30.8.06
Ég gat ómögulega haldið mér vakandi í gærkvöldi. Gafst því upp en ákvað að skrifa Rock 2 inn á báða símana mína og geyma þá tilbúna svo að ég gæti bera ýtt á senda þegar ég myndi vakna um nóttina! Það kom þó ekki til þess þar sem betri helmingurinn sýndi og sannaði karlmennsku sína með því að vaka og kjósa kappann fyrir okkur bæði! Held meira að segja að hann hafi staðið sig afskaplega vel í því. Hátt á 3 tug skilaboða fóru úr símunum okkar og tölvunni!

Ég afrekaði þó að vakna rétt áður en áðurnefndur nagli kom inn í rúm og náði að frétta af afrekum Iceman! Fylltist auðvitað stolti og sofnaði kát! Ánægð með að Austfirðingurinn sé að standa sig svona - já, ég get sko verið tvöfalt stolt! Hlakka til að sjá þetta í kvöld og lofa að sofna ekki þá! Veit þó ekki hvort ég held mér vakandi til að horfa á úrslitin en það er aldrei að vita. Ég get ekki verið kjúklingur mörg kvöld í röð....

Annars byrjaði dagurinn minn á ferð til Keflavíkur þar sem rannsóknardallur ákvað að leggja þar! Ég hef nú ekkert mest gaman af því að skutlast þangað í tíma og ótíma en ég hafði það af og tíminn líður oft ansi hratt á meðan maður keyrir!

Annars náði ég að væla mig inn í kúrs í gær - ansi stolt af þeim árangri mínum. Kúrsinn var sem sagt fullur en ég sendi kennaranum póst og lýsti yfir áhuga mínum á námskeiðinu og bað hana að hafa mig í huga ef eitthvað losnaði! Hún var ekki lengi að svara og bað mig um að koma að tala við sig eftir fyrsta tímann! Ég er á því að þetta fari vel :)

En ég hef víst í nægu að snúast í dag. Þarf að fara aftur til Keflavíkur eftir nokkra tíma og þarf að vesenast aðeins fram að því!

Segi þessu því lokið í bili!

Hafdís skrifaði klukkan 12:54 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli