26.6.06
Ég er augljós snillingur!

Hverjum öðrum en mér tækist að:
-gleyma lyklunum að fyritækjabílnum um borð í skemmtiferðarskipi og átta sig ekki á því fyrr en skipið væri komið frá landi?
-átta sig þá á því að lyklarnir að eigin bíl væru í veski sem væri læst inn í bílnum og lyklarnir að honum á leið frá landi?
-að fá far í vinnuna til að sækja lyklana að öðrum fyrirtækjabíl en koma að tómum kofanum hvað lykla varðar þar en nóg af bílum á bílastæðinu?

Já, ég er náttúrulega ansi einstök og hef átt í mjög skemmtilegu ástar/hatur sambandi við lykla og bíla í dag!

Pabbi reddaði auðvitað málunum og sótti frumburðinn í vinnuna og keyrði hana heim. Þá er bara vandamál að komast í vinnuna á morgun, þarf einhvern veginn að finna leið til að keyra bíl niður á höfn og keyra helst á tveimur tilbaka - einhver? Spurning um að láta klóna sig fyrir morgundaginn?

Annars er ég bara góð...lyklalaus en góð!

That´s all...

Hafdís skrifaði klukkan 8:12 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli