|
|||||||||||||||||||
|
12.7.06
HæhóÞessi vika og sú næsta eru heldur rólegri en ég á að venjast. Það er svo sem ágætt þar sem ég þarf að bæta mér upp smávægis svefnleysi. Ég er nefnilega þannig af guði gerð að 8 tímar eru eiginlega lög frekar en nauðsyn. Ég virka alveg með minni svefni en með tíð og tíma sest þreytan í mig og ég finn að ég þarf að sofa! Samt þarf ég yfirleitt mest á því að halda yfir daginn en þegar ég er kominn upp í rúm á kvöldin er ég alveg laus við að vera þreytt og get því ómögulega sofnað! Ég þarf líka ansi oft að hugsa svo mikið og tjáningarþörf mín er held ég sjaldan meiri en akkúrat uppi í rúmi á kvöldin! Sveinbjörn er sem betur fer (fyrir sig) ansi þjálfaður í því að sofna í miðjum sögum - hann missir reyndar iðulega af einhverjum skemmtilegum vangaveltum sem ég á til að gleyma daginn eftir! Í kvöld er ég að fara út að borða með fjölskyldunni hans Sveinbjörns. Er að fara að hitta föðurbróður hans sem býr í Noregi og ég hef bara hitt einu sinni áður. Hann talar með miklum norskum hreim og syngur því frekar en að tala - mjög skondið! Ég smitast auðvitað af þessu og fer að syngja með :) Á morgun er svo Footloose með stórfjölskyldunni. Ég verð að viðurkenna að ég er soldið spennt enda algjör sökker á svona sýningar! Læt vita hvernig það fer! Síðan verð ég aðeins að tjá mig um sjálfvirka kveikjara á klósettum. Mér finnst þetta vera óþolandi fyrirbæri þar sem ég kann MUN betur við mig í myrkrinu og vil helst geta slökkt þegar ég er að ,,athafna" mig - afsakið orðbragðið! Mæli sem sagt með því að það verði hægt að setja slökkvara á kveikjarana fyrir fólk eins og mig! Fyrirfram reikna ég þó með að vera ansi sér á báti í þessum efnum en.... En hún Erna mín er komin að sækja mig - LATER... Hafdís skrifaði klukkan 4:59 e.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||