11.4.06
Nokkrar hugleiðingar:

- Hvort vaskarðu upp undir bununni eða lætur renna í annað vaskinn og vaskar upp ofan í vatninu og skolar svo af?

- Hvernig líst ykkur á hugmyndir Guðlaugs Þórs Þórðarsonar um að færa okkur yfir á sumartíma svo að við getum notið góða veðursins, þegar þess nýtur við og að færa 2 frídaga að helgi svo að fólk fái almennilegt frí?

- Haldið þið að sjálfstraustið ykkar hafi áhrif á ykkar daglega líf og það sem þið takið ykkur fyrir hendur? Gerið þið hluti frekar ef þið hafið trú á ykkur og getu ykkar?

Til að útskýra aðeins mitt mál þá var mamma að skamma mig fyrir að vaska upp undir bununni heima hjá henni og reif af mér uppþvottaburstann og sagði mér að ég myndi nota svo mikið vatn með því að vaska upp undir bununni. Heima hjá okkur er nefnilega bara 1 vaskur og svo bara svona hilla og því get ég ekki vaskað leirtauið upp ofan í honum þar sem ég þyrfti þá að setja leirtauið í grindina með sápu og og taka það aftur úr til að skola það og setja það aftur í - of mikill tvíverknaður að mínu mati og óþarfa vesen!
Ég er hrifin af hugmyndunum hans Guðlaugs, þetta er eitthvað sem við fjölskyldan erum búin að tala um í mörg ár. Um að gera að færa frídagana nær helgi og jafnvel að færa einn yfir í annan mánuð en apríl þar sem þar eru milljón frídagar hvort eð er! Hvernig væri að smella einum í júlí t.d? Ég er ekki alveg búin að ákveða mig með sumartímann en við fyrstu sýn sýnist mér þetta vera soldið sniðugt. Auðvitað er voða leiðinlegt að þurfa að færa allar klukkur fram en ég hugsa að maður sætti sig við það til þess að fá smá sólarljós eftir vinnu á daginn.
Þriðja vangaveltan er soldið í tengslum við ritgerð sem ég er að fara að skrifa - þetta er mjög common sense efni svo að mér datt í hug að sjá hvað þið hefðuð um þetta að segja - endilega látið ljós ykkar skína :)

Annars er ég bara góð!

Hafdís skrifaði klukkan 11:47 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli