|
|||||||||||||||||||
|
17.5.06
,,Hana nú" sagði hænan og lagðist á bakið!Allur flutningur hefur frestast sökum eldhúsvandræða! Eitthvað rör var í lamasessi og ef við hefðum sleppt því að skipta um það hefði leki trúlega verið tímaspursvandamál - þar sem við erum ekki hrifin af svoleiðis ákváðum við að skipta um! Við erum síðan að bíða eftir að rafvirkinn komi og græji allt systemið þarna. Hann er fjölskylduvinur og er búinn að hafa mikið að gera svo að hann hefur ekkert getað mætt á svæðið - það fer þó vonandi að rætast úr því! Sveinbjörn og tengdó smelltu hluta af innréttingunni upp í gær á meðan ég málaði bókstaflega frá mér allt vit. Hugsa að ég hafi verið AÐEINS of mikið með nefið á kafi ofan í dollunni þar sem ég var soldið að mála undir og fyrir ofan og hliðar og annað sem krafðist þess að ég væri í aðeins nánara sambandi við málningardolluna en hollt þykir. Í kvöld heldur málningarvinnan áfram - síðasta herbergið er að smella saman og vonandi klárast innréttingin líka - það kemur væntanlega í ljós í kvöld! Síðan er fyrirhugað að byrja að pakka á fimmtudagskvöldið og vonandi náum við að byrja að flytja á föstudag og getum þá klárað á laugardag/sunnudag! Þá hef ég 1,5 viku til að gera Höllina hreina og fína fyrir næstu íbúa og næ svo vonandi að gera kjallarann fínan bráðlega svo að ég geti farið að bjóða einhverjum skemmtilegum í heimsókn. Ég hef ekki séð andlitin á vinum mínum í alltof langan tíma og er nánast farin að gleyma hvernig þeir líta út! Úr þessu verður bætt hið fyrsta! Hildur hjálpaði okkur reyndar að mála um daginn og því man ég eftir henni, Bjöggi rak líka inn nefið í fyrradag og hann er því í fersku minni - aðrir eru ekki eftirminnilegir í augnablikinu en það rifjast vonandi upp þegar málningarvíman rennur af mér! Annars hefði ég seint trúað því hvað ég get málað utan um hurðir og annað slíkt án þess að teipa allt í bak og fyrir. Ég er bara orðin asskoti flink að SKERA eins og er sagt á máli atvinnumannanna í þessari grein! Ég mála ekkert svo mikið út fyrir og þegar það gerist er það svo agnarsmátt að ég er enga stund að þurrka! Jább, ég er klárlega snillingur! Annars er bara fjör í vinnunni og ég er ennþá að lifa það af að mæta í íbúðarvinnu eftir kl.5 og fram að miðnætti! Ég þarf þó bráðlega að fara að fá almennilegan svefn til að hressa mig við! En ég þarf að fara að læra eitthvað nýtt, bið að heilsa í bili! Hafdís skrifaði klukkan 2:52 e.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||