11.8.06
Þetta helst!

-Ég náði þeim merka áfanga fyrr í vikunni að láta sekta mig niður í bæ! Já, þar sem flottræfilshátturinn er að drepa þetta þjóðfélag og allir keppast um að vera fyrstir í lífsgæðakappahlaupinu, þ.m.t með því að eiga jeppa þurfti ég að leggja soldið ofarlega í stæði fyrir utan húsið hjá Ellen vinkonu! Þetta leiddi til þess að stöðumælavörður með valdagræðgi sektaði mig um heilar 2500 krónur fyrir að leggja of nálægt gatnamótum kl.20.37! Sérlega hressandi! Ég sá þetta auðvitað ekki fyrr en daginn eftir þar sem ég var að vinna þetta kvöld og rúðuþurrkurnar á vinnukagganum eru svo töff að maður sér ekki blaðasnifsi sem er troðið bakvið þau!

Ég er auðvitað helst til svekkt yfir þessu þar sem mér finnst bæði asnalegt að mér sé refsað fyrir að jeppi leggi hálfur upp á gagnstétt, hálfur út á götu og helling í stæðið MITT. Ég var bara að vera tillitssöm og yndisleg þegar ég lagði ekki alveg á húddið á honum og auðvitað uppsker ég sekt fyrir vikið! Já, það er sko ansi erfitt að vera miskunasami samverjinn!

-Ég fór á fyrsta fótboltaleik sumarsins - minn fyrsta þ.e. Víkingur R - ÍBV varð fyrir valinu að þessu sinni í Víkinni! Ég er auðvitað að reyna að vera bestasta kærasta í heimi og sýna þessu misgáfulega áhugamáli massans míns áhuga. Ég er auðvitað verulega happadrjúg og ,,OKKAR" menn unnu fyrir vikið 5-0 og fóru auðvitað á kostum! Ég er því komin með skyldumætingu í Víkina og ég veit ekki alveg hvað mér finnst um það...Ég fór held ég á líka á 1 leik í fyrra og hann unnu Víkingar einmitt 4-0 svo að einhverjar taugar bera markaskorararnir til mín, það er nokkuð ljóst!

-Ég fór líka til læknis í vikunni. Undanfarið hefur hálsinn á mér verið að drepa mig og ofnmæmishóstaköstin mín hafa verið að rífa hann upp að innan. Ég var líka komin með einhver leiðindasár í kjaftinn svo að það hefur verið ansi erfitt að borða Cheeriosið með góðu móti! Ég er auðvitað með einhverja sýkingu í munni/hálsi og niður úr. Voða hressandi allt saman og mín farin að brytja sýklalyf eins og hún fái borgað fyrir það, eins og það er mikill vibbi! Því flugu plön um heljarinnar fyllerí út um gluggann þar sem doktorinn var ekki á því að það væri skynsamlegt að drekka ofan í lyfin - held að hann hafi séð að ég væri nógu rugluð fyrir! Auðvitað myndi ég aldrei gera svoleiðis þar sem ég er jú einu sinni ofurskynsöm! En HIGH ON LIFE er ástand sem tekur við í staðinn og ímyndarfyllerí er klárlega málið!

-Í kvöld er ég að fara á Sumargrill með vinnunni hans Sveinbjörns, Línuhönnun. Það er alltaf liðaskipt fjör og að þessu sinni eru ofurhetjur þemað. Við skötuhjúin erum bæði í CATWOMAN liðinu og auðvitað stefni ég að því að negla það hlutverk. Spandex búningurinn fær reyndar að bíða AÐEINS betri tíma en ég reyni bara að negla hárið og andlitið í staðinn - líkaminn er hvort eð er aukaatriði! Það er nokkuð ljóst að Kattarkonan hefði ekki verið neitt töff með killer líkama og ljótt hár og andlit, svo að ég fer eftir mikilvægi í þessum efnum! ;)

-Já, ég fór í útilegu um verslunarmannahelgina. Það var vægast sagt BLAUTT! Rigndi allan tímann í Varmahlíð og því voru öll föt orðin ansi blaut og skemmtileg! Tjaldið okkar var blautt í gegn og allir orðnir ansi hraktir eftir ,,útiveruna". Hún fól þó aðallega í sér að hanga inni í tjaldi og spila! Ferðafélagarnir voru þó ekki af verri endanum. Yndisfríða þokkagyðjan Kristín Birna og varakærastinn minn hann Björgvin og síðan voru vinir þeirra Eysteinn og Halla Ármenningur líka í föruneytinu - ekki slæmt get ég sagt ykkur! Þetta var því ansi góð ferð þrátt fyrir bleytu og verður vonandi endurtekin í betra veðri á næsta ári! Kubbur var að sjálfsögðu tekinn með en sökum veðurs fékk hann bara að bíða inni í bíl! Ég sýndi síðan hvað í mér býr þegar ég keyrði tilbaka, þar sem við Sveinbjörn eigum saumavél tóku u.þ.b 100 bílar fram úr mér á þessari stuttu leið og ég tók frammúr svona 2! STUÐ! Mest pirrandi bíll veraldar tók frammúr okkur þrisvar á leiðinni, já það er gott að keyra hratt og stoppa oft og græða því ekkert á hraðakstrinum annað en að geta stoppað. Í seinasta skiptið sem hann tók frammúr var hann stoppaður af löggunni. Þvílík fagnaðarlæti brutust út hjá okkur þar sem hann hafði alltaf keyrt með háu ljósin í rassgatinu á okkur og var að öllu leyti pirrandi. Já, við erum illa innrætt! Við vorkenndum hins vegar smá einum sem var tekin rétt eftir að hafa tekið fram úr okkur. Við vorum auðvitað bara á 90-95 alla leið þar sem kagginn kemst ekkert mikið hraðar. Það var svo sem ágætt þar sem við mættum löggunni 4 sinnum á leiðinni. Betra að komast aðeins hægar í bæinn en að þurfa að borga mörg þúsund krónur fyrir að keyra hraðar! Við skemmtum okkur aðallega yfir bæjarnöfnum og brekkusöngnum í útvarpinu á leiðinni og því verð ég að deila því með ykkur að Svertingjastaðir eru til á landinu - huggulegt! Mér finnst líka ansi sniðugt að búa í Gröf II og síðan voru einhvern nöfn þarna sem gátu á engan hátt meikað sense! Já, við erum sem sagt ansi einföld!

En núna er þetta orðið alltof langt hjá mér, ég bið að heilsa!

Hafdís skrifaði klukkan 8:56 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli