki búin að baka neina köku í þessari viku og telst það til tíðinda. Bætti vini mínum Steingrími a.k.a Glúbba inn í tenglana. Hann er góðvinur minn frá Vopnafirði og ég komst ekki að því fyrr en um daginn að hann væri með síðu. Hjá mér er hann í flokk með ekki ómerkari mönnum en Sigurjóni og Árna - einhver sem ég get alltaf hlegið að :) Þarf að skilgreina aðgreiningu og alhæfingu, slokknun og annað merkilegt. Later, Hafdís skrifaði klukkan 10:30 e.h. | Ég smitaðist af Ragnheiði og er búin að spila þennan leik nokkrum sinnum á síðustu dögum. Var rétt í þessu að ná 51840 stigum og held að ég segi það gott í bili. Náði best 28000 í gær svo að þetta er nokkuð góð bæting á milli daga. Hvað er metið ykkar? Hafdís skrifaði klukkan 2:16 e.h. |
22.3.04
fjögur blogg á 5 mínútum...frekar gott myndi ég halda!Hafdís skrifaði klukkan 9:41 e.h. | Vá, hvað ég er búin að vera dugleg að blogga í dag. Hafdís, hvernig gengur með hugtökin? Humm, hvað sagðirðu? Er það eitthvað á internetinu? Vá, Sveinbjörn á eftir að skamma mig á eftir! Best að læra í 20 mínútur fyrir CSI... Hafdís skrifaði klukkan 9:40 e.h. | Ég skil ekki afhverju ég þekki ekki framkvæmdamenn. Ég er með svo margar góðar hugmyndir sem þarf að hrinda í framkvæmd. Ég myndi gera það sjálf ef ég hefði bolmagn til þess - bolmagn hehe, ég hef nóg magn á bolnum en í þessari setningu táknar bolmagn peninga - þá á ég ekki í eins stórum skömmtum! Ég er með snilldarhugmynd að nýjum lífeyrsisjóð sem ég viðraði einu sinni á síðunni minni. Ég er með fína hugmynd að endurbættri djúpu laug. Ég er með frábæra hugmynd að skemmtistað og er meira að segja með location - það segja allir í bisnisnum... Þarf að fara að skrifa þetta niður svo að ég gleymi þessu ekki... Það gengur vonandi betur að koma þessu á framfæri þegar ég er orðin virtur markaðssálfræðingur!! Hafdís skrifaði klukkan 9:39 e.h. | And the dugnaður continues... Tók svaka æfingu áðan og hef barasta ekki verið borubrattari síðan ég var mjó! Var alveg að fíla mig á fínu gaddaskónum mínum og fannst ég spýtast áfram. Reyndar finnst manni maður yfirleitt hlaupa hraðar þegar maður er einn en undir lokin fékk ég smá keppni sem hélt mér á tánum. Var að vísu að hlaupa með einni 16 ára skvísu og ég held að hún hafi ekki þorað að taka fram úr mér af virðingu við mig - þessi elska. Hún er líka vinkona systur minnar og hefur viljað hafa mig góða :) Ég þurfti reyndar að taka á honum stóra mínum til að hafa hana og hafði svo gott af því. Ég er reyndar mjög þreytt í kálfunum núna enda ekki vön að taka tvær æfingar á dag. Líður samt svo vel núna... Hafdís skrifaði klukkan 9:35 e.h. | Ég sýndi ótrúlega hörku þegar ég fór út að skokka í morgun í rúmlega 20 mínútur. Ég er eðlilega mjög montin af þessum dugnaði mínum og hyggst fylgja honum fast eftir næstu vikurnar og verða örmjó í lok sumars. 60 kg here I come :) Lýsi því hér með yfir að ég ætli að fara aftur á miðvikudaginn svo endilega spyrjið mig út í það og skammið mig ef fátt er um svör. Þetta er Hafdís horaða sem talar frá Stúdentagörðum Hafdís skrifaði klukkan 3:54 e.h. | Ég tók alveg svaðalega vel til í íbúðinni á laugardaginn að annað eins hefur vart sést. Við erum að tala um skúringar og flísapússun, röðun í hillur og skápa og bara allt heila klabbið. Enda er þessi elska eins og ný. Það er heldur mikið að gera hjá mér í skólanum þessa dagana. Fer í próf á miðvikudaginn, föstudaginn og á að skila ritgerð á þriðjudaginn ásamt því að fara í könnun og svo er verklegt og bara fjör. Ágætt fyrir mig að hafa mikið að gera því þannig vinn ég best - það er undir álagi. Ég er ennþá í góðum gír eftir seinustu viku þar sem lærdómur var ofarlega á listanum. Gekk ágætlega í prófinu sem ég fór í á laugardaginn og bíð úrlausnarinnar spennt - verð samt örugglega hætt að vera spennt eftir mánuð þegar einkunnirnar koma. Já, hlutirnar gerast hratt í HÍ. Það var fjölmennur mótmælafundur fyrir utan Aðalbyggingu í dag - ég var mjög ánægð með það. Gat reyndar ekki mætt sjálf þar sem ég þurfti að keyra Sveinbjörn í vinnuna. Hann er meira þar en heima hjá sér þessa dagana. Fer á morgnana og kemur seint á kvöldin. Góð æfing fyrir mig áður en hann fer til Kína... Hvernig er annars stemningin? Hafdís skrifaði klukkan 3:52 e.h. |
21.3.04
Ég gerð stór mistök í gær, svolítið sem ég sé mjög eftir og ætla ekki að láta endurtaka sig!
Ég fór á hælaskóm niður í bæ! Ég veit ekki hvernig mér datt þetta í hug en nýju pæjunni í mér fannst þetta bara góð hugmynd. Kvöldið byrjaði alveg vel ég náði að dansa til þrjú og var ekkert þreytt í fótunum og var í raun bara búin að gleyma að ég væri á hælaskóm. Síðan þegar ég var á heimleið var ég fljót að finna fyrir því að tábergið á mér væri ekki alveg hamingjusamt með þessa nýju aðferð mína. Þegar ég kom heim var ég mikið að velta fyrir mér hvort ég ætti að fara úr skónum fyrst eða pissa en ég var búin að vera í spreng alla leiðina...ég ákvað að pissa fyrst eftir smá umhugsun og þó að það hafi verið gott þá jafnaðist það ekkert á við að fara úr tæki djöfulsins. Ég gat ekki labbað eðlilega í gær og í dag er ég ennþá hálf haltrandi þar sem iljarnar á mér eru rauðar og þrútnar. Ég viðurkenni þó að ég labbaði mjög hratt heim í gær og gangstéttar eru ekki mýksta undirlag sem fyrirfinnst en ég hélt að þetta væri ekki svona slæmt. Ég er að hugsa um að fara bara ekkert í gallabuxunum niður í bæ aftur þannig að þetta þurfi ekki að endurtaka sig - nema þá að ég verði bara með bílinn í nágrenninu. Ég skemmti mér nú samt mjög vel í gær og gladdist mjög þegar elskan mín kom fyrr heim úr sumarbústaðaferð en ætlað var - segi sjálfri mér að hann hafi saknað mín svona mikið en horfist í augu við að hann tók hvorki með sér svefnpoka né dýnu... Komst samt að því í gær að sumir strákar eru með MJÖG heimskulegar viðreynsluaðferðir og ég furða mig ekki mikið á því að þeir séu á lausu. Gott að vera að daðra við einhverja stelpu á barnum og taka í höndina á annarri sem labbar framhjá og strjúka henni - what? Enda sendi ég honum the evil eye og sá ekki meira af því greyi. Þrátt fyrir ofnæmi, sára fætur og vonlausa gaura skemmti ég mér sérlega vel í gær og get núna lifað á þessu næstu vikur og mánuði :) Hafdís skrifaði klukkan 3:18 e.h. |
19.3.04
Undanfarið hef ég mikið verið að velta fyrir mér hvað fólki fer aftur við það að grúska í enskum bókum daginn út og daginn inn. Nú á tíðum rek ég mig oft á það að muna ekki hvernig íslenskt orð er stafsett og þess í stað gríp ég til þess ráðs að endurorða setninguna mína. Ég var að merkja umslög um daginn og rak augun í að ég skrifaði nágreni en ekki nágrenni, fór mikið að velta þessu fyrir mér og fannst nágreni eðlilegra. Hugsaði um GRENI en ekki orðið grennd. Núna finnst mér ósköp eðlilegt að það sé tvö n. Mér finnst að sjálfsögðu mjög gott og blessað að allt okkar nám sé á ensku og þó að fyrirlestrar eigi að vera á íslensku veit hver sá sem er kominn lengra í námi en framhaldsskóla að kennarar og prófessorar sletta ensku mjög mikið og oft nota þeir hana þó að góð og gild íslensk orð séu til yfir hlutinn. Kennarinn minn í lífeðlislegri sálarfræði er svona týpískur í þeim efnum og notar mjög mikið ensku í staðinn fyrir íslensku. Hann sagði til dæmis EMOTION svona milljón sinnum um daginn í staðinn fyrir að nota orðið tilfinningar. Ég í vonlausri baráttu minni við yfirtöku enskunnar þýddi orðið í hvert skipti sem hann notaði það og þýði yfirleitt þessi einföldustu orð sem hann notar. Ég myndi læra meira í tímunum hjá honum ef hann notaði bara eitt tungumál í stað tveggja eða þriggja þegar latínan blandast inn í þetta.
Ég hef alltaf reynt að tileinka mér góðar málsvenjur og það er mér lífspursmál að tala eins góða íslensku og ég get og því finnst mér soldið leiðinlegt að vera ekkert haldið við í háskóla. Ég veit að það hefðu ekki allir áhuga á að bæta við sig fagi í íslensku en vill fólk ekki tala rétt og hafa yfirgripsmikinn orðaforða? Sjálf dæmi ég fólk soldið út frá því hvernig það talar. Ég hef oft haldið því fram að ég sé ekki sama persónan á íslensku og ensku. Ég get ekki tjáð mig jafn vel á ensku og á íslensku og því er ég ekki sú sama. Þó að ég muni ekki alltaf orðin sem ég ætla að nota í íslensku gerist það mun sjaldnar heldur en þegar ég er að tjá mig á enska tungu. Ég er heldur ekkert svakalega æfð í því að tala á ensku þar sem lítill hluti af mínu lífi krefst þess að ég mali á ensku. Ellen vinkona mín er að læra tölvunarfræði á Akureyri og þar fer allt námið fram á ensku, öll verkefni og kennslan sjálf - meira að segja prófin. Hún er orðin miklu betri í ensku en áður enda bara eðlilegt þar sem hún hefur svo gott sem hugsað á ensku í þrjú ár. Ég hef líka sérlega gaman af því að heyra hvað hún er að læra þar sem ég skil minna en ekkert í því. Ég gæti e.t.v gert mér betur grein fyrir því ef ég heyrði íslensku þýðinguna en oft veit hún hana ekki einu sinni sjálf og það er langt síðan hún hætti að nenna að útskýra þetta fyrir mér enda er ekki mikið samlagninarmerki á milli mín og tölva! Hvað finnst ykkur, hefur ykkur farið aftur eða er allt við sama heygarðshornið? Hafdís skrifaði klukkan 4:46 e.h. |
18.3.04
Ég var alveg að klepra í dag þegar ég var búin að vera rúma 2 tíma með sama dæmið í aðferðafræði. Búin að prófa trilljón aðferðir, hringja í Sveinbjörn og spyrja Ívar á netinu þar sem hann er nú þegar búin að læra þetta. Ég var alveg að tapa mér. Rétt eftir 4 áttaði ég mig á því hvernig ætti að leysa dæmið og gat tekið gleði mína á ný. Af þessu sannfærðist ég endanlega um að verkfræði væri ekki eitthvað fyrir mig :)
Við Sveinbjörn gerðum okkur svo dagamun eftir æfingu og kíktum aðeins í Kringluna. Þar fann ég forlátar! svartar VÍÐAR buxur og flottan bol í Vero Moda á aðeins 3500 krónur samtals! Sem sagt mjög gott ;) Núna er ég að horfa á Bachelor með öðru auganum og leysa dæmi með hinu og drekka Eplacider með - gott fyrir svefninn :) Hafdís skrifaði klukkan 10:12 e.h. | Mig dreymir eitthvað voða mikið þessa dagana og það ótrúlega er að ég man það allt saman. Í nótt dreymdi mig til að mynda nokkra drauma - einn var frekar leiðinlegur þar sem ég grét mikið en í öðrum hitti ég engan annan en David Beckham. Beckham var í heimsókn hjá nágranna mínum á Vopnafirði, í húsinu beint á móti því sem ég bjó í. Hann var þar sem konunni sinni sem var reyndar ekki Fína kryddið að þessu sinni heldur önnur hugguleg, dökkhærð, grönn kona. Dóttir þeirra var líka með í för en einhverra hluta vegna var hún þroskaheft og læknir var með þeim allan tímann - einhver vinkona þeirra. Ég man greinilega að Beckham gaf mér súkkulaði sem var sérlega lostætt og að ég talaði eitthvað við þau og komst að því að dóttir þeirra hafði ýmsa kæki. Það mátti ekkert vera á hillunni við hliðina á eldhúsborðinu þegar hún borðaði og annað skemmtilegt. Hver segir svo að mann dreymi bara eitthvað bull? Hafdís skrifaði klukkan 10:42 f.h. |
17.3.04
Ég var sérlega óeigingjörn í nótt þegar ég bjargaði Ívari frá fangavörðunum í Azkaban og hélt í honum lífinu með lífsviljanum einum saman - já, ég er góð kona!
Ívar var hins vegar ekki á því að ég hefði bjargað honum og fannst líklegra að hann hefði bjargað mér. Greinilegt að hann hefur ekki gert mikið af því að lesa Harry nokkurn Potter. Mamma gaf mér síðan stafestingu á því að lagið hér að neðan er til og var sungið af Svanhildi nokkurri Jakobsdóttur um árið. Ég hef greinilega gott lagaminni! Sveinbjörn gerir stundum grín að mér þegar ég heyri hluta af lagi sem hljómar eins og brot úr einhverju öðru og byrja að syngja textann við það lag og held því áfram þó að lagið í útvarpinu breytist yfir í eitthvað allt annað lag - já, ég er sérstök. Reyndar kann ég ótrúlega mörg lög og hef mjög gaman af því að syngja þó að ég hljómi ekkert sérlega vel. Sér í lagi finnst mér þó gaman að syngja þegar ég er ein og þegar ég var yngri söng ég mikið í hárburstann og fannst ég vera svakalega klár. Til þess að einhver hafi trú á manni þarf maður að hafa hana sjálf. Ég hugsa samt að nágrannar mínir séu ekkert sérlega ánægðir með þetta uppátæki hjá mér þar sem það er talsvert hljóðbært á milli íbúða en síðan ég flutti að heiman hef ég minnnkað þetta mjög og enn meira síðan ég flutti frá Vopnafirði því að í kjallaranum á Skipasundi býr móðuramma mín og hún er oftast heima og þrátt fyrir að hún sé að verða 88 ára heyrir hún mjög vel... Fleira er ekki í fréttum að sinni.... Hafdís skrifaði klukkan 4:19 e.h. |
16.3.04
Kannast einhver við þetta...
Þú ert minn súkkulað'ís þú ert minn sælgætisgrís og þú ert sætabrauðsdrengurinn minn... Þetta er sem sagt lag (held ég) og ég syng það stundum en ég hef ekki hugmynd um hvaða lag þetta er eða afhverju ég kann bara þennan bút úr því. Yrði mjög þakklát ef einhver gæti linað þjáningar mínar í þessum efnum...vegleg verðlaun í boði! Hafdís skrifaði klukkan 11:12 e.h. | Við Sveinbjörn voru ofur dugleg á æfingu í gær, skokkuðum langt í góða veðrinu, drilluðum og tókum hraðaaukningar en það er eitt af því leiðinlegasta sem ég geri! Síðan áttum við að taka 90 metra spretti (30,30,30) og í miðjum sprettinum fengum við verkefni til að framkvæma! Til að gera langa sögu stutta var ógeðslegt loft inn í Egilshöll - mollulegt og súrefnislaust og lungun mín voru ekki sérlega ánægð með það. Eftir æfingu var ég gjörsamlega búin á því, var svo vitlaus að borða bara eina súpu eftir hádegi og hún virðist hafa dugað mér skammt því að ég var svo slöpp að ég var að deyja. Gat ekki ælt og leið bara eins og verstu druslu! Þetta lagaðist þó þegar ég var búin að drekka slatta af vatni og fá mér smá næringu! Ekki notaleg tilfinning eftir þessa æfingu þó að ég sé mjög ánægð með mig í dag! Hafdís skrifaði klukkan 12:39 e.h. | Ég hljóp inn í Odda á slaginu 10, prentaði ritgerðina mína út og hljóp niður í kjallara til að skila skýrslunni. Kassinn sem átti að skila í var horfinn og því þurfti ég að brosa mínu blíðasta til að fá að skila aðstoðarkennurunum skýrslunni. Þeir voru þó ekki með nein leiðindi en spurðu hvað við værum að pæla... Ég þarf svo að fara að hugsa mitt ráð og hætta að gera alla hluti á síðustu stundu! Hafdís skrifaði klukkan 12:36 e.h. | Mér finnst orðið ÖFUNDAÐUR svolítið skemmtilegt því ef nánar er athugað er hægt að finna bæði orðið ÖFUND í því og DAÐUR. Þar af leiðandi er þetta eiginlega tvöfalt gott orð! Þannig að stúlkur ef að þið öfundið einhvern gæja er mjög sniðugt að daðra bara við hann...Heppinn hann að vera ÖFUNDAÐUR :) Hafdís skrifaði klukkan 12:34 e.h. |
15.3.04
Við Sveinbjörn höfum skemmt okkur yfir háhraða á Huga seinustu daga. Ég vissi ekki að þeir væru með svona fyndnar klippur fyrr en í seinustu viku og síðan þá höfum við dundað okkur við að horfa á þetta yfir hádegismat og öðru slíku. Við Sveinbjörn höfum mikið verið að þræta yfir einu myndbandi sem heitir ,,Þyngdaraflið virðist ekki virka í þessum sal." Ég trúi nefnilega ekki öllu sem ég sé þar þó að þetta sé dýnugólf. Sveinbjörn er samt meira auðtrúa en ég og finnst þetta ótrúlega flott. Ég trúði reyndar stærri hluta þegar ég horfði á það aftur en alls ekki öllu. Ef þetta gerðist allt eru þessir gæjar bara alveg ótrúlegir! Svona hlutir koma alla vega ekki fyrir á fimleikamótum í sjónvarpinu.
Ef þið viljið tjá ykkur um þetta getið þið skoðað umrætt myndband hér Hafdís skrifaði klukkan 4:07 e.h. | Ég er að leggja lokahönd á plóginn við Sniffy skýrsluna - líklega eins gott þar sem ég þarf að skila henni fyrir kl.10 í kvöld! Hafdís skrifaði klukkan 4:01 e.h. |
14.3.04
Afhverju sýna þeir alltaf bara hluta af Pepsi-auglýsingunni núna? Hún er miklu betri þegar hún er sýnd öll. Verst hvað Britney kemur illa út í samanburði við hinar.
Ég er samt mjög ánægð með þessa auglýsingu. Þær eru allar mjög flottar og góðar fyrirmyndir holdafarslega séð, enginn af þeim er horrengla og það var alveg kominn tími til að fyrirmyndir með smá hold utan á sér kæmu fram á sjónarsviðið. Nú bíðum við bara eftir því að fyrirsætubransinn taki við sér og komi fram á sjónarsviðið með 10kg þyngri fyrirsætur! Hafdís skrifaði klukkan 12:34 e.h. | Það hefði komið sér betur fyrir mig að fá gesti gærkvölsins í heimsókn fyrir flugfreyjuprófið - þá hefði ég alla vega verið æfðari í ensku! Ellen elskan mín kom í kvöldmat með vini sínum sem er frá Englandi. Þau eru að fara að kynna tölvunarfræðibrautina sem hún stundar nám við og hann, Tim, kennir við. Hann er sem sagt skuggalega líkur Elijah Wood öðru nafni Frodo Baggins. Það var sem sagt mikið um frægt fólk á Eggertsgötunnu í gær. Eftir kvöldmat og eftirmat skelltum við okkur niður í bæ og kíktum aðeins á Sólon. Við Sveinbjörn gáfumst samt fljótt upp sökum keðjureykingamanna við hliðina á okkur sem vildu drepa okkur um leið og þau drepa sig. Þær þóttust ekki heyra það þegar ég benti þeim góðfúslega á þetta! Hafði soldið gaman af því að sjá stelpu sem var með mér í MS - hún var alltaf klædd á sérstakan hátt í MS og fátt hafði breyst í þeim efnum. Hún var nefnilega í hálf gegnsæjum hvítum buxum og hvítum bol við sem var hnepttur að framan og hafði ekki haft mikið fyrir því að hneppa öllum tölunum. Hún var sem sagt svaka skvísa! Gaman hvað sumt breytist aldrei! Hafdís skrifaði klukkan 12:27 e.h. |
13.3.04
Finnst ykkur ég vera sláandi líka henni?Hafdís skrifaði klukkan 2:34 e.h. | Aukaorð. Fljótlega eftir að ég byrjaði með Sveinbirni fór hann að gera mér lífið leitt varðandi aukaorð, eða þagnarkítti eins og kennararnir mínir í tjáningu og samskiptum kalla það. Þetta eru orð eins og þú veist, og, sko, því og svo mætti lengi telja sem fólk notar iðulega þegar það er að hugsa hvað það eigi að segja næst. Í rauninni er eðlilegt að þegja bara á meðan leitað er að réttu orðunum eða hugsununum en margir velja að segja þú veist í staðinn fyrir að þegja og í þessum hópi var ég. Eftir að hann fór að benda mér á þetta er ég orðin frekar meðvituð þegar fólk notar þessi orð og þau eru farin að fara í taugarnar á mér. Sér í lagi hjá fólki sem notar þau sérlega mikið. Ég fór að hugsa um þetta fyrr í kvöld þar sem vinafólk okkar var í heimsókn og þau hafa bæði notað þú veist mikið. Sveinbjörn benti honum á að hann væri búin að segja þú veist 9 sinnum í einni sögu og eftir það var ekki aftur snúið hjá honum. Hann fór að vanda sig við að tala og reyndi í raun að draga úr frásögnunum því að þetta er sérlega ergilegt. Þegar einhver bendir manni á þetta getur maður ekki að því gert að fara að hugsa um þetta. Þetta er í raun eins og að segja ekki horfa þangað því að þá er manninum eðlislægt að líta akkúrat í þá átt. Það er spennandi að gera það sem ekki má! Reyndar finnst mér ekki mikið spennandi að gera það sem ekki má ef það er ólöglegt en það er önnur saga. Því vil ég spyrja ykkur. Notið þið aukaorð mikið? Ef já, hvaða orð notið þið þá? Ef nei, GOTT HJÁ YKKUR! Fyrirgefið mér fyrir að hafa bent ykkur á þetta og orðið með því jafn pirrandi og Sveinbjörn. Ég get hins vegar lofað ykkur að þetta er af góðmennskunni einni saman! Góðar stundir, Hafdís skrifaði klukkan 2:07 f.h. |
12.3.04
Meistaraflokkur ÍR fékk úthlutað fjáröflunarverkefni frá stjórninni um að bera út ársskýrslur fyrir fyrirtæki eitt hér í bæ. Í gær áttum við að mæta 3-4 upp í ÍR-heimili til að skipuleggja verkefnið og reiknuðu stjórnarmenn með því að verkefnið tæki 1-2 klukkutíma. Ég sendi Sveinbjörn þar sem ég var í afmælisveislu föður míns en þegar hann var ekki kominn kl.9:30 hringdi ég í hann og þá sagði hann að þau ættu soldið eftir. Ég bauðst til að skipta við hann, dreif mig upp í ÍR-heimili til að gefa honum kost á að fá sér kökur og kruðerí heima í Skipasundi. Til að gera langa sögu stutta var þetta MUN umfangsmeira verkefni en formaður frjálsíþróttadeildarinnar reiknaði með og því voru þetta rúmlega 4 klukkutímar en ekki 1-2. Ég var sem sagt að flokka og sortera í allt gærkvöld heilu og hálfu hverfin hér á Reykjavíkursvæðinu! Það sem bjargaði mér í þessar einstaklingsvinnu þar sem ekki er mikið um spjall var það að síminn minn er með útvarpi og ég var svo lukkuleg að hafa tekið heyrnartólið með mér. Hin greyin þurftu að búa við það að heyra mig kyrja slagarana í hálfum hljóðum hvort sem ég kunni textana eður ei! Heppin!
Sniffy var annars bara nokkkuð stillt við mig í gær og gerði að lokum það sem hún átti að gera - þessi elska! Ég var hins vegar orðin dáldið þreytt á því að horfa á hana rölta um búrið, þvo sér og klóra sér á trýninu. Samt gaman að vita hvernig þetta virkar! Hafdís skrifaði klukkan 11:34 f.h. |
11.3.04
Í dag stefni ég á að þjálfa rottuna Sniffy upp í alls kyns verk í forritinu Sniffy the virtual rat. Reikna með að það verði brjálað stuð. Ég þarf að kenna henni að ýta á slá til að fá mat, fyrst þarf ég að styrkja alls kyns hegðun sem leiðir til þess að hún ýti á slánna og svona skemmtilegt.
Ég er búin að forðast gallabuxurnar mínar svo að mig fari ekki aftur að dreyma um háhælaða skó. Það versta við drauminn var nefnilega að ég er ekki búin að sjá neina eina sem mig langar í - langaði bara í einhverja skó. Leið samt mjög vel í flatbotna skónum mínum í gær og þeir koma sér örugglega vel að notum í dag líka. Ég er annars kominn með tveggja daga harðsperrur eftir blakæfinguna á þriðjudaginn - alveg að kálast í höndunum. Sveinbjörn er að rífa af mér tölvuna svo að ég segi þetta gott í bili... Hafdís skrifaði klukkan 10:46 f.h. | Hlaupagarpurinn faðir minn á afmæli í dag, ef ég man rétt er hann 35 ára. Innilega til hamingju með afmælið elsku pabbi minn : ) Hafdís skrifaði klukkan 10:43 f.h. |
10.3.04
Við erum að tala um dugnað!
Lærði frá 8 - 9:30. Ég var mætt niður í Laugardag kl.tæplega 10 í morgun - frekar hress. Skokkaði og tók svo nokkra spretti niður,beint og upp brekku allt í sama hringnum! Ég þarf ekki að hafa mörg orð um bleytuna sem fylgdi á eftir - nóg að segja að fötin mín vógu rúm 5 kíló og samt var ég ekki í mörgum fötum. Brá á það ráð að vera í tvennum hlaupajökkum yfir þunnum dry-fit bol og kom það sér vel - mér varð ekki kalt, bara blaut en ekki eins og ég hefði verið ef ég hefði verið í flíspeysu eða bómull innan undir. SNILLD. Fór svo í mission making Hafdís pretty kl.12 og var sem ný kl.14. Fór svo að gera verkefni og verklegur tími þar af eftir þar sem ég fékk rafertingu í kálfann og högg á hásinina. Já, það er erfitt að vera í sálfræði - andlega og líkamlega. Núna er ég að fara í mat til tengdó - bara pabba hans Sveinbjörns og konunnar hans :) Later, Hafdís skrifaði klukkan 6:56 e.h. | Ég er vöknuð! Þessi setning hljómaði í eyrum móður minnar á hverjum degi í langan tíma þegar ég var lítil. Í kringum 9 leytið á hverjum morgni hringdi ég í hana, 7 ára hnáta, og tilkynnti henni um vöku mína. Í seinni tíð hef ég nokkrum sinnum tekið upp á þessari hefð minni, bara til að minna móður mína á hvað ég var yndislegt barn! Ég man ekki hvað það er langt síðan ég var vakandi kl.7.30 en ég get lofað ykkur því að það eru talsvert langt síðan. Á það-sem-ég-á-eftir-að-gera listanum í dag er eitt stykki æfing fyrir hádegi, tilraun, sturta, lærdómur, mission making Hafdís pretty og þar sem ég ofmetnast alltaf við gerð svona lista 5 atriði til viðbótar og þetta á allt að gerast fyrir kl.4 því að þá fer ég í verklegan tíma til kl.19 og þá er matarboð hjá tengdapabba og konunni hans. Af slæmri reynslu veit ég þó að ég næ aldrei að gera þetta allt á einum degi en ég ætla að leyfa mér að halda það svona fram eftir degi - ég þyrfti nefnilega nauðsynleg á því að halda að tíminn liði ekki alltaf svona hratt. Hann mætti hins vegar líða soldið hraðar þegar mér leiðist - þá mjakast hann bara áfram! Ég er strax farinn að hlakka til að fara á æfingu út í þessu yndislega veðri, ég verð ekki bara blaut inn að beini! Hvenær ætli Egilshöllin opni? Hafdís skrifaði klukkan 7:38 f.h. |
9.3.04
Hvað er að gerast með mig?
Afhverju er ég að breytast? Ég vil það ekki, ég vil bara vera eins og ég var. Ég er í hringiðu, ég veit ekki hvað er að gerast. Það eru komnar nýjar hugsanir inn í huga mér - slæmar! Ég er að verða eitthvað annað en ég var. Hvað á ég að gera? Ég er að dragast inn í heim djöfulsins. Bregðast öllu því sem ég trúði einu sinni á! Ég er farin að láta mig dreyma - dreyma um tól - tól sem ég á ekki að hugsa um! Hvernig á ég að hreinsa mig af þessum hugsunum? Hvað á ég að gera til að hætta þessum dagdraumum og vangaveltum um hluti sem ég hef aldrei girnst fyrr? Já, ég er djúpt sokkin! Ég er farin að hugsa um að kaupa mér hælaskó! Hvað var um pæjuleysið í mér? Hvert fór litli sakleysinginn? Hvað get ég gert til að finna mig á ný? Heimurinn versnandi fer... Hafdís skrifaði klukkan 1:43 e.h. |
8.3.04
Ég var dugleg í gær...
Ég LÆRÐI Horfði á HM. Borðaði hollt inn á milli bingókúlanna. Fór út í brjálað veður til að kaupa í matinn. Fór út í enn brjálaðara veður til að taka spólu. Horfði á spóluna og gladdist mjög yfir því hvað ég er fær spólutökukona. (Ég klikka nefnilega í svona 98% tilfella og tek annað hvort spólu sem við erum búin að sjá eða leiðinlega mynd) Já, ég stóð mig bara nokkuð vel í gær! Hafdís skrifaði klukkan 11:36 f.h. |
7.3.04
Ljúft kokteilkvöld.
Við vinkonurnar úr Saumóz, saumaklúbbnum, hittumst í gær. Elduðum spjölluðum og drukkum kokteila! Við elduðum reyndar venjulegt pasta og maginn á mér er ekki par hrifin af því og þar af leiðandi var hann með garnagaul og læti í allt gærkvöld. Stelpurnar fundu ekki eggjapasta í Hagkaup og keyptu því bara eitthvað sem þeim fannst innihalda mikið af eggjum ;) Ég lifði þetta alla vega af svo að... Það var mjög skemmtilegt enda alltof langt síðan við hittumst seinast. Ég gerðist hins vegar svakalegur svikari og lét mig hverfa fyrir miðnætti. Sendi honum Sveinbirni mínum lúmskt skilaboð þegar þær tóku ekki eftir og svo hringdi hann þegar hann var fyrir utan. Þær gerðu reyndar heiðarlega tilraun til að sannfæra mig um að lokka Sveinbjörn bara upp og láta hann koma með okkur niður í bæ. Ég vissi hins vegar að ég myndi þá bara sofna í einhverjum sófa í byen þar sem ég var að drepast úr þreytu. Ég náði að skríða inn í rúm og horfa á svona 5 mínútur af Mystic River áður en ég rotaðist. Þetta var í kringum miðnætti og ég vaknaði svo ekki fyrr en kl.11 svo að það hefur verið mikil þreyta í stelpunni! Í dag bíða mín 26 spurningar í Greiningu og mótun hegðunar - er að fara í umræðutíma á morgun. Ég hef aldrei náð að klára allar spurningarnar (metið mitt er 10) svo að nú er að duga að drepast og koma hópnum sínum stórlega á óvart! Ég var síðan að átta mig á því að ég þarf að gera eitt stykki skýrslu í næstu viku sem ég á að skila 12. og ég er ekki einu sinni búin að gera tilraunina. Við áttum nefnilega bara sjálf að skrá okkur og það hefur eitthvað skolast til hjá mér! Ég massa þetta bara á mánudaginn! Ég vinn nefnilega best undir pressu! Næsta vandamál á dagskrá er svo hvað sé sniðugt að borða í kvöld. Einhverjar hugmyndir? Hafdís skrifaði klukkan 12:49 e.h. |
6.3.04
Ég sló ólátabelgjum Eggertsgötunnar út í nótt þegar ég vildi fara að sofa kl.2 en þau voru með það mikil læti að sirkus hefði fölnaði í samanburði. Ég skellti í mig eyrnatöppum og sofnaði nánast um leið enda voða hljótt og notalegt í kringum eftir að tapparnir voru komnir í. Ég vaknaði síðan í nótt til að fara á klósettið eins og vanalega og tók tappana þá út og þá var komin notaleg þögn á nýjan leik ;)
Vaknaði reyndar upp um 6 leytið þegar einhverjir voru að koma heim af djamminu og þar með talið nágranni minn á efri hæðinni sem ákvað að fara bara ekkert úr pinnahælunum sínum og var í þeim alveg fram eftir morgni. Ég er að hugsa um að fara núna í háhæluðu skónum mínum og hoppa upp á þaki - fyrir ofan íbúðina hennar! Það væri samt kannski sniðugra að fara bara fyrir utan íbúðina, hún ætti að heyra það líka druslan! Ég fór annars í vísindaferð í gær, fór með verkfræðinemum í Línuhönnun. Ég hafði nú samt mismikinn áhuga á fyrirlestrunum sem voru 4 og stóðu helst til of lengi en sumt kannaðist ég við og gat fylgst með en í öðru var ég alveg týnd og tröllum gefin. Ég ætlaði upphaflega ekki að fá mér áfengi en þar sem verkfræðingar eru miklir bjórdrykkjumenn og mun skemmtilegri þegar maður er drukkinn var ég dregin niður í svaðið og fékk mér smá bjór með krökkunum. Reyndar ekki nema 2 en samt nógu mikið til að skilja bílinn bara eftir! Við fórum á Prikið eftir vísindaferðina það er nú ekki uppáhaldsstaðurinn minn en þetta bjargaðist! Ég kíkti svo aðeins á Ernuna mína á Pravda og við lokuðum svo hringnum á Hverfisbarnum. Ágætis kvöld alveg hreint! Hafdís skrifaði klukkan 11:31 f.h. |
5.3.04
Nú er það komið á hreint að ég verð ekki flugfreyja þetta sumarið. Get ekki sagt að það komi mér á óvart þar sem viðtalið fór ekki eins og best verður á kosið. Það er nokkuð ljóst að ég þarf að vinna mikið í tungumálakunnáttu minni ef ég hyggst reyna við þetta starf síðar.
Ég frétti reyndar líka í dag að það verður 6 vikna námskeið frá 9-5 sem byrjar á mánudaginn og ég get ekki misst svo mikið úr skóla. Ég hefði örugglega þurft að segja nei ef ég hefði fengið starfið af þessum sökum... Nú er bara að vona að einhver aumki sig yfir mig og ráði mig... Hafdís skrifaði klukkan 4:27 e.h. | Ég skemmti mér ljómandi vel yfir þessu í morgun: Sigurjón var eitthvað að tala um að hann væri meira en til í að þvo þvottinn bara fyrir þig. Hann sagðist meira að segja geta sótt hann til þín og skilað honum líka. Þú bjallar bara á hann. Árni 12.12 Árni er eitthvað að misskilja sko, mamma hans bað mig nefnilega um að fara með nærbuxurnar hans í efnalaugina því það væru svo rosaleg bremsuför á þeim, hún réði bara ekki við það. Þessvega tók ég þvotinn hans þarna einu sinni... Sigurjón 3.02 Og þegar Sigurjón segir bremsuför þá á hann ekki við nein bíla-bremsuför nema ef það eru til brún dekk sem er ekki kúl. Eitthvað sem Saab myndi kannski gera en ég ek náttlega um á Volvo. Þó að ég bremsi í buxurnar mínar þá varstu samt að tala um að þú gætir farið með þvottinn hennar. Og já á meðan ég man Sigurjón. Þessi belgíski bóndi sem þú pantaðir þér á netinu... er hann kominn? En ég er ekki alveg svo viss um að ég ætli með ykkur í bláa lónið. Þið viljið ábyggilega vera tveir einir. Árni 3.05 Hann kemur á laugardaginn. Það er ekkert pláss fyrir hann hérna sko þannig að ég er búinn að tala við mömmu þína og pabba um að hann gisti heima hjá þér. Svo ætlar hann líka að læra HTML af þér þannig að hann verður mest megnis heima hjá þér... Sigurjón 3.11 Kúl. Var einmitt að vonast til að fá hann til mín. Vildi bara ekki vera dónalegur. Þannig að jesssss. Ert þú fíflið sem ert alltaf að kjósa Skítamórals lagið á Popp Tíví því þú vilt sjá kjánann sem þú fórst í bað með? Árni 3.12 Nei, ég er að því til að sjá mestu mellur íslands í mjólku-bað-slag Sigurjón 3.22 Ég er að reyna að kjósa þarna Falkaner gaurinn eða hvað sem hann heitir. Gengur illa þar sem ég borðaði óvart símann minn. Árni 3.29 Er hægt að segja eitthvað annað? Hafdís skrifaði klukkan 1:33 e.h. | Ég lifði matarboð mafíunnar af í gær. Ég segi mafíunnar af því að það tók svo langan tíma að samþykkja mig. Eins og mér er einni lagið eignaðist ég strax tvo vini. Eina stelpu sem er 2 og hálfs mánaðar og einn strák sem er 4 ára. Svo var reyndar einn maður þarna sem er aðeins undir meðalgreind sem var líka sérlega hrifinn af mér! Hann var sérlega hress og sagði mér margar skemmtilegar sögur! Til dæmis söguna af því hvernig hann og konan hans föttuðu eftir 3 mánuði að hún væri ólétt. Hvernig veðrið var þegar barnið fæddist. Hvernig íbúðin þeirra væri. Hvað allt hefði lamast í vinnunni hans þegar hann fór í feðraorlof og margar aðrar stórskemmtilegar. Ég skemmti mér sem sagt konunglega. Það er svo gaman að vera svona settlegur og sætur í marga klukkutíma og segja sömu sögurnar aftur og aftur. Ég er í sálfræði, við kynntumst á háskólaballi fyrir rúmlega tveimur árum. Foreldrar mínir búa í Skipasundi. Ég bjó á Vopnafirði í 16 ár og er ættuð þaðan og af Vestfjörðum, úr Önundarfirði. Ég var sem sagt búin að gleyma hvað fjölskylduboð eru skemmtileg. Ekki misskilja mig ég hafði mjög gaman af því að hitta þennan hluta fjölskyldunnar - það er alltaf skemmtilegt að kynnast nýju fólki en...fjölskylduboð, fermingarveislur, jólaboð - þetta er allt saman voðalega lítið skemmtilegt! Mér finnst betra þegar minni hluti fjölskyldunnar hittist þar sem maður þekkir alla voða vel og þarf ekki að vera með svona kurteisissamræður. Hafdís skrifaði klukkan 10:27 f.h. | Ski ekki hvernig fólk tímir að fara til útlanda, veðrið á Íslandi er svo spennandi. Maður veit aldrei hvað maður fær. Ég fór á æfingu í glampandi sólskini í gær, þegar ég var búin að skokka var orðið skýjað og á meðan ég drillaði var grenjandi rigning - það mikil að það var ekki þurr þráður á mér og svo þegar kom að hlaupunum sjálfum birtist sólin á ný og lét eins og ekkert hefði í skorist , druslan sú arna. Ég fyrirgaf henni sko ekkert að koma svona með rigningu og var bara fúl og svekkt og leit ekki einu sinni á hana! Hafdís skrifaði klukkan 10:20 f.h. |
4.3.04
Þetta er allt að koma til...veðrið orðið gott og ég að hressast.
Í dag er mikið að gerast hjá minni. Tími til hálf eitt, verklegt frá 16-19 og svo matarboð frá 19 og fram á kvöld hjá föðurfjölskyldunni hans Sveinbjörns sem ég hef aldrei hitt. Nei, þið lásuð rétt. Við erum búin að vera saman í 2 og hálft ár en ég hef aldrei hitt föðurfjölskylduna hans. Ég hef hitt pabba hans og konuna hans og eina frænku hans og manninn hennar og þá er það upptalið. Smá pressa á mér í kvöld að vera heillandi sem sagt! Ég reikna því með að fara á æfingu einhvern tímann á milli 13 og 16 og þá þarf ég einmitt líka að taka soldið til og þvo ÞVOTT því að ég hef ekki gert það í háa herrans! Baksturinn hefur reynt of mikið á mig. Silja getur huggað sig við að kakan er núna búin og mín að fara að hlaupa hana af sér svo að rassinn verði ekki of stór fyrir nýju gallabuxurnar mínar! Stundum sakna ég þess að búa ekki á Hjónagörðum því að þar voru 5 stórar þvottavélar en hér er bara ein sem maður þarf að panta! Ekki nógu gott. Maður er svo miklu lengur að þvo þegar það er bara svona ein. Þá þarftu að fara niður á 30 mínútna fresti til að skipta um í vélinni! Ég er ekki hrifin af þessu ég vil bara klára þetta svona allt í einu! Best að fara að panta þvottavél... Hafdís skrifaði klukkan 10:51 f.h. |
2.3.04
Það er ógeðis veður úti. Í svona veðri nennir maður ekki að gera neitt og því var svo sem alveg ágætt að vera bara hálf lasin í dag. Ég er komin með kvef og er rám og líður ekkert svakalega vel! Samt hafði ég það af að baka einn heitan rétt og eina súkkulaðiköku áður en tengdamamma og tilvonandi mágur minn komu í heimsókn, pabbi og Sæunn fréttu síðan af veigunum og voru ekki lengi að láta sjá sig! Já, lyktin berst langt þó að það sé rigning.
Við, Sveinbjörn, eyddum samt mest öllum deginum í að reyna að tengja fartölvuna við sjónvarpið svo við gætum horft á myndirnar sem hann er búin að vera að downloada í betri gæðum. Hann keypti eitthvað S-video tengi til þessa en það virkaði ekki betur en svo að myndin er svart/hvít í sjónvarpinu og hljóðið kemur bara úr tölvunni. Hann sagði samt köllunum í búðinni hvað hann ætlaði að gera en þeir föttuðu ekki að segja honum að hann þyrfti aðra snúru fyrir hljóðið og að í raun væri sniðugra fyrir hann að kaupa eitthvað rca tengi eða eitthvað álíka til að ná myndinni í lit. Létu hann sem sagt kaupa scart tengi sem var víst ekkert voða sniðugt! Þetta er í raun allt latína fyrir mér og því skil ég sjálf ekkert í því sem stendur hér að ofan - humm, hvers vegna var ég að skrifa það...gott etta. Ég fór sem sagt ekki á æfingu í dag - bakaði bara í staðinn - líka mjög gott! Afgangurinn af sænsku súkkulaðikökunni rann líka svona ljúflega niður og núna er ég búin að baka aðra! Þetta verður sem sagt góð vika! Þeir sem eru ekki að hugsa um línurnar eða þurfa þess ekki eru sem sagt meira en lítið velkomnir í heimsókn á næstu dögum ; ) Hafdís skrifaði klukkan 11:05 e.h. | Ljúfa líf Þegar Erna var búin að drepa mig með því að láta mig skokka hratt í 20 mínútur - ég skil nefnilega ekki hvers vegna fólk skokkar hratt í 20 mínútur því þá tapar það bara - gæti skokkað hægt og ekki þurft að fara jafn langt - og þegar ég var búin að drepa sjálfa mig með 10x100 brunaði ég heim á leið og þá beið mín dýrindis kjúklingaréttur, hvítvín og kertaljós. Hann Sveinbjörn minn var búin að vera svona myndarlegur og svo stjanaði hann við mig í allt gærkvöld þessi elska. Ég hafði það sem sagt bara gott og fékk súkkulaðiköku í eftirmat sem var að sjálfssögðu hituð inn í örbylgju ; ) Við sváfum síðan fram eftir enda bæði þreytt eftir amstur helgarinnar! Ég var líka í fullri vinnu í gær við að reyna að svara skilaboðum og hamingjuóskum sem mér bárust en ég held að ég hafi ekki náð að svara helmingnum - frekar léleg. Ég er bara ekki nógu klár á nýja símann minn ennþá og er því helmingi lengur að pikka inn skilaboð - sem sagt svona svipað lengi og fljótasti strákur! Ég fékk nýjan 3200 sem ég er ekki lítið ánægð með þar sem minn gamli var alveg að syngja sitt síðasta og var mest hrifinn af því að verða batteríslaus í hvert einasta skipti sem einhver hringdi í mig - sem sagt einu sinni á dag ; ) Hann er afspyrnu fallegur þessi elska og mér þykir ekki mikið leiðinlegt að vera með myndavél í símanum mínum. Síðan fékk ég blóm og konfekt og afspyrnu fallegan augnskugga sem á áreiðanlega eftir að prýða mig í ófá skipti. Ég gleymdi alveg að fá mér bjór í gær en Sveinbjörn reddaði því fyrir mig! Hugsa að ég haldi bjórdaginn bara frekar hátíðlegan á föstudaginn! Annars líst mér ekkert á veðurspánna fyrir kvöldið, það á víst að vera þvílíkur stormur um það leiti sem ég þarf að skokka úti - hvers á ég að gjalda! Vil ekki að Þráinn þjálfari skammi mig aftur fyrir að mæta lítið á æfingar - mér finnst ekki gama að fá skömm í hattinn og þarf iðulega að vanda mig við að fara ekki að grenja þegar það gerist en ég stóðst prófið í gær og bar mig bara illa og sagðist ætla að bæta mitt ráð og svo var ég ofur dugleg! Hann reyndar fylgdist með öllum mínum hreyfingum og því gat ég ekki annað! Já, ég þarf að hafa svolítið aðhald ; ) Mér þætti vænt um að einhver myndi vilja ráða mig í vinnu í bráð, ég er orðin dáldið stressuð yfir þessu öllu saman. Best að ég sæki um nokkrar í viðbót... Hafdís skrifaði klukkan 11:40 f.h. |
1.3.04
Mér finnst ótrúlegt að hugsa til þess að það séu liðin 23 ár síðan ég fæddist. Finnst ekki svo ýkja langt síðan ég stökk upp úr rúminu eftir slitróttan svefn á afmælisdegi mínum til að athuga hvort ég væri búin að stækka til að geta sagt ömmu það þegar hún hringdi. Ég man líka eftir afmælisdeginum þegar ég fékk NINTENDO tölvuna mína. Þá svaf ég mjög lítið og sá að það var lítill sætur pakki á gólfinu í herberginu mínu en ég beið með að opna hann þangað til klukkan var orðin 6. Þá sá ég að þar var sjampó og hárnæring og miði sem á stóð að raunverulega gjöfin mín væri inn í fataskáp fram á gangi. Ég fór aðeins upp í rúm og melti hvort ég ætti að opna hana strax, náði að tefja það í smá tíma en dreif mig svo fram úr til að sækja gjöfina og þurfti að hemja öskrin þegar þessi dýrð kom upp úr pakkana. Ekki nóg með að mig hafi dreymt um leikjatölvu heldur var þetta líka tölva fyrir 4 spilara og það var sko flottara! Ég man líka eftir afmælisdeginum sem ég hafði skipulegt til þaula þar sem keppt var í alls kyns greinum sem við Ellen vinkona vorum búnar að æfa okkur á - mjög gott. Verðlaunin voru svo öll eins fyrir greinarnar - PK tyggjó. Hugmyndaflugið alveg að drepa mig!
Ég man líka eftir því þegar allur skólinn fór á skauta á afmælisdaginn minn. Í gegnum tíðina hefur mjög oft verið gott veður þann dag og því oft mikið brallað. Reyndar man ég líka þegar það var brjálað veður og ég fékk skóflu í afmælisgjöf og gestirnir þurftu að moka sig inn um hurðina. Eitt hefur samt alltaf tíðkast - það var alltaf mikið fjör í Hamrahlíð 16 á Vopnafirði þegar ég átti afmæli! Mamma er þvílíkur bakarameistara og hálfur bærinn mætti í kaffi! Síðan ég flutti í bæinn hefur aðeins hægst á afmælisveislunum mínum en engu að síður finnst mér alltaf gaman að eiga afmæli - ætli það sé ekki vegna þess hversu athyglissjúk ég er og hvað mér þykir gaman að vera miðdepill athyglinnar - jú, það er þess vegna ; ) Já, það er gaman að eiga afmæli! Hafdís skrifaði klukkan 3:11 e.h. | Fyrir nokkrum árum hefði ég aldrei gert það sem ég er að fara að gera en ég held að þroskinn sé farinn að segja til sín. Ég á afmæli í dag, ég á afmæi í dag, ég á afmæli sjálf. Ég á afmæli í dag ;) Gleðilegan bjórdag öll sömul... Seinast í fyrra var ég með þá stefnu ríkjandi að minna fólk reglulega á afmælið mitt áður en það rann upp en á daginn sjálfan þagði ég og ætlaðist til að allir myndu eftir því... Núna ætla ég að dreifa gleðinni og leyfa öllum að samgleðjast ellinni með mér ;) Ef ég ætla að feta í fótspor móður minnar þarf ég að verða ólétt innan skamms - skransans! Vonandi njóta allir dagsins, ég þarf að gera eitt stykki verkefni! Hafdís skrifaði klukkan 11:31 f.h. |
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||