4.4.06
H fyrir Hrakfallabálkur

Á leið minni heim af æfingu á þriðjudagskvöldið gerðist nokkuð óvænt. Í fyrsta lagi biðu mín 2 skilaboð þegar ég kom út í bíl - það er ansi hreint óvanalegt! Í annan stað voru þetta skilaboð frá Rakel vinkonu minni í Danmörku sem var að bjóða mér að kaupa miða út á fimmtudagsmorgun og heim á mánudagseftirmiðdag á 10000 kall og í boði voru 2 stk! Ég hugsaði mig alveg dáldið um og leyfði Sveinbirni soldið að melta þetta áður en við tókum ákvörðun. Skólinn spilaði nefnilega stórt hlutverk inn í þetta allt þar sem það er ansi mikið að gera í honum hjá okkur báðum og við vissum að 5 daga ferðalag hefði trúlega ekki góð áhrif á stöðu mála þar! Rakel ætlaði hins vegar að halda upp á 25 ára afmælið sitt á laugardeginum (á afmæli 3.)og það heillaði okkur soldið. Við mættum nefnilega í 25 ára afmælið hans Hilmars (kærastinn hennar Rakelar) í september í fyrra og gátum varla gert upp á milli þeirra. Við ákváðum því bara að smella okkur út! Höfðum auðvitað enga tíma til að hlakka til þar sem við áttum eftir að gera ótal hluti áður! Það var auðvitað allt skítugt eins og alltaf þegar maður þarf að gera eitthvað með afar skömmum fyrirvara. Ég þurfti því að redda því! Að sjálfsögðu tókst mér að týna lyklunum mínum á sama tíma og komst því ekki inn í þvottahúsið, né gat læst húsinu og það er nú alltaf traustvekjandi! Húsinu okkar er nefnilega bara hægt að læsa með lykli, það er ekki hægt að skella í lás eins og á venjulegum húsum!

Ég reddaði þessu smávægilega vandamáli einfaldlega með því að fá að þvo í þvottahúsinu í stóra húsinu sem vinkona mín býr í - hún var svo sæt að lána mér lykilinn sinn svo að það slapp fyrir horn! Við pökkuðum svo niður á miðvikudagskveldi og fórum alltof seint að sofa miðað við að við þurftum að vakna kl.4.30. Ég svaf í mesta lagi í klukkutíma þá nótt þar sem ég var afskaplega stressuð yfir því að ég væri að gleyma einhverju afar mikilvægu og svo var ég í sífellu að minna mig á að taka hleðslutæki, sjampó og símanúmer sem enn var ekki komið ofan í tösku - hefði að sjálfsögðu bara átt að fara fram og pakka þessu niður svo að ég gæti sofið rólega! Sveinbjörn hefur reyndar aðrar skýringar á svefnleysinu og segir að ég hafi bara verið eins og 5 ára krakki fyrir jólin - kannski smá sannleikskorn í því en ég held mig við mína sögu!

Ferðin út gekk eins og í sögu! Við hittum akkúrat á báðar lestarnar, þessa frá Kastrup og þá sem við skiptum yfir í á Hovedbane og svo löbbuðum við beint inn í strætó og biðum því samtals í svona 2 mínútur frá Kastrup! Huggulegt! Þarna hefðu viðvörunarbjöllur átt að hringja í kollinum á mér þar sem ég er ekki svona heppin og ef ég er svona heppin þá á ég að vita að eitthvað verulega slæmt gerist á móti - og það gerðist sko!

Við höfðum það svo bara gott á fimmtudaginn og spiluðum bara og spjölluðum. Rakel og Himmi búa í Holte í Kaupmannahöfn og það er soldið út í rassgati, fyrir þá sem þekkja eitthvað til borgarinnar eru hverfið þeirra á mörkum þess að vera nr.51/61 og það eru þá 6 zone niður í bæ! Það tekur því um 25 mínútur að komast niður í bæ þegar maður lendir í góðu lestinni sem stoppar ekki á hverri stöð - gott fyrir þolinmótt fólk eins og mig!

Á föstudeginum ákváðu Rakel og Rebekka systir hennar að fara að versla. Þar sem ég var með fögur fyrirheit um að gera lítið af slíku ákváðum við Sveinbjörn að heimsækja Maríu og Óla sem er vinapar okkar sem er nýflutt út. Þau búa í Christianshavn sem er mjög nálægt miðbænum. Hilmar var búin að fræða okkur um hvaða lestar við ættum að taka til að komast þangað og við smelltum okkur af stað rétt eftir hádegi en þó það seint að 24 tíma lestarkortið okkar átti eftir að verða tæpt niður í Nörreport. Við vorum því ansi mikið með augun á klukkunni þá ferðina - auk þess fylgdumst við vel með því hvort að miðaverðir kæmu inn þar sem við vorum orðin ansi tæp og ætluðum þá bara að reyna að hoppa út áður en þeir kæmu til að þurfa ekki að taka heimska túristann á þetta! Þegar við loksins komum á Nörreport nokkrum mínútum eftir að miðarnir okkar runnu út ákváðum við að stökkva út og það gerðum við! Þegar við vorum rétt komin í rúllustigann sem átti að fara með okkur niður í metróið áttaði ég mig á því að ég var ekki með bakpokann minn á bakinu! Ég hafði sem sagt gleymt fartölvunni, iPodnum og námsbókunum mínum í lest á leið til Köge!!!!

Ég get á engan hátt líst því hvernig mér leið þennan dag. Ég get bara sagt ykkur að það féllu MÖRG tár og mér stökk ekki bros í langan tíma á eftir! Auðvitað var þetta mikið fjárhagslegt tjón þar sem Dagbjörn Dell (fartölvan mín) er frekar nýleg (keypt í lok árs 2004) og iPod Nano eru líka nokkrir þúsundkallar heldur var eiginlega verra að missa allar myndir sem við höfum tekið síðan í lok árs 2004, allar glósur síðan það haust, öll verkefni sem við höfum unnið og verkefni sem við eigum eftir að skila! Ég hafði minni áhyggjur af Dagbjörtu en af gögnunum þó það sé ljótt að segja þar sem Dagbjört er að sjálfsögðu yndisleg og hefur mikið tilfinningalegt gildi! Sveinbjörn hélt þó alveg ró sinni og stundum of mikið af mínu mati - ég meina, hún var jú ein af fjölskyldunni, það er allt í lagi að gráta tapaðann fjölskyldumeðlim! Á þessum tímapunkti labbaði ég um eins og draugur og afskrifaði í huganum Dagbjörtu mína og iPodinn góða. Ég hafði líka áhyggjur af námsbókinni minni þar sem ég er að fara í próf á föstudaginn og var ekki alveg viss um að ég næði að redda mér annarri bók fyrir þann tíma - þetta var því ansi hreint erfitt get ég sagt ykkur. Við náðum okkur þó fljótt í upplýsingar um hvað ætti að gera og ég hágrét allan tímann, fjölskyldumeðlimur skiljiði! Við enduðum á því að fara í Billetsalg og tilkynna tapið þar - á þeim tímapunkti var ég reyndar alveg pottþétt um að örvæntingarfullir danir myndu sprengja töskuna mína í loft upp af ótta við að hún innihéldi sprengju! Ég var jú búin að fylgjast náið með teikningahneykslinu og kannski lít ég út fyrir að vera heittrúarkona í þeirra augum - hvað veit ég! Góð kona í miðasölunni tilkynnti tapið og sagði okkur að koma aftur eftir 45 mínútur því þá væri lestin komin á endastöð og þá væri pottþétt búið að athuga hvort að eitthvað hefði fundist í henni! Ég hafði reyndar ekki nokkra trú á því og hélt bara áfram að gráta! Ljótur kall í miðasölunni stóð og glotti til mín allan tímann sem fögur tár láku niður kinnarnar á mér - mér datt í hug að berja hann svo að hann skynjaða kannski sársaukann minn en hafði það ekki í mér, hann hefði samt átt það skilið kvikindið!

Við ákváðum að fara með ferðatöskuna til Maríu svo að við þyrftum ekki að burðast með hana um allt með okkur og koma svo bara aftur tilbaka eftir smá stund til að fá fréttir!

Þegar við komum til baka með Maríu með í för og við biðum eftir að tala við konuna sem afgreidd okkur áður fékk ég símtal frá fyrrum vinnuveitandanum mínum þar sem hann sagði mér að það yrði ekkert sumarafleysingarfólk ráðið í sumar! Núna gat dagurinn harla versnað mikið þar sem ég sótti bara um á nokkrum stöðum til öryggis því ég var nokkuð viss um að ég fengi aftur vinnu! Hann var reyndar miður sín yfir þessu og sagðist hafa dregið þetta eins lengi og hann gæti með von um að ástandið breyttist! Hann var nú samt voða sætur í sér og sagðist geta gefið mér meðmæli ef ég vildi og að ég mætti skrá hann hjá mér sem meðmælanda!

Stuttu seinna var komið að okkur og góða konan tilkynnti okkur að 3 hlutir hefðu fundist í þessari lest, þar af einn bakpoki! Hann var merktur Hafdis Petursdottir! Ég vissi ekki hvert ég ætlaði þegar hún sagði mér þetta! Þetta var náttúrulega ótrúlegt! Update:Ég hafði nefnilega verið svo sniðug að merkja pokann með Mastercard merkimiða og á honum er nafnið mitt! Það eru nákvæmlega engar líkur á því að enginn steli bakpoka með fartölvu og iPod á langri leið. Ég var þó ekki alveg viss um að það væri allt í honum en var þó ansi hreint vongóð! Þegar við komum niður í þjónustumiðstöðina á Hovedbane kom í ljós að það var nákvæmlega EKKERT sem vantaði í töskuna. Það hefur enginn snert hana! Ég vona að það hafi verið af því að það var fullt af fólki í vagninum sem við vorum í og þar á meðal gömul kona sem sat við hliðina á Sveinbirni og töffari sem sat við hliðina á mér sem átti flottan síma - hann hefur e.t.v ekki þurft á tölvunni að halda! Auðvitað veit ég líka að fólki vissi ekkert að það væri fartölva og iPod í þessu en bakpokinn minn ber samt með sér að vera fartölvupoki og hann er ansi hreint flottur þó ég segi sjálf frá svo að þetta var hálfgert kraftaverk! Á meðan ég grét sem mest sagði ég við Sveinbjörn að ef það væri til guð myndi hann bjarga töskunni minni svo að núna vitið þið að hann er til!

Annars heppnaðist ferðin bara í alla staði vel! Partýið var mjög fínt þangað til nokkrar stelpur ákváðu að drekka alltof mikið og detta á allt og hella endalaust niður! Þær voru síðan ansi hreint duglegar í því að dansa einhvers konar sexy dans sem er ekki svo mjög sexy þegar 5 drukknar stelpur dansa hann en þær hafa greinilega fylgst vel með myndböndum í sjónvarpinu! Ég segi ekki meira! Inn á milli dansa sátu þær ofan á hvor annarri á stól út á miðju gólfi og létu vægast sagt lessulega öðrum gestum til mismikillar ánægju! Kærastarnir þeirra lokuðu sig bara inn í eldhúsi á meðan og létu sem þeir sæju þær ekki einu sinni - stuð! Ein þeirra reyndi svo við alla karlmenn á svæðinu og spurði þá sérstaklega hvort að makinn þeirra væri afbrýðissamur - hressandi! Hennar var það sem sagt - hún hafði það með í tilkynningaskyldunni!

Ég verslaði svo talsvert meira en ég ætlaði - bara af því að ég ætlaði ekki að versla neitt! Náði til að mynda að endurnýja nærfötin mín - sem þarf jú að gera reglulega! Keypti mér svo brjálað pæjuleg sólgleraugu svo að núna þurfið þið að passa ykkur! Sokkar, skór og peysa læddust líka ofan í poka hjá mér ásamt nokkrum bolum úr H&M og smá skarti úr sömu búð! Sem sagt ansi hreint góð ferð ;)

Rebekku systur Rakelar tókst reyndar að gleyma vegabréfinu sínu hjá Rakel - það var okkur til happs að Rakel skannaði svæðið eitthvað eftir að við fórum og náði að hringja í okkur og láta okkur hoppa út úr lestinni og svo kom hún með næstu á eftir með vegabréfið! Sveinbjörn hafði reyndar tékkað á vegabréfinum á leiðinni út úr húsinu en sú gleymna var alveg pottþétt á því að það væri í hinu veskinu sínu sem væri ofan í tösku! Við höfðum ekki tíma til að tékka betur á því þar sem strætó var alveg að koma og við höfðum ekki efni á að missa af honum! Við höfðum því ansi hreint knappan tíma í Kastrup en tókst þó að gera það sem við ætluðum að gera og vorum bara seinust upp í vél!

Skyndiákvarðanir eru góðar ákvarðanir - takk fyrir frábæra daga!

Hafdís skrifaði klukkan 10:12 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli