|
|||||||||||||||||||
|
23.4.06
Vangaveltur!Í nokkur ár hef ég velt því fyrir mér afhverju fólk er reiðubúnara að gleðjast með manni þegar lífið er gott en vill síður vera til staðar fyrir mann þegar það er ekki eins gott. Ég veit að margir eiga í erfiðleikum með að tjá samúð sína, vita ekki hvað þeir eiga að segja og halda að það séu til einhver töfraorð sem bæti allt en þeir kunni þau bara ekki! Ég vil halda að ég sé jafn tilbúin að gleðjast og gráta með fólki (ég er alla vega með töluverða reynslu af bæði hlátri og grátri). Ég hef misst nána ættingja í gegnum árin og upplifað hversu asnalegir vinir manns verða í kringum mann í kjölfarið! Mér finnst alveg eðlilegt að yngri krakkar viti ekkert hvað þau eigi að gera þar sem reynsla þeirra af lífinu er bara ekki nægilega mikil en mér finnst mjög skrýtið þegar fullorðið fólk ræður ekki við það. Auðvitað er fólk mismiklar tilfinningaverur og eiga því miserfitt með að halda haus þegar það talar við fólk um málefni hjartans en mér finnst það samt ekki vera nein afsökun. Stelpa sem ég kannast við missti pabba sinn fyrir ekki svo löngu síðan og ég hágrét bara af því að hugsa til hennar og svo táraðist ég mikið þegar ég fór og vottaði henni samúð mína - ég er bara þannig! Ég gæti labbað inn í hvaða jarðarför sem er og grátið þó að ég þekkti fólkið ekki neitt. Ég er voða dugleg í því að skynja sársauka annarra og get léttilega grátið fögrum tárum út af engu - þess vegna á ég til dæmis voða auðvelt með að gráta yfir Tarsan teiknimyndinni, Nágrönnum og hvaða sápuóperu sem er! Ég veit ekki afhverju ég fór allt í einu að spá í þetta, en þetta er alla vega komið hjá mér í dag! Hafdís skrifaði klukkan 11:51 f.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||