20.8.06
Góðan daginn,

Ég er komin aftur í sama formið - farin að skrifa með löngu millibili. Nenni ekki að afsaka það neitt - það gerist bara ekkert ýkja markvert í mínu lífi þessa dagana.

Það var reyndar brotist inn í íbúðina okkar í vikunni. Þegar við komum heim tókum við eftir því að ekki var allt með felldu. Eftir smá eftirgrennslan sáum við að innbrotsþjófur hafði komið inn um glugga í stofunni. Hann stal reyndar engu nema smá leyfum af kjúklingarétti síðan daginn áður og tætti í sundur eins og eitt stk. ruslapoka inn í eldhúsi! Okkur grunar því að fyrrgreindur innbrotsþjófur hafi verið svangur köttur. Þjófurinn hafði sig sjálfur á brott og því kom ekki til átaka frá lögreglu að þessu sinni - við hikum þó ekki við að kalla hana til ef hann lætur til skarar skríða í annað sinn!

En ég þarf víst að stökkva niður í skip og redda einhverju, þarf því að halda áfram með þennan pistil minn síðar...

Hafdís skrifaði klukkan 9:55 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli