23.6.06
Góðan daginn,

Það er alveg skandall að vera svona netlaus heima hjá sér. Ég hef nefnilega ansi takmarkaðan tíma til að skrifa hugleiðingar mínar í vinnunni og auk þess er það ansi truflandi þar sem hér er oft mikið fjör! Vinnuálagið mitt minnkar heldur ekkert sérstaklega mikið. Ég fæ reyndar eitthvað að sofa út um helgina sem er ágætis tilbreyting en í næstu viku byrjar fjörið! Þá eru ansi mörg skip og nokkur á sama tíma! Mér finnst það samt bara fínt þar sem ég hef alltaf notið þess að hafa nóg að gera! Þessa dagana er ég líka búin að starta 15000 heilsuátakinu mínu. Það er aðeins rólegra en oft áður þar sem markmiðið er einfaldlega það að hreyfa rassinn á mér 1x á dag. Ég er búin að vera í ansi langri hvílt að undanförnu og allt sem heitir frjálsar íþróttir hefur ekki átt heima á pallborðinu hjá mér! Áhugi minn á þeirri ágætu íþróttagrein er eitthvað fjarverandi í augnablikinu. Ég reikna þó með að hann birtist aftur með hækkandi sól og auknu þoli undirritaðrar.

Íbúðamál eru í góðu standi, við höfum reyndar ekki gert mikið undanfarið en ég vona að það sé af þeirri ástæðu einni að hún sé að mestu tilbúin. Við skötuhjúin erum reyndar búin að vera ansi þreytt seinustu daga og því hefur góða veðrið algjörlega farið framhjá okkur - eitthvað sem er ekki nógu gott!

Helgarplanið er löngu orðið klárt! Það er miðnæturhlaup í kvöld sem við verðum að starfa við. Á morgun er síðan frjáls tími fram yfir kvöldmat en eftir hann fer ég að græja mig í útskriftarpartý Agnesar, hún bauð mér fyrir ca.2 mánuðum síðan svo að þetta hefur staðið ansi lengi til! Þann sama dag ætla Silja vinkona og Vignir maðurinn hennar að halda upp á samtals 55 ára afmælið sitt. Ég reikna með að það verði ANSI mikið fjör þar ef ég þekki þau rétt! Við reynum að sjálfsögðu að kíkja þangað líka.

Á sunnudeginum hyggst ég svo hitta Lísu mína (nú eða á laugardaginn ef það hentar betur). Ég hugsa að ísbúðin verði einhvers staðar á vegi okkar - að sjálfsögðu verður bara jógurtís í boðinu (nema ef þetta verður á laugardaginn, þá er jú nammidagur). Seinni part sunnudags er svo á skipulaginu að halda all svakalegan spiladag þar sem allt gengið er á landinu - Kristín, Bjöggi og Bergur + við! Það gerist ekki mikið betra en það! Ég reikna fyrir fram með að við verðum að spila frá svona 4 og eitthvað fram eftir kvöldi!

Eins og þið sjáið verður mikið stuð og stemning og augljós eðalhelgi að renna upp! Ég er alla vega orðin ansi spennt!

Áhugasömum um íbúðarskoðun er bent á að hafa samband, það eru farnar skoðunarferðir á hverjum degi!¨

Gangið hægt um gleðinnar dyr!

Hafdís skrifaði klukkan 11:36 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli