3.6.06
ó, helló!

Héðan úr Breiðholtinu er allt gott að frétta. Flensan er soldið að renna af mér, ég hefði ekki trúað því á miðvikudag og fimmtudag en þá fannst mér ég u.þ.b vera að drepast! Ég vann líka í 16 tíma á miðvikudaginn og ég hef trú á því að það hafi haft ÖRLÍTIL áhrif. Vinnan mín er þó það skemmtileg að ég get ómögulega kvartað yfir því, þessir tímar liðu því eins og hendi væri veifað! Ég er alltaf að græja eitthvað í vinnunni, vesenast út af hinu og þessu og reyna að bjarga þessu og hinu fyrir skipin sem við erum að sjá um, hvort sem það er frystiskip eða skemmtiferðarskip. Ég hef að sjálfsögðu mjög gaman af öllu svona veseni og lifi mig algjörlega inn í það. Mér finnst líka gaman að kynnast nýju fólki og það skemmir auðvitað ekkert fyrir að það sé um borð í skemmtiferðarskipi. Ég fór um borð í mitt fyrsta á miðvikudaginn, gamalt skip en með mikla sál og mér fannst ansi mikið til þess koma. Þetta er hins vegar bara lamb miðað við nokkur sem ég á eftir að taka á móti í sumar og því er ég orðin ansi spennt. Já, það er ekki mikið svekkelsi að vakna snemma á morgnana til þess eins að skoða flott skip og hitta mikið af hressu fólki!

Íbúðin er öll að koma til. Eftir að flensan fór soldið að renna af mér í dag gat ég tekið soldið til og græjað. Eldhúsið er að taka á sig mynd þrátt fyrir að nokkur vandamál séu enn til staðar. Sveinbjörn er reyndar ekki sá auðveldasti í umgengni þessa dagana þar sem hann er ekki alveg eins og hugur minn - ég vil að hlutir séu gerðir hratt og örugglega og helst akkúrat á þeim tímapunkti sem mér detta þeir í hug! Ég þyrfti örugglega 10 stk. eins og hann til að framfylgja öllum mínum hugdettum en ég er ansi heppin með að vera ofvirk að hluta til og næ því oft að græja hugdetturnar mínar sjálf! Ég er til dæmis orðin ansi góð í því að skrúfa ómögulegar skrúfur í sem hann gefst upp á og með nokkuð góðum árangri! Ég er samt ekki svo lagin með rafmagnsskrúfjárnið svo að ég nota bara kastarahendurnar mínar í það og það hefur gengið ljómandi vel hingað til...Ég reikna með að vera búin að mestu á morgun!

Ég er síðan að vinna á mánudaginn, á von á skipi mjög snemma á mánudagsmorgun og reikna með að vera eitthvað að græja það allan daginn! Set Sveinbirni bara fyrir verkefni á meðan ;) Eitthvað sem honum finnst BRJÁLAÐ skemmtilegt, eins og að hengja upp ljós og svona...hehehe!

Fullt af skemmtilegu fólki er að koma til landins núna - Kristín Birna var að koma heim frá San Diego í dag, ég ætla mér að kyssa hana og kjassa soldið á morgun. Sá hana seinast um jólin og það er orðið ANSI langt síðan. Hlakka verulega til að halda spilakvöld í sumar með henni og Bjögga. Hinir helmingar okkar Sveinbjörns eru svo væntanleg á morgun, Rakel og Himmi koma þá heim frá Köben. Við erum líka ansi spennt fyrir komu þeirra og hyggjumst hitta þau í seinasta lagi á mánudag! Þau verða líka kysst í bak og fyrir! Eitt af börnunum okkar og foreldrar þess komu svo fyrir helgi, Berglind, Helgi Skúli og Birta Júlía! Þau verður líka ansi gaman að hitta þar sem það er orðið ANSI langt síðan við sáum þeirra fríðu fés...Sem sagt margt skemmtilegt á dagskrá á næstu dögum...

En ég ætla að fara að raða inn í fataskáp og koma smá skipulagi á kaosina inn í svefnherbergi. Svo held ég að það sé spurning um að skúra og ryksuga svo að ég dreifi nú ekki sagi dagsins út um allt...hljómar það ekki vel?

Hversu mikið stuð er að vera að vinna á laugardagskvöldi kl.22? Ég er stuðbolti...

Hafdís skrifaði klukkan 11:12 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli