|
|||||||||||||||||||
|
7.5.06
Ég er klárlega mesti snillingur í heimi!Það er komið á tært, það er ekki séns að taka þann titil af mér í bráð! Mig langar varla að segja frá þessu en þar sem þetta er OF aulalegt til að vera satt þá verð ég barasta... Ég er að fara í próf á þriðjudaginn, í fagi sem að ég hef tekið áður og er aðeins að ,,lagfæra". Það er náttúrulega ekki frásögu færandi fyrir utan að ég hringdi í vinkonu mína í dag til að spyrja hana hvernig hún hefði lært fyrir þetta seinasta vor (kominn nýr kennari síðan ég tók þetta og því ákvað ég að tékka). Hún fer síðan að lýsa einhverjum sniðugum köflum í bókinni sem hún las fyrir prófið og ég skil ekkert í því afhverju ég finn þá ekki en átta mig þá á því að ég er auðvitað með nýja útgáfu af bókinni og síðar á því að kallinn er búinn að skipta um bók þar sem hún heitir ekki það sama! Ég ákveð nú samt að fá bókina lánaða hjá kellu þar sem henni gekk vel á prófinu margumtalaða og þar sem mér lýst ekki nógu vel á þá sem ég er með í höndunum! Þess ber auðvitað að geta að ég er bara búin að lesa byrjunina á bókinni mér til varnar er ég bún að lesa hina bókina í faginu spjaldanna á milli (hún er á íslensku sem er gott fyrir slugsa eins og mig). Eftir smá vangaveltur yfir kennsluskránni sé ég svo að kennarinn er með vitlaust nafn á höfununum en ég kippi mér svo sem ekki mikið upp við það því að ég mundi eftir umræðum um nýja útgáfu í byrjun árs, útgáfu sem kennarinn vissi ekki einu sinni af og sagði okkur síðar að við MÆTTUM nota, hún væri ekkert SVO frábrugðin þeirri eldri. Vanalega er það akkúrat öfugt en...kennarinn er soldið spes! (það er þessi í hvítu gallabuxunum)! Eftir að hafa lagt saman 2+2 ákvað ég að kíkja á bóksölu.is til að sjá hvort að þetta væri örugglega bókin sem ætti að nota. Hvað kemur í ljós - mér tókst að kaupa kennslubók í Aðferðafræði I en ekki í Aðferðafræði og ekki nóg með það - heldur keypti ég kennslubókina í Aðferðafræði I í Félagsfræði en ekki sálfræði! Það er nú næstum eins eða hvað? Ég sit sem sagt uppi með bók sem er kennd í félagsfræði í svipuðu námskeiði þó sem ég hef ekki lesið og kostaði nákvæmlega það sama og hin! Þetta þýðir að sjálfsögðu að ég get með góðri samvisku skipt þessar vitlausu upp í námsbók í öðru fagi sem ég tek í haust! Þannig að ég rauninni endaði þetta vel fyrir mig þar sem ég GRÆÐI á því að vera slugsi og lesa ekki allar bækurnar mínar! Þetta er samt eitt af því heimskulegasta sem mér hefur tekist! Langlífasta heimskuparið fyrir víst! Hafdís skrifaði klukkan 11:55 e.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||