3.3.06
Við Sveinbjörn unnum boðsmiða á forsýningu á The Pink Panther í gær. Við vorum á leið heim frá mömmu og pabba seint á þriðjudagskvöldi og vorum aldrei þessu vant með stillt á FM957 - akkúrat þá kemur kvikmyndagetrun þar sem spurt er úr hvaða mynd setningin " We´re gonna need a bigger boat" sé! Sveinbjörn vissi þetta að sjálfsögðu um leið og ég hringdi að sama skapi um leið!

Við náðum inn og fengum 8 boðsmiða, hvorki meira né minna! Svo að það var einvalalið sem mætti með okkur í bíó í gær. Ég hef sjaldan hlegið jafn mikið - hugsa reyndar að félagsskapurinn hafi spilað soldið inn í þar sem við hlógum öll eins og vitleysingar. Annars fannst mér myndin bara þrælskemmtileg - reiknaði ekki með því að hlægja neitt en síðan sprakk ég úr hlátri reglulega - alltaf gaman að fara á myndir sem maður hefur engar væntingar til!

Setningin var að sjálfsögðu úr myndinni JAWS!

Hafdís skrifaði klukkan 9:02 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli