24.4.06
Árlega í kringum vorpróf fyllist ég smávægis fortíðarþrá. Það er, ég hugsa ansi oft til tímans þegar ég var ung og áhyggjulaus og próf voru eitthvað sem ekki þurfti að læra fyrir heldur prófuðu bara þekkingu manns á þeim tíma og í þá tíð var ég réttu megin við meðaltalið og þurfti því afskaplega lítið að hafa fyrir hlutunum. Þar af leiðandi einkenndist vorið af leikjum, hjólreiðatúrum, söngvum og almennum skemmtilegheitum. Ég var ansi dugleg að fara í leiki með krökkunum í hverfinu. Ég ólst upp á Vopnafirði og þar sem það er lítið sjávarpláss er heldur frjálslegt að tala um hverfi en í nágrenni við mig bjuggu ansi margir krakkar á mínum aldri og því þurfti ekki að leita langt til að fá nógu marga í lið með sér!

Við vorum heldur alls ekki einhæf í leikjum á þessum aldri þar sem mér tókst að rifja ansi marga upp á stuttum tíma fyrr í kvöld. Við vorum ofsalega dugleg að spila YFIR, kannski af því að tvennt af því sem ég var góð í var að hlaupa hratt og grípa (þökk sé pabba) og mér hefur aldrei leiðst að gera neitt sem mér ferst vel úr hendi. Annar leikur sem við vorum ansi oft í var skotbolti en einn frændi minn var svo skelfilega góður í þeim leik að það var nánast vonlaust að vinna hann - það var þó bara meiri áskorun fyrir okkur og því fylgdi mikil gleði þegar hann datt úr leik. Ég var líka ansi dugleg að vera í löggu- og bófaleik með 3 frændum mínum og hann fólst í því að fela sig og þegar bófarnir nálguðust þurftu löggurnar að vera í a.m.k 10 skrefa nálægð til að mega taka þá fasta - afbragðsleikur! Fallin spýta og ein króna voru líka leikir sem voru títt á dagskrá og sömuleiðis vink,vink í pottinn en ég var ansi góð í þessum leikjum líka og hafði ansi gaman að því að vera sú sem bjargaði öllum í lokin - já, ég er soldið veik fyrir þessari hetjuímynd!

Síðan var ég að rifja nokkra leiki upp áðan sem ég man bara ekki fyrir mitt litla líf hvað hétu eða nákvæmlega hvernig þeir voru. Held að einn þeirra hafi heitið stytta eða eitthvað álíka. Ég man að sá sem ,,var-ann" þurfti að spyrja hina, einn af einum, hvernig þeir vildu ,,deyja" (verða að styttum) og það var einhver rulla sem maður þurfti að fara með sem ég man engan veginn í þessum skrifuðu, en ég man þó að maður gat valið að láta fella sig, skjóta sig, hrinda sér og eitthvað álíka spennandi. Síðan urðu allir að styttum og svo man ég ekki alveg hvað gerðist en ég man að þetta endaði einhvern veginn á þann veg að tveir þurftu að spyrja 1 hvort honum fyndist betra af 2 möguleikum og það sem hann valdi úrskurðaði í hvaða liði hann væri! Síðan var held ég reipitog til að úrskurða alveg um sigurvegara. Þetta er það sem er mér í minni en eins og þið sjáið eru ansi margar gloppur!

Síðar meir fannst okkur gaman að leika okkur í nafnaleiknum þar sem bolti var látinn ganga á milli og fyrsti stafurinn gefinn og svo næsti á eftir ef enginn áttaði sig og svo koll af kolli. Þegar rétt nafn kom upp átti að gríta boltanum í jörðina og hlaupa eins langt og hægt var þangað til að sá sem gat rétt náði boltanum og gargaði eitthvað annað. Þá mátti giskarinn taka 3 hopp og svo 10 hænuskref - minnir mig og átti svo að reyna að hitta ofan í körfu sem var mynduð úr handleggjunum. Mikið gaman - mikið grín! Dimmalimm náði aldrei verulegum vinsældum hjá okkur en við fórum þó stundum í þann snilldarleik. Skotboltar voru að sjálfsögðu til með nokkrum útfærslum og við vorum ansi dugleg að breyta til í þeim efnum! Annars fannst mér sjálfri voða gaman í boðhlaupum og spretthlaupum af öllum gerðum þar sem ég átti það til að vera fyrst. Ég hef sem sagt alltaf verið ansi hrifin af því að vinna!

Í dag væri ég svo miklu meira til í að vera að leika mér áhyggjulaus, umvafin góðum vinum. Þess í stað er ég með samviskubit yfir leti í lestri og með áhyggjur af komandi tíð en það er víst óhjákvæmilegur fylgifiskur fullorðinsáranna og mótlætið á víst að herða mann en ekki öfugt.

Í dag hefur fjörfiskur angrað mig í öðru auganu og ég get ekki með nokkru móti losnað við hann. Þó að ég sé sjálf fiskur hef ég afskaplega lítið gaman af þessu frænda mínum!

Hvaða leikir voru í uppáhaldi hjá ykkur þegar þið voruð yngri og getið þið gefið mér einhverjar upplýsingar um þessa sem ég ræddi um hér að ofan?

Hafdís skrifaði klukkan 8:59 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli