19.7.06
Það er að fara að skella á brjálæði í vinnunni. Samstarfskona mín er komin í frí og ég því ein í kotinu. Ég er upptekin flest kvöld og alltaf með eitthvað á dagskrá. Eins og staðan er í dag er 1 kvöld í þessari viku laust - það er í kvöld. Í næstu viku byrjar brjálæðið - þá er ég með skemmtiferðarskip upp á næstum því hvern einasta dag! Í tilefni af því ákvað ég að útbúa mér dagatal á netinu um daginn. Það var farið að verða ansi flókið að skipuleggja fram í tímann þar sem dagskráin mín er ansi gloppótt! Næstu tvær helgar er ég að vinna á föstudag og sunnudag og því verður lítið um brjálaða gleði en ég geri mitt besta til að hafa alla vega smá gleði í gangi!

Hafið samband ef þið hafið áhuga á dagatalinu og í framhaldinu á því að hitta mig/okkur!

BLESSSSSSS

Hafdís skrifaði klukkan 9:50 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli