|
|||||||||||||||||||
|
31.10.03
Hef lengi ætlað að skrifa lista 100 mismerkilegra atriða um sjálfa mig og loksins lét ég verða að því, enjoy.
1. Ég fæddist á Landspítalanum 1.mars 1981 2. ég var 15 merkur og 52 cm 3. Ég bjó í Reykjavík þangað til ég varð 3 mánaða 4. þá flutti ég til Vopnafjarðar þar sem ég bjó til 16 ára aldurs 5. ég hef búið í Reykjavík síðan 6. Foreldrar mínir heita Sigríður Karlsdóttir og Pétur Hafsteinn Ísleifsson 7. ég á eina yndislega systur sem heitir Sæunn 8. ég á líka 2 ömmur en engan afa, 9. ég fékk bara að kynnast öðrum þeirra 10. hann kunni að prjóna ullarsokka og var yndislegur í alla staði 11. ég hefði viljað kynnast pabba hennar mömmu, 12. okkur hefði komið vel saman. 13. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á íþróttum og síðan ég man eftir mér hef ég verið spriklandi. 14. Ég byrjaði að keppa í frjálsum íþróttum þegar ég var 10 ára 15. þá fékk ég 3 fyrstu medalíurnar mínar 16. ég grenjaði í fyrsta skipti sem ég tapaði í spretthlaupi 17. ég er ennþá mjög tapsár og finnst fátt leiðinlegra en að tapa. 18. ég hef líka æft fótbolta, 19. leikið mér í körfubolta, 20. blaki 21. og handbolta. 22. Mér finnst ekki eins gaman að æfa núna og mér fannst hér áður fyrr. 23. Ég er mjög óákveðin 24. sem dæmi um það má nefna að ég hef prófað 3 brautir í Háskóla Íslands 25. Sjúkraþjálfunarskor 26. Viðskiptafræðiskor 27. og núna að síðustu sálfræðiskor en mér líkar mjög vel í sálinni. 28. og reikna með að halda áfram á þeirri braut. 29. Ég á marga góða vini en besti vinur minn er jafnframt kærastinn minn 30. hann heitir Sveinbjörn Jónsson 31. ég elska hann meira en lífið sjálft! 32. Við erum búin að vera saman í rúmlega 2 ár 33. Við búum saman á Stúdentagörðum í lítilli, sætri íbúð. 34. Ég hef átt tvo aðra kærasta 35. Ég sakna Vopnafjarðar mikið 36. Þar býr yndislegt fólk 37. Þegar ég eignast börn ætla ég að búa út á landi 38. mér finnst ekki ákjósanlegt fyrir lítil börn að alast upp í þessar ys og þys 39. ég vil ekki geyma barnið mitt á leikskóla og í barnapössun á líkamsræktarstöðvum. 40. ég ætla ekki að missa af neinu. 41. Ég er mikil tilfinningavera og tek hluti mjög inn á mig. 42. Ég er langrækin 43. Mér finnst vinur vera sá sem hringir reglulega í þig 44. einhver sem man eftir afmælisdeginum þínum 45. og sá sem er til staðar fyrir þig þegar erfiðleikar steðja að 46. Ég á ekki marga svoleiðis vini. Á fleiri kunningja. 47. Besta vinkona mín heitir Ellen, 48. hún skilur mig svo vel. 49. Ég held að ég sé mjög góður vinur vina minna og vill allt fyrir þá gera. 50. vinir eru mjög dýrmætir. 51. Mér finnst líka gaman að gleðja aðra, 52. Fjölskyldan mín er yndisleg, held ég sú besta í heimi 53. við mamma erum mjög góðar vinkonur og ég þarf helst að heyra í henni á hverjum degi 54. Við pabbi erum mjög lík og eigum því mjög vel saman 55. við erum bæði mjög hávær og miklar brussur 56. Systir mín er 15 ára og framan af höfum við keppst um athygli foreldra okkar 57. núna erum við orðnar betri vinkonur og ég ætla aldrei að missa hana. 58. Ég bjó í Skipasundi 57 59. Ég varð mjög reið þegar ég frétti að við værum að flytja til Rvíkur. 60. ég var lengi reið við pabba fyrir að fá vinnu fyrir sunnan. 61. Sumarið sem við fluttum grét ég meira en ég hef nokkru sinni gert 62. ég var líka hálf þunglynd 63. ég átti enga vini í Reykjavík og var ekki dugleg að koma mér á framfæri. 64. ég hverjum degi hjólaði ég frá Skipasundi 57 og upp í Árbæ 65. þaðan fékk ég far á æfingu með þjálfaranum mínum. 66. Ég byrjaði svo í MS haustið 1997 67. fyrst fannst mér ekki gaman og saknaði Ellenar 68. ég hringdi í hana tvisvar á dag allt sumarið. 69. Við vorum búnar að ákveða að fara í MA saman 70. við ætluðum alltaf að vera saman. 71. Fljótlega kunni ég þó betur við mig og eignaðist vinkonur 72. við áttum samleið 8 saman öll árin í MS og erum núna í saumaklúbb. 73. Ég hef ekki kynnst mörgum eftir að ég fór í Háskóla 74. veit ekki afhverju það stafar, 75. Ég skemmti mér ekki mikið 76. finnst mjög gaman að hitta fólk og hafa gaman 77. og í raun finnst mér það skemmtilegra en að fara niður í bæ. 78. ég þarf ekki að drekka áfengi til að skemmta mér 79. ég byrjaði ekki að drekka fyrr en ég var 18 ára 80. Þá hætti fólk að suða í mér og ég gat tekið ákvörðunina sjálf 81. að vissu leyti gerði ég það samt til að falla inn í hópinn 82. allar vinkonur mínar drekka fyrir utan eina, hún býr á Akureyri. 83. Ég er með exem, það er húðsjúkdómur 84. þegar ég var lítil héldu krakkarnir að exem væri smitandi og neituðu að leiða mig í dansskólanum. 85. mér fannst það mjög leiðinlegt. 86. ég er líka með ofnæmi og má því ekki eiga gæludýr. 87. Mér finnst gaman að vera fín 88. samt finnst mér líka gott að vera í þægilegum fötum og heimilisleg. 89. ég er oft mjög ókvenleg, held ég hafi það frá pabba 90. alla vega sit ég alveg eins og hann. 91. Þegar ég var lítil átti ég þó ósk heitasta að vera strákur 92. núna er ég ánægð að vera stelpa 93. Ég er með brúnt hár 94. ég er með blágrængrá augu 95. ég er búin að gráta talsvert á meðan ég skrifaði þessi atriði 96. en ég get líka grenjað yfir Tarzan teiknimyndinni. 97. Ég held að ég verði seint fullkomlega ánægð með sjálfa mig 98. Einn af uppáhalds frændum mínum framdi sjálfsmorð 99. ég er ekki enn búin að fyrirgefa honum það, eigingirni af verstu gráðu. 100. ég sakna hans! Hafdís skrifaði klukkan 5:37 e.h. |
30.10.03
Vinnu við þessa elsku er ekki lokið ennþá og endanleg tímamörk hafa ekki enn verið ákveðin. Ég reikna með að þurfa smá hjálp við að klára hana og hef ekki enn leitað mér hennar.
Dugnaður á öðru sviðum hefur þó ekki látið á sér standa í dag og 6 þvottavélar fengu að finna fyrir því í kringum hádegi. Óþolandi hvað maður er fljótur að henda fötunum inn í þvottavélina en lengi að hengja upp úr henni. Vildi að þetta væri ekki svona tímafrekt. Ég get sett þvottinn í þurrkara en þar sem ég er á strangri fjárhagsáætlun hengi ég þvottinn frekar upp. Ég er líka búin að komast að því að ef að ég tek þvottinn ekki niður í 2 daga er einhver annar búinn að því fyrir mig og í sumum tilvikum búinn að brjóta þvottinn saman líka - þvílík þjónusta. Þess vegna á ég það til að gleyma þvottinum niður í þvottaherbergi í nokkra daga ; ) Það er ekki eins og ég eigi lítið af fötum. Íþróttafötin fá þó ekki að dvelja lengi á snúrunum þar sem þau eru í strangri notkun. - svona yfirleitt alla vega! Þar sem ég hef átt mjög erfiðar tvær vikur sleppti ég æfingu í gær og í staðinn keyptum við Sveinbjörn okkur pizzu, leigðum spólu og borðuðum afgang af afmælisköku. Ég var svo myndarleg að baka köku á þriðjudaginn en tókst nú samt eðlilega að klúðra henni soldið. Mamma gerði eilítið grín að mér, held að hún sé aðallega svekkt yfir því að ég hafi ekki erft myndarlegheit hennar en ég get fullvissað hana og ykkur öll um að ég er mun svekktari en hún. Væri alveg til í að hafa bara helminginn af því sem mamma hefur því að allir sem hafa borðað matinn hennar mömmu vita að hún er einn besti kokkur í heimi. Ætla ekki að fara út í væmnari setningar í dag til að hlýfa ykkur. Ég er að hugsa um að skella í eina skúffuköku svo að ég geti boðið vinkonum mínum upp á eitthvað góðgæti í kvöld þegar þær koma í heimsókn! Ykkur er líka velkomið að koma að horfa á Bachelor ef þið viljið, með hverri heldur fólk annars? Ég held nefnilega eiginlega ekki með neinni. Það heillar mig engin upp úr skónum! Jæja, best að fara að baka svo að ég komist á æfingu í tæka tíð - þarf að taka tvöfalda sökum þreytu í gær. Hafdís skrifaði klukkan 4:06 e.h. |
29.10.03
Með nýrri síðu kemur nýtt heiti. Frá og með deginum í dag mun ég skrifa undir mínu eigin nafni, enda mjög stolt af því. Síðan mín mun framvegis vera fundin á www.hafdisosk.blogspot.com
Ég er búin að eiga þetta nafn síðan ég byrjaði að skrifa og í fyrstu hafði ég þetta bara sem prufusíðu, prófaði breytingarnar hér áður en ég setti þær inn á bjútíkvín en ég hef í nokkuð langan tíma verið óánægð með bjútíkvín, held að það sé ekki lýsandi fyrir mig lengur. Reikna ekki með að síðan mín muni breytast mjög mikið en ég vona að ég fari að skrifa oftar og vera all hressilegri í umfjöllunum mínum. Ég er búin að sofa lítið undanfarið og hef því ekki margt skemmtilegt að segja í dag en það mun sko breytast. Koma tímar, koma ráð! Hafdís skrifaði klukkan 6:06 e.h. |
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||