20.4.06
Heil og sæl,

Ég vona að það gleðji einhver ykkar að ég er ennþá á lífi! Það hefur verið ansi mikið að gera hjá mér seinustu daga og allir mínir skriftarhæfileikar beindust að ritgerðarsmíð og þar sem þeir eru af afar skornum skammti mátti ég ekki við því að eyða þeim á þessa síðu! Ég var sem sagt að skila seinni ritgerðinni minni í einu námskeiði og þar sem sú fyrri var ekki mikið til að hrópa húrra fyrir þurfti ég að gera betur núna - vonum bara að það hafi virkað!

Undanfarið hef ég sem sagt gert voða lítið annað en að kynna mér heimildir, skrifa, stroka út, breyta og bæta svo að líf mitt er ekki fjörugt þessa dagana!

Ég átti reyndar 25 ára skírnarafmæli 18.apríl og sama dag áttu foreldrar mínir silfurbrúðkaup! Frekar lukkuleg með það! Miðað við þeirra tölu erum við Sveinbjörn náttúrulega bara kjúklingar að hafa bara verið saman í 5 ár og við náum víst ekki að vera búin að vera gift jafn lengi og þau þar sem þau giftu sig þegar þau voru 24 ára - á sama tíma og þau eignuðust mig! Ég er sem sagt vel á eftir áætlun!

Annars er próf hjá mér á morgun, best að fara að kynna sér það eitthvað svo að ég eigi nú örugglega eftir að brillera á því! Síðan er seinasti skóladagurinn í næstu viku og þá er skelfilega stutt í próf. Ég byrja í prófum 29.apríl og klára 9.maí! Strax eftir próf fer ég í það að flytja sem verður stuð þar sem Sveinbjörn er upptekinn til 20.maí - en ég er kraftakerling og get þetta alveg sjálf!

Sjálfboðaliðum verður þó tekið með opnum örmum!

Hafdís skrifaði klukkan 1:13 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli