19.6.06
Morgen,

Góð helgi að baki þar sem ég svaf samtals í alltof fáa tíma. Ástæða þess er einföld, ég var með skip alla dagana. Vaknaði 7 á laugardagsmorgun, náði að leggja mig smá yfir daginn og það bjargaði kvöldinu. Óþekktaranginn, bróðir hans Sveinbjörns, var svo með partý á laugardagskvöldið og það hélt vöku fyrir mér til rúmlega 2 og tæpum 4 tímum seinna fór ég á fætur til að taka á móti skipi nr.2. Ég var svo auðvitað að vinna meirihluta dagsins en náði þó aðeins að leggja mig en það voru ekki 2 tímar. Síðan kvaddi ég bæði þessi skip í gærkvöldi og eyddi kvöldinu svo í góða sófanum okkar og horfði á King Kong - ágætis afþreying!
Í morgun reif ég mig svo enn á fætur kl.6 til að taka á móti þriðja skipinu! Mikið afskaplega fer það í taugarnar á mér þegar fólk talar saman á erlendu tungumáli sem ég skil ekki (rússnesku til að mynda) fyrir framan mig. Mér finnst það reyndar soldið dónalegt líka en ég veit að við erum líka dugleg í þessu en samt finnst mér þetta ekki fallega gert. Sérstaklega ekki þar sem ég var 1 en þau 3 - hefði verið í lagi ef ég hefði haft einhvern til að tala við en...

Í þessum skrifuðu orðum væri ég alveg til í að smella mér aðeins í rúmið mitt og kúra smá. Veitti ekkert af svona 3 tímum til viðbótar og þá væri ég góð og myndi losna við þennan hausverk sem er búinn að hrjá mig alla helgina.

En ég þarf víst að fara að gera eitthvað hérna...

Vildi bara aðeins láta heyra í mér!

Vonandi áttuð þið góða helgi,

Hafdís skrifaði klukkan 7:58 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli