4.7.06
Hitt og þetta

*Það er ansi mikið að gera hjá mér þessa dagana. Ef ég er ekki að vinna þá er ég ansi dugleg í því að hitta skemmtilegt fólk og gera eitthvað skemmtilegt! Ég er nánast búin að hitta alla Danmerkurfarana mína - er reyndar bara rétt búin að sjá Maríu klippikona en betri helminginn hennar sé ég á hverjum degi í vinnunni svo að ég er þó ,,inn" í málum þar á bæ! Það er betra en ekkert! Rakel og Himmi eru auðvitað ofarlega á listanum yfir þá sem við höfum hitt mikið. Við erum ansi dugleg að finna okkur tíma til að gera eitthvað saman - veit þó ekki hvort það verður eitthvað framhald á því í bráð þar sem ég lét keppnisskapið ná tökum á mér um daginn og barði Rakel - við hugsum of líkt og því gerði hún alltaf það sem ég ætlaði að gera og þar sem hún var á undan mér í röðinni kom þetta sér ekki vel fyrir mig! Ég kyssti hana reyndar eftir á og reyndi að vera soldið almennileg við hana en ég hugsa að hún hætti ekki fyrr en hún hefur danglað soldið í mig! Ég á það skilið! Ég varð þó 2 í þessu spili - að ég held eftir spennandi lokasprett.

Það er ansi þétt dagskrá skemmtiferðarskipa í þessari viku. Vek athygli ykkar á því að eitt glæsilegasta skip í heiminum er væntanlegt hingað til lands á fimmtudaginn, 6.júlí. Það heitir Queen Elizabeth II og er með hátt í 2000 farþega og er eitt stærsta skipið í bransanum og víst einkar glæsilegt! Ég bíð alla vega ansi spennt! Verður ekki leiðinlegt að fara um borð í hana Elísabetu II. Á sama tíma er annað skip niður á bryggju og því er hægt að slá 2 flugur í 1 höggi með því að sjá 2 skip í einni ferð! Þessi skip verða Á Skarfabakka og Korngarði en það eru bakkar rétt hjá aðalstöðvum Eimskips og hjá Vöruhúsinu. Þegar þangað er komið ætti þetta ekki að fara framhjá ykkur! Skipin koma OF snemma á fimmtudaginn og fara um kvöldmatarleyti!

Ég er ansi svekkt yfir HM. Fæst af mínum liðum eru að skila sér í úrslit. Ég er orðin svo örvæntingarfull að ég er farin að halda með Þýskalandi - það segir sitt um vonleysið! Update: korteri fyrir leik í gær skipti ég snarlega um skoðun og ákvað að halda með Ítalíu. Það nægir mér að segja að sú skoðun mín breyttist eingöngu við það að horfa á liðin fara út úr rútunni. Þarf ég að segja eitthvað meira? Fyrir leikinn um helgina fannst mér mikið til liðs Portúgala koma en hegðun þeirra á móti Englendingum gerði lítið úr vonum þeirra um að ég yrði dyggur stuðningsmaður liðsins! Spánn hefur vinninginn í erjum þessara þjóða um mitt liðsinni.

En ég er að hugsa um að fara að smella mér heim!

Later,

Hafdís skrifaði klukkan 4:50 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli