11.5.06
Í fréttum er þetta helst:

-Ég er búin í prófum - kláraði á þriðjudaginn! Það var afskaplega notalegt en af ofálagi var ég andlega fjarverandi í gærdag og kunni ekki einu sinni að tala! Mjög notaleg tilfinning!

-Sveinbjörn er búinn að rífa gamla eldhúsið úr nýju íbúðinni - græjaði það einn á þriðjudaginn. Í gær tók ég mig til og aðstoðaði við fríkkun íbúðarinnar. Og fékk meira að segja að beita kúbeinin og vera með læti - en það er eitt það skemmtilegasta sem ég geri - þ.e að hafa læti!

-Ég byrja síðan í nýju vinnunni minni á mánudaginn - ekki hjá Vísa eins og mörg ykkar halda heldur hjá Samskip. Þar á ég að sjá um skemmtiferðarskipin sem koma til landsins og öllu sem þeim tengjast - þ.á.m að fara um borð þegar þau koma og áður en þau fara! Það verður sem sagt NÓG að gera hjá mér í sumar!

-Helgin fer væntanlega í að pakka niður úr Höllinni en til upplyftingar ætlum við Sveinbjörn að smella okkur á Suðræna sveiflu hjá vinnunni hans og að henni lokinni ætlum við að kíkja á próflokadjamm með vinkonum mínum sem eru að klára prófin í dag!

-Það eru sem sagt spennandi tímar framundan! En ég hef ekki tíma í meira spjall, þarf að fara að kaupa málningu og flísar og græja eldhúsinnréttinguna!

Heyrumst,

Hafdís skrifaði klukkan 11:15 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli