|
|||||||||||||||||||
|
15.5.06
Stiklað á stóru:* flutningur í íbúðina gengur ágætlega, við skötuhjúin erum þó að verða ansi þreytt enda taka svona niðurrif á, bæði á sál og líkama! * fyrsta einkunnin er komin í hús - hún var ágæt miðað við efni og aðstæður. Áfallið með frænda minn tók smá toll af mér og talsverðan lærdómstíma! Ég get því bara verið nokkuð sátt. * það er viðbjóðslega sóðalegt að flísaleggja, það geri ég ekki aftur í bráð - ég þurfti reyndar bara að þrífa eftir Sveinbjörn sóða en það var nóg fyrir mig! * Við erum ekki enn farin að flytja draslið frá 101 og upp í 109, áhugasamir um kassaburð eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband. Áætlaður flutningur er á miðvikudaginn eftir vinnu! * Það er að mínu mati mun auðveldara að vera líkamlega þreyttur en andlega þreyttur - ég get þó talað rétt þegar ég er líkamlega þreytt...hitt er öllu verra! * Við Sveinjörn fórum á eitt skemmtilegasta djamm sem sögur fara af á laugardaginn. Það var sumargleði hjá vinnunni hans, Línuhönnun. Hún var haldin á Hótel Borg og viðstaddir fengur tveggja rétta máltíð og Mohito í eftirmat. Ég var svo heppin að sitja við hlið eins sem var ekki að drekka og naut því góðs af þvi með auka Mohito. Sveinbjörn var síðan svo sætur að gefa mér sinn þar sem hann var upptekinn af því að drekka bjór - mín sat því kát með sína 3 og drakk úr þeim til skiptis! Sveinbjörn kenndi mér síðan alla mögulega suðræna dansa á dansgólfinu við undirleik Milljónamæringana. Páll Óskar er náttúrulega snillingur og drap mig nánast í byrjun með brjáluðu stuði. Bógómíl róaði þetta síðan aðeins niður en hélt samt uppi fjöri og svo kórónaði Raggi Bjarna kvöldið. Ég uppskar 2 feitar blöðrur á stóru tánum og hef varla getað labbað síðan...EÐALKVÖLD! Sálfræðiskvísurnar mínar heimsóttu okkur undir lok kvöldsins og gerðu það ógleymanlegt! Ég var alveg búin að gleyma hvað mér finnst gaman að dansa! Pétur Jóhann var líka með uppistand og hann er ótrúlegur - ég lá í hláturskrampa allan tímann - hann er einstakur! Sem sagt, góð en erfið helgi að baki þar sem við unnum að minnsta kosti í 12 tíma á dag í íbúðinni. Hún er þó alveg að verða fullkominn og við því farin að hlakka ansi mikið til þess að flytja inn og njóta góðs af dugnaðinum okkar, tengdamömmu, tengdapabba og foreldra minna! Einstaka vinir hafa líka verið duglegir við að reka inn nefið og fá þér þakkir líka - þið vitið hver þið eruð ;) Heyrumst... Hafdís skrifaði klukkan 4:49 e.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||