21.4.06
Nýjar fréttir!

Það hefur ýmislegt gerst síðan ég skrifaði seinast, sumt þó merkilegra en annað!

Systir mín greindist með sjúkdóm sem kallast Góðkynja bindivefssjúkdómur (Ehlers-Danlos Syndrome (EDS))og í dag var ég greind með þennan sama sjúkdóm! Við erum sem sagt ofurhreyfanlegar! Liðir og liðamót geta læst (reyndar bara olnbogar á mér) og hreyfst of mikið. Líkaminn er alltaf að reyna að stabilísera sig af því að við hreyfumst of mikið og það álag veldur bólgum og sársauka. Ég hef til dæmis verið að drepast í úlnliðunum síðan fyrir jól og þarf alltaf að passa að beita þeim ekki vitlaust. Þessi sjúkdómur veldur því að ég má ekki lyfta of þungt, ekki hlaupa of langt og svo mætti lengi telja!

Ef ykkur langar að vita eitthvað meira fann ég upplýsingar um hann hér

Annars ætla ég bara að líta á þetta með jákvæðu hugarfari. Núna veit ég alla vega hvað er að mér og nokkurn veginn hvernig ég get dregið úr því. Ég þarf að hreyfa mig, samt ekki of mikið og þarf að halda mér í léttari kantinum. Fínt að heyra lækni segja það, þá tek ég kannski á því í eitt skipti fyrir öll! Samt soldið svekkt yfir lyftingum og hlaupum en ég tek þá bara fleiri endurtekningar og hjóla eða hleyp í sundi í staðinn. Það er ekki eins og ég hafi verið greind fötluð eða með krabbamein eða eitthvað álíka!

Lengi lærir sem lifir og ég skal reyna að halda þessu í lágmarki!

Ég var síðan í prófi í dag og tókst að klúðra einni spurningu vegna tímaskorts, soldið svekkt þar sem ég var staðráðin í því að fá 10! Hugsa að ég svekki mig á þessu í dag, morgun og hinn og svo ætla ég að gleyma þessu!

En ég ætla að fara að læra fyrir fyrsta prófið mitt og gera styrktaræfingar fyrir bólgna líkamann minn!

Blessuð,

Hafdís skrifaði klukkan 2:59 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli