|
|||||||||||||||||||
|
31.5.06
So much to do - and so little time to do it in!Ég hef verið að vinna ansi mikið upp á síðkastið. Það hefur þó bara verið gaman þar sem starfið mitt er jú sérlega áhugavert. Ekki leiðinlegt að bregða sér um borð í skemmtiferðarskip í hverri viku og vera tekið eins og prinsessu! Þessir skipverjar eru líka ansi miklir daðrarar svo að mér finnst ég nánast vera heimsins fallegasta kona í dag! Ekki á hverjum degi sem hrósið kemur alveg í bunum á móti manni...Notalegt en verður samt soldið vandræðalegt með tímanum! Ég náði mér í einhvern kvefskít og er því rám og kynþokkafull um þessar mundir, sýg ansi mikið upp í nefið, hnerra jafnvel oftar, er þung í hausnum og eiginlega bara bókstaflega full af hori sem er voða notalegt! Það hefur þó ekki mátt hægja mikið á mér þar sem það streyma inn skipin þessa dagana og mikið að gera til að undirbúa komu þeirra! Ég hef því bara haft það gott á kvöldin í stað þess að taka upp úr kössum og því hefur gengið ANSI hægt að gera allt klárt - leiðinlega hægt þar sem það er fátt meira pirrandi en að leita að dótinu sínu í kössum! Mér leiðist líka drasl svo að þetta tvennt er ekki að gera mér lífið léttara þessa dagana! En ég þarf að fara að græja... Bið að heilsa í bili, Hafdís skrifaði klukkan 3:29 e.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||