19.7.06
Ef einhvern vantar duglegt fólk í heyskap er ég meira en lítið til í að smella mér - ég er ágætlega vön. Hef gert flest allt. Mér finnst voða sport að aka traktor og snúa, þá get ég sungið hástöfum og enginn heyrir í mér. Allra skemmtilegast finnst mér þó að vefja/pakka inn rúllum. Það er alveg verk fyrir konu eins og mig sem leitast við að verða alltaf betri og fljótari! Ég er alla vega til ef einhver vill fá mig. Ég get boðið Sigurjón í kaupbæti, hann er jafn spenntur og ég! Við yrðum held ég ágætis teymi!

Hafdís skrifaði klukkan 9:50 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli