|
|||||||||||||||||||
|
19.7.06
Ég fylltist einni mestu fortíðarþrá sem um getur í sögu minni í gærdag.Á göngu minni heim úr vinnunni fór ég ósjálfrátt að rifja upp gamla tíma. Ég gekk í gegnum Elliðaárdalinn sem getur verið afskaplega fallegur og í gær var hann í sínu fínasta pússi eftir að hafa fengið smá rignarskúr á sig. Ef ég hefði ekki verið með bakpoka og veski hefði ég án efa verið að valhoppa og syngja - ég hefði auðvitað sungið ef ég hefði ekki alltaf verið að mæta einhverjum. En þrátt fyrir að vera í fallegu umhverfi í góðu veðri var það ekki nóg - það vantaði nauðsynlega eitthvað til að ég gæti notið umhverfisins til hins ítrasta - KYRRÐ! Bílaumferðin í Reykjavík getur stundum gert mig geðveika þrátt fyrir að ég sé að eðlisfari þolinmóð þegar kemur að þess háttar hlutum. Hávaðamengunin hér í bæ er að verða svakaleg. Bílarnir eru að verða stærri og um leið háværari, fólk er oft að verða fátækara og hefur þá síður efni á að gera við bílana sína sem verða yfirleitt um leið háværari. Þetta allt gerir mig geðveika! Eins og staðan er núna þarf ég kyrrðina mína. Ég þrái að fara í heyskap þar sem ekkert heyrist nema niðurinn í dráttarvél. Mig langar að liggja á túni út í sveit og horfa á skýin svífa hjá og þurfa ekki að hlusta á neitt með lækjarniðinn og eigin hugsanir. Mig langar að sofna í algerri kyrrð, þar sem ekkert heyrist nema sönglið í fuglunum. MIG LANGAR HEIM TIL VOPNAFJARÐAR! Ég held ég hafi aldrei verið með svona mikla heimþrá. Ég man eftir því í fyrra þegara ég fór HEIM í jarðarför, kvöldið sem ég kom og lagðist á koddann. Það er langt síðan mér hefur liðið jafn vel. Það er fátt betra en að sofna í algerri kyrrð og ró! Þessa dagana langar mig sem sagt fátt annað en að komast upp í sveit með góða bók, liggja í leti og hafa það gott og njóta þess að þurfa ekki að vera í stressi og umferðaröngþveiti! Það er því orðið ljóst að þegar ég fjárfesti í íbúð verður það væntanlega ekki í Reykjavík. Ég held að ég hafi áttað mig á því í gær að ég þarf að búa meira upp í sveit - sveitastelpan í mér er farin að toga í hina sem reynir að vera borgarstelpa! Þessi fortíðarþrá mín kemur nú samt ekki á besta tíma þar sem stærri borgir eru eitthvað sem er í pípunum hjá okkur skötuhjúunum um þessar mundir! Spurning um að fara að hugsa sinn gang - nú eða að hysja bara upp um sig buxurnar og láta sig hafa að búa ekki í draumaumhverfinu! Ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, Hafdís skrifaði klukkan 9:49 f.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||