|
|||||||||||||||||||
|
2.3.06
Takk fyrir mig!Gærdagurinn var yndislegur - einn besti afmælisdagur frá upphafi! Langar að þakka öllum sem að honum komu fyrir ógleymanlegan dag! Þið sem senduð mér kveðju, hvort sem það var á msn, með tölvupósti, sms eða í gegnum þessa síðu - takk fyrir, met þetta mikils. Það er alltaf gaman að sjá hvað maður á mikið af góðum vinum! Þið eruð frábær! Dagsins naut ég sem sagt í botn, ég hef alltaf haft gaman af því að fá athygli og það var engin undantekning frá því í gær. Dagurinn byrjaði á tíma í skólanum. Ég var að sjálfsögðu extra fín í tilefni dagsins og hafði fyrir því að spassla soldið í hrukkurnar. Um leið og ég kom í skólann færði ljúfan mín hún Agnes mér pakka - í honum reyndist vera ofsalega flott hálsmen sem ég er svakalega glöð með. Takk elskan! Tengdapabbi bauð okkur Sveinbirni út að borða í hádeginu - það var ofsalega gott, ég borðaði að sjálfsögðu á mig gat. Ég hef mjög sjaldan farið út að borða í hádeginu og hvað þá á afmælisdaginn minn - Potturinn og Pannan stó alveg fyrir sínu. Takk fyrir mig! Tengdapabbi varð síðan soldið geðveikur og gaf mér svakalega afmælisgjöf. Ég er ekki ennþá búin að átta mig á henni! TAKK! Eftir hádegi fór ég aftur í skólann og reyndi að fylgjast með í einum óskiljanlegasta tíma ever - erfitt en ég hafði þetta af! Skilaði ritgerðinni sem ég er búin að pæla alltof mikið í og láta hrella mig of mikið á næturna. Sveinbjörn færði mér gjöf eftir hádegi. Í henni leyndist vera einn sá mesti pæjusími sem ég hef augum litið. Ég er afskaplega lukkuleg með hann og geng nú um stolt og spjalla. Hann hefur allt sem sími þarf að bera og gott betur. Hann er með svakalega myndavél, mp3 spilara, útvarp, leikjum og öllum þeim græjum sem hægt er að hugsa sér og ég veit varla til hvers þær eru. En það sem mestu skiptir eru að sjálfsögðu flottheit hans. Síminn er líka að sjálfsögðu hvítur og honum fylgdi síðan blátt til skiptanna - lekkert? Já, ég veit! Hann uppskar þúsund kossa og knús! HEPPINN ;) Mamma, Amma og uppáhalds systir mín (og sú eina) mættu svo kátar með bakkelsi með sér - þær eru svo sætar. Móðir mín færði mér líka blóm í tilefni dagsins - dagurinn okkkar vil ég meina þar sem hún afrekaði það að koma mér í þennan heim - enda fjölhæf með meiru. Blómið heitir Gerber og ég var ekki lengi að átta mig á því að þær mæðgur vildu að ég færi að bera barn í þennan heim - gerðu það að bera er sem sagt stytt í gerber. Já, það fer ekki margt framhjá mér! Þeim verður þó ekki að ósk sinni í bili! Við smelltum okkur svo á æfingu um kvöldið og þar uppskar ég marga kossa og kveðjur - gleðilegt mjög! Við mátuðum líka nýja ÍR-búninginn sem er afskaplega snotur, huggulegur og lipur! Það átti að merkja gallann og við Sveinbjörn gældum lengi við að fá okkur Seberle og Mrs. Seberle en ákváðum að lokum að hafa okkar bara nafnlausa - mér leiðist þegar fólk er mikið að koma og biðja mig um eiginhandaráritanir, ég er svo viðkvæm í úlnliðunum. Tengdamamma sá svo um að fæða okkur um kvöldið. Mætti kát með American Style handa okkur - afskaplega ljúffengt - takk fyrir mig! Hún færði mér líka flottan standlampa og æðislegan kertastjaka fyrir mörg kerti - hún fylgist vel með konan þegar ég er að tala um hvað mig langar í! Ellen mætti síðan kát í köku í gærkvöldi, hún bauð sér reyndar sjálf en það var bara rétt áður en ég gat boðið henni að koma. Hún sá um að koma öllu afgangskreminu af kökunni á góðan stað - held að það heiti mjaðmir, hún talaði alla vega um að það færi þangað! Hún færði mér ofsalega flott listaverk sem er alveg ég - ég er alveg hrikalega ánægð með það og svo fékk ég líka æðislegan kertastjaka frá henni þannig að núna get ég glöð í hjarta kveikt á svona 20 kertum í einu - YNDISLEGT! Hildur nágranni, skólafélagi, æskuvinkona og hálfgerð uppeldissystir mín skokkaði yfir til að gæða sér á köku. Hún færði mér eina af betri gjöfunum sem til eru - marga kossa, knús og skemmtilegheit. Hún á það nefnilega til að hlægja að aulabröndurunum mínum þessi elska og fyrir það met ég hana mikils. Henni fannst meira að segja appelsínubrandarinn minn fyndinn - JEI ;) Faðir minn háaldraður og elskuleg systir mættu svo kát í partýið og létu öllum illum látum langt fram á nótt - þau eru soldið mikið eins og ég og þið getið ímyndað ykkur hvað gerist þegar þrjár brussur koma saman! Gott fólk, góður dagur, góðar gjafir, góðir kossar! Takk fyrir að vera til! Ég veit ekki hvar ég væri án ykkar! Ég hef greinilega staðið mig vel í því að velja mér vini - þið eruð best! Hafdís skrifaði klukkan 3:29 e.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||