29.8.06
Góðan daginn...

Það hefur margt verið brallað undanfarna daga. Ég hef þurft að vera ansi töff og passa að gráta ekki fyrir framan stórmenni íslensku þjóðarinnar. Ég hef hingað til haldið kúlinu og ekki farið að gráta fyrr en ég er komin úr augsýn. Enda er ég töffari með meiru.

Um helgina fórum við Sveinbjörn í heimsókn til Óla og Maríu, hún er betur þekkt sem klippikona á þessari síðu. Við borðuðum saman og spiluðum síðan póker. Það hafði ég aldrei spilað en var samt ansi snögg að ná upp góðum dampi. Endaði í 2.sæti í keppninni og var bara nokkuð stolt af þeirri frammistöðu minni. Þarf augljóslega að spila póker oftar. Við vorum svaka pro og notuðum alvöru spilapeninga. Vorum reyndar ekki að veðja upp á peninga, þá hefði ég verið algjör kjúklingur og aldrei þorað neinu...því að ég á jú auðvitað ekki neitt of mikið af þeim!

Á laugardaginn sýndum við og sönnuðum að við erum að verða gömul. Ég var með skip frá því kl.4 um nóttina (aðfaranótt laugardags) og fram til 8 um kvöldið. Þurfti reyndar ekki að gera neitt svakalega mikið en samt eitthvað... Við ætluðum síðan í bíó um kvöldið en enduðum á því að sofna kl.22 og sváfum alveg til 9.30 á sunnudaginn. Algjörir aular! Það var samt SVO gott að sofa svona! Sunnudagurinn var síðan bara til sælu - voða notalegur! Ég kippti þráðlausa netinu í Dórótheu Dell (tölvan hennar Sæunnar systur) í lag og uppskar með því titilinn besta systir í heimi. Ansi montin af því! Hún er greinilega ekki með háan standard þessi elska...

Skólinn byrjar síðan á föstudaginn. Ég á eftir að gera allt sem viðkemur honum. Var að skrá mig í aukanámskeið í morgun og breyta fyrri skráningu. Var upphaflega með ansi fögur fyrirheit og ætlaði að tækla þetta á ansi stuttum tíma! Er búin að græja þetta núna og reikna með að útskrifast í júní 2007. Ætti þá að hafa nægan tíma til að gera allt og vonandi til að gera allt vel! Þarf aðeins að laga meðaleinkunina mína betur fyrir útskrift! Annars finnst mér ólíklegt að ég fari í framhaldsnám hérna heima, bæði er ég nokkuð viss um að komast ekki inn og svo er ég ekkert viss um að það sé neitt hérna heima sem heillar!

Við Sveinbjörn horfðum síðan á Borgin mín - New York í sjónvarpinu um daginn. Ég féll alveg kylliflöt og var nánast búin að panta mér flug út sama dag! Held að þetta sé alveg borg fyrir mig sem er 360° breyting frá minni fyrri skoðun. Þá var ég á því að ég gæti aldrei verið þarna. Núna eru svona 170 veitingastaðir sem mig langar að prófa, milljónogtuttugu staðir sem mig langar að skoða og óteljandi hlutir sem mig langar að gera. Ég er því farin að sjá að nokkra daga ferð verði ansi busy hjá minni!

Já, við skötuhjúin erum sem sagt að skoða möguleikann á því að skella okkur í Bandaríkjaferð í byrjun næsta árs (2007) og heimsækja allt skemmtilega fólkið sem við þekkjum þar! Þetta er þó ekkert sem er búið að negla, bara eitthvað sem við erum að láta okkur dreyma um!

En ég er að hugsa um að fara að háma í mig marókóskan lambarétt - ein, þar sem allir aðrir eru fjarverandi í dag! Já, það er sko stuð á skrifstofunni um þessar mundir!

Ég bið að heilsa....

Hafdís skrifaði klukkan 11:58 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli