31.3.06
Hádí,

Vildi bara láta ykkur vita að ég er á lífi og hress! Ég lenti í svolitlu spennandi á miðvikudaginn en get ekki sagt ykkur betur frá því fyrr en á sunnudag/mánudag svo að þið verðið bara að vera dugleg að kíkja þá! Lofa því að það koma inn spennandi sögur þá, þar á meðal hrakfallabálkasaga dauðans! Mér tókst nefnilega hið ómögulega...

Þið verðið hins vegar að bíða þangað til á sunnudag/mánudag!

Vona að þið hafið það gott þangað til...

Hafdís skrifaði klukkan 11:11 e.h. |


28.3.06
Ljúfa líf, ljúfa líf!

Seinustu 2 dagar hafa verið ansi ljúfir hjá okkur skötuhjúunum. Höfum eiginlega bara haft það gott upp í sófa á milli þess sem við gluggum aðeins í skólabækurnar. Ég er nefnilega að fara í próf næsta mánudag (3.apríl) og svo aftur 7.apríl svo að ég þarf að halda vel á spöðunum! Í gær tókst mér þó að lesa einu 2 kaflana í bókinni sem voru EKKI til prófs - óska sjálfri mér til hamingju með það. Hugga mig þó við að þeir voru hreint út sagt áhugaverðir svo að ég græt það ekki mjög!

Ég er líka búin að sýna nýjar hliðar á mér seinustu daga. Ég er nefnilega búin að elda 2 daga í röð! Þetta finnst fæstum vera merkur árangur en á mínu heimili telst þetta vera afrek út af fyrir sig sér í lagi í ljósi þess að maturinn heppnaðist afbragðs vel í bæði skiptin! Sveinbjörn er oft ansi hreinskilinn þegar kemur að matseld en þessi tvö skiptin hefur hann bara sleikt út um og hrósað mér í hástert. Við kvörtum ekki yfir því! Í gær eldaði ég líka bara það sem mér datt í hug, fór ekki eftir neinni uppskrift og gerði satt best að segja bara eitthvað. Var að útbúa ofnbakaðar Burrito - eitthvað sem ég hef aldrei gert áður og þær heppnuðust svona líka vel - eiginlega bara alveg eins og á Red Chili ;) Í kvöld verður svo pizza í matinn og á morgun stefni ég að því að elda fisk í fyrsta skipti. Hugsa að ég verði almennileg við sambýlismann minn og sjóði hann bara þar sem það er jú uppáhaldið hans! Gott að ég sé aldrei á 4 og hálfu ári búin að elda uppáhaldsmatinn hans...ömurleg kærasta er ég!

Hingað til hefur nefnilega eldamennska ekki verið mín sterkasta hlið - eiginlega jafn léleg að elda og ég hef verið dugleg að baka. Hugsa þó að þessi þróun sé af hinu góða fyrir línur okkar hjúanna - á meðan ég elda eitthvað hollt þ.e.a.s! Annars finnst mér oft alveg svínslega dýrt að elda handa 2 - það borgar sig oft á tíðum ekki en ég ætla að reyna að sýna hliðar hinnar hagsýnu húsmóður, ég veit að hún blundar einhvers staðra í mér!

Í gær fór ég í rýnihóp á vegum Gallup - var að ræða um kosti og galla Netbanka Íslandsbanka og fékk að kynnast einhverri nýjung sem bankarnir eru að fara að setja á stofn innan skamms - leist hreint út sagt ekki á hana. Þetta er tæki sem er álíka stórt og strokleður (ekki boxy þó) og maður þarf að ýta á takka á hliðinni til að fá handahófskenndan kóða sem maður þarf svo að slá inn undir notendanafninu og lykilorðinu sínu í netbankann. Þetta á að tryggja öryggi notenda til muna en við vorum öll sammála um að þetta yrði til þess að við notuðum bankann talsvert minna. Ég er ekki hrifin af því að vera með eitthvað svona tæki til viðbótar við símann, veskið og lyklana. Þetta á þó að vera á formi lyklakippu en ég hugsa að ég myndi bara geyma þetta heima og nota þá bara netbankann heima hjá mér - sem er svo sem nóg! Ég fékk síðan 5000 króna gjafabréf í Smáralind fyrir og ætla glöð í hjarta að kaupa mér buxur einhvern tímann á næstunni - vúhú :) Fínt að hafa afsökun til að ÞURFA að kaupa sér buxur!

En lærdómurinn bíður mín - fullt af köflum eftir sem ég þarf að lesa og á að lesa!

Kveð því að sinni,

Hafdís skrifaði klukkan 12:20 e.h. |


26.3.06
Eðalhelgi að baki! Guðmundur Gígjar (2,5 ára) vinur okkar Sveinbjörns kom í heimsókn til okkar seinni part föstudags og dvaldi fram á laugardag. Hann bræddi okkur að sjálfsögðu alveg með skemmtilegum söng, sögum og krúttlegheitum. Honum fannst afskaplega skrýtið að Sveinbjörn skyldi leggja sig seinni part laugardags þar sem það var enn dagur - dagur hjá honum þýðir bjart úti. Þetta tilkynnti hann mér líka hátíðlega kl.7.30 á laugardagsmorgun þegar ég var búin að reyna að láta hann leggja sig soldið - það var sko kominn dagur! Strákurinn greinilega ekki alveg á sama tímabelti og ég...Ég sendi foreldrum hans samúðarkveðjur í sumar þegar það verður ALLTAF dagur og hann vakandi allan sólarhringinn þar sem hann fer jú ekki að sofa þegar það er ennþá dagur (sagði það alla vega við mig kl.20.30 á föstudagskvöldið). Ég gat að sjálfsögðu ekki mótmælt því og leyfði litla grísnum að vaka soldið lengur!

Einkennislag helgarinnar er án efa titillagið á 3 disknum um kappann hann Bubba sem byggir. Sá diskur fékk að rúlla nokkrum sinnum í bakgrunni - það oft að ég kann hann nánast utan að! Hann var samt mjög stilltur þessi elska og neitaði að fara heim á laugardeginum - það er auðvitað brjálað stuð að vera hjá mér. Ég get verið mjög skemmtileg - sérstaklega í hlutverki Súperman með skikkju hlaupandi út um allt hús.

Þrátt fyrir að hafa vaknað á ókristilegum tíma til að horfa á barnasjónvarpið, sem er á meðan ég man ekki næstum eins skemmtilegt og þegar ég var lítil - þroski kemur málinu ekkert við þar sem ég er enn með þroska á við 5 ára, hindraði það naglann hana mig ekki í að fara á brjálað djamm á laugardaginn. Brjálað er í minni orðabók djamm sem endar með því að ég fer niður í bæ og er ekki komin heim fyrir 3 - þið lásuð rétt. Hörkutólið ég var ekki komin heim fyrr en 4.30, geri aðrir betur! Eva Rós - þú mátt ekki svara þessu!

Við sálfræðiskvísurnar hittumst heima hjá Agnesi og létum vægast sagt eins og bjálfar. Afrakstur þess má glögglega sjá á myndum frá kvöldinu. Því miður gleymdi ég myndavélinni heima og get því ekki sýnt ykkur 12000 myndir af mér með Zoolander-svipinn - veit að þið hefðuð gaman af því en þó örugglega ekki eins gaman af því og af myndbandinu sem er til af mér vera að syngja og dansa við Eitt lag enn...ég veit - SVEKKELSI!

Þetta var alla vega hörkufjör og koffíntaflan sem ég tók snemma um kvöldið kikkaði all hressilega inn svo að ég reitti brandarana af mér. Hafdís reitir brandara af sér= hvað sagði appelsínan við hina sem datt ofan í vatnið? ,,Fljót! Skerðu þig í báta". Jább, þetta er uppáhalds brandarinn minn um þessar mundir og mér til mikillar ánægju fór helmingur partýgesta að hlæja - það er talsvert góður árangur þegar tekið er tillit til þess að ég er ekki fyndin nema þegar Sveinbjörn segir sögur af mér! það er sem sagt meira stuð að hlæja að mér en af - eða er það öfugt?

Dagurinn í dag hefur farið í allsherjar leti og lufsugang. Ég er þó búin að druslast í sturtu - neyddist til þess snemma í morgun sökum vibbafnyksins af þessum viðbjóðs sígarettum. Hlakka ekki lítið til að fá þetta reykingabann, þá fyrst verð ég ánægð með störf ríkisstjórnarinnar! Áðan sýndi ég síðan mínar bestu hliðar og reiddi fram dýrindis kjúklingarétt með pestó og fetaosti og öðrum eins munaði. Hann var mjög góður þó ég segi sjálf frá og verður án efa aftur á boðstólnum síðar. Það sakaði heldur ekki hvað hann var yndislega einfaldur - gott fyrir brussur eins og sjálfa mig!

Sem sagt eðalhelgi í góðra vina hópi - takk fyrir skemmtunina stelpur!

Næsta helgi verður væntanlega ekki síðri þar sem okkur er boðið í 25 ára afmæli til Gauta vinar okkar - hugsa að það verði stuð! Jább, það er allt að gerast! Síðan er víst próf hjá mér á mánudeginum og föstudeginum eftir það svo að ég þarf að bretta upp ermarnar í þeirri næstu. Það sem eftir lifir kvölds fer hins vegar í Boston Legal og Threshold!

Góðar stundir,

Hafdís skrifaði klukkan 9:06 e.h. |


23.3.06
Hverjum er ég lík?

Ég hermdi eftir Sigrúnu og athugaði hverjum ég líktist.

Við Sigrún eigum greinilega fleira sameiginlegt en að hafa áhuga á sömu íþróttinni því að við erum báðar líkar Mischu Barton a.k.a Marissa í O.C

Ég get ekki sagt að ég sé svekkt yfir því.
Heidi Klum og Elle Macpherson komu líka ansi oft - ekki leiðum að líkjast...

Svo gladdi mitt litla hjarta þegar Beyoncé kom upp og ekki síður þegar vinkona mín Julia Roberts birtist - ekki svekkt yfir því! Holly Marie Combs kom líka ansi oft (gellan úr Charmed)


Reese Witherspoon, Cameron Diaz og Natalie Imbruglia og Kim Cattrall komu líka upp svo að ég stefni að frama í kvikmyndum innan skamms! Báðar Olsen systurnar komu líka upp - á sitthvorri myndinni þó (það er mælt með því að maður prófi nokkrar og sjái hverjir komi oftast upp).
Karlmenn sem líkjast mér eru Kurt Cobain, Billy-Bob Thornton

(get ekki fest myndir við þetta blogg, reyni að bæta úr því síðar)


Ef þið hafið áhuga á að kíkja þá er slóðin HÉR!

Hafdís skrifaði klukkan 2:42 e.h. |


Ég er ekki alveg að standa mig í ristörfum, hef engu um það að kenna nema gúrkutíð. Það er erfitt að skrifa endalaust um ekki neitt - meira að segja fyrir konu eins og mig sem getur talað endalaust um ekki neitt...

Mér tókst að næla mér í einhverja pest - helv...aumingjaskapur. Ég er búin að vera slæm í eyrunum síðan í byrjun mars, finnst soldið erfitt að opna munninn almennilega, svo að lýsisskeiðin á morgnana hefur reynst þrautinni þyngri. Undanfarna daga hefur leiðindahausverkur líka gert vart um sig, þetta ekki svona dúndrandi hausverkur heldur meira svona pirrandi. Ég finn líka til alveg frá hálsi og uppúr og er því soldið á því að þetta gæti bara verið stífleiki í hálsi og jafnvel vöðvabólga. Fyrir vikið er ég alltaf að teygja hálsinn eitthvað og nudda hann en það hefur ekki gagnast vel hingað til. Reyndar er þolinmæði mín á þessu sviði ekki upp á marga fiska svo að...

Þegar ég er svona slöpp er sjálfstjórnin mín heldur ekki upp á marga fiska og því hefur ansi margt farið inn fyrir mínar varir sem ætti ekki að hafa komið nálægt þeim einu sinni - en maður lifir jú bara einu sinni - hvers vegna að neita sér um allt sem mann langar í, sérstaklega þegar maður er veikur. Reyndar sé ég tilganginn í því alveg þegar ég sé fólk sem samsvarar sér vel og vinnur hörðum höndum að því að verða eins og það er. Þetta getur þó léttilega farið yfir strikið hjá fólki og í dag þegar ég var að bíða eftir að komast inn í stofuna mína í Odda var ég að horfa á fólkið í kringum mig (eins og svo oft áður). Ég er soldið eftirtektarsöm og pæli oft mikið í fatnaði og útliti annarra, Erna vinkona staðfestir þetta góðfúslega. Ég taldi að minnsta kosti 4 stelpur sem eru með mér í tíma og voru fyrir utan stofuna á sama tíma og ég sem hafa áreiðanlega þjáðst af einhvers konar átröskunarsjúkdóm. Lærin á þeim voru langtum minni en kálfarnir á mér (sem eru reyndar beljur) en samt sem áður þær eru svo skuggalega mjóar að 10 ára stelpa fengi minnimáttarkennd og fyndist hún vera feit. Svo gera þær í því að sýna hvað þær eru grannar með því að ganga í tísku dagsins í dag - buxum sem eru þröngar niður og stígvél utan yfir. Eða eins og ég kalla þetta - tights og stígvél. Við erum að tala um að ein stelpan er með kálfa sem eru minni en framhandleggirnir á mér - MUN minni! Ég fékk eiginlega bara verki í augun á að horfa á þetta!

Hugsa að einhver ykkar muni eftir HELKÖTTUÐU stelpunni sem æfði í World Class í Síðumúla - hún var alltaf í topp og ekki með fituörðu utan á sér. Hún var með mér í tímum fyrir áramót og þessar stelpur sem ég er að tala um eru eiginlega mjórri en hún! Mér finnst þetta svakalegt!

Í dag datt mér einmitt í hug að bera saman stærðina á gallabuxunum þeirra og mínar. Á endanum sá ég að ég gat ekki borið saman stærðirnar, ég hugsaði sem svo að efnið sem fer í gallabuxurnar þeirra gæti kannski orðið að ágætis ermum fyrir mig - ekki meira en það! Lærin á þeim x 10 komast kannski nálægt mínum! Ég get reyndar ekki sagt að ég hafi fengið einhverja minnimáttarkennd gagnvart þessum horrenglum. Ég vorkenndi þeim bara og var bara ánægð með mín feitu, fallegu læri sem er þó alla vega gott að sitja á...

Við þurfum alvarlega að hugsa um hvernig fyrirmyndir eru í heiminum í dag því að þetta gengur augljóslega ekki!

Ég hugsa að leikritið Hungur sé eitthvað sem ég þyrfti að sjá!

Jæja, þá er ég búin að létta örlítið á mér og get farið að einbeita mér aftur að lærdómi - er að fara í próf í SPSS á morgun, tölfræðiforrit sem er mikið notað við að vinna niðurstöður í sálfræði. STUÐ!

,,Sjáust skilurru"

Hafdís skrifaði klukkan 12:33 f.h. |


20.3.06
Helgin!

Helgin var með rólegra móti en þó með eindæmum góð. Við fengum góða gesti í heimsókn á föstudaginn, Bergur kíkti í heimsókn ásamt Robba og Önnu sem voru einu sinni í frjálsum. Skötuhjúin gerðu betur og tóku hundinn sinn með sér, Pjakk, hann er ekkert smá sætur og heillaði því húsfrúnna upp úr skónum. Þetta var líka í fyrsta skipti sem að gæludýr kíkti í íbúðina og því var gaman að sjá hann vaða út um allt og skoða - greinilega spenntur að koma á nýjan stað!

Við gripum í spil eins og okkur einum er lagið og þar tókst mér hið ógerlega - ég vann! Ekki oft sem það gerist. Og það sem meira er - ég klekkti á hinum. Stal borgum, stigum og verlsunarvöru (Carcasonne) og lét öllum illum látum. Ég var líka lúmsk og átti bónda á stöðum sem engum datt í hug að kæmu sér vel fyrr en í lokin! Já, ég held að Dr.Bjössi hefði verið stoltur af mér! Ég tók því líka bara eins og kona þegar einhver gerði eitthvað á minn hlut - ég er greinilega að þroskast sem spilakona!

Laugardagurinn fór svo í videogláp og huggulegheit. Seinni partinn fórum við svo heim til foreldra minna þar sem ég sýndi góða takta í eldhúsinu. Mamma bauð fósturmóður minni og Ellen í mat (fósturmóður mín= mamma hennar Ellenar). Mamma eldaði einn besta mat sem ég hef á ævi minni smakkað - umh.... Það var appertizer og fordrykkur. Síðan var rjómalöguð sveppasúpa í forrétt, Rib eye (lambakjöt) með sætum kartöflum, salati og sveppasósu í aðalrétt og að lokum kaka og ís í eftirrétt. Undirrituð átti þó mestan heiður af eftirréttinum sem bragðaðist bara nokkuð vel þó ég segi sjálf frá. Ég át sem sagt á mig gat! Ofsalega gott!
Við Sveinbjörn fórum síðan bara heim og spiluðum Carcasonne við hvort annað fram á nótt og sváfum síðan vel út - ofsalega notalegt!

Í gær tókum við svefnherbergið í gegn - þrifum það hátt og lágt, þvílíkur munur og notuðum svo restina af deginum í lestur. Ég held bara að einbeitingin mín sé komin heim úr fríi - notalegt! Í tilefni þess hrissti ég eins og eitt stk. fyrirlestur fram úr erminni og eina skýrslu í þokkabót. Húrra fyrir mér!

Ég hef heldur ekki gleymt hjólinu neitt aftur, ekki reynt að læsa útidyrahurðinni með bíllyklinum og varla gert neitt af mér að ráði síðan ég veit ekki hvenær svo að ég hugsa að heilinn sé líka kominn tilbaka - ég fanga honum að sjálfsögðu!

Annars er það helst í fréttum að Léttkolsýrði Kristallinn með Mexican-Lime bragðinu er afar góður! Næst á dagskrá er að smakka græna Toppinn með Lime bragðinu! Jább, það er BRJÁLAÐ að gera!

Hafdís skrifaði klukkan 3:26 e.h. |


Ertu ólétt?

Þessi spurning kemur mér alltaf jafn mikið á óvart. Fullyrðingar þess efnis að einhver eigi von á barni út af íbúðakaupum með aukaherbergi, stærri bíl og einhverju álíka eru fáránlegar að mínu mati. Í fyrsta lagi finnst mér asnalegt að fólk áætli að 3-4 herbergja íbúðir séu bara keyptar af barnafólki nú eða fólki sem á von á barni. Sumir vilja hafa aukaherbergi fyrir sig nú eða áhugamálin sín eða eru að hugsa til framtíðar, ekki nútíðar. Í öðru lagi finnst mér fáránlegt að stærri bíll þýði um leið stækkun á fjölskyldu - afhverju? Kannski er gott að geta flutt dót úr Ikea heim í bílnum sínum, nú eða flutt fleiri en 2 poka af flöskum og dósum í endurvinnsluna! Það sem mér finnst samt hallærislegast af öllu er þegar fólk spyr konur hvort þær séu óléttar. Ef að svo væri myndi viðkomandi þá ekki segja þér frá því? Það er kannski allt í lagi að spyrja þegar það er kominn áberandi kúla og þú ert alveg með á hreinu að viðkomandi hefur ekki bara fitnað svona mikið en annars finnst mér þessi spurning bara asnaleg.

Fólk kemur ekki til með að svara þér hreinskilnislega fyrr en eftir þessar öruggu vikur (12 held ég) og því er þetta bara algjörlega tilgangslaus spurning. Hún fær fólk annað hvort til að ljúga að þér nú eða halda að það sé farið að fitna eða þaðan af verra!

Ég get lofað ykkur því að ég kem til með að láta vita af fjölgun í fjölskyldunni, það að ég drekki lítið er ekki ávísun á þungun þar sem ég haf aldrei talist mikil drykkjunkona og stærri íbúð og bíll með skotti þýða ekki að við séum að undirbúa okkur undir nýjan grís!

Ástæða þessara skrifa minna eru margar vangaveltur vina minna um hvort að ég sé ólétt, hvenær ég verði ólétt og leiði á þessari spurningu!

Ég vona því að þið bíðið bara þolinmóð eftir því að ég tilkynni um væntanlega fjölgun, hvenær sem hún verður! Annars á ég nú þegar 2 gullfalleg börn með Gunnhildi og þau duga mér vel í augnablikinu!

Takk fyrir!

Hafdís skrifaði klukkan 3:18 e.h. |


16.3.06
Ég er búin að smella inn myndum frá afmælinu mínu.

www.picturetrail.com/bjutikvin


Áhugasamir geta sent mér póst, sent línu á mig á msn nú eða sent mér sms og fengið lykilorðið. Ég kæri mig ekki um að hver sem er sé að skoða þetta...

Látið í ykkur heyra,

Hafdís skrifaði klukkan 3:33 e.h. |


Heimskupör Hafdísar 17.kafli

Ég er að fara að sjá um umræðutíma í einu fagi á mánudaginn og mætti því galvösk upp í skóla snemma í morgun til að hitta meðstjórnanda minn. Ég fór á reiðfáknum mínum eins og svo oft áður, var auðvitað á seinustu stundu eins og vanalega og harðsperrur gærdagsins urðu til þess að hjólið virkaði svo heillandi miðað við þessa tvo jafnfljótu.
Sveinbjörn kemur svo heim í hádeginu og skilur ekkert í því að ég sé heima og spyr mig hvar hjólið sé! Ég skil ekkert í vitleysunni í honum og segi að það sé úti. Hann þykist ekki hafa séð það svo að ég fer út í glugga til að benda honum á það en átta mig svo eftir smá stund að ég hafi e.t.v gleymt að hjóla á því heim frá Odda.

Stundum held ég að ég myndi gleyma hausnum á mér ef hann væri ekki fastur við restina af líkamanum!

Í þetta skiptið get ég heldur ekki falið mig á bak við svefnleysi þar sem ég svaf ágætlega í nótt! Ég er reyndar svakalega þreytt og er búin að vera eitthvað slöpp en það gefur heilanum ekki ástæðu til að vera fjarverandi!

Spurning hvort hann sé í fríi á Krít með einbeitingunni minni - helvískur!

Hafdís skrifaði klukkan 1:41 e.h. |


14.3.06
Smá glaðningur fyrir dömurnar og áhugafólk um listdans á skautum:

Sex-bomb

Munið að hækka soldið í hátölurunum áður en þið kíkið!

Njótið!

Hafdís skrifaði klukkan 1:24 e.h. |


Jesús!

Ég veit ekki hvað er með mig þessa dagana! Það er eins og ég sé andlega fjarverandi!
Rétt í þessu var ég að þramma með þvottinn minn niður í þvottahús til að þvo. Fyrr í morgun hafði ég pantað mér tíma á eftir einhverjum morgunhana og átti vél kl.1. Ég smellti mér niður 12.50 til að þvo en þá var sá á undan mér ekki búinn. Rétt í þessu hljóp ég aftur niður og mætti þar ungum manni. Þá áttaði ég mig á því að það er ekki miðvikudagur, ég hafði nefnilega pantað tíma á miðvikudegi! Stundum er ég ekki alveg í lagi. Þurfti því að afsaka mig við strákinn og gefa honum þvottaefnið sem ég hafði sett í vélina!

Ég er alla vega búin að gera mitt góðverk í dag!

Hafdís skrifaði klukkan 1:06 e.h. |


13.3.06
Ég átti góða helgi.

Ég hélt upp á afmælið mitt á laugardaginn í góðra vina hópi. Það heppnaðist afbragðs vel og flestir skemmtu sér konunglega. Ég var á meðal þeirra og naut kvöldins til hins ítrasta. Ég fékk margar góðar gjafir og hver þeirra endurspeglaði hversu vel vinir mínir þekkja mig og um leið hversu góða vini ég á - já það er yndislegt alveg hreint ;)

Takk fyrir mig!

Í kjölfarið má segja að ég hafi sannað að maður þarf að sofa nógu mikið til að grunnheilastarfsemi sé virk. Ég reyndi nefnilega að læsa húsinu með samlæsingunni af bílnum! Hversu utan við sig þarf maður að vera til þess? Svefn er nauðsynlegur!

Ég ætla eyða deginum í leti og videogláp - finnst ég alveg eiga það skilið!

Hafið það gott í dag elskurnar!

Hafdís skrifaði klukkan 1:05 e.h. |


10.3.06
Heil og sæl,

Það er búið að vera ansi mikið að gera hjá mér seinustu daga. Ég er búin að vera að undirbúa smá teiti sem ég held ég morgun - að ýmsu að huga og því hef ég verið á smá flandri undanfarið!

Ég þurfti tvær ferðir til að finna mér eitthvað til að vera í- tískan í dag er ekki fyrir mig. Ég er ekkert sérstaklega hrifin af púffermum og öðru slíku - það gerir mig ekkert sérstaklega fína! En ég endaði þó á því að finna mér afskaplega falleg föt!

Í dag er ég búin að vera upptekin af því að græja veitingar og þrífa. Það tekur allt lengri tíma en ég ætla og skipulagning er því ekki mín sterkasta hlið ;) En þetta er allt að koma.

Ég fer svo í langþráða klippingu á morgun - hlakka svakalega til!

Annars er próf hjá mér á mánudaginn - hef áhyggjur af því síðar. Þakka guði fyrir að vera fljót að læra ;)

Em ég þarf að fara að græja mig á æfingu - læt heyra betur í mér á sunnudag!

Hafið það gott!

Hafdís skrifaði klukkan 4:31 e.h. |


8.3.06
Þetta lag var vinsælt daginn sem að ég fæddist "I Love a Rainy Night" by Eddie Rabbitt. Soldið spennandi!

Þið getið athugað það hér.

Hafdís skrifaði klukkan 12:31 e.h. |


7.3.06
Ég á það til að vera ofsalega sérstök - ég fæ alla vega að heyra það ansi oft. Ég var að baka í dag, aldrei þessu vant, og á einhvern fáránlegan hátt tókst mér að setja meira hveiti á sjálfa mig heldur en í skinkuhornin sem ég var að baka. Auk þess tókst mér á annan fáranlegan hátt að gera eitthvað fatlað deig sem var blautara en vatn og því ómögulegt að gera nokkurn skapaðan hlut við það. Þið getið ímyndað ykkur hvað ég var skapgóð á meðan þessu stóð!

Móðir mín var líka búin að leggja mér línurnar í penleika - þrátt fyrir fögur fyrirheit er mér alveg lífsins ómögulegt að búa til eitthvað pent. Ætli ég eigi ekki eftir að eignast 20 marka barn þegar þar að kemur - shæsinn! Allt sem ég geri endar á því að vera stórt og klossað. Mér tókst reyndar að búa til nokkur lítil en flest voru svona helmingi stærri en ég ætlaði að hafa þau - samt fór ég alveg eftir uppskriftinni (held ég) og skar í jafn marga bita og bókin lagði til og móðir mín á hinum enda línunnar!

Ég er augljóslega bara með þumalputta!

Auk þess tókst mér að troða hveiti út um allt, brenna mig á sjóðandi plötu svo að ég fæ ferlegt ör og skíta út allar skálarnar sem ég á til og setja slatta á gólfið um leið - ég er snillingur!

Á stundum sem þessu vildi ég óska að ég væri líkari mömmu minni - í staðinn er ég alveg eins og pabbi hvað þetta varðar og ekki er hann penn! Ljótu brussugen!

Ég er að hugsa um að ræða þetta við Kára!

Hafdís skrifaði klukkan 8:20 e.h. |


5.3.06
Hugleiðingar

Ég fór allt í einu að velta því fyrir mér um daginn hvað ég gleymi oft að vera þakklát fyrir hversdagslega hluti, hluti sem maður gerir á hverjum degi og finnst sjálfsagðir.
Þessi vangavelta mín kom upp úr þurru þegar ég var að koma heim úr hlaupatúr á fallegum þriðjudagsmorgni. Ég áttaði mig á því hvað það er yndislegt að geta skotist út að hlaupa á morgnana, hversu gott það er að láta sólina baða sig þó svo að það sé soldið kalt úti. Hversu yndislegt það er að geta hlaupið, labbað, séð, heyrt og annað slíkt sem maður hugsar sjaldan til! Ég á það nefnilega til að þurfa að pína mig út á morgunskokk, með þá hugsun eina í höfðina að gera þetta til að ég grennist, að ég VERÐi að gera þetta en þennan daginn ákvað ég að leyfa mér frekar að fara, að fara út að hlaupa og virkilega njóta þess! Það er nokkuð sem ég hef ekki gert alltof lengi!

Síðar í vikunni fékk ég leiðinlegar fréttir sem urðu til þess að ég hugsaði um hversu hverfult lífið er. Eina stundina er allt í ljúfri löð en þá næstu er allt komið á hvolf og líf heillar fjölskyldu, vina þeirra og ástvina er komið úr skorðum. Ég fór að hugsa um fólkið sem mér þykir vænt um í lífinu, hvað ég myndi gera án þeirra og til að gera langa sögu stutta, grét ég fögrum tárum. Ég grét vegna missis vinkonu minnar, mér varð títt hugsað til hennar þennan dag og ég gat ímyndað mér hversu illa henni liði. Ég átti ofsalega erfitt með mig og var með kökk í hálsinum allan daginn. Ég er líka ansi góð að setja mig í spor annarra og þennan daginn var ég ofsalega næm fyrir sorg og vanlíðan annarra. Ég hugsaði líka út í hvernig mér myndi líða ef ég væri í sömu sporum og hún og grét enn meira við það. Það er svo margt í lífinu sem er svo sjálfsagt að maður gerir sér ekki grein fyrir hversu erfitt yrði að missa það!

Auðvitað er hægt að jafna sig af flestum áföllum en þau setja alltaf sinn svip á okkur og lífið - það verður aldrei samt að nýju! Í kjölfarið er ég í átaki í því að segja fólki sem skiptir mig máli í lífinu frá því - afhverju ekki að láta þá sem gefa lífinu einhvern lit vita af því?

Annar punktur í þessu er fólk sem heldur að það skipti engu máli - að það finni enginn fyrir því þó það hverfi úr lífinu! Þetta fólk er oft veikt, illa haldið af þunglyndi eða annars konar áhyggjum og sér því ekki ástúðina í kringum það. Ég get lofað ykkur því að það þykir fleira fólki vænt um ykkur en ykkur gæti nokkurn tímann grunað. Við snertum nefnilega strengi í hjörtum fólks á hverjum degi þó svo að við gerum okkur ekki grein fyrir því! Það er ekki nóg að hugsa um sjálfan sig og sín vandræði, maður þarf líka að huga að hinum sem eru í lífinu manns, þessum innsta hring. Þeir geta reitt sig á mann þó að þeir láti ekki vita af því.

Það versta við áföll er að maður veit oft ekki hversu mikið einhvers skipti þig fyrr en viðkomandi er ekki til taks lengur - maður veit ekki hvað maður átti fyrr en maður hefur misst það!

Lifum lífinu lifandi og gleymum ekki þeim sem gefa lífinu gildi!

Farið vel með ykkur!

Hafdís skrifaði klukkan 6:18 e.h. |


3.3.06
Við skötuhjúin vorum að enda við að horfa á Notebook - ég mútaði Sveinbirni til að horfa á hana með mér með því að hann fengi alveg að ráða hvaða myndir við sæjum næst og ég myndi horfa á þær. Er soldið smeik um að hann láti mig horfa á Sin City - hann segir reyndar að það sé ekki mynd fyrir mig en vill samt að ég horfi á hana! Ég verð bara að trúa honum!

The notebook er svakaleg! Ég hef ekki grátið svona mikið yfir mynd síðan ég fékk ekkann í bíóinu hérna um árið - sælla minninga! Afskaplega falleg mynd! Ætla pottþétt að lána mömmu hana og leyfa henni að horfa líka - hugsa að þetta sé alveg mynd fyrir hana og systur mína!

Annars er ég bara ofsalega þreytt, búið að vera mikið að gera hjá mér undanfarið og því lítið um svefn. Ég er alvarlega að hugsa um að leggja mig svo að ég sofni ekki kl.8 í kvöld! Annars má ég sofa út á morgun svo að ég hlýt að lifa þetta af! Þarf nefnilega eiginlega að læra eitthvað í dag þar sem það er annað prófa á mánudaginn - var í einu í morgun! Já, það er stuð að vera ég þessa dagana!

Að öðru leyti er ég bara kát - en þið?

Hafdís skrifaði klukkan 1:57 e.h. |


Við Sveinbjörn unnum boðsmiða á forsýningu á The Pink Panther í gær. Við vorum á leið heim frá mömmu og pabba seint á þriðjudagskvöldi og vorum aldrei þessu vant með stillt á FM957 - akkúrat þá kemur kvikmyndagetrun þar sem spurt er úr hvaða mynd setningin " We´re gonna need a bigger boat" sé! Sveinbjörn vissi þetta að sjálfsögðu um leið og ég hringdi að sama skapi um leið!

Við náðum inn og fengum 8 boðsmiða, hvorki meira né minna! Svo að það var einvalalið sem mætti með okkur í bíó í gær. Ég hef sjaldan hlegið jafn mikið - hugsa reyndar að félagsskapurinn hafi spilað soldið inn í þar sem við hlógum öll eins og vitleysingar. Annars fannst mér myndin bara þrælskemmtileg - reiknaði ekki með því að hlægja neitt en síðan sprakk ég úr hlátri reglulega - alltaf gaman að fara á myndir sem maður hefur engar væntingar til!

Setningin var að sjálfsögðu úr myndinni JAWS!

Hafdís skrifaði klukkan 9:02 f.h. |


2.3.06
Takk fyrir mig!

Gærdagurinn var yndislegur - einn besti afmælisdagur frá upphafi! Langar að þakka öllum sem að honum komu fyrir ógleymanlegan dag! Þið sem senduð mér kveðju, hvort sem það var á msn, með tölvupósti, sms eða í gegnum þessa síðu - takk fyrir, met þetta mikils. Það er alltaf gaman að sjá hvað maður á mikið af góðum vinum! Þið eruð frábær!

Dagsins naut ég sem sagt í botn, ég hef alltaf haft gaman af því að fá athygli og það var engin undantekning frá því í gær.

Dagurinn byrjaði á tíma í skólanum. Ég var að sjálfsögðu extra fín í tilefni dagsins og hafði fyrir því að spassla soldið í hrukkurnar. Um leið og ég kom í skólann færði ljúfan mín hún Agnes mér pakka - í honum reyndist vera ofsalega flott hálsmen sem ég er svakalega glöð með. Takk elskan!

Tengdapabbi bauð okkur Sveinbirni út að borða í hádeginu - það var ofsalega gott, ég borðaði að sjálfsögðu á mig gat. Ég hef mjög sjaldan farið út að borða í hádeginu og hvað þá á afmælisdaginn minn - Potturinn og Pannan stó alveg fyrir sínu. Takk fyrir mig! Tengdapabbi varð síðan soldið geðveikur og gaf mér svakalega afmælisgjöf. Ég er ekki ennþá búin að átta mig á henni! TAKK!

Eftir hádegi fór ég aftur í skólann og reyndi að fylgjast með í einum óskiljanlegasta tíma ever - erfitt en ég hafði þetta af! Skilaði ritgerðinni sem ég er búin að pæla alltof mikið í og láta hrella mig of mikið á næturna.

Sveinbjörn færði mér gjöf eftir hádegi. Í henni leyndist vera einn sá mesti pæjusími sem ég hef augum litið. Ég er afskaplega lukkuleg með hann og geng nú um stolt og spjalla. Hann hefur allt sem sími þarf að bera og gott betur. Hann er með svakalega myndavél, mp3 spilara, útvarp, leikjum og öllum þeim græjum sem hægt er að hugsa sér og ég veit varla til hvers þær eru. En það sem mestu skiptir eru að sjálfsögðu flottheit hans. Síminn er líka að sjálfsögðu hvítur og honum fylgdi síðan blátt til skiptanna - lekkert? Já, ég veit! Hann uppskar þúsund kossa og knús! HEPPINN ;)

Mamma, Amma og uppáhalds systir mín (og sú eina) mættu svo kátar með bakkelsi með sér - þær eru svo sætar. Móðir mín færði mér líka blóm í tilefni dagsins - dagurinn okkkar vil ég meina þar sem hún afrekaði það að koma mér í þennan heim - enda fjölhæf með meiru. Blómið heitir Gerber og ég var ekki lengi að átta mig á því að þær mæðgur vildu að ég færi að bera barn í þennan heim - gerðu það að bera er sem sagt stytt í gerber. Já, það fer ekki margt framhjá mér! Þeim verður þó ekki að ósk sinni í bili!

Við smelltum okkur svo á æfingu um kvöldið og þar uppskar ég marga kossa og kveðjur - gleðilegt mjög! Við mátuðum líka nýja ÍR-búninginn sem er afskaplega snotur, huggulegur og lipur! Það átti að merkja gallann og við Sveinbjörn gældum lengi við að fá okkur Seberle og Mrs. Seberle en ákváðum að lokum að hafa okkar bara nafnlausa - mér leiðist þegar fólk er mikið að koma og biðja mig um eiginhandaráritanir, ég er svo viðkvæm í úlnliðunum.

Tengdamamma sá svo um að fæða okkur um kvöldið. Mætti kát með American Style handa okkur - afskaplega ljúffengt - takk fyrir mig! Hún færði mér líka flottan standlampa og æðislegan kertastjaka fyrir mörg kerti - hún fylgist vel með konan þegar ég er að tala um hvað mig langar í!

Ellen mætti síðan kát í köku í gærkvöldi, hún bauð sér reyndar sjálf en það var bara rétt áður en ég gat boðið henni að koma. Hún sá um að koma öllu afgangskreminu af kökunni á góðan stað - held að það heiti mjaðmir, hún talaði alla vega um að það færi þangað! Hún færði mér ofsalega flott listaverk sem er alveg ég - ég er alveg hrikalega ánægð með það og svo fékk ég líka æðislegan kertastjaka frá henni þannig að núna get ég glöð í hjarta kveikt á svona 20 kertum í einu - YNDISLEGT!

Hildur nágranni, skólafélagi, æskuvinkona og hálfgerð uppeldissystir mín skokkaði yfir til að gæða sér á köku. Hún færði mér eina af betri gjöfunum sem til eru - marga kossa, knús og skemmtilegheit. Hún á það nefnilega til að hlægja að aulabröndurunum mínum þessi elska og fyrir það met ég hana mikils. Henni fannst meira að segja appelsínubrandarinn minn fyndinn - JEI ;)

Faðir minn háaldraður og elskuleg systir mættu svo kát í partýið og létu öllum illum látum langt fram á nótt - þau eru soldið mikið eins og ég og þið getið ímyndað ykkur hvað gerist þegar þrjár brussur koma saman!

Gott fólk, góður dagur, góðar gjafir, góðir kossar!

Takk fyrir að vera til!
Ég veit ekki hvar ég væri án ykkar!

Ég hef greinilega staðið mig vel í því að velja mér vini - þið eruð best!

Hafdís skrifaði klukkan 3:29 e.h. |


1.3.06
Það er komið að því!

Dagurinn sem ég hef hálfpartinn verið að kvíða fyrir undanfarin ár. Dagurinn sem ég hélt að yrði svo hræðilegur!

Þegar ég var yngri gat ég varla sofið fyrir spenningi - reif mig á fætur fyrir allar aldir til að athuga hvort ég hefði ekki örugglega stækkað eitthvað um nóttina. Í nótt var ég stressuð - reyndar alls ekki yfir því að vera gömul heldur var ég stressuð yfir því að ritgerðin mín væri ekki nógu góð. Vangaveltur varðandi hana ásóttu mig í alla nótt og mér fannst ég því ekkert hafa sofið - mesta lagi 10 mín.

Þegar nær dró deginum áttaði ég mig á því að hann er ekki á neinn hátt frábrugðin hinum dögunum MÍNUM. Ég hef reyndar fengið jafn mörg sms í dag og ég fæ vanalega í hverri viku - gleðilegt!

Hafdís skrifaði klukkan 10:05 f.h. |