|
|||||||||||||||||||
|
7.9.06
Ég er flutt með allt mitt hafurtask!Nýja slóðin mín er http://hafdisosk.wordpress.com Eftir nokkra daga set ég flutning á síðuna yfir á þá nýju. Þangað til getið þið breytt tenglunum ykkar, favorites og öðru slíku! Hlakka til að sjá ykkur á nýrri og betri síðu! Nýja síðan er í boði Sigurjón.com! blog.sigurjon.com - hressar frásagnir, myndir, stuð og stemmning! ;) Hafdís skrifaði klukkan 2:09 e.h. |
3.9.06
Guten tag,Ansi hreint góð helgi að renna sitt skeið! Ég var í fríi nánast ALLA helgina og það hefur ekki gerst í ansi langan tíma! Svakalega ljúft og gott að geta sofið út og hvílt sig. Það var orðið soldið langt síðan ég naut þess að gera nákvæmlega ekki neitt! Við fórum reyndar í matarklúbb á föstudaginn. Það var auðvitað heilmikið stuð þar eins og vanalega! Mikið spjallað hlegið og vitleysast! Auðvitað litu nokkrar priceless myndir dagsins ljós eins og vaninn er þegar við sexmenningarnir hittumst! Við borðuðum að sjálfsögðu á okkur gat að því tilefni og fyrir vikið varð enginn neitt sérstaklega drukkinn. Ansi erfitt að finna á sér þegar maður er búinn að borða yfir sig! Rakel er bara OF góð að búa til pizzu og allar hjálparhendurnar gerðu þetta ekki verra... Við fórum svo niður í bæ í smástund. Komumst þó fljótt að því að við vorum að hækka meðalaldurinn ansi mikið með því einu að vera á svæðinu! Einhver gaur hellti heilum bjór yfir Rakel þegar hún labbaði inn á fyrsta staðinn og því dó stemningin fljótt út! Við fórum því bara snemma heim eins og gamlingjum er von og vísa! Samt sem áður frábært kvöld í góðra vina hópi! Í gærkvöldi fór Sveinbjörn á endurfundi hjá sínum árgangi í versló! Á meðan naut ég samvista varakærastanna minna tveggja, Bjögga og Bergs. Það var auðvitað svaka stuð hjá okkur þar sem kvöldið einkenndist þó aðallega af áti, áti og spilamennsku! Jóhanna leit svo á okkur í lok kvölds þegar Bjöggi var búinn að rúlla okkur Berg upp í Catan og ég var búin að sýna þeim hvernig maður spilar Scrabble! Bergur er náttúrulega dauðadæmdur í því spili en Bjöggi var ansi efnilegur! Okkur var samt eiginlega enn illt í maganum eftir allt átið um miðnætti og vorum öll líka ansi þreytt. Bjöggi var reyndar líka kominn með leiðindakvef og eiginlega bara orðinn veikur greyið! Hann var því sendur heim á meðan við hin höfðum það gott upp í sófa og spjölluðum fram á rauða nótt! Ég sótt Sveinbjörn svo á endurfundina og við fórum að sofa. Naut þess að sofa til 11 og er búin að hafa það gott upp í sófa í dag. Ansi notalegt að geta horft á Gullmót á skikkanlegum tíma og að geta bara legið upp í sófa og undirbúið sig fyrir átök vikunnar þegar skólinn byrjar og vinnan heldur áfram! Veit ekki hversu auðvelt það verður að vakna kl.rúmlega 7 í fyrramálið til að mæta í skólann kl.8. Það verður líka soldið skrýtið að geta ekki lengur labbað í skólann og kíkt heim á milli tíma! Erfitt að vera nauðbeygður til þess að vera í skólanum frá 8.20 á morgun og til 17. En ég er nagli og hlýt að hafa það af! Annars hefur ekkert djúsi gerst seinustu daga! Rakel og Himmi eru að fara til Danmerkur í fyrramálið og koma ekki aftur fyrr en um jólin. Ég ætla að næla aðeins í rassgötin á þeim í dag til að kyssa þau smá áður en þau fara og lýsa yfir söknuði mínum! Sem betur fer eru þau á seinna ári af tveimur og því styttist í að þau flytji aftur til mín :) Annars er bara allt við sama heygarðshornið? Hvernig hafið þið það? Hafdís skrifaði klukkan 4:04 e.h. |
30.8.06
Ég gat ómögulega haldið mér vakandi í gærkvöldi. Gafst því upp en ákvað að skrifa Rock 2 inn á báða símana mína og geyma þá tilbúna svo að ég gæti bera ýtt á senda þegar ég myndi vakna um nóttina! Það kom þó ekki til þess þar sem betri helmingurinn sýndi og sannaði karlmennsku sína með því að vaka og kjósa kappann fyrir okkur bæði! Held meira að segja að hann hafi staðið sig afskaplega vel í því. Hátt á 3 tug skilaboða fóru úr símunum okkar og tölvunni!Ég afrekaði þó að vakna rétt áður en áðurnefndur nagli kom inn í rúm og náði að frétta af afrekum Iceman! Fylltist auðvitað stolti og sofnaði kát! Ánægð með að Austfirðingurinn sé að standa sig svona - já, ég get sko verið tvöfalt stolt! Hlakka til að sjá þetta í kvöld og lofa að sofna ekki þá! Veit þó ekki hvort ég held mér vakandi til að horfa á úrslitin en það er aldrei að vita. Ég get ekki verið kjúklingur mörg kvöld í röð.... Annars byrjaði dagurinn minn á ferð til Keflavíkur þar sem rannsóknardallur ákvað að leggja þar! Ég hef nú ekkert mest gaman af því að skutlast þangað í tíma og ótíma en ég hafði það af og tíminn líður oft ansi hratt á meðan maður keyrir! Annars náði ég að væla mig inn í kúrs í gær - ansi stolt af þeim árangri mínum. Kúrsinn var sem sagt fullur en ég sendi kennaranum póst og lýsti yfir áhuga mínum á námskeiðinu og bað hana að hafa mig í huga ef eitthvað losnaði! Hún var ekki lengi að svara og bað mig um að koma að tala við sig eftir fyrsta tímann! Ég er á því að þetta fari vel :) En ég hef víst í nægu að snúast í dag. Þarf að fara aftur til Keflavíkur eftir nokkra tíma og þarf að vesenast aðeins fram að því! Segi þessu því lokið í bili! Hafdís skrifaði klukkan 12:54 e.h. |
29.8.06
Góðan daginn...Það hefur margt verið brallað undanfarna daga. Ég hef þurft að vera ansi töff og passa að gráta ekki fyrir framan stórmenni íslensku þjóðarinnar. Ég hef hingað til haldið kúlinu og ekki farið að gráta fyrr en ég er komin úr augsýn. Enda er ég töffari með meiru. Um helgina fórum við Sveinbjörn í heimsókn til Óla og Maríu, hún er betur þekkt sem klippikona á þessari síðu. Við borðuðum saman og spiluðum síðan póker. Það hafði ég aldrei spilað en var samt ansi snögg að ná upp góðum dampi. Endaði í 2.sæti í keppninni og var bara nokkuð stolt af þeirri frammistöðu minni. Þarf augljóslega að spila póker oftar. Við vorum svaka pro og notuðum alvöru spilapeninga. Vorum reyndar ekki að veðja upp á peninga, þá hefði ég verið algjör kjúklingur og aldrei þorað neinu...því að ég á jú auðvitað ekki neitt of mikið af þeim! Á laugardaginn sýndum við og sönnuðum að við erum að verða gömul. Ég var með skip frá því kl.4 um nóttina (aðfaranótt laugardags) og fram til 8 um kvöldið. Þurfti reyndar ekki að gera neitt svakalega mikið en samt eitthvað... Við ætluðum síðan í bíó um kvöldið en enduðum á því að sofna kl.22 og sváfum alveg til 9.30 á sunnudaginn. Algjörir aular! Það var samt SVO gott að sofa svona! Sunnudagurinn var síðan bara til sælu - voða notalegur! Ég kippti þráðlausa netinu í Dórótheu Dell (tölvan hennar Sæunnar systur) í lag og uppskar með því titilinn besta systir í heimi. Ansi montin af því! Hún er greinilega ekki með háan standard þessi elska... Skólinn byrjar síðan á föstudaginn. Ég á eftir að gera allt sem viðkemur honum. Var að skrá mig í aukanámskeið í morgun og breyta fyrri skráningu. Var upphaflega með ansi fögur fyrirheit og ætlaði að tækla þetta á ansi stuttum tíma! Er búin að græja þetta núna og reikna með að útskrifast í júní 2007. Ætti þá að hafa nægan tíma til að gera allt og vonandi til að gera allt vel! Þarf aðeins að laga meðaleinkunina mína betur fyrir útskrift! Annars finnst mér ólíklegt að ég fari í framhaldsnám hérna heima, bæði er ég nokkuð viss um að komast ekki inn og svo er ég ekkert viss um að það sé neitt hérna heima sem heillar! Við Sveinbjörn horfðum síðan á Borgin mín - New York í sjónvarpinu um daginn. Ég féll alveg kylliflöt og var nánast búin að panta mér flug út sama dag! Held að þetta sé alveg borg fyrir mig sem er 360° breyting frá minni fyrri skoðun. Þá var ég á því að ég gæti aldrei verið þarna. Núna eru svona 170 veitingastaðir sem mig langar að prófa, milljónogtuttugu staðir sem mig langar að skoða og óteljandi hlutir sem mig langar að gera. Ég er því farin að sjá að nokkra daga ferð verði ansi busy hjá minni! Já, við skötuhjúin erum sem sagt að skoða möguleikann á því að skella okkur í Bandaríkjaferð í byrjun næsta árs (2007) og heimsækja allt skemmtilega fólkið sem við þekkjum þar! Þetta er þó ekkert sem er búið að negla, bara eitthvað sem við erum að láta okkur dreyma um! En ég er að hugsa um að fara að háma í mig marókóskan lambarétt - ein, þar sem allir aðrir eru fjarverandi í dag! Já, það er sko stuð á skrifstofunni um þessar mundir! Ég bið að heilsa.... Hafdís skrifaði klukkan 11:58 f.h. |
25.8.06
Allt gott að frétta,Búlgar eru ekki matur fyrir mig - þetta var því soldið spennufall þar sem ég var búin að byggja upp miklar vonir. Mötuneytið er að verða ansi leiðigjarnt þar sem ég er ekki týpa í að fá mér svipaðann hádegismat í svona langan tíma! Það verður því skemmtileg tilbreyting að komast í bakaríið upp í skóla... Ég er að fá skip í nótt. Nánar tiltekið kl.4 í nótt upp að bryggju. Veit ekki alveg hvort það er skynsamlegra að vaka til 4 og fara niður á bryggju eða að leggja sig í nokkra tíma áður og fara svo að sofa þegar ég er búin. Spila út frá geðheilsunni í kvöld. Í gærkvöldi var ég alla vega dauð úr þreytu kl.11 svo að það er aldrei að vita! Mig er farið að langa til að fá venjulega helgi þar sem ég fæ frí báða dagana. Er því ansi spennt yfir því að þetta sé seinasta helgarskipið. Verður ljúft að dingla tánum næstum helgi og þurfa ekki að vera með eitt stykki síma fast við sig hvert sem maður fer og að þurfa ekki að rífa sig upp kl.5 á næturna. Annars er Sigurjón að flytja til New York á morgun. Ég kvíði að sjálfsögðu soldið fyrir að kveðja þessa elsku þar sem hann er jú eins og litli bróðir minn. Þarf að taka á honum stóra mínum til að gráta ekki eins og versta kelling - lofa þó engu með það! Held að þessi vetur verið soldið skrýtinn, það eru alltaf einhverjir úr innsta hring að yfirgefa okkur. Það er soldið erfitt að horfa svona á eftir öllum vinum sínum en fyrir vikið verða jólin og næsta sumar bara ENN skemmtilegri! Annars kem ég til með að misnota þessu fáu sem eftir eru eins og ég get og bið ykkur fyrirfram afsökunar á því hvað ég á eftir að verða erfið :) En ég ætla að koma einhverju í verk hérna... Ég þakka gott hljóð :) Hafdís skrifaði klukkan 1:33 e.h. |
22.8.06
Hei,Það er lasagne í matinn með búlgum.... Þar sem ég hef ekki guðmund um hvað búlgar eru, er ég orðin ansi spennt! Bara klukkutími í búlga and counting... Hafdís skrifaði klukkan 10:58 f.h. | Mætt á svæðið! Ég er búin að þurfa að vakna kl.6 tvo daga í röð, sunnudag og mánudag, og fyrir svefpurkur eins og mig sem vilja 8 tíma svefn en vilja samt sem áður ekki missa af neinu er þetta smá erfiðleikum háð. Eins og gefur að skilja er ansi erfitt að fara snemma að sofa OG horfa á allt það sem mig langar í sjónvarpinu, fara á fótboltaleiki, hitta skemmtilegt fólk og fjölskyldumeðlimi svo að það þarf að velja og hafna. Hingað til hefur svefninn setið á hakanum en með vaxandi þreytu styttist fótaferðartíminn minn og seinustu daga hef ég verið að fara upp í rúm í kringum 22.30 og það er ANSI snemmt á minn mælikvarða! Það var reyndar alls ekkert skemmtilegt í sjónvarpinu í gær og því var ekki mjög erfitt að fara snemma að sofa! Ég verð hins vegar mesti kjaftaskur og fæ milljón hugmyndir þegar ég er komin upp í rúm og á það til að samkjafta, Sveinbirni til MIKILLAR ánægju! Það endar iðulega á því að hann sofnar í miðri hugmynd nr.20! Þarf að fara að skipta honum út...Ég þyrfti að kaupa mér diktafón (þið vitið hvað ég meina) til að tala allar þessar sniðugu hugmyndir og vísa að mínum bestu bloggum inn á svo að þið fáið einhvern tímann að njóta afrakstur Hafdísar í sinni bestu mynd ;) Seinasta helgarvaktin mín er svo næstu helgi, þá er ég með skip frá 8-18 á laugardaginn og er ansi spennt yfir því að taka mér 1 dag í frí í næstu viku til að fá eitthvað að njóta helganna í sumar! Veit samt ekki hvernig það fer þar sem samstarfskona mín er að fara á Madonnu tónleika í Danmörku í vikunni og verður í nokkurra daga fríi á meðan því stendur! Ég reikna því með að það verði ansi mikið að gera í næstu viku og get því bara látið mig dreyma um frí... Ég fór annars á fótboltaleik í vikunni - ég er nefnilega happa! Valur tók á móti Víkingi á Laugardalsvelli í blíðskaparveðri! Sveinbjörn dó næstum úr stressi á meðan leik stóð en ég hélt auðvitað kúlinu! Var reyndar orðin soldið stressuð í lokin þegar dómarinn reyndi ítrekað að hjálpa Val að skora með því að dæma fáránlegar aukaspyrnur rétt fyrir utan teig - Víkingur er heppinn að það er enginn aukaspyrnusérfræðingur í Val og því varð þetta aldrei neitt hættulegt! Ég beitti auðvitað svartagaldri á mark Víkings og innsiglaði það með einbeittu augnaráði mínu - hef mikla trú á því að það hafi gert gæfumuninn! Já, ég er ansi göldrótt! Menningarnóttin fór fyrir lítið hjá okkur - við einfaldlega nenntum ekki að gera neitt. Nenntum ekki að fara í troðninginn niður í bæ og nenntum heldur ekki að reyna að fá stæði í nokkurra kílómetra fjarlægð frá bænum. Ákváðum því bara að taka Good bye and Good luck! Okkur fannst hún góð og vorum ansi ánægð með hana - ég mæli alla vega með henni! Skylduáhorf! En nú er þetta orðið GOTT! GOOOOOTTTTTTTT Hafdís skrifaði klukkan 10:44 f.h. |
20.8.06
Góðan daginn,Ég er komin aftur í sama formið - farin að skrifa með löngu millibili. Nenni ekki að afsaka það neitt - það gerist bara ekkert ýkja markvert í mínu lífi þessa dagana. Það var reyndar brotist inn í íbúðina okkar í vikunni. Þegar við komum heim tókum við eftir því að ekki var allt með felldu. Eftir smá eftirgrennslan sáum við að innbrotsþjófur hafði komið inn um glugga í stofunni. Hann stal reyndar engu nema smá leyfum af kjúklingarétti síðan daginn áður og tætti í sundur eins og eitt stk. ruslapoka inn í eldhúsi! Okkur grunar því að fyrrgreindur innbrotsþjófur hafi verið svangur köttur. Þjófurinn hafði sig sjálfur á brott og því kom ekki til átaka frá lögreglu að þessu sinni - við hikum þó ekki við að kalla hana til ef hann lætur til skarar skríða í annað sinn! En ég þarf víst að stökkva niður í skip og redda einhverju, þarf því að halda áfram með þennan pistil minn síðar... Hafdís skrifaði klukkan 9:55 f.h. |
14.8.06
Undur og stórmerki gerast enn - ég sest við skriftir með stuttu millibili! Já, himinninn getur svo sannarlega strumpað af og til!Ég held áfram að komast í kast við lögin. Aðfaranótt sunnudags keyrði ég seinustu gesti partýssins heim eftir að hafa keyrt stuðboltana niður í bæ! Á leiðinni heim úr Hafnarfirði var ég stoppuð rétt fyrir utan Kaplakrika þar sem löggan blikkaði mig. Lögreglumaðurinn sagðíst vera að skoða ástand ökumanna og spurði mig út í það. Ég sagði honum bara að ég væri í góðu ástandi, væri ekki búin að drekka neitt annað en Sprite allt kvöldið sökum sýklalyfja. Hann bað mig þá um ökuskírteinið mitt sem ég var aldrei þessu vant með á mér (á það til að gleyma því) og hann lét það bara gott heita að skoða skírteinið og segja mér að keyra varlega. Rétt áður en þeir stoppuðu mig hafði ég einmitt verið að tala við Sveinbjörn í gemsann minn og á meðan löggan labbaði til mín hringdi hann eins og óður. Ég náði að henda honum á silent rétt áður en löggan kom og hringdi svo bara í hann aftur þegar ég var komin heim! Ég veit að það á ekki að tala í símann á meðan maður keyrir og að maður getur verið heppinn að sleppa lifandi frá því. Sjálf reyni ég að nota handfrjálsa búnaðinn þegar ég er að keyra nú eða að forðast símtöl á meðan ferð stendur en það kemur alveg fyrir að ég keyri með símann! Ég met hins vegar alltaf aðstæður hverju sinni! Ég var sem sagt mjög sniðug að banna einni vinkonu minni að keyra heim sem hafði aðeins smakkað áfengi um kvöldið þar sem hún hefði e.t.v verið stoppuð á leiðinni heim! Þarf að fara að segja henni hvað hún sé heppin! ;) Það var sem sagt Aftur til Fortíðar partý hérna í breiðholtinu á laugardagskvöldið þar sem frjálsiþróttafólk og nokkrir velvaldir trylltu lýðinn. Ace of base, 24/7, Scooter og fleiri góðir trylltu lýðinn og partýið endaði svo í gítarspili og söng þar sem Helgi Skúli fór á kostum eins og svo oft áður! Vegna ofangreindra sýklalyfja var ég alsgáð en þó eiturhress. Ég þarf auðvitað ekkert áfengi til að láta eins og vitleysingur, hoppa og skoppa út um allt og syngja hástöfum með! Ég er klárlega HIGH ON LIFE ;) Í gærdag fékk ég mér svo göngutúr í tilefni af lokum EM og almennum hreyfingarskorti seinustu mánuða og rölti yfir í Kópavog og horfði á Rakel vinkonu rústa einhverjum gellum í tvíliðaleik í tennis! Ég var að vonum afar stolt af stelpunni minni og fannst hún vera svaðalegur töffari! Ég hef afskaplega gaman af tennis og þarf að fara að druslast á æfingar eða eitthvað í þeirri góðu íþrótt! Held s.s að ég geti alveg fengið bakteríuna :) Næstu tvær helgar er ég svo að vinna og verð því með rólegra móti en svo er aldrei að vita hvað gerist fyrstu helgina í september! Sjáum bara hvað setur... Annars læt ég þetta gott heita í bili, Ökuníðingur out! Hafdís skrifaði klukkan 11:17 f.h. |
11.8.06
Þetta helst!-Ég náði þeim merka áfanga fyrr í vikunni að láta sekta mig niður í bæ! Já, þar sem flottræfilshátturinn er að drepa þetta þjóðfélag og allir keppast um að vera fyrstir í lífsgæðakappahlaupinu, þ.m.t með því að eiga jeppa þurfti ég að leggja soldið ofarlega í stæði fyrir utan húsið hjá Ellen vinkonu! Þetta leiddi til þess að stöðumælavörður með valdagræðgi sektaði mig um heilar 2500 krónur fyrir að leggja of nálægt gatnamótum kl.20.37! Sérlega hressandi! Ég sá þetta auðvitað ekki fyrr en daginn eftir þar sem ég var að vinna þetta kvöld og rúðuþurrkurnar á vinnukagganum eru svo töff að maður sér ekki blaðasnifsi sem er troðið bakvið þau! Ég er auðvitað helst til svekkt yfir þessu þar sem mér finnst bæði asnalegt að mér sé refsað fyrir að jeppi leggi hálfur upp á gagnstétt, hálfur út á götu og helling í stæðið MITT. Ég var bara að vera tillitssöm og yndisleg þegar ég lagði ekki alveg á húddið á honum og auðvitað uppsker ég sekt fyrir vikið! Já, það er sko ansi erfitt að vera miskunasami samverjinn! -Ég fór á fyrsta fótboltaleik sumarsins - minn fyrsta þ.e. Víkingur R - ÍBV varð fyrir valinu að þessu sinni í Víkinni! Ég er auðvitað að reyna að vera bestasta kærasta í heimi og sýna þessu misgáfulega áhugamáli massans míns áhuga. Ég er auðvitað verulega happadrjúg og ,,OKKAR" menn unnu fyrir vikið 5-0 og fóru auðvitað á kostum! Ég er því komin með skyldumætingu í Víkina og ég veit ekki alveg hvað mér finnst um það...Ég fór held ég á líka á 1 leik í fyrra og hann unnu Víkingar einmitt 4-0 svo að einhverjar taugar bera markaskorararnir til mín, það er nokkuð ljóst! -Ég fór líka til læknis í vikunni. Undanfarið hefur hálsinn á mér verið að drepa mig og ofnmæmishóstaköstin mín hafa verið að rífa hann upp að innan. Ég var líka komin með einhver leiðindasár í kjaftinn svo að það hefur verið ansi erfitt að borða Cheeriosið með góðu móti! Ég er auðvitað með einhverja sýkingu í munni/hálsi og niður úr. Voða hressandi allt saman og mín farin að brytja sýklalyf eins og hún fái borgað fyrir það, eins og það er mikill vibbi! Því flugu plön um heljarinnar fyllerí út um gluggann þar sem doktorinn var ekki á því að það væri skynsamlegt að drekka ofan í lyfin - held að hann hafi séð að ég væri nógu rugluð fyrir! Auðvitað myndi ég aldrei gera svoleiðis þar sem ég er jú einu sinni ofurskynsöm! En HIGH ON LIFE er ástand sem tekur við í staðinn og ímyndarfyllerí er klárlega málið! -Í kvöld er ég að fara á Sumargrill með vinnunni hans Sveinbjörns, Línuhönnun. Það er alltaf liðaskipt fjör og að þessu sinni eru ofurhetjur þemað. Við skötuhjúin erum bæði í CATWOMAN liðinu og auðvitað stefni ég að því að negla það hlutverk. Spandex búningurinn fær reyndar að bíða AÐEINS betri tíma en ég reyni bara að negla hárið og andlitið í staðinn - líkaminn er hvort eð er aukaatriði! Það er nokkuð ljóst að Kattarkonan hefði ekki verið neitt töff með killer líkama og ljótt hár og andlit, svo að ég fer eftir mikilvægi í þessum efnum! ;) -Já, ég fór í útilegu um verslunarmannahelgina. Það var vægast sagt BLAUTT! Rigndi allan tímann í Varmahlíð og því voru öll föt orðin ansi blaut og skemmtileg! Tjaldið okkar var blautt í gegn og allir orðnir ansi hraktir eftir ,,útiveruna". Hún fól þó aðallega í sér að hanga inni í tjaldi og spila! Ferðafélagarnir voru þó ekki af verri endanum. Yndisfríða þokkagyðjan Kristín Birna og varakærastinn minn hann Björgvin og síðan voru vinir þeirra Eysteinn og Halla Ármenningur líka í föruneytinu - ekki slæmt get ég sagt ykkur! Þetta var því ansi góð ferð þrátt fyrir bleytu og verður vonandi endurtekin í betra veðri á næsta ári! Kubbur var að sjálfsögðu tekinn með en sökum veðurs fékk hann bara að bíða inni í bíl! Ég sýndi síðan hvað í mér býr þegar ég keyrði tilbaka, þar sem við Sveinbjörn eigum saumavél tóku u.þ.b 100 bílar fram úr mér á þessari stuttu leið og ég tók frammúr svona 2! STUÐ! Mest pirrandi bíll veraldar tók frammúr okkur þrisvar á leiðinni, já það er gott að keyra hratt og stoppa oft og græða því ekkert á hraðakstrinum annað en að geta stoppað. Í seinasta skiptið sem hann tók frammúr var hann stoppaður af löggunni. Þvílík fagnaðarlæti brutust út hjá okkur þar sem hann hafði alltaf keyrt með háu ljósin í rassgatinu á okkur og var að öllu leyti pirrandi. Já, við erum illa innrætt! Við vorkenndum hins vegar smá einum sem var tekin rétt eftir að hafa tekið fram úr okkur. Við vorum auðvitað bara á 90-95 alla leið þar sem kagginn kemst ekkert mikið hraðar. Það var svo sem ágætt þar sem við mættum löggunni 4 sinnum á leiðinni. Betra að komast aðeins hægar í bæinn en að þurfa að borga mörg þúsund krónur fyrir að keyra hraðar! Við skemmtum okkur aðallega yfir bæjarnöfnum og brekkusöngnum í útvarpinu á leiðinni og því verð ég að deila því með ykkur að Svertingjastaðir eru til á landinu - huggulegt! Mér finnst líka ansi sniðugt að búa í Gröf II og síðan voru einhvern nöfn þarna sem gátu á engan hátt meikað sense! Já, við erum sem sagt ansi einföld! En núna er þetta orðið alltof langt hjá mér, ég bið að heilsa! Hafdís skrifaði klukkan 8:56 f.h. |
3.8.06
Svefn - hvað er það?Komið þið margblessuð og sæl, Ég veit ekki hversu margir hafa þolinmóðir beðið eftir fréttum af mér en vonandi einhverjir! Það er búið að vera ansi mikið að gera hjá mér í vinnunni undanfarið og 70 yfirvinnutímar í júlí og 63 í júní segja mest til um það! Ég er búin að vera ein á báti í 3 vikur og stundum hef ég verið á barmi þess að verða geðveik! Það getur tekið á að vera í þjónustustarfi þar sem allt sem út af bregður er þér að kenna og það á sérstaklega við um mig. Ég hef aldrei verið hrifin af því að eitthvað sé mér að kenna - keppnisskap mitt og sú staðreynd að hópíþróttir eiga ekki við mig eru bestu dæmin um það! En í þessum bransa er miklu betra að biðjast bara afsökunar og lofa bót og betrun. Ég hugsa að ég verði þolinmóðari eftir þetta sumar! Ég er búin að þurfa að vakna kl.5-6 á morgnana ansi lengi og hef því verið þreytt ansi lengi. Ég næ ekki næstum því alltaf að leggja mig aftur seinna um morguninn og staðreyndin er sú að það er betra að ná samfelldum svefni en 3-4 tímum með 3-4 tíma millibili! Þetta er vont en það venst og bráðum fer þessi törn að verða búin! Þrátt fyrir þetta hef ég gefið mér tíma til að hitta þá sem skipta mig máli í lífinu. Búin að fara í ansi mörg góð afmæli og get-to-gether undanfarið og auk þess hef ég verið ansi lunkin í því að smella mér í heimsóknir með stuttum fyrirvara! Ég er búin að læra að spila nýtt spil sem á hug minn allan um þessar mundir - Kubb! Það er víkingaleikur frá Norðurlöndum sem er ansi hreint skemmtilegur og einn helsti kostur þess spils er að líkamlegt atgervi kemur málinu ekkert við! Heppni og leikni spila stóran hluta og leiknin felst þá einna helst í því að geta kastað boðhlaupskefli úr tré! Ég tapa reyndar alltof oft í þessum leik en Sveinbjörn er sá eini sem fær að kenna á því þar sem hann vinnur mig yfirleitt gerpið. Það er alltaf að sannast betur að ég er heppnari í ástum en hann! Agnes vinkona heimsótti okkur í gær og í tilefni þess tókum við ærlega til í kotinu sem var orðið helst til skítugt. Í framhaldi af því erum við að hugsa um að ráða hana til að koma í heimsókn vikulega svo að það sé alltaf hreint og fínt hjá okkur! Fínt að fá á sig smá heimsóknarpressu til að halda öllu í skefjum! Reyndar erum við afar lítið heima um þessar mundir og því má segja að við höfum bara ekki haft tíma til að taka til. Ég horfði á Supernova í fyrsta skipti í beinni í gær og akkúrat þá datt útsendingin út áður en ég komst að því hver færi heim. Ég er búin að bíða eftir því að falska gerpið, a.k.a Zayra detti út en ég þarf að bíða eitthvað lengur eftir því! Ég ákvað fyrir nokkru síðan að sleppa sumarprófinu mínu og sitja fagið í haust. Þessa ákvörðun tók ég í samráði við kennarann minn sem sagði mér að það væri sniðugra. Ég hefði heldur ekki náð að læra neitt fyrir prófið þar sem ég er jú að vinna eins og geðsjúk kona og samstarfskona mín verður akkúrat í fríi þegar prófið er. Ofnæmi hefur sett strik í reikning okkar skötuhjúa. Við erum bæði hnerrandi og grenjandi mest allan daginn og það verður ansi þreytandi til lengdar. Það er þó hátíð miðað við verkinn sem ég er alltaf með í hálsinum núna sem leiðir svo út í eyru og þennan sljóleika sem fylgir þessum vibba! Sveinbjörn er þó búinn að vera verri af okkur tveimur svo að ég get ekki mikið kvartað! Í fyrsta skipti í ansi langan tíma horfði ég á stórt frjálsíþróttamót og fann ekki hjá mér neina löngun til að keppa! Ætli líkamsástand mitt hafi ekki stór áhrif á það en ég reikna með að ég hafi ekki verið í verra formi í lífinu. Ég hef ekki haft orku til að æfa eftir alla þessa vinnu en hef þó náð að gera eitthvað í hverri viku en ekki næstum eins mikið og ég ætlaði! Hyggst þó bæta úr þessu hið snarasta og skella mér á 4 æfingar í næstu viku! Oft hefur verið nauðsyn en... Annars er ég sannfærð um að það sé fallegra að vera feitur en horaður - þetta er allt spurning um sannfæringarkraft! Plön helgarinnar eru að ráðast. Við skötuhjúin stefnum að útilegu með Kristínu og Bjögga þar sem spil og skemmtilegheit verða allsráðandi! Ég er orðin ansi spennt og tilhugsunin um þessa útilegu hefur haldið geðheilsunni í skefjum seinustu vikurnar! Ég er samt að vinna til 18 á föstudaginn og frá 9 á mánudaginn en það gefur okkur samt tíma til að fara eitthvað aðeins út fyrir bæjarmörkin, spila kubb, Catan og Carcasonne eins og við höfum aldrei gert áður :) Ef einhverjir hafa áhuga á því að bætast í hópinn liggja umsóknareyðublöð fyrir hjá undirritaðri! Hæfniskröfur eru: skemmtilegheit, kunnátta í Catan og Carcasonne, það að hrjóta ekki og nenna að vera með 4 vitleysingum í 2-3 daga! En jæja, verkin hérna vinna sig víst ekki sjálf... Góða helgi! Hafdís skrifaði klukkan 12:51 e.h. |
19.7.06
Það er að fara að skella á brjálæði í vinnunni. Samstarfskona mín er komin í frí og ég því ein í kotinu. Ég er upptekin flest kvöld og alltaf með eitthvað á dagskrá. Eins og staðan er í dag er 1 kvöld í þessari viku laust - það er í kvöld. Í næstu viku byrjar brjálæðið - þá er ég með skemmtiferðarskip upp á næstum því hvern einasta dag! Í tilefni af því ákvað ég að útbúa mér dagatal á netinu um daginn. Það var farið að verða ansi flókið að skipuleggja fram í tímann þar sem dagskráin mín er ansi gloppótt! Næstu tvær helgar er ég að vinna á föstudag og sunnudag og því verður lítið um brjálaða gleði en ég geri mitt besta til að hafa alla vega smá gleði í gangi!Hafið samband ef þið hafið áhuga á dagatalinu og í framhaldinu á því að hitta mig/okkur! BLESSSSSSS Hafdís skrifaði klukkan 9:50 f.h. | Ef einhvern vantar duglegt fólk í heyskap er ég meira en lítið til í að smella mér - ég er ágætlega vön. Hef gert flest allt. Mér finnst voða sport að aka traktor og snúa, þá get ég sungið hástöfum og enginn heyrir í mér. Allra skemmtilegast finnst mér þó að vefja/pakka inn rúllum. Það er alveg verk fyrir konu eins og mig sem leitast við að verða alltaf betri og fljótari! Ég er alla vega til ef einhver vill fá mig. Ég get boðið Sigurjón í kaupbæti, hann er jafn spenntur og ég! Við yrðum held ég ágætis teymi! Hafdís skrifaði klukkan 9:50 f.h. | Ég fylltist einni mestu fortíðarþrá sem um getur í sögu minni í gærdag. Á göngu minni heim úr vinnunni fór ég ósjálfrátt að rifja upp gamla tíma. Ég gekk í gegnum Elliðaárdalinn sem getur verið afskaplega fallegur og í gær var hann í sínu fínasta pússi eftir að hafa fengið smá rignarskúr á sig. Ef ég hefði ekki verið með bakpoka og veski hefði ég án efa verið að valhoppa og syngja - ég hefði auðvitað sungið ef ég hefði ekki alltaf verið að mæta einhverjum. En þrátt fyrir að vera í fallegu umhverfi í góðu veðri var það ekki nóg - það vantaði nauðsynlega eitthvað til að ég gæti notið umhverfisins til hins ítrasta - KYRRÐ! Bílaumferðin í Reykjavík getur stundum gert mig geðveika þrátt fyrir að ég sé að eðlisfari þolinmóð þegar kemur að þess háttar hlutum. Hávaðamengunin hér í bæ er að verða svakaleg. Bílarnir eru að verða stærri og um leið háværari, fólk er oft að verða fátækara og hefur þá síður efni á að gera við bílana sína sem verða yfirleitt um leið háværari. Þetta allt gerir mig geðveika! Eins og staðan er núna þarf ég kyrrðina mína. Ég þrái að fara í heyskap þar sem ekkert heyrist nema niðurinn í dráttarvél. Mig langar að liggja á túni út í sveit og horfa á skýin svífa hjá og þurfa ekki að hlusta á neitt með lækjarniðinn og eigin hugsanir. Mig langar að sofna í algerri kyrrð, þar sem ekkert heyrist nema sönglið í fuglunum. MIG LANGAR HEIM TIL VOPNAFJARÐAR! Ég held ég hafi aldrei verið með svona mikla heimþrá. Ég man eftir því í fyrra þegara ég fór HEIM í jarðarför, kvöldið sem ég kom og lagðist á koddann. Það er langt síðan mér hefur liðið jafn vel. Það er fátt betra en að sofna í algerri kyrrð og ró! Þessa dagana langar mig sem sagt fátt annað en að komast upp í sveit með góða bók, liggja í leti og hafa það gott og njóta þess að þurfa ekki að vera í stressi og umferðaröngþveiti! Það er því orðið ljóst að þegar ég fjárfesti í íbúð verður það væntanlega ekki í Reykjavík. Ég held að ég hafi áttað mig á því í gær að ég þarf að búa meira upp í sveit - sveitastelpan í mér er farin að toga í hina sem reynir að vera borgarstelpa! Þessi fortíðarþrá mín kemur nú samt ekki á besta tíma þar sem stærri borgir eru eitthvað sem er í pípunum hjá okkur skötuhjúunum um þessar mundir! Spurning um að fara að hugsa sinn gang - nú eða að hysja bara upp um sig buxurnar og láta sig hafa að búa ekki í draumaumhverfinu! Ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, Hafdís skrifaði klukkan 9:49 f.h. |
14.7.06
Footloose var snilld. Ég skemmti mér ofsalega vel!Mjög vel heppnuð sýning sem ég mæli eindregið með! Annars er ég ekki hrifin af þessu ógeðisveðri - hver er til í roadtrip? Hafdís skrifaði klukkan 10:53 f.h. |
12.7.06
HæhóÞessi vika og sú næsta eru heldur rólegri en ég á að venjast. Það er svo sem ágætt þar sem ég þarf að bæta mér upp smávægis svefnleysi. Ég er nefnilega þannig af guði gerð að 8 tímar eru eiginlega lög frekar en nauðsyn. Ég virka alveg með minni svefni en með tíð og tíma sest þreytan í mig og ég finn að ég þarf að sofa! Samt þarf ég yfirleitt mest á því að halda yfir daginn en þegar ég er kominn upp í rúm á kvöldin er ég alveg laus við að vera þreytt og get því ómögulega sofnað! Ég þarf líka ansi oft að hugsa svo mikið og tjáningarþörf mín er held ég sjaldan meiri en akkúrat uppi í rúmi á kvöldin! Sveinbjörn er sem betur fer (fyrir sig) ansi þjálfaður í því að sofna í miðjum sögum - hann missir reyndar iðulega af einhverjum skemmtilegum vangaveltum sem ég á til að gleyma daginn eftir! Í kvöld er ég að fara út að borða með fjölskyldunni hans Sveinbjörns. Er að fara að hitta föðurbróður hans sem býr í Noregi og ég hef bara hitt einu sinni áður. Hann talar með miklum norskum hreim og syngur því frekar en að tala - mjög skondið! Ég smitast auðvitað af þessu og fer að syngja með :) Á morgun er svo Footloose með stórfjölskyldunni. Ég verð að viðurkenna að ég er soldið spennt enda algjör sökker á svona sýningar! Læt vita hvernig það fer! Síðan verð ég aðeins að tjá mig um sjálfvirka kveikjara á klósettum. Mér finnst þetta vera óþolandi fyrirbæri þar sem ég kann MUN betur við mig í myrkrinu og vil helst geta slökkt þegar ég er að ,,athafna" mig - afsakið orðbragðið! Mæli sem sagt með því að það verði hægt að setja slökkvara á kveikjarana fyrir fólk eins og mig! Fyrirfram reikna ég þó með að vera ansi sér á báti í þessum efnum en.... En hún Erna mín er komin að sækja mig - LATER... Hafdís skrifaði klukkan 4:59 e.h. |
10.7.06
Heja!Viðburðrarík helgi að baki eins og svo oft áður! Við skötuhjúin kíktum á Kristínu Birnu á föstudagskvöldið og áttum með henni notalega kvöldstund yfir spilamennsku og góðgæti! Hún er höfðingi að sækja heim þessi elska og ávallt gaman að vera með henni! Á laugardag smellti ég mér á Esjuna með Rakel og Guðrúnu Ingu. Við lentum í rigningu og leiðindum en vorum samt frekar duglegar. Rakel tók allan fatapakkann í ferðinni. Fór allt frá því að vera bara á hlýrabol og yfir í peysu og jakka og var með hettu á höfðinu. Já, það skiptust sem sagt á skin og skúrir! Við vorum allar þreyttar en afar kátar með ferðina! Við vorum tæpa 2 tíma en stoppuðum smá upp á Steini og fengum okkur vænan slurk úr ánni! Mikið svakalega er vatn úr á miklu betra en það sem maður fær úr krananum! YNDISLEGT alveg hreint. Það jafnast þó ekkert á við vatnið á Vopnafirði, það er klárlega best í heimi! Við fórum svo út að borða á laugardagskvöldið með Maríu og Óla og dóttur þeirra sem skemmti okkur mikið með yndislegheitum! Okkur var svo boðið heim til Guðrúnar Ingu en sökum mikillar þreytu og leti höfðum við okkur ekki upp úr sófanum og fórum bara snemma að sofa! Við sváfum síðan fram eftir og fórum svo í heyskap! Það er ekki hægt að segja að það að slá 1200 m2 garðinn okkar sé eitthvað annað en heyskapur! Það vantaði bara heyblásarann og Björn frænda minn heitinn til að skipa fyrir og þá hefði þetta verið fullkomið! Pabbi bjargaði geðheilsu okkar með því að lána okkur ofurvélina sína sem gat slegið grasið sem náði Sveinbirni upp að geirvörtu og var það hátt að við týndum nánast tengdamömmu! Þetta hafðist þó allt að lokum og það lítur út fyrir að all nokkrar ferðir verði farnar á sorpu með afraksturinn! Garðurinn sem er á þremur pöllum var sem sagt sleginn á 3 dögum og mörgum tímum! Sveinbjörn fór fyrst eina umferð með vélina í hæstu stillingu og svo aðra með hana í neðstu! Okkur sem búum bara í húsinu en eigum það ekki fannst tilvalið að smella upp sumarhúsi til útleigu þarna nú eða mini-golfvelli! Það yrði fínt djobb fyrir tengdamömmu að ráðskast með golfarar sem ættu leið hjá! Garðurinn er alla vega nógu stór fyrir ágætis völl! Áhugasömum um beða-reitingu sem eru ekki með ofnæmi er velkomið að kíkja á heimsókn á næstunni! Boðið verður upp á kaffi og með því! Með kærri kveðju, Stjórnin Seinni part dags nýttum við síðan í að sóla okkur og uppskar nefið á mér ríkulega - fagurrautt er það og fallegt í dag! Ég kippi mér að sjálfsögðu ekki mikið upp við það og hyggst skarta rauðu á morgun í stíl við nebbann! Aðrir hlutar voru vel sólvarðir með vörn en ég virðist hafa gleymt örlítilli rönd á höndunum og er því smá rauð á litlum bletti á hvorum handlegg. Frekar huggulegt þó ég segi sjálf frá og alveg í stíl við meterslanga örið mitt sem ég fékk við bakstur! Annars er ég með skip í dag og þarf að hætta þessari vitleysu! Blessuð... Hafdís skrifaði klukkan 4:29 e.h. |
4.7.06
Hitt og þetta *Það er ansi mikið að gera hjá mér þessa dagana. Ef ég er ekki að vinna þá er ég ansi dugleg í því að hitta skemmtilegt fólk og gera eitthvað skemmtilegt! Ég er nánast búin að hitta alla Danmerkurfarana mína - er reyndar bara rétt búin að sjá Maríu klippikona en betri helminginn hennar sé ég á hverjum degi í vinnunni svo að ég er þó ,,inn" í málum þar á bæ! Það er betra en ekkert! Rakel og Himmi eru auðvitað ofarlega á listanum yfir þá sem við höfum hitt mikið. Við erum ansi dugleg að finna okkur tíma til að gera eitthvað saman - veit þó ekki hvort það verður eitthvað framhald á því í bráð þar sem ég lét keppnisskapið ná tökum á mér um daginn og barði Rakel - við hugsum of líkt og því gerði hún alltaf það sem ég ætlaði að gera og þar sem hún var á undan mér í röðinni kom þetta sér ekki vel fyrir mig! Ég kyssti hana reyndar eftir á og reyndi að vera soldið almennileg við hana en ég hugsa að hún hætti ekki fyrr en hún hefur danglað soldið í mig! Ég á það skilið! Ég varð þó 2 í þessu spili - að ég held eftir spennandi lokasprett. Það er ansi þétt dagskrá skemmtiferðarskipa í þessari viku. Vek athygli ykkar á því að eitt glæsilegasta skip í heiminum er væntanlegt hingað til lands á fimmtudaginn, 6.júlí. Það heitir Queen Elizabeth II og er með hátt í 2000 farþega og er eitt stærsta skipið í bransanum og víst einkar glæsilegt! Ég bíð alla vega ansi spennt! Verður ekki leiðinlegt að fara um borð í hana Elísabetu II. Á sama tíma er annað skip niður á bryggju og því er hægt að slá 2 flugur í 1 höggi með því að sjá 2 skip í einni ferð! Þessi skip verða Á Skarfabakka og Korngarði en það eru bakkar rétt hjá aðalstöðvum Eimskips og hjá Vöruhúsinu. Þegar þangað er komið ætti þetta ekki að fara framhjá ykkur! Skipin koma OF snemma á fimmtudaginn og fara um kvöldmatarleyti! Ég er ansi svekkt yfir HM. Fæst af mínum liðum eru að skila sér í úrslit. En ég er að hugsa um að fara að smella mér heim! Later, Hafdís skrifaði klukkan 4:50 e.h. |
30.6.06
Stallsystur mínar eiga án efa eftir að afneita mér eftir lestur þessara hugleiðinga minna en ég tek því bara eins og öðru!Við skötuhjúin fórum aldrei þessu vant að versla í gær! Það eitt og sér er í raun frásögu færandi þar sem Sveinbjörn er yfirleitt ekki sá viljugasti til að fara í þess kyns leiðangur, bæði af því að honum er illa við að eyða pening í vitleysu eins og föt og líka af því að honum finnst skelfilega leiðinlegt að fara að versla! Þar sem við erum flutt á nýjar slóðir fannst okkur tilvalið að smella okkur í Smáralind, áður átti Kringlan að mestu leyti hug okkar allan en það breytist líklega með styttri vegalengd í þá fyrrnefndu! Ég var u.þ.b orðin þreytt eftir korter (s.s eftir að hafa borðað) og var aldrei með almennilegan hug í þetta. Nennti lítið að máta og sá eiginlega bara ekkert sem mig langaði í - alveg léleg! Náði þó að kaupa mér 1 bol og við fengum 2 fyrir 1 á skóm. Ég fékk 1 par og Sveinbjörn hitt - hann borgaði að sjálfsögðu enda herramaður með meiru! Hann stóð sig eiginlega betur en ég og það er að sjálfsögðu skömm að segja frá því! Ég var alla vega kát þegar ég lagðist upp í mýksta sófa í geimi í gærkvöldi og gat horft heilalaus á einhvern þátt á Skjá 1 áður en despó byrjuðu! Stundum á maður bara að liggja upp í sófa og gera nákvæmlega EKKI NEITT! Ég hugsa að verslunarferð verði ekki á dagskrá hjá mér í bráð... Já, ég veit að ég er blettur á kyni mínu og aumingi! Hafdís skrifaði klukkan 11:18 f.h. |
29.6.06
Góðan daginn,Kominn tími til að ég láti aðeins vita af mér! Við sköthjúin erum búin að vera ansi bókuð seinustu daga. Mikið að gera í félagslífinu sem og vinnunni. Það er hins vegar alltaf góð tilfinning að hafa mikið af gera en ég neita því ekki að ég er soldið farin að þrá að gera ekki neitt og hafa það bara gott! Það er ekkert skip hjá mér fyrr en í næstu viku og því hélt ég að ég myndi ná að hvíla lúin bein soldið en sú hefur ekki verið raunin! Ég verð alveg ótrúlega þreytt í kringum 9 leytið á kvöldin en hressist í kringum 10 og get ómögulega sofnað fyrr en í kringum 12 og vakna því alltaf ofsalega þreytt á morgnana þar sem ég næ ekki 8 klukkutímunum mínum sem ég þarf nauðsynlega! Veit ekki hvað er að mér! Ég hugsa held ég alltof mikið! Helgin var ansi pökkuð. Náðum þó að gera flesta hluti sem við ætluðum en laugardagskvöldið er undantekning frá þeirri reglu! Það var þó skemmtilegt kvöld þar sem sálfræðiskvísur fóru á kostum eins og svo oft áður! Á sunnudaginn svaf ég eins og ég fengi borgað fyrir það - frá rúmlega 4 til 13.15 (með smá hléum þó). Ég hef held ég aldrei sofið jafn mikið en þetta sagði mér bara það að ég væri enn þreytt eftir helgina á undan. Spilakvöldið tókst vel eins og alltaf þrátt fyrir að ég hefði endað í 2.sæti, við Kristín vorum stelpulið á móti strákunum sem spiluðu hver fyrir sig. Ég var aðeins að vinna heima og vissi því að ég næði ekki að einbeita mér 100% að þessu í byrjun og tók því þessa ákvörðun! Það var síðan ansi mikið að gera í skipamálum í byrjun vikunnar og gleymdir lyklar og gleymd skjalataska bera þess glöggt vitni! Skjalataskan fer þó frá borði á Akureyri. En lyklarnir komust í mínar hendur á þriðjudagsmorgun! Ég var síðan í saumaklúbbu í gær sem var einn skemmtilegasti saumaklúbbur frá upphafi. Ég hef ekki hlegið svona mikið í langan tíma. Árdís vinkona fór á kostum, nýkomin frá Kenýa og örlítið svefndrukkin! Kvöld sem gleymist seint! Á morgun er síðan annað spilakvöld með genginu (Kristínu, Bjögga og Berg) og það verður án efa skemmtilegt! Restin af helginni er hins vegar ekki skipulögð en ég reikna með að gera eitthvað á laugardag og hafa það síðan bara gott á sunnudag! Spurning um að hreyfa rassgatið á sér soldið....hver veit! Maraþonþvottur bíður mín líka - reyni nú kannski að minnka hann eitthvað í kvöld! Bið að heilsa ykkur í bili, Hafdís skrifaði klukkan 11:11 f.h. |
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||