22.5.06
Heil og sæl,

Það hefur verið brjálað að gera undanfarið - ég hef varla náð að líta upp úr kössum nú eða öðru varðandi íbúðina. Ég er búin að ná að mála hárið á mér all svakalega einu sinni, setja meiri málningu á hendurnar á mér en á veggina, mála flísar, skápa og annað sem ég átti EKKI að mála. Já, ég hefði átt að gorta meira af hæfni minni í því að mála í kringum allt...
Við fluttum formlega í gær og fengum til þess hjálp frá eðalfólki og frábærum vinum. ÍR-ingar klikka ekki frekar en fyrri daginn en fengu þó góða hjálp frá Skagfirðingum í þeim efnum, sá passaði vel upp á að ekkert rispaðist eða skemmdist og var með öryggið í fyrirrúmi. Ég vil nota tækifærið og þakka Bergþóri frænda mínum, Albert og syni hans, Bergrós og Davíð og Ellen vinkonu fyrir alla hjálpina. Þessar elskur náðu að bera allt út af Eggertsgötu og setja það í kerru, keyra upp í Breiðholt og setja allt inn á tæpum 3 tímum. Þar af fór rúmur klukkutími í að koma sófunum okkar inn í nýju stofuna. Hurðirnar þar eru víst ekki gerðar fyrir svona eðalsófa eins og okkar! Þetta tókst þó með góðu samstarfi okkar alla og ég er á því að önnur eins liðsheild hafi ekki sést! Til þess að sófarnir kæmust inn þurfti einungis að taka allar hurðir af hjörum, losa gérefti og hurðarkarminn eins og hann leggur sig af hurðinni inn í stofu og losa ljós og taka spegil af veggnum inn í forstofu! En þetta hafðist og kann ég þessum elskum bestu þakkir fyrir einstaka þolinmæði og útsjónarsemi! TAKK KÆRLEGA! Mamma var síðan svo yndisleg að bjóða liðinu í kaffi og kökur. Það var að sjálfsögðu ekkert slor þar sem mamma reiddi fram veigar handa rúmlega 20 manns en við vorum bara 10. Það átu auðvitað allir á sig gat og gott betur en það og þetta hjálpaði svo sannarlega til við að hlaða batteríin sem voru farin að blikka alla hressilega!

Við byrjuðum svo að taka upp og raða í gær en erum ekki komin ýkja langt í því, svefnherbergið er þó að taka á sig mynd enda sá staður sem þarf að komast í stand sem fyrst! Afar mikilvægt að sofa vel, miklu mikilvægara en að tengja sjónvarp og raða sófum þó svo að það sé atriði nr.2 á listanum hjá sjónvarpssjúklingum eins og okkur! Stefnan er að sjálfsögðu sett á að græja allt slíkt fyrir kl.20 í kvöld ;) Síðan tekur græjun á eldhúsi við og þá getum við farið að ferja stellið og annað eldhústengt. Við ákváðum að geyma það í gær þar sem þeir kassar yrðu bara fyrir, eldhúsið á nefnilega soldið í land að verða klárt. Það verður því ekkert innflut ingspartý fyrr en í fyrsta lagi í júní! Við bíðum komu vina sem yfirgefa okkur að vetri til...

Ég hef því soldinn tíma í að koma íbúðinni í gott stand áður en hugsa þó að ég verði einhvern tíma að gera hanna að ,,minni" þar sem heimilsblær fæst oft ekki fyrr en eftir smá tíma. Ég kem svo til með að vinna hörðum höndum að heimilislyktinni sem tekur vonandi stakkaskiptum! Það er annars ekkert grín að þrífa þetta ferlíki, það leynast alls staðar krókar og kimar sem eru fullir af ryki og sagi eftir marga fætur! Ég á svo enn eftir að mála ytri forstofuna - jább, um að gera að hafa tvær - og þá fer þetta að líta út eins og ég vil hafa það!

En ég ætla að fara að gera eitthvað sniðugt í vinnunni - á von á fyrsta skipinu mínu næsta miðvikudag og það næsta kemur síðan í lok maí og þá byrjar sko gamanið!

Kveðja.
Hafdís

Hafdís skrifaði klukkan 1:28 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli