3.3.06
Við skötuhjúin vorum að enda við að horfa á Notebook - ég mútaði Sveinbirni til að horfa á hana með mér með því að hann fengi alveg að ráða hvaða myndir við sæjum næst og ég myndi horfa á þær. Er soldið smeik um að hann láti mig horfa á Sin City - hann segir reyndar að það sé ekki mynd fyrir mig en vill samt að ég horfi á hana! Ég verð bara að trúa honum!

The notebook er svakaleg! Ég hef ekki grátið svona mikið yfir mynd síðan ég fékk ekkann í bíóinu hérna um árið - sælla minninga! Afskaplega falleg mynd! Ætla pottþétt að lána mömmu hana og leyfa henni að horfa líka - hugsa að þetta sé alveg mynd fyrir hana og systur mína!

Annars er ég bara ofsalega þreytt, búið að vera mikið að gera hjá mér undanfarið og því lítið um svefn. Ég er alvarlega að hugsa um að leggja mig svo að ég sofni ekki kl.8 í kvöld! Annars má ég sofa út á morgun svo að ég hlýt að lifa þetta af! Þarf nefnilega eiginlega að læra eitthvað í dag þar sem það er annað prófa á mánudaginn - var í einu í morgun! Já, það er stuð að vera ég þessa dagana!

Að öðru leyti er ég bara kát - en þið?

Hafdís skrifaði klukkan 1:57 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli