|
|||||||||||||||||||
|
16.4.06
Gleðilegan Páska(eggja)dag!Ég er búin að hafa það afskaplega gott í dag! Búin að vera að reyna að læra soldið ásamt því að horfa á einhvern voða spennandi þátt og hvíla mig! Við Sveinbjörn afrekuðum að sofa til 12 frá kl.1 um nóttina. Mig langaði ekki í páskaeggið mitt (nr.3) fyrr en rétt í þessu þegar ég var búin að fá mér skinkuhorn í kaffi og svekkelsinu get ég vart líst! Það er nánast ekkert nammi inn í egginu, það er allt í endalausum pokum og í þokkabót ógeðslega vont nammi. Bara einhver vond hlaup og svo önnur vond hlaup með sykri utan á, 2 litlar kúlur og 2 vindlar! Er Nói Siríus ekki að grínast með þetta? Ég er alla vega ekki lítið svekkt, brá á ráð sem ég fékk frá Sigurjóni vini mínum og keypti bara lakkrís út í búð og er að borða páskaeggið eins og eitt sett - það er aðeins að bjarga þessu svekkelsi mínu! Ég hef reyndar aldrei fengið svona lítið páskaegg en ég bað mömmu um að gefa okkur ekki stórt egg þar sem við hefðum ekki gott af því og auk þess grunaði mig að tengdamamma myndi eitthvað tapa sér í þessum efnum. Við höfum reyndar ekki enn náð í þá dýrð en eitthvað segir mér að það verði stærra en nr.3! Eins gott að ég á vön á spilafélögum í kvöld, þá get ég látið þá háma þetta í sig! Ég vil eiga möguleika á því að kaupa páskaegg sem er með almennilegu nammi inn í, væri alveg til í lítið egg sem væri stútfullt af nammi þar sem mér finnst eggið sjálft bara lala - það er auðvitað miklu betra samt með lakkrísnum en ég er samt sem áður MJÖG svekkt yfir þessu öllu saman! Hugga mig reyndar við að ég er að fara að borða dýrindis, dýrindis mat hjá mömmu minni. Held að það sé RIB eye kjöt í matinn sem er að mínu mati eitt það besta sem ég hef smakkað. Svo vænti ég þess að það verði góðar kartöflur og salat eins og móður minni er einni lagið og því er tilhlökkunin mikil! En ég þarf að reyna að klára að lesa heimildirnar mínar betur áður en ég fer að græja mig svo að ég kveð að sinni! Njótið þið seinustu frídagana til hins ítrasta! Hafdís skrifaði klukkan 3:44 e.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||