|
|||||||||||||||||||
|
5.5.06
Alveg komin í gírinn!Próf á morgun, ég hef haft afskaplega lítinn tíma til að læra fyrir það. Það sannast best í því hversu stressaðar vinkonur mínar eru sem eru búnar að liggja yfir þessu síðan á sunnudag en undirrituð hóf hins vegar ekki lestur fyrr en í gær sökum annars prófs í millitíðinni! Ég tek þessu hins vegar bara með stökustu ró og ætla bara að gera mitt besta, reyni að tapa mér ekki yfir því að hugsa hversu lítið heimspekilega þenkjandi ég er. Reyndar tókst mér að tengja kenningar Freuds við andleg málefni svo að eitthvað hlýtur að vera að gerast í kollinum á mér. Ég er svo komin í hina heilögu þrenningu núna, fékk mér tromp, magic og er að hlusta á slökunartónlist sem Friðrik Karlsson samdi. Sá diska eftir hann á okurverði í blómabúð um daginn og við Jóhanna hlustuðu dáleiddar á brot úr nokkrum lögum en hefðum aldrei á ævinni tímt að kaupa einhvern diskinn þar sem þeir kostuðu rúmlega 3500 krónur. Ég áttaði mig svo á því áðan að ég átti ennþá inneign á tónlist.is síðan um jólin og ákvað að athuga hvort þeir lumuðu ekki á nokkrum vel völdum lögum og viti menn! Ég keypti mér auðvitað nokkur vel valinn og er núna að hlusta á þau og fyllist að sjálfsögðu hugarró við það eitt! Og allur heimsins fróðleikur kemur til með að streyma inn í hugann sem hefur engar hömlur á sér við þessa miklu slökun. Auk þess finnst mér ég hafa grætt talsvert í dag, sparaði mér auðvitað nokkra þúsundkalla á að kaupa lög af netinu í stað þess að kaupa diskinn sjálfan - auk þess hefði ég aldrei getað valið á milli diska. Og þess utan eru öll lögin sem ég keypti um 12-15 mínútur og við það eitt græði ég alveg heilan helling þar sem ég kaupi þau lög á sama verði og ég hefði keypt 3 mínútna lag - hreinn gróði! Ég hugsa að ég geti glöð í hjarta keypt mér eins og eitt stykki bol fyrir próflokadjammið eftir rúma viku... Já, og íbúðin er enn skítug og ógeðslega og ég farin að hafa verulegar áhyggjur af þessu! En ég smelli bara nýju lagi á ,,fóninn" og hætti að hugsa um þau leiðindi og fer frekar að einbeita mér að skemmtilegum kenningum eftir kalla sem eru löngu dauðir - nánast útdauðir! Kveð að sinni! Hafdís skrifaði klukkan 3:40 e.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||