|
|||||||||||||||||||
|
29.6.06
Góðan daginn,Kominn tími til að ég láti aðeins vita af mér! Við sköthjúin erum búin að vera ansi bókuð seinustu daga. Mikið að gera í félagslífinu sem og vinnunni. Það er hins vegar alltaf góð tilfinning að hafa mikið af gera en ég neita því ekki að ég er soldið farin að þrá að gera ekki neitt og hafa það bara gott! Það er ekkert skip hjá mér fyrr en í næstu viku og því hélt ég að ég myndi ná að hvíla lúin bein soldið en sú hefur ekki verið raunin! Ég verð alveg ótrúlega þreytt í kringum 9 leytið á kvöldin en hressist í kringum 10 og get ómögulega sofnað fyrr en í kringum 12 og vakna því alltaf ofsalega þreytt á morgnana þar sem ég næ ekki 8 klukkutímunum mínum sem ég þarf nauðsynlega! Veit ekki hvað er að mér! Ég hugsa held ég alltof mikið! Helgin var ansi pökkuð. Náðum þó að gera flesta hluti sem við ætluðum en laugardagskvöldið er undantekning frá þeirri reglu! Það var þó skemmtilegt kvöld þar sem sálfræðiskvísur fóru á kostum eins og svo oft áður! Á sunnudaginn svaf ég eins og ég fengi borgað fyrir það - frá rúmlega 4 til 13.15 (með smá hléum þó). Ég hef held ég aldrei sofið jafn mikið en þetta sagði mér bara það að ég væri enn þreytt eftir helgina á undan. Spilakvöldið tókst vel eins og alltaf þrátt fyrir að ég hefði endað í 2.sæti, við Kristín vorum stelpulið á móti strákunum sem spiluðu hver fyrir sig. Ég var aðeins að vinna heima og vissi því að ég næði ekki að einbeita mér 100% að þessu í byrjun og tók því þessa ákvörðun! Það var síðan ansi mikið að gera í skipamálum í byrjun vikunnar og gleymdir lyklar og gleymd skjalataska bera þess glöggt vitni! Skjalataskan fer þó frá borði á Akureyri. En lyklarnir komust í mínar hendur á þriðjudagsmorgun! Ég var síðan í saumaklúbbu í gær sem var einn skemmtilegasti saumaklúbbur frá upphafi. Ég hef ekki hlegið svona mikið í langan tíma. Árdís vinkona fór á kostum, nýkomin frá Kenýa og örlítið svefndrukkin! Kvöld sem gleymist seint! Á morgun er síðan annað spilakvöld með genginu (Kristínu, Bjögga og Berg) og það verður án efa skemmtilegt! Restin af helginni er hins vegar ekki skipulögð en ég reikna með að gera eitthvað á laugardag og hafa það síðan bara gott á sunnudag! Spurning um að hreyfa rassgatið á sér soldið....hver veit! Maraþonþvottur bíður mín líka - reyni nú kannski að minnka hann eitthvað í kvöld! Bið að heilsa ykkur í bili, Hafdís skrifaði klukkan 11:11 f.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||