11.4.06
Á mínum yngri árum var ég ein af mestu pjattrófum veraldar þegar kom að ákveðnum hlutum. Ég mátti til að mynda varla sjá niðurfall án þess að kúgast verulega og nánast æla. Þið getið þá ímyndað ykkur hvað gerðist þegar ég sá ofan í niðurfall nú eða fann lyktina af einhverjum viðbjóði. Ég var meira að segja það slæm að ég gat ekki tekið hár úr hárbursta og sturtað þeim niður klósettið þar sem ég kúgaðist við það eitt að horfa á hárin í klósettinu. Jú, og auðvitað henti ég Cheeriosinu ef ég fann hár ofan í því og fékk mér nýtt...jább, ég var engin venjuleg stúlkukind!

Ég held að ég sé vaxin upp úr þessum dyntum mínum þar sem ég lá nánast með hausinn ofan í niðurfallinu okkar um helgina og veiddi upp úr því alls kyns ógeð og henti og skolaði það allt saman og þvoði. Það er fátt auðveldara en að hreinsa hárbursta og Cheerios telst til þvílíkra munaðarvara að mér dytti aldrei í hug að henda svo miklu sem einum hring!

Í gær tókst mér nánast að frysta af mér höndina! Þannig er mál með vexti að ég keypti mér svona fancy pancy kveikjara fyrir nokkru síðan, svona gaskveikjara sem lítur næstum út eins og byssa. Það felst nefnilega mikill tímasparnaður í svona tæki fyrir mig því þá þarf ég ekki að taka öll 30 kertin upp úr stjökunum á meðan ég kveiki og setja þau aftur ofan í. Ég brenni mig líka síður á puttunum við það að kveikja á kertunum í 6 og 7 kerta stjökunum því að ég nenni ómögulega að stoppa á milli og láta kveikjarann kólna - það er bara tímaeyðsla! Fyrir vikið sit ég oft uppi með ansi sáran þumalputta og svo ég tali nú ekki um rauðan!

Gasið í þessum fína kveikjara mínum kláraðist fyrir skemmstu og núna um helgina mundi ég eftir því að fara að kaupa áfyllingargas. Ég spurði auðvitað hvernig ætti að gera þetta á Shell stöðinni og einhver góður strákur sýndi mér hvað þetta væri lítið mál og benti mér á gatið sem gasstúturinn átti að fara inn í. Ég hrósaði happi og henti þessu auðvitað í karlmanninn á heimilinu þegar ég kom heim! Hann bisaði heillengi við þetta en gafst svo upp þegar ég var eitthvað að gagnrýna hann og lét mig um þetta! Auðvitað gat ég ekki gefist upp líka og varð því að sýna honum hvernig ALVÖRU handlagin heimilsfrú fer að þessu! Það endaði þó ekki betur en svo að ég varð öll út í ÍSKÖLDU gasi og frysti nánast af mér hendurnar og hefði léttilega getað kveikt í sjálfri mér í þokkabót en gasið fór í kveikjarann og hann er nothæfur aftur sem var jú einu sinni tilgangurinn og því vann ég baráttu kynjanna :) JEI!

Ég var reyndar ansi aum í höndinni í allan gærdag en það var samt SVO þess virði!

Ég bið þó engan að apa þennan asnaskap eftir mér. Verið í hönskum þegar þið ætlið að fylla á kveikjara og gerið það helst sem fjærst öllu eldfimu og verið helst utandyra þar sem það vill oft eitthvað sleppa út í gasformi! Þrífið svo kveikjarann áður en þið prófið að kveikja á honum og verið helst ekki eins þrjósk og ég!

Brunarvarnareftirlitið styrkti þessa frásögn!

Hafdís skrifaði klukkan 1:22 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli