|
|||||||||||||||||||
|
15.6.06
Allt gott!Það er allt gott að frétta af mér. Ég er búin að vera að vinna talsvert og þess á milli reyni ég að fegra íbúðina eins og ég get. Það tekur sko tíma get ég sagt ykkur, ansi margir smáhlutir sem mynda einn endalausan saman! Við skötuhjúin vorum reyndar veik í gær. Þó með sitthvorn kvillann. Sveinbjörn liggur núna í pestinni sem ég var með fyrir 2 vikum síðan, og er búinn að vera ansi slæmur! Í gær fékk ég einhver heiftarleg útbrot og leit einna helst út eins og blettatígur. Andlitið á mér og bringan voru rauðflekkótt og mig sveið svakalega í rauðu svæðin og klóraði mér mikið - alla vega þangað til viljastyrkurinn fór að kikka inn. Í dag er ég öllu skárri eftir að hafa sett á mig vænan skammt af sterakremi í gær en þó er ég ekki jafn fríð og ég vil helst vera! Finnst ekki á það bætandi að troða einhverjum flekkjum á mig til viðbótar við allt hitt! En þetta fer væntanlega með tímanum og verður vonandi orðið gott annað kvöld. Þá kemur matarklúbbsgengið í mat í nýju íbúðina - fyrst allra til að vera boðið í mat þangað. Eins gott að Sveinbjörn verði búinn að laga fornaldarstólana sem við erum með svo að fólk tolli í sætunum sínum! Ég hafði hugsað mér að vera með innflutningspartý þennan dag en hætti við þar sem ég sá ekki fram á að allt yrði tilbúið og auk þess var Sveinbjörn verulega slappur og ég átti að taka á móti skipi á sunnudaginn. Í dag var ég ekki ýkja svekkt yfir þeirri ákvörðun þar sem skipið mitt kemur á laugardagsmorgun kl.07 í stað sunnudagsmorguns og verður yfir nótt. Á sunnudaginn kemur svo annað skip og verður frameftir degi svo að það verður í nægu að snúast hjá mér um helgina. Eitt til viðbótar kemur síðan á mánudaginn svo að það er fjör! Mér finnst þetta reyndar vera afskaplega skemmtilegt og því get ég ekki mikið kvartað. Ég er að vesenast allan daginn við að redda hinu og þessu og 17.júní verður bara að meiri áskorun fyrir mig! Hvað með það þó að svefn verði eitthvað af skornum skammti? Ég bæti mér það upp síðar! Næ kannski að leggja mig eitthvað á milli símtala... Annars er helst í fréttum að tengdamamma smellti sér til Svíþjóðar og verður í 2 vikur svo að ég er núna stoltur húseigandi og forráðamaður 17 ára pjakks. Hlakka ansi mikið til þess að vera erfið móðir. Greyið er búinn að kvíða soldið fyrir þessu þar sem ég lofaði honum því að ég yrði ströng...múhahahaha. Nei, ég verð væntanlega sanngjörn en kem ekki til með að líða að hann verði á rúntinum fram á morgun. Set sem reglu að hann verði sofnaður áður en ég vakna en það var ekki staðreyndin seinustu helgi þegar ég vaknaði kl.5. Er að spá í að hafa útivistartímann til 02 um helgar. Hann þarf síðan að sjálfsögðu að borða matinn sem ég elda án þess að vera með eitthvað múður og jú auðvitað taka soldið til eins og hálf fullorðnum manni sæmir! Uss, hvað þetta verður gaman... Annars er held ég ekkert merkilegt að frétta í bili...læt vonandi í mér heyra með styttra millibili en netið er bara ekki komið í gagnið í nýju og því þarf ég alltaf að fara upp til að fara á netið og því nenni ég ekki mjög reglulega! Læt þetta duga að sinni, Blessuð! Hafdís skrifaði klukkan 12:17 e.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||