1.5.06
Góðir hálsar,

Ég er á fullu í prófatíð og geri fátt annað en að læra, sofa, borða og hafa áhyggjur af því hvað ég slugsast meira en ég læri - já, ég er sem sagt enn við sama heygarðshornið. Ég náði að undirbúa mig ágætlega undir fyrsta prófið sem var seinasta laugardag, þar skrifaði ég ansi hreint mikið og ruglaði án efa einhverju sama þar sem það var jú afskaplega einfalt, sérstaklega fyrir vitleysing eins og mig sem þurfti að fara extra hratt yfir efnið. Ég held þó að það próf sleppi alveg. Dagurinn í gær var svo algjörlega ónýtur sökum þreytu og slens, ég lærði eiginlega ekki neitt en át þeim mun meira. Okkur var boðið í skírnarveislu og þangað fór ég sem fulltrúi fjölskyldunnar, okkar Sveinbjörns s.s - við erum jú fjölskylda. Það var að sjálfsögðu alveg ljómandi gott og eiginlega bara tvöfalt gaman þar sem frændur voru skírðir og þeir voru báðir afskaplega hressir og kátir.

Í dag er ég að reyna að hella mér út í lærdóm á ný en það hefur gengið ansi hreint brösulega. Ætla þó að fara að taka upp tímatöku-kerfið mitt á ný til að fá smá spennu í þetta og harka af mér. Ætla jú að reyna að standa mig í prófinu á miðvikudaginn. Þriðja prófið er svo á laugardaginn og það seinata á þriðjudaginn eftir rúma viku. Þá verður nú fyrst kátt í höllinni! Þá fer ég að græja nýju Höllina, margt sem þarf að gera þar áður en ég fer að flytja mitt hafurtask. Eins og staðan er í dag þarf ég að byrja að þrífa eftir sóðablóðin sem bjuggu þarna áður og löbbuðu á veggjunum og kúkuðu í sturtuna (þetta lítur alla vega þannig út). Þið getið sem sagt rétt ímyndað ykkur hvað það verður sótthreinsað þar sem minn feiti en jafnframt fallegi rass lætur sko ekki bjóða sér hvað sem er!

En ég þarf að fara að kynna mér microglia frumur aðeins betur....

That´s all folks...

Hafdís skrifaði klukkan 3:26 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli