|
|||||||||||||||||||
|
27.4.06
Eins og áður þegar ég þarf hvað mest á einbeitingunni minni að halda er hún hvergi nærri! Það er aldrei hægt að treysta á þessa druslu!Ég get þó ekki bara kennt slugsaskap mínum um slæmt lestrargengi þar sem það var ansi óvænt dauðsfall í fjölskyldunni í vikunni. Einn af uppáhalds frændum mínum, ömmubróðir minn, lést af slysförum á þriðjudaginn. Þar sem ég get verið óttalegur kjúklingur þegar kemur að svona atburðum er ég auðvitað búin að klára allar vökvabirgðir líkamans. Ég er líka soldið búin að svekkja mig á því að komast ekki í jarðarförina þar sem hún verður líklega um leið og ég er í þriðja prófinu mínu. Ég hugga mig þó við að ég á fullt af frábærum minningum af þessum einstaka manni og þær hef ég verið dugleg að rifja upp síðustu daga til að orna mér við! Heyskapur, smalamennska, umræður um trú og svertingja, tannleysi og það að sjá hann borða tannlausan, dráttarvélaakstur og annað áhugavert er eitthvað sem ég kem til með að muna að eilífu! Hann var einn af þeim mönnum sem gefa lífinu svo sannarlega lit og gildi! Hafdís skrifaði klukkan 11:46 f.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||