14.8.06
Undur og stórmerki gerast enn - ég sest við skriftir með stuttu millibili! Já, himinninn getur svo sannarlega strumpað af og til!

Ég held áfram að komast í kast við lögin. Aðfaranótt sunnudags keyrði ég seinustu gesti partýssins heim eftir að hafa keyrt stuðboltana niður í bæ! Á leiðinni heim úr Hafnarfirði var ég stoppuð rétt fyrir utan Kaplakrika þar sem löggan blikkaði mig. Lögreglumaðurinn sagðíst vera að skoða ástand ökumanna og spurði mig út í það. Ég sagði honum bara að ég væri í góðu ástandi, væri ekki búin að drekka neitt annað en Sprite allt kvöldið sökum sýklalyfja. Hann bað mig þá um ökuskírteinið mitt sem ég var aldrei þessu vant með á mér (á það til að gleyma því) og hann lét það bara gott heita að skoða skírteinið og segja mér að keyra varlega. Rétt áður en þeir stoppuðu mig hafði ég einmitt verið að tala við Sveinbjörn í gemsann minn og á meðan löggan labbaði til mín hringdi hann eins og óður. Ég náði að henda honum á silent rétt áður en löggan kom og hringdi svo bara í hann aftur þegar ég var komin heim! Ég veit að það á ekki að tala í símann á meðan maður keyrir og að maður getur verið heppinn að sleppa lifandi frá því. Sjálf reyni ég að nota handfrjálsa búnaðinn þegar ég er að keyra nú eða að forðast símtöl á meðan ferð stendur en það kemur alveg fyrir að ég keyri með símann! Ég met hins vegar alltaf aðstæður hverju sinni! Ég var sem sagt mjög sniðug að banna einni vinkonu minni að keyra heim sem hafði aðeins smakkað áfengi um kvöldið þar sem hún hefði e.t.v verið stoppuð á leiðinni heim! Þarf að fara að segja henni hvað hún sé heppin! ;)

Það var sem sagt Aftur til Fortíðar partý hérna í breiðholtinu á laugardagskvöldið þar sem frjálsiþróttafólk og nokkrir velvaldir trylltu lýðinn. Ace of base, 24/7, Scooter og fleiri góðir trylltu lýðinn og partýið endaði svo í gítarspili og söng þar sem Helgi Skúli fór á kostum eins og svo oft áður! Vegna ofangreindra sýklalyfja var ég alsgáð en þó eiturhress. Ég þarf auðvitað ekkert áfengi til að láta eins og vitleysingur, hoppa og skoppa út um allt og syngja hástöfum með! Ég er klárlega HIGH ON LIFE ;)

Í gærdag fékk ég mér svo göngutúr í tilefni af lokum EM og almennum hreyfingarskorti seinustu mánuða og rölti yfir í Kópavog og horfði á Rakel vinkonu rústa einhverjum gellum í tvíliðaleik í tennis! Ég var að vonum afar stolt af stelpunni minni og fannst hún vera svaðalegur töffari! Ég hef afskaplega gaman af tennis og þarf að fara að druslast á æfingar eða eitthvað í þeirri góðu íþrótt! Held s.s að ég geti alveg fengið bakteríuna :)

Næstu tvær helgar er ég svo að vinna og verð því með rólegra móti en svo er aldrei að vita hvað gerist fyrstu helgina í september! Sjáum bara hvað setur...

Annars læt ég þetta gott heita í bili,

Ökuníðingur out!

Hafdís skrifaði klukkan 11:17 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli